Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Qupperneq 43
Helgarblað 21.–24. mars 2014 Sport 43
Ef þau halda uppteknum hætti
Þetta gæti orðið lokaniðurstaðan ef stigasöfnun helst óbreytt
n Manchester City 84
n Chelsea 84
n Arsenal 81
n Liverpool 81
Hér má sjá hvernig lokastaðan mun líta út ef liðin halda dampi. Hér er gert ráð fyrir að liðin
haldi áfram að hala inn jafn mörgum stigum að meðaltali í leik og þau hafa gert til þessa -
óháð því hverjir andstæðingarnir eru. Miðað við þetta ræðst lokaniðurstaðan á markatölu.
ChElsEa vErður mEistari
n mourinho og félagar eiga auðveldustu andstæðingana eftir n meistaradeildin gæti hins vegar komið í bakið á þeim n City hefur tapað fæstum stigum
heimavelli í vetur. Leikirnir falla þess
vegna í erfiða flokkinn.
Ólík prógrömm
Liverpool, Arsenal og Manchester
City eiga svolítið ólík prógrömm eftir,
þótt heildarniðurstaðan sé áþekk.
Liverpool á engan auðveldan leik
eftir, samkvæmt skilgreiningunni
(reyndar er Sunderland á mörkun-
um) en engan erfiðan heldur, jafn-
vel þótt City og Chelsea eigi eftir að
koma í heimsókn.
Arsenal á eftir að fara á tvo afar
erfiða útivelli (á Stamford Bridge
og Goodison Park) en eiga tvo auð-
velda leiki líka, gegn Swansea og
West Brom heima. Aðrir leikir eru
miðlungs erfiðir.
Manchester City á fjóra auðvelda
leiki eftir, samkvæmt formúlunni, en
þrjá afar erfiða útileiki. Það getur því
brugðið til beggja vona í þessari jöfn-
ustu deildarkeppni í Evrópu þegar
horft er til stóru deildanna.
Álag á leikmönnum Chelsea?
Chelsea á eins og áður segir auðveld-
ustu leikina eftir, af toppliðunum
fjórum. Vinni þeir Arsenal um
helgina ryðja þeir stórri hindrun úr
veginum. Þá eiga þeir bara eftir að
mæta einum andstæðingi sem fær
að meðaltali 1,4 stig úr leik. Það sem
gerir stöðu Chelsea flókna, umfram
hin liðin, er sú staðreynd að liðið er
komið í 8-liða úrslit Meistaradeildar-
innar. Jafnvel þótt liðið eigi fæsta
leiki eftir munu úrslitaleikir í 8-liða
úrslitum Meistaradeildarinnar, og
jafnvel aðrir tveir í undanúrslitum,
vafalaust geta sett strik í reikninginn.
Leiðin hjá lærisveinum Mourinhos
er því ekki alveg bein og breið. n
arsenal
– 62 stig
n spilaðir leikir: 29
n sigrar: 19
n Jafntefli: 5
n töp: 5
n titlar: 13
n síðast meistarar: 2004
Leikir sem eru eftir: fimm heimaleikir, fjórir útileikir
Leikir gegn topp fimm: 2
Arsenal vann góðan sigur á grönnum sínum í Tottenham um helgina en verkefnið um
helgina verður enn stærra þegar liðið heimsækir Chelsea. Ef liðið ætlar sér að eiga ein-
hverja von um sigur í deildinni verður það að leggja Chelsea að velli. Eftir Chelsea-leikinn
fær Arsenal Swansea (14. sæti) í heimsókn áður en Manchester City kemur í heimsókn
þann 30. mars – annar leikur sem Arsenal verður að vinna. Eftir þann leik mætir liðið
Everton á Goodison Park – bananahýði sem auðvelt er að renna á, ef svo má segja.
Þægilegri leikir taka við eftir ferðina til Goodison; liðið mætir að vísu Wigan í undanúr-
slitum bikarkeppninnar en síðustu fimm leikir Arsenal í deildinni eru gegn West Ham (12.
sæti), Hull (13. sæti), Newcastle (9. sæti), West Brom (16. sæti) og Norwich (15. sæti).
Ályktun: Arsenal verður að minnsta kosti að ná stigi gegn Chelsea um helgina.
Heimaleikurinn gegn City er samt leikur sem verður að vinnast. Ef allt er eðlilegt ætti
liðið að ná í 15 stig úr síðustu fimm heimaleikjum sínum en Newcastle og West Ham eru
verðugir andstæðingar sem vel gætu strítt Arsenal.
manchester City
– 60 stig
n spilaðir leikir: 27
n sigrar: 19
n Jafntefli: 3
n töp: 5
n titlar: 3
n síðast meistarar: 2012
Leikir sem eru eftir: sex heimaleikir, fimm útileikir
Leikir gegn topp fimm: 2
Manchester City er í raun með þetta allt í hendi sér, ef liðið vinnur þá leiki sem það á eftir
verður það meistari. City er án Sergio Aguero þessa dagana og á auk þess erfiða leiki
eftir. Liðið er í sömu stöðu og Liverpool að því leyti að liðið getur einbeitt sér að úrvals-
deildinni. Liðið mætir Fulham á heimavelli um helgina áður en það fer á Old Trafford og
mætir Manchester United. Þar á eftir koma leikir gegn Arsenal á útivelli og Liverpool á
útivelli hálfum mánuði síðar. Níu stig úr þessum leikjum er líklega til of mikils mælst,
en hafa ber í huga að liðið má við því að tapa stigi eða stigum úr þessum leikjum. Eftir
þessa erfiðu útileiki á liðið nokkuð þægilega leiki, að undanskildum útileik gegn Everton
þar sem það einmitt tapaði á síðustu leiktíð. Síðustu tveir leikirnir eru heimaleikir gegn
Aston Villa (10. sæti) og West Ham (12. sæti).
Ályktun: Fjórir af fimm síðustu útileikjum City verða væntanlega mjög strembnir;
á Old Trafford, Emirates, Anfield og Goodison Park. Ef liðið heldur áfram þeirri góðu
spilamennsku sem einkennt hefur liðið lengst af ætti það að geta fengið allavega níu
stig úr þessum leikjum, ef ekki meira. Þessir leikir munu skera úr um það hvort City verður
meistari eða ekki.
Chelsea Arsenal1,93
Palace
1,33
Stoke
0,47
Swansea
1,13
Sunderland
1
Liverpool
2,64
Norwich
0,53
Cardiff
1,26 1,29
liverpool Cardiff1,26
Sunderland
1
Tottenham
1,93
West Ham
1,29
Man City
1,71
Norwich
1,4
Chelsea
1,67
Palace
1,33
Newcastle
1,47 1,45
arsenal Chelsea2,73
Swansea
0,86
Man City
1,71
Everton
2,36
West Ham
0,87
Hull
1,27
Newcastle
1,47
West Brom
0,86
Norwich
1,4 1,50
man City Fulham0,73
Man Utd
1,5
Arsenal
2,36
South-
ampaton
1,47
Liverpool
2,64
Sunderland
1
West Brom
0,86
Palace
1,33
Everton
2,36
Aston Villa
1,21
West Ham
0,87 1,48
Ú = Útivöllur
h = Heimavöllur
Auðveldur leikur
*Andstæðingur fær 0–1
stig í leik að meðaltali
Miðlungs leikur
*Andstæðingur fær 1–2 stig
í leik að meðaltali
Erfiður leikur
*Andstæðingur fær 2–3 stig
í leik að meðaltali
leikir sem toppliðin fjögur eiga eftir Meðaltal
Taflan sýnir meðaltals stigafjölda andstæðinga liðanna fjögurra. Til dæmis er
síðasti leikur City heimaleikur gegn West Ham. West Ham fær að jafnaði 0,87
stig út úr sínum útileikjum. Chelsea á eftir að mæta liðum sem fá að meðaltali
1,29 stig út úr sínum viðureignum, ýmist heima eða að heiman.
h
Ú
Ú
Ú
Ú
Ú
Ú Ú
Ú
h h
h
h
h h
Ú
h
h
h h h h h hÚ Ú Ú Ú Ú
h h h h
h
Ú ÚÚ
Muriel orðaður
við Liverpool
Þó að Liverpool sé í harðri titil-
baráttu á Englandi virðist Brend-
an Rodgers, stjóri liðsins, vera far-
inn að leggja línurnar fyrir næsta
tímabil. Breskir fjölmiðlar greindu
frá því á fimmtudag að Rodgers
væri að undirbúa 17 milljóna
punda tilboð í kólumbíska fram-
herjann Luis Muriel sem leikur
með Udinese á Ítalíu. Muriel
hefur skorað 15 mörk í 39 leikj-
um fyrir Udinese. Þó að Daniel
Sturridge og Luis Suarez séu besta
framherjapar deildarinnar, er
Rodgers sagður vilja fá verðugan
leikmann til að fylla í skarðið ef
annar hvor þeirra meiðist.
Hazard vill fá
Barca eða Real
Belgíski galdramaðurinn Eden
Hazard hjá Chelsea segir að óska-
mótherji hans í 8-liða úrslitum
Meistaradeildarinnar sé annað-
hvort Barcelona eða Real Madrid.
Ástæðan er sú að Hazard vill vita
hvar hann stendur miðað við þá
allra bestu í knattspyrnuheimin-
um, Cristiano Ronaldo og Lion-
el Messi. Dregið verður í 8-liða
úrslitin í dag, föstudag, en auk
Chelsea, Real og Barca eru PSG,
Manchester United, Borussia
Dortmund, Bayern München og
Atletico Madrid í pottinum. „Ég
átta mig á því að að ég get keppt
við Messi og Ronaldo á næstu
árum, ef ég legg mig meira fram.
Ég veit ekki hvort ég verði jafn
góður og þeir. Það verður erfitt,
en áskorun sem ég er reiðubúnn
að taka.“
Reiknar með að
halda áfram
Tim Sherwood, knattspyrnu-
stjóri Tottenham, segir að hann
reikni ekki með öðru en að halda
áfram með liðið á næsta tímabili.
Sherwood tók við liðinu þegar
Andre Villas-Boas var látinn fara,
en óvissa hefur ríkt um fram-
tíð Sherwoods í ljósi þess að
spilamennska Tottenham hefur
valdið vonbrigðum. „Þetta er
ekki í mínum höndum, en ég
reikna með að halda áfram,“ segir
hann. Sherwood byrjaði vel hjá
Tottenham og náði í 16 stig af 18
mögulegum úr fyrstu sex leikj-
um sínum. Síðan þá hefur sigið
á ógæfuhliðina og á Tottenham
svo gott sem enga möguleika á
sæti í Meistaradeildinni á næsta
tímabili.