Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Blaðsíða 45
Helgarblað 21.–24. mars 2014 Menning 45
L
iðin eru 400 ár frá fæðingu Hall-
gríms Péturssonar, prests og
sálmaskálds. Af því tilefni ætlar
Megas, í samstarfi við stóran og
fjölbreyttan hóp listamanna, að flytja
frumsamin lög sín við alla fimmtíu
Passíusálma Hallgríms. Sálmarnir
verða fluttir í þremur hlutum á þrenn-
um tónleikum í Grafarvogskirkju í
apríl og hápunkturinn er lokatón-
leikarnir á föstudaginn langa. Hluti
sálmalaganna hefur verið fluttur áður
en þetta er í fyrsta sinn sem þau eru
flutt í heild sinni, 41 ári eftir að Megas
samdi þau. Flytjendur eru af ýmsum
toga svo búast má við alveg glænýrri
nálgun á Passíusálmana. Auk Megas-
ar taka þátt í flutningnum söngkon-
an Magga Stína, hljómsveitirnar
Moses Hightower, Píslarbandið og
Caput-tónlistarhópurinn og kórarnir
Söngfjelagið og Vox Populi ásamt
stúlknakór. Hilmar Örn Agnarsson er
listrænn stjórnandi tónleikanna.
Sálmalögin samdi Megas árið
1973, þau einkenna allt frá ballöðum
til kántrítónlistar og ljóst að svona
hafa Passíusálmarnir aldrei hljómað
fyrr.
Magga Stína verður helst Megasi
til halds og trausts og bregður sér
meðal annars í hlutverk Jesú. n
kristjana@dv.is
Í
þýskum fjölmiðlum orðið
„Anschluss“ notað þegar fjall-
að er um tilraun Rússa til að
innlima Krímskaga. Sama
orð var notað þegar Þjóð-
verjar innlimuðu Austurríki árið
1938. En líkindunum lýkur ekki
þar. Rétt eins og Þjóðverjar fyrir
hundrað árum byggðu Rússar á
tímum Sovétríkjanna sjálfsmynd
sína á gríðarlegum hernaðar-
mætti og áhrifum í alþjóðamál-
um. Því var fall Sovétríkjanna
mörgum áfall, rétt eins og Þjóð-
verjar vissu varla hvað þeir áttu
af sjálfum sér að gera eftir ósigur
sinn í fyrri heimsstyrjöld.
Til að bæta gráu ofan á svart
búa stórir hópar rússneskumæl-
andi fólks, um 30 milljónir,
utan núverandi landamæra
Rússlands. Margir vilja heldur
tilheyra móðurlandinu, eins og
reyndin var með þýskumælandi
hópa eftir 1918. Alþjóðasamfé-
lagið hafði lítið um það að segja
þegar Austurríki og Súdetahér-
uð Tékkóslóvakíu voru innlimuð
í Þýskaland. Staðan á Krím er því
flókin. Annars vegar vill almenn-
ingur þar tilheyra Rússlandi, en
hins vegar tilheyrir svæðið lög-
formlega Úkraínu og það getur
haft áhrif fyrir svæðið í heild fái
Rússar að leggja það undir sig.
Pútín má ekki við
að tapa skákinni
Pútín hefur löngum sýnt sig fær-
an í að tefla á ystu nöf og athuga
hversu langt hann kemst. Hann
réðst inn í Georgíu árið 2008 og
tvö héruð lýstu yfir sjálfstæði í
kjölfarið án afskipta alþjóðasam-
félagsins. Og honum tókst að
koma í veg fyrir að Bandaríkja-
menn hæfu loftárásir á banda-
mann hans, Assad, í Sýrlandi með
því að fá hann til að afhenda efna-
vopn sín, sem var mikill diplómat-
ískur sigur fyrir Rússa. En mun
hann vinna þessa skák líka?
Evrópusambandið hótar við-
skiptaþvingunum sem það má
illa við og myndi stofna efnahags-
bata í hættu, en Þjóðverjar fá um
þriðjung gass síns frá Rússlandi.
Vissulega myndi þetta koma
Rússlandi illa líka, en Pútín má
ekki við því að tapa skákinni sem
yrði honum mikill álitshnekk-
ir. Nema Úkraínumenn geri eitt-
hvað gerræðislegt og ráðist gegn
honum eru líkur á að Evrópu-
sambandið sætti sig fyrr eða
síðar við orðinn hlut, enda lítill
áhugi á viðskiptaþvingunum og
enn minni á hernaðar aðgerðum.
Anya Khait er nýkominn aftur
frá Moskvu til Þýskalands, þar
sem hún stundar nám ásamt eig-
inmanni sínum og hefur nýlega
fest kaup á íbúð. „Í Rússlandi
myndi manni aldrei detta í hug
að kaupa íbúð, en hér í Leipzig er
það hægt,“ segir hún.
Enginn millivegur
En hvernig er stemmingin fyrir
austan?
„Það eru allir annaðhvort
með eða á móti íhlutun á Krím-
skaga. Það er enginn millivegur.
Mínir vinir eru flestir mennta-
menn og listamenn og því frið-
arsinnar. 50.000 manna friðar-
mótmæli voru haldin, sem voru
hart barinn niður af lögreglunni
í Moskvu. Flestir sem geta eru að
íhuga að flytja til útlanda. En aðr-
ir eru mjög þjóðernissinnaðir og
sjá Bandaríkin sem óvin sem er
að vasast í öllu.“
Og hvað heldur hún að muni
gerast næst?
„Það er erfitt að segja. Staða
Pútíns er sterk í bili, en ég held
að ef langvarandi efnahags-
þrengingar hljótist af þessu muni
Pútín missa vinsældir sínar og
kannski verða allsherjarmótmæli
og bylting eins og í Úkraínu. En
það er erfitt að sjá með hvaða
hætti það myndi verða eða hvaða
hópar myndu verða ofan á. Ég
er að minnsta kosti ekki aftur á
leiðinni heim í bili,“ segir Anya.
„Ein rússnesk grínsíða sýnir
varúðarmerki á sígarettupakka,“
segir eiginmaður hennar, Ilya.
„Þar segir: „Ekki nóg með að
þér sé stjórnað af Pútín, heldur
ætlarðu að eyðileggja heilsu þína
líka.“
Það er þó önnur söguleg
samlíking við Þýskaland sem
hafa ber í huga. Þann 7. október
1989 hélt Austur-Þýskaland upp
á 40 ára afmæli sitt með miklu
húllumhæ. Ári síðar var landið
hætt að vera til. Ef til vill er
hinn mikli kostnaður í kringum
Ólympíuleikana örvæntingarfull
aðgerð einvalds til að kaupa sér
vinsældir, á meðan betur hefði
mátt eyða peningunum í að bæta
hag almennings. Eða kannski
voru Ólympíuleikarnir, eins og
í Þýskalandi árið 1936, aðeins
einn liður í átt að aukinni út-
þenslu. Hvor samlíkingin reynist
réttari mun tíminn leiða í ljós. n
Megas og Passíusálmarnir
Magga Stína bregður sér í hlutverk Jesú
Refskák Pútíns
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Pistill „Flestir sem geta
eru að íhuga að
flytja til útlanda.
Staða
Pútíns „Ein
rússnesk grínsíða
sýnir varúðarmerki
á sígarettupakka,“
segir eiginmaður
hennar, Ilya. „Þar
segir: „Ekki nóg með
að þér sé stjórnað af
Pútín, heldur ætlarðu
að eyðileggja heilsu
þína líka.“
„Heyrið mig öll, þetta
eru skemmdarverk!“
n Rafmagnað og hlýtt andrúmsloft á baráttutónleikum n Pólitíkusar ættu að hlusta á Björk í stað þess að grobba sig af henni
svo allir aðstandendur á svið og
djömmuðu með. Lokalagið var vel
valið líka, Beastie Boys-slagarinn
Sabotage. „Listen all of y'all it's a
sabotage!“ – „Heyrið mig öll, þetta
eru skemmdarverk!“.
Áburðarverksmiðjupólítíkusar
ættu að hlusta á Björk
Það er nefnilega ekkert annað en
skemmdarverk að ætla að skera
sundur hjarta landsins með há-
spennulínum og uppbyggðum
vegi, það er undirbúningur að
skemmdarverkum að afnema
löngu tímabær lög um náttúru-
vernd. Blaðamaður efast orðið
um að tilfinningarök virkjana-
sinna séu sönn lengur, afsannaði
Kárahnjúkadeilan það ekki. Þessi
barátta snýst ekki um atvinnu, hún
snýst um hagsmuni. Hagsmuni
peningaaflanna sem skilja fram-
farir sem kílóvött og áburðarverk-
smiðjur eða hagsmuni þeirra sem
skilja hin sönnu verðmæti í lítt
snortinni náttúru. Blessunarlega
getum við þakkað fyrir elju fjölda
náttúruverndarsamtaka hérlendis
og fólks eins og Bjarkar Guðmunds-
dóttur sem er óþreytandi í að benda
á mikilvægi náttúrunnar fyrir okkur
öll og fyrir framtíðina. Áburðarverk-
smiðjupólitíkusarnir ættu kannski
að hlusta á hvað hún segir milli
þess sem þeir grobba sig af verkum
hennar á hátíðisdögum. n
Patti Smith Söng Perfect Day til
heiðurs gömlum vini. Mynd SiGtryGGur Ari
Lykke Li
Heillaði salinn.
retro Stefson Tók
lokalagið á tónleikunum.
Mammút Á hreindýra-
slóðum – öræfatöfrar
Íslands var sýnd undir
tónum Mammúts.