Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2014, Side 11
Helgarblað 23.–28. apríl 2014 Fréttir 11
F
rá og með júlí á þessu ári
verður jarðhitavirkjunum
bannað að losa meira en
50 míkrógrömm af brenni-
steinsvetni á rúmmetra
að meðaltali á sólarhring. Reglu-
gerð þess efnis var sett á árið 2010
en þá var virkjunum gefið ákveðið
aðlögunartímabil, sem gerði það
heimilt að fara fimm sinnum yfir
sett mörk á ári þar til nú í sumar.
Brennisteinsvetni er eitruð loft-
tegund og útblástur hennar er
eitt helsta umhverfisvandamál-
ið við jarðhitanýtingu. Markmið
reglugerðarinnar er meðal annars
að draga úr skaðlegum áhrifum
brennisteinsvetnis á heilbrigði
fólks og umhverfið.
Erfitt getur reynst fyrir jarðhita-
virkjanir eins og Hellisheiðarvirkj-
un að uppfylla hertu skilyrðin en
samkvæmt reglugerðinni verður
föst búseta bönnuð á þeim svæð-
um sem mengunin fer yfir leyfileg
mörk.
Reglulega farið yfir mörkin
Samkvæmt skýrslu Orkuveitu
Reykjavíkur um brennisteinsvetn-
ismælingar fyrir árið 2013 fór styrk-
ur brennisteinsvetnis í andrúms-
lofti einu sinni yfir umhverfismörk
í Norðlingaholti yfir árið. Árið 2011
fór styrkurinn þrisvar yfir mörkin í
Hveragerði samkvæmt mælingum.
Eiríkur Hjálmarsson, upplýs-
ingafulltrúi Orkuveitunnar, seg-
ir í samtali við DV að eftir þá tæpu
fjóra mánuði sem komnir eru af
þessu ári virðist tvisvar hafa verið
farið yfir mörkin í Norðlingaholti,
þær niðurstöður eru þó nýjar og
óyfirfarnar.
Íbúar verða varir við mengun
Njörður Sigurðsson, íbúi í Hvera-
gerði, segir mengun frá jarð-
hitavirkjunum koma í ýmsum
birtingarmyndum í Hveragerði.
„Þessi brennisteinsmengun,
hennar verður vart, en það er líka til
dæmis hávaðamengun frá borhol-
unum í Hverahlíð. Þegar þær blása,
heyrist það niður í Hveragerði. Það
hafa verið þungar drunur undan-
farna mánuði.“
Það er ljóst að brennisteinsvetn-
ismengunin hefur víðtæk áhrif á
Hveragerði sem bæjarfélag. „Hver-
gerðingar verða mjög varir við
þessar borholur og virkjanir uppi
á Hellisheiði. Það er algjörlega óá-
sættanlegt að bjóða upp á svona.“
Spurður um mögulegar undan-
þágur sem Orkuveitan gæti fengið
vegna mengunarmarka á brenni-
steinsvetni frá Hellisheiðarvirkj-
un líst Nirði ekki á blikuna. „Það
verður að leysa þetta. Það er ekki
hægt að bjóða fólki upp á að búa
við þetta til lengri tíma. Það geng-
ur ekki upp.“
Njörður segist hafa talað við
íbúa í Hveragerði sem hafa fund-
ið fyrir menguninni í öndunarfær-
unum. „Ég veit að fólk hefur fund-
ið fyrir þessu í öndunarfærum í
Hveragerði alveg eins og annars
staðar í Reykjavík.“
Unnið í mótvægisaðgerðum
Orkuveitan ætlar að reyna til hins
ítrasta að koma til móts við hert-
ar reglugerðir. Farið verður af stað
með tilraunaverkefni á næstu vik-
um þar sem reynt verður að hreinsa
fimmtán prósent af brennisteins-
vetni með því að dæla því aftur nið-
ur í berggrunninn. Ef það tekst ekki
er nokkuð líklegt að brennisteins-
vetni haldi áfram að fara yfir um-
hverfismörk. Orkuveitan hefur sótt
um undanþágur frá reglugerðinni
en ef ekki verður orðið við þeim
gæti Hellisheiðarvirkjun misst
starfsleyfi sitt. n
Finna fyrir mengun
í öndunarfærum
Salka Margrét Sigurðardóttir
salka@dv.is
Hellisheiðarvirkjun Eftir gang
setningu Hellisheiðarvirkjunar jókst
brennisteinsvetni í andrúmslofti.
Njörður
Sigurðsson
Íbúar finna
fyrir mengun
aráhrifum að
sögn Njarðar.
Orkuveita Reykjavíkur Styrkur brenni
steinsvetnis í Norðlingaholti fór einu sinni
yfir umhverfismörk árið 2013.
„Það er ekki
hægt að bjóða
fólki upp á að búa við
þetta til lengri tíma.
Það gengur ekki upp.
Meðalaldurinn einn sá hæsti
Förum á mis við öryggi nýrra bíla
M
eðalaldur íslenska bílaflot-
ans hefur aldrei verið hærri
en hann er nú 12,4 ár. Frá ár-
inu 1992 til 2008 sveiflaðist
hann frá 7,8 upp í 9,8 ár en frá hruni
hefur innflutningur nýrra bifreiða
minnkað verulega. Þetta kemur fram
í nýrri árbók Bílgreinasambandsins,
en hún var gefin út í fyrsta sinn fyr-
ir stuttu og verður gefin út árlega hér
eftir. Hækkandi meðalaldur bíla þýð-
ir að þeir eyða meira og eru ekki jafn
öruggir og bílar sem framleiddir eru
í dag. „Gera má ráð fyrir að heimil-
in fari á mis við bætta eldsneytisnýt-
ingu og öryggi sem yngri bílar bjóða
gjarnan,“ segir í bókinni.
Formaður Bílgreinasambands
Íslands, Özur Lárusarson, segir að
keppikefli bílaframleiðenda síðustu
ár hafi verið að framleiða sparneytna
og örugga bíla. „Markaðurinn hef-
ur helst kallað eftir slíkum bílum og
það hafa orðið gríðarlega framfarir
í þessum tveimur þáttum á síðustu
fimm árum. Eftir því sem bílaflot-
inn eldist, þá missum við af því,“ seg-
ir Özur.
Bílarnir eru jafnframt með þeim
elstu í Evrópu, en meðaltal bíla í
Evrópusambandinu var 8,3 ár, árið
2010. Í samanburði við önnur lönd
má sjá að í löndum eins og Slóvakíu,
Grikklandi og Portúgal er meðalald-
ur bílanna lægri. Eldsneytisneysla og
viðhald bílanna hefur jafnframt auk-
ist jafnt og þétt síðustu tíu ár, en það
er einnig hægt að skýra með því að
bílaflotinn er stærri nú en hann hef-
ur verið áður. Sala á nýjum bílum hef-
ur aukist aftur á síðustu misserum og
Özur segir að það muni halda áfram.
„Fólk horfir mjög mikið á elds-
neytiseyðslu nýrra bíla, enda er
eldsneyti dýrt. Fólk er forvitið um
blendingsbíla en þeir eru dýrir. Svo
eru takmörk á notkun rafmagnsbíla,
en það mun breytast með nýjum
hleðslustöðvum sem munu verða til
á næstu árum. Hefðbundnir bílar eru
þó orðnir mjög sparneytnir og eyða
ekki endilega minna en blendingar,
það er hægt að fá hefðbundna fólks-
bíla sem eyða frá þremur og upp í
fimm lítra á hundraðið,“ segir Özur. n
rognvaldur@dv.is
Gamall bílfloti „Gera má ráð fyrir að heimilin fari á mis við bætta eldsneytisnýtingu og
öryggi sem yngri bílar bjóða gjarnan,“ segir í nýrri árbók Bílgreinasambands Íslands.
Eiríkur Hjálmarsson Bjartsýnn á að
Orkuveitunni heppnist vel til í mótvægis
aðgerðum. MyNd ÚR EiNkaSafNi
Gistinóttum
fjölgaði um
15 prósent
Seldar gistinætur voru 4,3 millj-
ónir hér á landi árið 2013 og
fjölgaði um tæp 15 prósent frá
fyrra ári. Gistinætur erlendra
gesta voru 79 prósent af heildar-
fjölda gistinátta og fjölgaði þeim
um 17 prósent frá árinu 2012.
Gistinóttum Íslendinga fjölgaði
um 8 prósent. Þetta kemur fram
í tölum sem Hagstofa Íslands
birti á dögunum.
Tveir þriðju allra gistinátta
voru á hótelum og gistiheimil-
um, 12 prósent á tjaldsvæðum
og 22 prósent á öðrum tegund-
um gististaða. Gistinóttum fjölg-
aði í öllum landshlutum á milli
ára nema á Vestfjörðum.
Mikil aukning hefur orðið á
seldum gistinóttum undanfar-
in ár. Á síðastliðnum fimm árum
hefur heildarfjöldi gistinátta
aukist um 1,3 milljónir, eða um
42,5 prósent. Framboð gistirýmis
hefur ekki aðeins aukist mjög á
þessum tíma, heldur hefur nýt-
ingin einnig aukist. Á síðasta ári
var nýting herbergja á hótelum
og gistiheimilum 54,3 prósent.
Til samanburðar var þessi nýt-
ing 46,2 prósent árið 2009.
Eins og mörg undanfarin ár
gistu Þjóðverjar flestar nætur í
fyrra, þá Bretar og svo Banda-
ríkjamenn. Sú nýbreytni varð á
árinu 2013 að öllum þjóðernum
gesta var safnað og er landatafla
gistinátta birt með 47 þjóðernum
og fimm safnflokkum.
n Mengunarmörk brennisteinsvetnis skoðuð reglulega n Ákvæðin hert í sumar
Misnotaði
tengdamóður
sína
Héraðsdómur Vesturlands hef-
ur dæmt mann í sex ára fang-
elsi fyrir grófa misnotkun á
tengdamóður sinni. Hún er and-
lega fötluð, 53 ára gömul, og hef-
ur glímt við þroskaskerðingu frá
frumbernsku þegar hún veiktist.
Brotin áttu sér stað yfir ár,
fram til febrúar 2013, en hann
misnotaði hana „að minnsta
kosti í þrjú aðgreind skipti í
hverjum mánuði“, að því er segir
í dómsorði, „með því að notfæra
sér andlega fötlun hennar þar
sem hún gat ekki spornað við
samræðinu eða skilið þýðingu
þess vegna fötlunarinnar“.
Dómurinn taldi einu máls-
bætur sem maðurinn hefði þær
að hann hafi játað brot sitt.
Auk fangelsisdómsins þarf
hann að greiða brotaþola 2,5
milljónir króna í miskabætur.