Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2014, Síða 19
Helgarblað 23.–28. apríl 2014 Fréttir 19
þurfa menn ekki að finna fyrir sam-
viskubiti.“ Toshiki talar um „bækur
lyganna“, atburðarásin sé hönnuð
haganlega þannig að þeir sem taki
ákvarðanirnar þurfi ekki að sjá sig
sem vondar manneskjur á meðan
vísað sé í verkferla sem koma
einstaklingunum sem um er að
ræða ekkert við.
Pyndaður í Írak
S. Shawkan er 32 ára gamall mað-
ur frá Írak. Hann starfaði sem graf-
ískur hönnuður í heimalandinu
og tók þátt í pólitísku andófi gagn-
vart þarlendum stjórnvöldum og
bandaríska hernámsliðinu, með-
al annars með því að útbúa og setja
upp áróðursspjöld víðs vegar um
höfuðborgina Bagdad. Hann flúði
landið í kjölfar ofsókna og pyndinga
og sótti um hæli í Noregi. Árið 2009
var hann dæmdur í sex ára fangelsi
fyrir samsæri gegn íröskum stjórn-
völdum. Eins og gefur að skilja gat
hann ekki varið sig fyrir dómstólum
enda var hann þá þegar í Noregi.
Stuttu eftir að dómurinn féll í Írak
var umsókn hans um hæli í Noregi
hafnað. Hann fór huldu höfði þar í
landi í þrjú ár eða þangað til hann
kom til Íslands þar sem hann reyndi
á nýjan leik að sækja um hæli. Ný-
lega fékk hann þær fregnir að hann
verði sendur aftur til Noregs í vik-
unni á grundvelli Dyflinnarreglu-
gerðarinnar.
„Ég á erfitt með svefn, mér líður
hryllilega,“ segir Shawkan í samtali
við DV en hann hefur undanfarna
mánuði þjáðst af mikilli streitu og
þunglyndi. Hrefna Dögg Gunnars-
dóttir er lögmaður hans og annars
hælisleitanda frá Súdan sem á
einnig að senda úr landi í vikunni.
Hann er 30 ára gamall og þorir ekki
að koma fram undir nafni af ótta við
að hægt verði að rekja það sem hann
segir til hans. Hér eftir verður hann
því kallaður Tour Jamous. Þeir hafa
báðir kært úrskurð innanríkisráðu-
neytisins en útlit er fyrir að Jamous
verði ekki á landinu þegar málið fer
fyrir dómstóla.
Mannréttindabrot
Athyglisvert sé að það eigi að senda
Jamous til Noregs þrátt fyrir að hann
sé með mál á hendur íslenska rík-
inu fyrir hérlendum dómstólum.
Reynslan sé sú að þeir sem fari með
mál sín fyrir dómstóla fái að klára
málareksturinn áður en þeim sé vís-
að úr landi. Nú kveði við nýjan tón:
„Þetta vekur töluverða athygli vegna
þess að einn af stefndu í málinu er
innanríkisráðuneytið, en það er
sama ráðuneyti og tekur ákvörðun
um að fresta ekki réttaráhrifunum
og senda hann úr landi.“ Þetta þýði
að við aðalmeðferð málsins muni
umbjóðandi hennar ekki geta gefið
aðilaskýrslu.
„Við vitum í rauninni ekkert
hvar hann verður niðurkominn
á þeim tímapunkti og það er al-
gjör spurning í mínum huga hvort
þetta stangist ekki á við hans rétt til
réttlátrar málsmeðferðar í 6. grein
mannréttindasáttmálans.“ Þá gagn-
rýnir hún það sérstaklega að ver-
ið sé að vísa mönnunum úr landi
á grundvelli Dyflinnarreglugerðar-
innar þegar þeir hafi verið svo lengi
á landinu, en þar er sérstaklega til-
tekið að hafi hælisleitandi verið
í meira en sex mánuði í ákveðnu
landi beri þarlendum yfirvöldum að
taka hælisumsókn hans til efnislegr-
ar umfjöllunar.
Í einangrun
Jamous kom hingað til lands frá
Noregi árið 2011 og sótti um hæli.
Fyrstu fimm dagana fékk hann að
dúsa í einangrunarklefa eða áður
en hann var leiddur fyrir dómara
þar sem hann var dæmdur í þrjá-
tíu daga fangelsi fyrir að framvísa
röngum skilríkjum. „Mér leið mjög
illa og velti því fyrir mér hvað væri
eiginlega í gangi. Hvers vegna settu
þeir mig í fangelsi? Hvað gerði ég?
Auðvitað komu þeir vel fram við mig
en hvers vegna settu þeir mig í lítinn
klefa í fimm daga?“
Jamous er einn af hundruð hæl-
isleitendum sem dæmdir hafa ver-
ið í fangelsi á Íslandi á síðustu árum
fyrir það eitt að framvísa fölsuðum
eða röngum skilríkjum. DV hefur
fjallað ítarlega um málið en tals-
kona Flóttamannahjálpar Sam-
einuðu þjóðanna hefur sagt að
með þessu sé íslenska ríkið ítrekað
að brjóta á mannréttindum flótta-
fólks. Að fangelsisvistinni lokinni
var Jamous fluttur á gistiheimilið
Fit. Hann segir vistina þar hafa ver-
ið mjög erfiða. „Maður gerði ekkert
annað en að sofa og borða, sofa og
borða.“ Hann segist þó hafa fund-
ið styrk í herbergisfélaga sínum,
Yassin Hassan frá Sómalíu, en DV
birti einmitt viðtal við hann í lok árs
2010. Yassin fékk síðar dvalarleyfi
hér á landi af mannúðarástæðum
en hann ber Jamous góða sögu.
Neglur rifnar
Jamous nam lögfræði í höfuð-
borginni Khartoum í heimalandi
sínu. Hann kemur frá Darfur-hér-
aði en þar hefur ríkt algjört neyðar-
ástand allt frá árinu 2003. Upp-
reisnarhópar berjast við stjórnvöld
og mannréttindi eru fótum troðin.
Mannréttindasamtök hafa greint frá
nauðgunum, pyndingum og jafn-
vel loftárásum súdanska hersins
þar sem heilu þorpin eru sprengd í
loft upp áður en vígamenn koma á
vettvang, nauðga og drepa þá sem
eftir lifa. Jamous tók þátt í pólitísku
starfi í Darfur-héraði en það átti síð-
ar eftir að koma honum í koll. „Við
sáum muninn á uppbyggingunni í
Khartoum og á svæðinu okkar. Við
vildum beita okkur fyrir breyting-
um, að skólar yrðu byggðir og þar
fram eftir götunum. Þetta er úti á
landsbygðinni þar sem fjarskipti
eru í molum. Þarna lifir fólk í raun
algjöru kúrekalífi og þessu vildum
við breyta. Hvers vegna ættum við
að lifa á þennan hátt?“
Vopnaðir lögreglumenn réðust
inn á fund sem hann sat árið 2005.
Hann og félagar hans voru hand-
teknir. Síðar þurfti hann að dúsa í
sex mánuði í fangelsi við hryllilegar
aðstæður. Neglur hans voru rifn-
ar af honum við yfirheyrslur. „Þeir
vildu komast yfir upplýsingar en
ég hafði ekkert að segja. Þetta var
áður en borgarastyrjöldin var orðin
jafn útbreidd og nú. Þeir sögðu að
ég hefði skipulagt ólöglegan fund
með útlendingum.“ Hann sá vini
sína aldrei aftur. Maður úr sama
ættbálki og hann leysti hann síðar
úr haldi en skilaboðin voru þau að
hann yrði að flýja land sem hann og
gerði. Jamous fór til Líbýu þar sem
hann greiddi 2.000 evrur fyrir pláss í
bát sem tók hann yfir Miðjarðarhaf-
ið og til Ítalíu.
Á bát yfir Miðjarðarhafið
Um bátsferðina segir hann: „Við vor-
um heppin að vera bara 32 í bátn-
um. Stundum eru 50–100 manns
„Ég bið um
það eitt
að komið sé fram
við mig eins og
manneskju
Nemi rekinn úr landi
Tour Jamous er þrjátíu ára
lögfræðingur frá Súdan.
Hann flúði pyndingar og
ómannúðlega meðferð í
heimalandinu en nemur nú
ensku við Háskóla Íslands.
Hann hefur fengið þau
skilaboð að honum verði
vísað úr landi í vikunni.