Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Síða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Síða 62
Helgarblað 21.–24. mars 20146 Páskaferðir Fjör um páska á Akureyri n Úrval tónlistarfólks á Græna hattinum n Fjölbreytt dagskrá skíðasvæða Á Akureyri er alla jafna nóg um að vera og margir skella sér norður á skíði. Í Eyja- firði og nágrenni eru mörg af vinsælustu skíðasvæð- um landsins. Um páskana er sérstök dagskrá á mörgum þeirra, þar sem boðið er upp á skemmtiatriði við skíðaskálana og alls kyns uppákom- ur í brekkunum. Græni hatturinn er einnig með öfluga dagskrá um pásk- ana og þar ættu allir að finna eitt- hvað við sitt hæfi. Skíðað fyrir páskaeggjum Í Hlíðarfjalli er alltaf nóg um að vera alla páskana og jafnan fjöldi fólks í fjallinu ef veður er gott. Þar geta byrjendur farið í skíðaskóla og þeir sem eru reynslumeiri geta prófað að renna sér niður frá toppi fjalls- ins. Á undanförnum árum hefur ver- ið boðið upp á þá nýjung að troða gönguleið frá efstu lyftunni, Stromp- inum, og alveg upp á topp fjallsins. Þaðan eru skemmtilegar skíðaleiðir niður, en þær geta verið krefjandi og færið þarf að vera gott, helst púður- snjór, svo hægt sé að fara með góðu móti niður ótroðnar brekkurnar. Skíðasvæðin á Siglufirði, Ólafs- firði og Dalvík eru einnig vel sótt um páskana. Á Siglufirði hefur verið boð- ið upp á svokallað páskaeggjarennsli fyrir tíu ára og yngri, þar sem allir þátttakendur fá lítið páskaegg þegar búið er að fara í gegnum létta braut. Einnig er boðið upp á barnagæslu og skíðakennslu. Á Dalvík er páska- eggjamót, þar sem öll börn yngri en sjö ára geta tekið þátt. Einnig hef- ur á undanförnum árum verið boð- ið upp á kaffihlaðborð foreldrafé- lags Skíðafélagsins, þar sem ágóðinn rennur til starfs félagsins. Auk þess er hægt að fara upp á topp Böggvis- staðafjalls með troðara, ef aðstæð- ur og veður leyfa. Haldin hafa verið svokölluð konu- og karlakvöld um páskana, en innifalið í aðgangseyri á slíkum kvöldum eru léttar veitingar og skíðakennsla, auk lyftupassa. Græni hatturinn eftirsóttur Á kvöldin er alla jafna hægt að gera vel við sig í mat og drykk, en einnig er hægt að njóta góðrar tónlistar. Á Akureyri er hinn margrómaði Græni hattur, sem er nú á ellefta starfsári. Haukur Tryggvason segir að mikið sé um að skíðagarpar kíki á tónleika um páskana enda sé úrvalið fjölbreytt. Í ár munu Kaleo, KK, Valdimar Guð- mundsson, Ómar Guðjónsson, Mannakorn og Anna Mjöll koma fram um páskana. „Páskarnir eru alltaf mjög skemmtilegir og ein stærsta helgi ársins, enda tónleikar fimm kvöld í röð. Það er bæði mikið um gesti sem eru í bænum yfir helgina en heima- fólkið mætir líka mjög vel. Á þessum tíu árum hefur orðspor Græna hattsins sem tónleikastaðar sífellt orðið betra og þar með gæði tónlistarfólksins sem kemur hingað. Nú eru erlendar sveitir jafnvel farnar að sækjast eftir því að fá að spila hér, meðal annars eru margir færeyskir tónlistarmenn sem vilja koma,“ segir Haukur. Hann segir það ekki koma til greina að stækka staðinn eða flytja hann, enda verður erfitt að halda sjarma staðarins annars stað- ar. Í sama húsi er einnig hinn vinsæli Götubar, þar sem algengt er að sjá tónlistarfólkið að loknum tónleikum, og jafnvel hægt að ná af því tali eða stofna til fjöldasöngs á flyglinum. n rognvaldur@dv.is Hlíðarfjall Páskadagskráin í Hlíðarfjalli er jafnan þétt og nóg um að vera. Mynd Auðunn níelSSon Frá Græna hattinum Einn vinsælasti tónleika- staður landsins er á Akureyri. Mynd dAnÌel StArrASon Veitinga- staðir á Suðurlandi Á vefsíðunni TripAdvisor má lesa dóma um gistingu, ferðamanna- staði og veitingastaði á Íslandi, sem og öðrum löndum í heim- inum. Þar geta notendur skrifað umsögn um upplifun sína og gef- ið stöðum stjörnur. Á síðunni má til að mynda fletta upp veitinga- stöðum á Suðurlandi en fjöl- margir staðir hafa fengið prýði- lega dóma. Kaffi Krús - Selfoss Veitingastaðurinn Kaffi Krús á Selfossi fær fjórar stjörnur af fimm á vefsíðunni TripAdvisor. Á matseðli staðarins er mikið úrval af súpu, salati, hamborgur- um, samlokum, nachos, pastaréttum og pítsum, auk aðalrétta. Ættu því allir að geta fundið eitthvað sem hugurinn girnist. Einn notandi segist ekki hafa verið svikinn. Þvert á móti. „Maturinn var svo góður að þegar við áttuðum okkur á því að við myndum keyra aftur í gegnum Selfoss í kringum hádegi á leið okkar aftur til Reykjavíkur, urðum við að stoppa þar aftur.“ Lindin - Laugarvatn Lindin er veitingastaður við Laugarvatn sem býður bæði upp á bistro-matseðil og seðil með for-, aðal- og eftirréttum. Staðurinn fær fjóra og hálfa stjörnu frá 123 notendum og leggur hann áherslu á að gestir smakki bæði „villt og sætt“. Einn notandi TripAdvisor mælir með matnum á Lindinni, en ekki síst út- sýninu. „Ég mæli með þessum veitinga- stað. Fyrir utan mat og huggulegt andrúmsloft, er þar einnig stórkostlegt útsýni yfir Laugarvatn.“ Halldórskaffi - Vík Á Halldórskaffi er úrval hamborgara, samloka, flatbaka, auk for-, aðal- og eftirrétta. Staðurinn fær fjórar stjörnur á TripAdvisor, frá 125 notendum. Einn notandi er mjög ánægður með matinn. „Góður heimaeldaður málsverður og mjög ljúffeng eplabaka í eftirrétt!“ segir hann og enn fremur að dóttir hennar hafi gleymt húfunni sinni á veitinga- staðnum, sem starfsfólkið sendi endur- gjaldslaust heim til þeirra í Noregi. Humarhöfn - Höfn Líkt og nafnið gefur til kynna sérhæfir Humarhöfn sig í humri, sem veiddur er af innfæddum. Veitingastaðurinn fær fjórar og hálfa stjörnu, frá 150 not- endum. Einn notandi sem segist hafa búið á Íslandi í tæpt ár þegar hann fór á Humarhöfn á Höfn í Hornafirði, skrifar: „Æðislegur veitingastaður, sama hver samanburðurinn er. Ljúffeng humarsúpa (sennilega sú besta sem ég hef fengið á Íslandi!), nýbakað brauð, frábær humarpitsa – allt borið fram af hinu ótrúlega vingjarnlega og hugulsama starfsfólki.“ Vinsælar fótboltaferðir Uppselt um páskana, en boðið upp á fjölmargar ferðir helgina eftir F erðir á leiki í enska boltanum njóta jafnan mikilla vinsælda meðal Íslendinga, enda óvíða jafn mikill áhugi á enska boltan- um og hér á landi. DV skoðaði hvaða ferðir er hægt að fara í með íslensk- um ferðaskrifstofum í kringum pásk- ana. Það er skemmst frá því að segja að uppselt er í nánast allar ferðir um páskana sjálfa, en fyrstu helgina eftir páska er nóg úrval í boði. Gaman ferðir bjóða upp á mesta úrvalið af ferðum, en hægt er að kaupa ferðir á nokkra leiki helgina 25. til 27. apríl næstkomandi. Meðal annars er hægt að fara á leik Manchester United og Norwich og kostar sú ferð 99.900 krónur. Innifalið í verðinu er flug og gisting í tvær nætur auk miða á leik- inn. Samkvæmt heimasíðu Gaman ferða er einnig í boði ferð á leik Liver- pool og Chelsea. Áhugasamir þurfa þó að hafa hraðar hendur enda einungis tvö sæti eftir. Sú ferð kostar 155.900, en gist er í þrjár nætur. Brottför er föstu- daginn 25. apríl. Auk þess eru í boði ferðir á leiki Fulham og Hull, Crystal Palace og Manchester City og Arsenal gegn Newcastle. Nánari upplýsingar má nálgast á vef Gaman ferða. Vita ferðir bjóða einnig upp á ferðir á leiki í enska boltanum. Líkt og Gam- an ferðir býður Vita upp á ferð á leik Liverpool og Chelsea sem fram fer sunnudaginn 27. apríl. Flug og gisting í þrjár nætur með morgunverði og miði á leikinn kostar 124.500 á mann í tví- býli. Vita býður einnig upp á ferð á leik Manchester United og Norwich. Flug og gisting í þrjár nætur með morgun- verði og miða á leikinn kostar 106 þús- und krónur. n Frábær skemmtun Enn eru lausir miðar á leik Liverpool og Chelsea. Áhugasamir verða þó að hafa hraðar hendur enda mun vafalítið seljast upp í ferðirnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.