Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Page 58
2 Páskaferðir Helgarblað 21.–24. mars 2014
P
áskafjör er árleg hátíð á skíða-
svæðinu í Oddskarði á Austur-
landi um páskana. Brottfluttir
Austfirðingar flykkjast heim til
að renna sér á skíðum í austfirsku ölp-
unum, en svæðið er eitt best geymda
skíðaleyndarmál landsins. Í Odd-
skarði eru þrjár lyftur og kostar dag-
skort á helgidögum 1.000 krónur fyrir
börn og 2.500 fyrir fullorðna.
Best er að finna sér gistingu í þétt-
býliskjörnunum nálægt svæðinu,
Eskifirði og Neskaupstað. Þar eru
meðal annars leigubústaðir og íbúða-
hótel sem henta fjölskyldum. Þá eru
menningarbærinn Seyðisfjörður og
höfuðstaðurinn Egilsstaðir í seil-
ingarfjarlægð.
Dagskráin í Oddskarði um pásk-
ana verður fjölbreytt. Skírdag-
ur er tileinkaður snjóbrettum, með
kvöldopnun, tónlist og stökkkeppni.
Á laugardeginum er stórsvigskeppni
fyrir 30 og ára eldri „fyrrum kepp-
endur.“ Elsti þátttakandinn í fyrra var
kominn á tíræðisaldur. Eftir keppnina
er svo týrólakvöld uppi í fjallinu og
flugeldasýning. Á páskadagsmorgun
er svo páskeggjamót fyrir yngstu
skíðagarpana og samhliða mót, með
tveimur brautum, fyrir aðra.
Snjór hefur verið með mesta móti
í vetur fyrir austan og þarf að fara
meira en 30 ár aftur í tímann til að
finna jafn mikið magn af snjó í fjall-
inu. Páskarnir verða því líklega ekki
síðasta tækifærið til að renna sér á
skíðum í Oddskarði í vor, en stefnt er á
sumaropnun í fjallinu í maí og júní. n
Hátíðin Páskafjör í
austfirsku ölpunum
Bjóða upp á fjölbreytta fjölskyldudagskrá
Austfirsku alparnir
Útsýnið er mikilfenglegt af
skíðasvæðinu í Oddskarði.
Jóðlað Týrólastemming og flugelda-
sýning er meðal þess sem boðið er upp
á í Oddskarði um páskana.
Fegurðin
á Bolafjalli
Hvernig væri að skella sér til
Bolungarvíkur. Fáheyrilega fal-
legur staður sem býður upp á
einn af mögnuðustu útsýnis-
stöðum landsins ásamt einni
elstu verstöð landsins. Við Bol-
ungarvík trónir fjallið Traðar-
hyrna sem verndar byggðarlagið
fyrir hreinni norðanáttinni. Vest-
an megin við Traðarhyrnuna er
Bolafjall í 638 metra hæð en þar
er ratsjárstöð sem varð til þess
að opnaður var akvegur upp á
fjallið, snarbrattur en ægifagur.
Vegurinn er opinn bílaumferð í
júlí og ágúst og geta ferðalangar
því ekið upp á fjallið og notið
rennisléttrar og hrjóstugrar há-
sléttu þar sem er útsýni til allra
átta. Er hægt að fyrir sér fagurt
Ísafjarðardjúpið og Jökulfirðina.
Sú saga hefur lengi gengið að á
góðviðrisdögum sjáist alla leið
til Grænlands. Þegar fyrrverandi
bæjarstjóri Bolungarvíkur, Ólaf-
ur Kristjánsson, var spurður út í
þessa sögu sagði hann svo vera
og bætti því við að á góðri nóttu,
þá sjáist alla leið til tunglsins.
Hvað er fleira hægt að gera
í Bolungarvík? Jú, þar er til að
mynda frábær golfvöllur sem
er ræktaður á sandi í Syðridal
og heitir að sjálfsögðu Syðri-
dalsvöllur. Algjörlega einstak-
ur og erlendir ferðamenn nán-
ast dáleiddir þegar þeir fá að slá
upp úr svörtum sandi í glomp-
unum. Þá er musteri vatns og
vellíðunar til staðar í íþrótta-
miðstöðinni Árbæ þar sem er
rennibraut, heitur pottur, nudd-
pottur, vaðlaug, innilaug og
besta sauna landsins að mati
Dr. Gunna. Þeir sem eru fyr-
ir hellaskoðun gætu lagt leið
sína inn í surtarbrandsnámuna
í Syðridal við Bolungarvík. Þar
er hægt að skoða bergmyndun
og einnig hægt að setja sig í spor
þýska njósnarans sem er sagður
hafa falið sig þar um miðbik 20.
aldarinnar. Og var búið að fjalla
um Morðingjamýri? Meira síðar.
Stærsta
skíðahelgi
ársins
P
áskahelgin hefur lengi ver-
ið einhver helsta skíðahelgi
ársins. DV ræddi við Einar
Bjarnason, rekstrarstjóra
skíðasvæðisins í Bláfjöll-
um, og spurði hann hvernig útlitið
væri með skíðafæri á næstu vik-
um. „Núna í augnablikinu er alveg
fullkomið skítviðri, mjög hvasst og
gríðarlega kalt, en um leið og birt-
ir til þá opnum við á nýjan leik,
enda alltaf klár í næsta góðviðri.“
Hann segir við því að búast að bestu
skíðadagar ársins séu fram undan
en páskahelgin verður dagana 17.–
21. apríl.
Góður vetur
Einar segir færið í vetur hafa verið
meiriháttar. „Það er nægur snjór.
Við erum búin að vera með frost
nánast í allan vetur og það hefur
varla komið neinn hlákukafli,“ segir
hann og tekur fram að skíðasvæðið í
Bláfjöllum hafi verið opið í fimmtíu
daga það sem af er ári en það er tíu
dögum meira en á sama tíma í fyrra.
Hann segir allt útlit fyrir góða
skíðahelgi um páskana. „Við verð-
um með opið alla páskana frá
klukkan tíu til fimm,“ segir hann og
á þá við skírdag, föstudaginn langa,
páskadag og annan í páskum. Þá
sé líklegt að opnað verði fyrr dag-
ana á undan páskunum enda frí í
skólunum.
Sextán lyftur
Einar segir svæðið auðveldlega geta
annað öllum þeim sem vilja nýta
sér það. „Við erum með alls sextán
lyftur hérna, þrjár stólalyftur og það
sem við köllum töfrateppi sem er
frábært fyrir byrjendur. Það er auð-
vitað gríðarleg flutningsgeta í þess-
um stólalyftum.“ Hann viðurkenn-
ir þó að þegar fjölmennast sé geti
myndast raðir en þær séu aldrei
sérstaklega langar.
Bláfjallasvæðið skiptist í þrjú
svæði. „Aðalsvæðið er í Kóngs gilinu
en þar eru tvær stólalyftur og nokkr-
ar diskalyftur. Svo erum við með
Suðursvæðið en þar er ein stólalyfta
og einhverjar fimm diskalyftur,“ seg-
ir Einar og tekur fram að flestir sæki
í Kónginn enda séu þar lengstu,
stærstu og breiðustu brekkurnar.
„Það eru svona þessi tvö svæði sem
eru notuð dagsdaglega.“
Dýrðardagar á fjöllum
Einar segir páskahelgina oft vera
bestu skíðahelgi ársins vegna veð-
urfars enda sé oft orðið fremur hlýtt
í veðri þótt nóg sé af snjó. „Á þess-
um tíma eru þessi flottu og
frábæru veður að koma. Maður fær
oft mikla dýrðardaga í fjöllunum.
Þannig að við hvetjum fólk bara til
þess að gera sig klárt og njóta þeirr-
ar frábæru aðstöðu sem við búum
yfir hér.“
Það sé skondið til þess að hugsa
að flestir hætti að mæta í brekkurn-
ar eftir páska. „Eftir páska hætt-
ir fólk að koma á skíði. Það er svo-
lítið fyndið og þá skiptir engu hvort
páskarnir eru 1. eða 31. apríl.“ Hann
hvetur fólk til þess að nýta vorveðr-
ið í skíða- og brettaiðkun ef færi le-
yfir, sama hvort það sé fyrir eða eftir
páskana.
Einar segir lítið mál fyrir fólk að
leigja sér skíða- eða snjóbrettabún-
að eigi það slíkt ekki sjálft en það
kostar 4.500 krónur að leigja skíða-
eða snjóbrettapakka í heilan dag.
Þá kostar dagspassi í fjallið 3.100
krónur. n
jonbjarki@dv.is
n Hvetur fólk til að koma í Bláfjöll um páskana
n Útlit fyrir góða skíðahelgi og nægan snjó
„Það er nægur
snjór. Við erum
búin að vera með frost
nánast í allan vetur og
það hefur varla komið
neinn hlákukafli.
Börnin skíða Fólk á
öllum aldri mætir í Blá-
fjöll, þar á meðal þau
sem teljast til yngstu
kynslóðarinnar en þar
má finna frábært svæði
fyrir byrjendur.
Í loftinu Ungt
snjóbrettafólk fjöl-
mennir í brekkurnar
á þessum árstíma.
SEX FLUGLEGGIR MILLI ÁFANGASTAÐA INNANLANDS
Flugfélag Íslands mælir með Flugfrelsi ef þú átt oft erindi út á land eða til
borgarinnar. Nýttu þér frelsið til að fljúga innanlands á hagstæðari kjörum.
FLUGFELAG.IS
SEX FYRIR 68.100
Ekkert breytingarg jald
Ekkert afbókunarg jald
Takmarkað sætaframboð
Hvert Flugfrelsi gildir fyrir
einn farþega
Bókanlegt í síma 570 3030
is
le
ns
ka
/s
ia
.is
F
LU
6
83
25
0
3’
14