Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Blaðsíða 56
Helgarblað 21.–24. mars 2014
23. tölublað 104. árgangur Leiðbeinandi verð 659 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Mikki refur!
„Best hrun ever“
n Blaðamaðurinn Andrés
Magnússon skýtur fast á Árna
Páll Árnason, formann Sam
fylkingarinnar, á Facebooksíðu
þess síðarnefnda. Árni Páll
skrifar stöðuuppfærslu þar sem
hann gagnrýnir hve mikið nú
verandi ríkisstjórn einblíni á
verk fyrri ríkisstjórnar. „Þeir rétt
læta alla stefnumörkun, allar
sínar gerðir og aðgerðaleysi með
vísan til síðustu ríkisstjórnar,
hvað hún gerði eða gerði ekki,“
skrifar formaðurinn. Andrés er
þó fljótur að svara og skrifar:
„Við megum ekki gleyma því, að
hér varð hrun. Risahrun. Best
hrun ever. Bara ekki prófa sam
ræðustjórnmálin aftur. OK?“
Netverjar björguðu
Jóhannesi
n Netverjar voru ekki lengi að
koma leikaranum Jóhannesi
Hauki Jóhannessyni til bjargar
á fimmtudag þegar hann spurði
hvort einhver lumaði á tusku
dýri úr IKEA, svipuðu því sem
dóttir hans hafði átt og týnt.
Dýrsins var sárt saknað og leit
aði Jóhannes á náðir Facebook
til að leita svipaðan bangsa
uppi. Vinir hans voru fljótir að
taka við sér og ekki leið á löngu
þar til sama tegund hafði fund
ist á sölusíðunni eBay og er nú
fljótt og örugg
lega á leið
til landsins.
„Að mér skuli
ekki hafa
dottið þetta
í hug,“ sagði
Jóhannes og
bætti við: „Nú
er bara að
bíða.“
Kattafár á
Facebook
n Ég hef ákveðið að hefja „ham
ingjusamar kisur,“ viku til að auka
vonandi jákvæðni og gleði ykkar
og annarra fésbókarvina,“ sagði
Eygló Harðardóttir, velferðarráð
herra á dögunum og skoraði með
al annars á nokkra aðstoðarmenn
íslenskra ráðherra að taka þátt í að
deila slíkum myndum. Jóhannes
Þór Skúlason, aðstoðarmaður Sig
mundar Davíðs Gunnlaugssonar,
lætur sitt ekki eftir liggja og birti á
fimmtudag kattarmynd af afskap
lega hressum ketti. Þar dró til tíð
inda enda hefur helsta hlutverk
hans á Facebook ver
ið að deila Eurovi
sonslögurum,
nýjum og göml
um með vinum
sínum, enda Jó
hannes annálað
ur Eurovison
aðdáandi.
Spurningin um aðild að Evrópusambandinu
er stærri og mikilvægari en svo að einstakir
stjórnmálaflokkar eða ríkisstjórnir eigi að
ráða svarinu.
Alþingi ber að sýna þjóðinni þá virðingu að
leggja framhald aðildarviðræðna Íslands og
Evrópusambandsins í dóm allra Íslendinga.
Þess vegna er hafin undirskriftasöfnun á
vefnum Þjóð.is þar sem skorað er á Alþingi
að leita þjóðarviljans.
Alþingismenn starfa í umboði okkar. Látum
þá vita hvað við viljum og skrifum undir.
www.þjóð.is
SAMST
ÖÐUFUN
DUR 4
Fjölmen
num á A
usturvö
ll kl. 15
-16
laugard
aginn 2
2. mars
Fjölskyldusaga í Washington
Útrás leikrits Mikaels Torfasonar, aðalritstjóra 365 miðla
L
esendur Fréttablaðsins hafa í
vikunni ugglaust orðið varir við
umfjöllun blaðsins um uppsetn
ingu á leikriti aðalritstjóra 365,
Mikaels Torfasonar, í Washington.
Raunar hefur enginn fjölmiðill fjallað
eins mikið um sýninguna og Frétta
blaðið en Mikael er tíðum til umfjöll
unar í miðlum 365.
Viðtal birtist við aðalleikkonu
verksins og sambýliskonu Mikaels,
Elmu Stefaníu Ágústsdóttir, í síðasta
helgarblaði og í vikunni var sagt frá
því á baksíðu blaðsins að leikritið, fjöl
skyldusagan Harmsaga, hefði hvorki
meira né minna en „slegið í gegn“ í
bandarísku borginni. Ekki nóg með
að leikarar Harmsögu hafi unnið „leik
sigur“ heldur „hrifust“ gagnrýnendur
af allri umgjörð verksins, samkvæmt
Fréttablaðinu. Önnur eins velgengni
íslensks leikrits í útlöndum er líklega
fáheyrð. Sá sem átti einna mestan
heiður af því að koma leikriti Mikaels
á framfæri í Washington er starfsmað
ur sendiráðs Íslands í borginni, Skafti
Jónsson, en eiginkona hans, Kristín
Þorsteinsdóttir, er stjórnarmaður hjá
365 og fyrrverandi starfsmaður Baugs.
Tengsl þeirra hjóna við 365 eru því
nokkur og því kannski ekki óeðlilegt
að liðkað sé til fyrir aðalritstjóranum.
Einnig er fróðlegt að það var dóttir
þeirra, Ólöf Skaftadóttir, sem tók viðtal
helgarblaðs Fréttablaðsins við eigin
konu Mikaels, um leikritið. Sagan á bak
við uppsetningu verksins erlendis og
kynninguna á því er því orðin skemmti
lega fjölskylduleg. Mikael skrifar leikrit
og sambýliskona hans leikur aðalhlut
verkið; blaðið sem hann ritstýrir segir
miðla mest frá útrás verksins sem eig
inmaður Kristínar stjórnarmanns,
Skafti diplómati, kemur til leiðar og
það er svo dóttir Skafta og Kristínar og
undirmaður Mikaels sem tekur viðtal
við sambýliskonu hans í dagblaði sem
hann stýrir. n
Velgengni í Washington Mikael ásamt
sambýliskonu sinni, aðalleikkonu verksins.