Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Síða 44
Helgarblað 21.–24. mars 201444 Menning
Ofurhetjur á
kvikmyndahátíð
Alþjóðleg barnakvikmyndahátíð
verður haldin í annað sinn í Bíó
Paradís dagana 20.–30. mars.
Hátíðin var opnuð með pompi
og prakt í gær, fimmtudag. Jón
Gnarr borgarstjóri setti hátíðina
en verndari hennar er Vigdís
Finnbogadóttir.
Aðalmynd hátíðarinnar er Ant-
boy sem fjallar um hinn 12 ára
gamla Palla sem bitinn er af maur
og öðlast við það ofurhetjukrafta.
Myndin hefur hlotið fjölda verð-
launa á erlendum kvikmyndahá-
tíðum og hefur hlotið einróma lof
gagnrýnenda. Gestir voru hvattir
til að mæta í ofurhetjubúningi og
létu margir verða af því, bæði þeir
yngri og eldri.
Vegleg dagskrá
á Bókahátíð á
Flateyri
Um næstu helgi, 21.–22. mars,
mun fara fram Bókahátíð á Flat eyri
í fyrsta sinn. Áherslan í ár verður á
ljóð og ljóðaformið. Meðal helstu
viðburða má nefna upplestur á
Vagninum og fiskiveislu í frystihús-
inu þar sem öllum landsmönnum
verður boðið í glæsilega fiskveislu í
boði Arctic Odda.
„Hugmyndin að hátíðinni varð
til út frá hugmyndum um að efla
Bókabúðina á Flateyri, sem langafi
minn, Jón Eyjólfsson, stofnaði fyrir
tæpri öld, og hefur verið í rekstri
síðan, sem verður að teljast ansi
fátítt á ekki fjölmennari stað en
Flateyri. Hátíðinni er ætlað að
lýsa upp svartasta skammdegið
með lítilli, skrítinni og skemmti-
legri bókmenntahátíð yfir vetrar-
mánuðina,“ segir Eyþór Jóvinsson,
aðstandandi hátíðarinnar.
Þeir rithöfundar sem koma
fram í ár eru: Bjarki Karlsson,
Bjarni Bernharður Bjarnason,
Björk Þorgrímsdóttir, Björn Haf-
berg, Eiríkur Örn Norðdahl,
Guðmundur Hjaltason, Hörður
Andri Steingrímsson og Kristín
Eiríksdóttir.
Frekari upplýsingar um höf-
undana má nálgast á heimasíðu
hátíðarinnar, bokahatid.is, þar
má einnig nálgast ýtarlega dag-
skrá fyrir hátíðina. Ókeypis er á
alla viðburði hátíðarinnar.
V
ið ætlum að bjóða ferða-
mönnum að heimsækja ís-
lenskt heimili og fræðast
um leið með tali og tónum,“
segir Ásta Kristrún Ragnars-
dóttir sem ásamt eiginmanni sínum,
Valgeiri Guðjónssyni, sem söng um
árið um Stokkseyrarbakka, er flutt á
slóðir fjölskyldu sinnar, á Eyrarbakka.
Þar ætla hjónin að reka menningar-
tengda ferðaþjónustu og vinna nú
hörðum höndum að því að standsetja
húsið Búðarhamar sem þau ætla sjálf
að búa í og nota undir starfsemina.
Hjónin eru ekki ókunn ferðaþjónustu
því undanfarin ár hafa þau staðið fyr-
ir menningartengdri ferðaþjónustu
af ýmsu tagi en þá á höfuðborgar-
svæðinu. Núna bjóða þau fólki að
koma heim til sín og upplifa íslenska
heimilis stemmingu.
„Við ætlum að vera með eitt her-
bergi prívat fyrir okkur annars mega
gestirnir fara út um allt. Við ætlum að
vera með örlitla nýjung í ferðaþjón-
ustu, sem við höfum reyndar verið að
gera sjálf áður, svona stefnumót við
landann fyrir erlenda gesti. Þau koma
og hitta raunverulegt íslenskt fólk og
sjá íslenskt heimili ásamt því að fræð-
ast,“ segir hún.
Söngvaskáldið Valgeir fær sín
einnig notið og mun að sjálfsögðu
syngja fyrir gestina. Einnig verða þau
með tónleikaröð og fyrstu tónleikarn-
ir eru næstu helgi í kirkjunni á Eyrar-
bakka. Þar koma fram ásamt Valgeiri
þeir Raggi Bjarna og Jón Ólafsson.
Mun svo í framhaldinu vera tónleika-
röð næstu sunnudaga á eftir og hvet-
ur Ásta fólk til þess að fylgjast með.
„Þetta er skemmtilegt bæði fyrir Ís-
lendinga og erlenda ferðamenn og
það verður margt í gangi. Þetta er svo
sögulegur staður og mikið sem hægt
er að segja frá,“ segir hún spennt fyrir
framhaldinu. n
viktoria@dv.is
„Stefnumót við landann“
Nótan í Hörpu
Uppskeruhátíð tónlistarskóla
landsins verður haldin í fimmta
sinn sunnudaginn 23. mars í
tónlistarhúsinu Hörpu. Hátíðin
gengur undir nafninu „Nótan –
uppskeruhátíð tónlistarskólanna“
og eru tónleikarnir á sunnu-
daginn lokapunktur hátíðarinnar
sem hefur staðið yfir að meira eða
minna leyti frá áramótum.
n Ásta Kristrún og Valgeir flutt á Eyrarbakka n Bjóða fólki að upplifa íslenska heimilisstemmingu
Hjónin Þau Ásta Kristrún og
Valgeir eru nú flutt á Eyrar-
bakka en þangað á Ásta
ættir að rekja. Mynd Sigtryggur Ari
„Heyrið mig öll, þetta
eru skemmdarverk!“
n Rafmagnað og hlýtt andrúmsloft á baráttutónleikum n Pólitíkusar ættu að hlusta á Björk í stað þess að grobba sig af henni
Þ
að var bæði spennuþrungið
og hátíðlegt andrúmsloft í
Eldborg í Hörpu á þriðju-
dagskvöldið þegar Björk hóf
tónleikana Stopp á laginu
Jóga. Blaðamaður játar að þrátt fyrir
að hafa ekki fylgst með tónlistarferli
Bjarkar náið undanfarin ár tekur
fölskvalaus aðdáun fermingarbarns-
ins innra með honum alltaf völdin
þegar hún mætir á sviðið.
Tónleikarnir voru haldnir til að
krefjast þess að nýjum lögum um
náttúruvernd, sem taka áttu gildi
þann 1. apríl næstkomandi verði
ekki fórnað, auk þess að safna pen-
ingum fyrir Náttúruverndarsamtök
Íslands og Landvernd. Fyrir tónleik-
ana hafði blaðamaður velt fyrir sér
hvernig stemning yrði til í sal þar
sem saman blönduðust aðdáend-
ur tónlistarmannanna á sviðinu og
svo fólk sem er brennandi í náttúru-
vernd án þess að fylgjast endilega
svo mikið með tónlist.
Hlýtt og dramatískt
andrúmsloft
Þegar fyrstu tónar Jóga byrjuðu að
hljóma var augljóst að slíkar vanga-
veltur voru rugl, lagið er svo nátengt
baráttunni gegn eyðileggingu lands-
ins og gamaldags hugsunarhætti,
allavega í huga þeirrar sem hér skrif-
ar sem man eftir að hafa séð mynd-
bandið spilað á tjaldi á baráttufundi
fyrir náttúru Íslands seint á síðustu
öld.
Sjónræn hönnun tónleikanna
var í höndum Hrundar Atladóttur
og Ingu Maríu Brynjarsdóttur. Um-
gjörðin var ótrúlega falleg og jók á
hlýtt og dramatískt andrúmsloftið í
Hörpunni. Yfir tjaldið bak við tón-
listarmennina liðu klippimyndir af
ýmsum dýrum og fuglum úr náttúru
Íslands sem voru settar saman úr
hreyfimyndum úr náttúrunni, foss-
um og laufskrúði.
Milli tónlistaratriða voru spiluð
atriði úr bíómyndinni Drauma-
landinu, til dæmis lestur Hall-
dórs Laxness á Hernaðinum gegn
landinu, og fleira.
Andri Snær ekki öfundsverður
Andri Snær Magnason var kynnir og
var ekki öfundsverður af því að stíga
á svið á eftir hverju kraftmiklu tónlist-
aratriðinu á fætur öðru því þó hug-
vekjur hans séu alltaf góðar, snarpar
og greinandi þá verður svona inn-
koma alltaf til að slíta sundur stemn-
inguna. Kannski er það alltaf eðli bar-
áttutónleika að flakka í stemningu.
Myndbrot sem sýndi Guð-
mund Pál Ólafsson rífa úr bók sinni
Hálendið, blaðsíður með myndum
af þeim svæðum sem sótt hefur verið
að til virkjana var ótrúlega áhrifamik-
ið. Blaðamaður sem hefur verið alinn
upp við að fara vel með bækur velti
fyrir sér hve eyðilegging landsins er
sorgleg á stjarnfræðilegum skala,
miðað við tilfinningarnar sem vakna
við að horfa á bók með myndum af
sama landi eyðilagða.
Kvikmynd í lit frá hreindýra-
könnunarferð á Kringilsárrana sum-
arið 1943, sem Eðvarð Sigurgeirsson
tók, var sýnd á meðan Mammút lék
og var bæði falleg og fróðleg. Myndin
bar titilinn Á hreindýraslóðum – ör-
æfatöfrar Íslands og merkilegt að
hún hafi ekki áður komið fyrir augu
almennings.
Patti og rafmagnað
andrúmsloft
Allir tónlistarmennirnir skiluðu sínu
vel. Patti Smith hlaut standandi lófa-
tak eftir sinn flutning en andrúms-
loftið var rafmagnað þegar hún söng
lag Lou Reed Perfect day í minn-
ingu hans og eins til minningar um
22 ára Patti Smith sem heimsótti Ís-
land í fyrsta skipti og féll í stafi yfir því
hvað það var afskekkt og lítt snortið.
Highlands, Mammút, Of Monsters
and Men og Samaris voru kraftmik-
il og skemmtileg og Lykke Li heill-
aði salinn með frábærum söng og al-
mennum töffaraskap.
Það kom svo í hlut Retro Stefson
að ljúka tónleikunum og átti það
vel við því hljómsveitin er örugg-
lega eitt skemmtilegasta partíband
landsins enda var það fyrsta verk
Unnsteins Manuels að fá salinn til
að standa á fætur og dansa með.
Þegar talið var í lokalagið þustu
Stopp-Gætum garðsins
upplýsingar: Baráttutónleikar í Eldborg.
Highlands, Patti Smith, Mammút, Retro
Stefson, Of Monsters and Men, Björk,
Samaris og Lykke Li.
Söfnun fyrir Landvernd og Náttúru-
verndarsamtök Íslands
Auður Alfífa Ketilsdóttir
fifa@dv.is
Tónleikar Hlustið á Björk Áburðar-
verksmiðjupólitíkusarnir ættu
kannski að hlusta á hvað hún
segir milli þess sem þeir grobba
sig af verkum hennar á hátíðis-
dögum. Mynd Sigtryggur Ari