Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2014, Page 38
Helgarblað 23.–28. apríl 201438 Skrýtið
Eymdin Eftir
ólympíulEika
n Mannlaus ólympíumannvirki n Milljarðafjárfestingar grotna niður
Dapurlegt Sundlaugarnar á
ólympíusvæðinu í Berlín, frá leikunum 1936,
eru dapurlegur minnisvarði um sorglegan
tíma í mannkynssögunni.
V
etrarólympíuleikarnir í
Sochi voru á allra vörum í
vetur. Leikarnir voru ein-
hverjir þeir glæsilegustu í
sögunni – enda engu til spar-
að. Kostnaðurinn fór upp úr öllu valdi
og nam um 5.800 milljörðum króna.
Þeir voru töluvert dýrari en sumar-
ólympíuleikarnir í Peking, sem er
miklu stærri viðburður.
Flestir eru sammála um að leik-
arnir í Rússlandi hafi verið glæsileg-
ir þótt spillingin í aðdraganda þeirra
hafi varpað á þá skugga. En hvað tek-
ur við í ólympíuþorpi, eða ólympíu-
mannvirkjum þegar síðasti þjóð-
söngurinn hefur ómað um rándýr
hljóðkerfin? Ekkert. Nákvæmlega
ekkert. Á vefsíðunni news.distracti-
fy.com eru birtar myndir af ólympíu-
mannvirkjum sem eiga það sameig-
inlegt að vera í niðurníðslu. n
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Þurrar laugar Eins og sjá
má er ekki einu sinni vatn í ólympíulaugun-
um í Aþenu 2004. Þarna fór fram keppni í
dýfingum.
Andlit Aðeins tíu árum eftir að Aþena hélt glæsilega sumarólympíuleika er þar
allt í niðurníðslu. Grikkir hafa aldeilis ekki farið varhluta af efnahagsþrengingum og því eru
ekki til peningar til að halda mannvirkjunum við. Á myndinni má sjá leifar gosbrunnanna við
innganginn á ólympíusvæðið.
Fyrir og eftir Hér má sjá hreiðrið, aðalleikvanginn sem Kínverjar reistu fyrir
leikana glæsilegu í Peking 2008. Leikarnir kostuðu 4.800 milljarða króna. Óhætt er að segja
að mannvirkið hafi munað fífil sinn fegurri.
Fer eins fyrir Sochi?
Ekki eru liðnar nema nokkrar vikur frá því
ólympíuleikarnir í Sochi kláruðust. Í dag er
þar varla hræðu að sjá, eins og ljósmyndar-
inn Alexander Vavlov komst að raun um á
dögunum. Bíða þessara mannvirkja sömu
örlög og annarra sem hér eru nefnd til
sögunnar, að grotna niður í fyllingu
tímans? Það mun tíminn leiða í ljós.
Vettvangur stríðs Sarajevó var fyrsta borgin, stýrð af kommúnistum,
til að halda vetrarólympíuleika. Það var árið 1984. Ólympíunefndinni var mikið í mun að láta
ekki pólitískar áherslur stýra því hvar leikarnir færu fram. Tíu árum eftir að leikarnir
kláruðust leystist Júgóslavía upp í Bosníu og Hersegóvínu. Stríð braust út í Sarajevó og
ólympíumannvirkin urðu vettvangur stríðsins, eins og glöggt má sjá.
Enginn að róa Hér fóru fram hinar
ýmsu róðrarkeppnir í Peking 2004. Aðstaðan þótti öll
hin glæsilegasta enda mikið í lagt. Í dag er ekki deigur
dropi í brautunum og þeim er ekkert haldið við.
Í niðurníðslu Sumarólympíuleikarnir voru haldnir í Berlín 1936, þegar
Adolf Hitler réði ríkjum. Það þarf kannski ekki að koma á óvart en mannvirkin sem hann
lét reisa í tengslum við leikana eru öll í niðurníðslu.
Enginn vill spila mjúkbolta Flestar byggingarnar í Aþenu 2005
voru reistar einnota, það er að segja, voru aðeins hugsaðar fyrir þá íþrótt sem þar átti fram að
fara á leikunum sjálfum. Enginn áhugi er til dæmis á mjúkbolta (e. softball) í Grikklandi.
Svipaða sögu er að segja af blakvellinum og hokkíleikvanginum.