Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Blaðsíða 36
Helgarblað 21.–24. mars 201436 Lífsstíll
Vanmetnir
uppreisnarseggir
Konur brjótast úr hversdeginum
og gera uppreisn gegn stríðandi
gildum á öllum tímum. Setja mark
sitt á tímann. Við minnumst Jó-
hönnu af Örk, Kleópötru, Elísabet-
ar fyrstu, Eleanor Roosevelt og Evu
Perón meðal annarra. Svo eru það
hinar sem ögra gildum dægur-
menningar, klæðaburði og siðum
og venjum. Þær eru vanalega ekki
taldar sem sérlega virðingarverðir
uppreisnarseggir en eru það engu
að síður og breyttu mörgu fyrir
daglegt líf kvenna. DV tók saman
lista yfir konur sem eru vanmetnir
uppreisnarseggir.
Burt með höftin
Þú ert ekki í
korseletti alla
daga. Þakk-
aðu Coco Chanel
sem þreyttist ógurlega á heftandi
klæðnaði fyrir konur síns tíma.
Hún sló í gegn í upphafi nítjándu
aldar þegar hún kynnti til sögunn-
ar þægilegan og alþýðlegan fatnað
og tengdi fatahönnun sína við bar-
áttu verkalýðs og minnihlutahópa.
Ögrandi
frumkvöðull
Josephine Ba-
ker var ekki öll
þar sem hún var
séð. Hún er fyrsta
konan af afrískum
uppruna til að leika í Hollywood
mynd, Zouzou. Þá var hún ögrandi
í framkomu sinni á sviði og kom
gjarnan fram hálfnakin og eitt sinn
í pilsi gerðu úr banönum. Sagn-
fræðingar slefa margir yfir dular-
fullri sögu Josephine Baker sem
hefur verið grunuð um njósnir og
annað dularfullt athæfi.
Harðkjarna og
alveg sama
Katharine Hep-
burn var fræg
fyrir orð sín: Ef
þú hlýðir öllum
reglum, þá missir
þú af öllu fjörinu. Þetta mottó lýsti
henni afskaplega vel, hún gaf skít í
kvenleg rómantísk gildi gullaldar-
ára Hollywood og klæddist jakka-
fötum og var oft hornótt í skapi.
Pönkprinsessan
Er hægt að
ímynda sér
níunda ára-
tuginn án
Madonnu? Það
er varla. Madonna
hefur til dagsins í dag hrist ræki-
lega upp í gildum um það hvernig
stúlkur eiga að haga sér. Hún gaf
gaf lítið fyrir prúðu stúlkuna og gaf
allt í trylltan kynþokka og pólitík.
Hildur Yeoman notar leyndardómsfulla fjölskyldusögu sem innblástur
H
ildur Yeoman er ein þeirra
hæfileikaríku íslensku
hönnuða sem tekur þátt í
Hönnunarmars í ár. Sýning
hennar kallast Yulia og er
helguð langömmu hennar frá New
Jersey sem stakk af frá fjölskyldu
sinni með mótorhjólagengi í Ame-
ríku á ungdómsárum sínum.
Sýningin opin öllum
Hildur heldur sýningu sína í
Hafnarhúsinu 28. mars. Sýningin
hefst klukkan níu um kvöldið og
er opin öllum. Hún er haldin degi
áður en Reykjavik Fashion Festival
hefst í Hörpu. „Ég hef oft tekið þátt
í Reykjavik Fashion Festival, en mig
langaði bara að prófa að gera þetta
öðruvísi í ár, Hafnarhúsið bauð okk-
ur að sýna, svo það var alveg full-
komið.“
Dulúð yfir fjölskyldusögunni
Mikil leynd hvílir yfir sýningunni
sem er sprottin úr leyndardóms-
fullri ættarsögu Yeoman-fjöl-
skyldunnar.
„Það er margt á huldu í þessari
fjölskyldu, ákveðin mystík hvílir yfir
henni,“ segir Hildur sem á ættir að
rekja til Bandaríkjanna en afi henn-
ar, sonur Yuliu, kom til Íslands með
hernum á sjöunda áratugnum.
„Sýningin er í dekkri tónum en
ég hef gert áður og efni hennar er
leyndarmál. Það litla sem ég get
sagt snýr að langömmu sem var
húsmóðir áður en hún ákvað að
slást í för með utangarðsmönnum
á mótorhjólum,“ segir Hildur en um
sýninguna hefur hún einnig áður
sagt að hún fjalli í grunninn um
frelsi einstaklingsins til að hafna
borgaralegum lífsgildum.
„Það er flottur hópur sem stend-
ur að sýningunni með mér, íslenskir
dansarar undir stjórn Sigríðar Soffíu
Níelsdóttur og myndlistarmennirn-
ir Daníel Karl og Helgi Már sjá um
sviðsmyndina svo eitthvað sé nefnt.
„Makeup-artistinn“ Ísak Freyr kem-
ur sérstaklega frá London til að taka
þátt í þessu með okkur. Þetta eru allt
miklir snillingar og vinir mínir sem
ég hef unnið með áður.“
Tekur einnig þátt í
samstarfsverkefni
Nóg er um að vera næstu daga hjá
Hildi sem tekur einnig frekari þátt
í Hönnunarmars og tekur þátt í
samstarfsverkefninu Línur – sýn-
ingu Hildar, Barkar Sigþórssonar
og Ellenar Loftsdóttur. Sýningin
verður opnuð í Hörpu laugar-
daginn 29. mars klukkan níu. Á
sýningunni er blandað saman
tveimur tjáningarformum; teikn-
ingu og ljósmyndun. n
Kristjana Guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is
Þyrí Huld Hér má sjá einn dansaranna sem
koma að verkinu, Þyrí Huld, í flíkum eftir Hildi.
Falleg hönnun Öll umgjörð sýningarinnar
er hin skemmtilegasta og forvitnilegasta.
Að henni kemur fjöldi listamanna sem
Hildur hefur áður unnið með.
Frá fyrri sýningu Hildur hefur áður tekið
þátt í RFF sýningar hennar þykja afbragðs
skemmtun. Gestir á sýningu hennar í ár eiga
líka von á góðu.
Dekkra yfirbragð Á sýningu Hildar
Yeoman mun gæta dekkra yfirbragðs en
áður. Mikil leynd hvílir yfir sýningunni.
Notar fjöl-
skyldusöguna
sem innblástur
Leyndardómsfull
fjölskyldusaga
Hildar er rót sýn-
ingarinnar Yulia.
MYND SaGa SiG
Evonia er hlaðin bæti-
efnum sem næra hárið
og gera það gróskumeira.
Myndirnar hér til hliðar
sýna hversu góðum árangri
er hægt að ná með Evonia.
Evonia
www.birkiaska.isFyrir Eftir
Evonia eykur
hárvöxt með því
að veita hárrótinni
næringu og styrk.
Bætiefni ársins í Finnlandi 2012.
Harington fyrir Choo
G
ame of Thrones- stjarnan Kit
Harington hefur verið valinn
andlit nýju herralínu breska
fatahönnuðarins Jimmy
Choo. Harington mun verða and-
lit auglýsingaherferðar fyrir fyrsta
herrailm Choo sem og skó- og
töskulínu hönnuðarins. Þá verða
sólgleraugu einnig hluti af hinni
væntanlegu línu, en þau eru gerð í
samstarfi við sólgleraugnaframleið-
andann Carrera.
„Kit er fullkomin ímynd Jimmy
Choo-karlmannsins,“ segir Sandra
Choi, yfirhönnuður merkisins um
valið á Harington.
„Hann hefur náttúrulega og heill-
andi karlmennsku og áreynslulaust
skyn á stíl. Svöl framkoma hans og
ólgandi munúð gefa hugmynd um
sannan breskan herramann.“
Harington er að sögn afar ánægð-
ur með valið og sagði um þetta nýja
samstarf á dögunum:
„Ég var mjög spenntur að vera
valinn andlit merkis sem er í svo
miklum metum og að eiga hlut í því
að ákvarða hver Jimmy Choo-karl-
maðurinn er.“
Auglýsingarnar með Harington
verða settar í loftið í september næst-
komandi, en þá kemur herrailmur
Jimmy Choo á markað. n
horn@dv.is
„Kit er fullkomin ímynd Jimmi Choo-karlmannsins“
Kit Harington Að sögn Choi er Harington
hinn fullkomna ímynd Jimmy Choo-karl-
mannsins.
Langamma stakk af
með mótorhjólagengi