Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2014, Side 30
Helgarblað 23.–28. apríl 201430 Fólk Viðtal
É
g hef helgað mig þessu starfi
og verið vakinn og sofinn í
þessu. Allur minn tími hefur
farið í bæinn,“ segir bæjar
fulltrúinn Oddur Helgi Hall
dórs son sem er hættur í bæjar
stjórn Akureyrar eftir 20 ára afskipti
af pólitík.
Ætlar ekki að
stjórna úr baksætinu
Oddur Helgi var varabæjarfull
trúi Framsóknarflokksins frá 1994
en 1998 stofnaði hann Llist
ann. Flokkurinn náði hreinum
meirihluta í bæjarstjórn Akureyrar
um síðustu kosningar sem hlýtur
að teljast afspyrnu góður árangur.
Sjálfur vill Oddur ekki gangast
við að hann sé að hætta á toppnum.
„Það hefur aldrei verið neitt tiltöku
mál fyrir mig. Sú tilhugsun hjálpar
mér ekki við þessa ákvörðun þótt
sumir minna andstæðinga vilji
halda það. Á þessum 20 árum hef
ég komið helling til leiðar. Þetta er
bara komið gott.
Maður er búinn að vera á kafi
í pólitík og í fyrirtækjarekstri í öll
þessi ár. Á endanum hlýtur eitthvað
að gefa eftir. Ég er lærður blikksmið
ur og hef gaman af þeirri vinnu.
Kannski fer ég bara aftur á gólf
ið. Ég var alltaf mikið á gólfinu en
síðustu fjögur árin hef ég ekki get
að það. Ég er ekki að fara að setjast í
helgan stein enda bara 55 ára en ég
þarf að fara að huga að sjálfum mér,
fjölskyldunni, konunni og börnun
um. Ég á barn sem verður stúdent í
vor sem man ekki eftir pabba sín
um nema í pólitík,“ segir hann og
neitar því að ætla að stjórna á bak
við tjöldin. „Þessu verkefni er lok
ið. Þótt ég muni ráðleggja ef til mín
verður leitað er ég ekki að fara að
stjórna úr aftursætinu.“
Engin karlremba
Oddur Helgi er Akureyringur í húð
og hár. Hann er Þorpari og dyggur
Þórsari. Faðir hans, Halldór Árna
son, betur þekktur sem Dóri Skó,
er 82 ára og nýhættur að starfa
í fyrirtæki Odds, Blikkrás. Móð
ir hans, Sigríður Kristjánsdóttir úr
Bót, lést 67 ára úr krabbameini.
„Við erum sex systkinin en fimm á
lífi. Við erum „bótarar“ og stolt af
því,“ segir hann og vísar þar í Sand
gerðisbót sem nú hýsir smábáta
höfnina á Akureyri. „Munurinn á
þorpinu og öðrum stöðum var gíf
urlegur á þessum tíma. Þarna bjó
efnalítið fólk. Við áttum ekki mik
inn pening en við liðum ekki skort.
Það sagði mér gamalt fólk í þorpinu
að þegar það var lítið til að borða
gat amma alltaf galdrað eitthvað
að borða handa börnunum. For
gangsröðunin var allt önnur í þessa
daga. Við fórum að vinna kornung
og ég var ekki nema sjö ára þegar
ég var sendur í sveit yfir sumarið til
vandalausra.
Annars átti ég venjulega æsku
og var heppinn með bæði kennara
og skólafélaga og ég man ekki eft
ir neinu sem gæti heitið einelti.
Kannski ég hafi lokað fyrir það en
mér finnst eins og það hafi alltaf
allir verið með,“ segir hann og
bætir við að hann hafi verið uppi
vöðslusamur sem barn og ung
lingur. „Ég var prakkari og bar ekki
alltaf virðingu fyrir eigum annarra.
Svo reif ég kjaft við kennarana. Mér
gekk samt alltaf vel í skóla og kunni
námsefnið. Þess vegna leiddist mér.
Ég var kominn í deilingu þegar hin
ir voru að leggja saman. Tölur hafa
alltaf legið vel fyrir mér enda eru
fáir sem kunna fjárhagsáætlun bet
ur en ég.“
„Óþekktin rjátlaðist fljótt af mér
og ég held að uppvöxturinn hafi
mótað mig. Ég lít jafnt á alla og þótt
mér þyki gaman að stríða konum og
femínistum þá skil ég ekki af hverju
kynin fá mismunandi laun fyrir
sömu störf.
Það halda eflaust margir að ég
Akureyringurinn Oddur Helgi Halldórsson stendur á tímamótum. Hann
hefur sagt skilið við bæjarpólitíkina eftir 20 ára afskipti og ætlar þess í stað að huga að
sjálfum sér, fjölskyldunni, heilsunni og fyrirtækinu. Indíana Ása Hreinsdóttir spjallaði við
Odd Helga um pólitíkina, uppvöxtinn í Bótinni, kvíðann sem eyðilagði handboltaferil-
inn, fjölskylduna og ástina í lífinu sem hann fann þegar hann var aðeins 16 ára.
„Ég geng
sáttur í burtu“
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
Oddur Helgi Oddur Helgi er
Akureyringur í húð og hár. Hann er
Þorpari, Þórsari og kennir sig við
Bótina. Mynd BjarnI EIríkssOn
„Ég var hættur
að hlæja og
hættur að gráta