Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2014, Page 39
Helgarblað 23.–28. apríl 2014 Skrýtið Sakamál 39
E
itt mest umtalaða og flókn-
asta morðmál í sögu Houston
í Bandaríkjunum hófst árið
1969 með dauða Joan Hill.
Joan var eiginkona lýtalækn-
isins John Hill, vel þekkt í efri lögum
samfélagsins, dóttir önuglynds olíu-
baróns, Ash Robinson, og stórt nafn
í félagsskap hestaáhugafólks – „hors-
ey set“.
Ekki allt í boði
Þau hjónin lifðu í reynd hvort sínu
lífi enda bæði upptekin við sitt. John
Hill var önnum kafinn í lýtalækning-
um og Joan var, sem fyrr segir, á kafi
í hestamennsku og því sem henni
fylgdi.
En þrátt fyrir að þau hengju ekki
utan í hvort öðru öllum stundum var
ekki þar með sagt að Joan hugnað-
ist að eiginmaðurinn hoppaði upp í
rúm til annarra kvenna – en því fór
þó fjarri að allt væri „fine and dandy“
í hjúskap þeirra. Það hafði komið
berlega í ljós undir árslok 1968.
John sækir um skilnað
Það var sem sagt 3. desember 1968
sem John Hill sótti um skilnað en
dró í land eftir að Joan hafði hafnað
beiðni hans. Í mars, 1969, venti Joan
kvæði sínu í kross, að sögn nágranna
þeirra hjóna, og setti af stað skilnað-
arferli.
Joan tókst þó aldrei að fylgja
skilnaðarkröfu sinni eftir því tveim-
ur dögum síðar veiktist hún og eigin-
maður hennar, læknirinn, braut eina
af höfuðreglum lækna – hann ákvað
að sjá um hjúkrun eiginkonu sinnar
sjálfur.
Ósáttur Ash Robinson
John Hill sá til þess að Joan var lögð
inn á sjúkrahús sem hann var fjár-
hagslega tengdur og til að gera
langa sögu stutta þá var Joan liðið lík
skömmu síðar, 19. mars 1969, 38 ára
að aldri. Dánarorsök var sögð hjarta-
bilun og John beið ekki boðanna en
skipulagði útför eiginkonu sinnar
án þess að dánarorsök væri að fullu
sannreynd.
Þetta hugnaðist Ash Robinson
ekki og sakaði hann John um að hafa
stuðlað að dauða Joan og fór ekki
leynt með að hann grunaði tengda-
son sinn um græsku.
Kvænist skömmu síðar
Ekki bætti úr skák að John Hill gekk,
í júní 1969, í hjónaband með fráskil-
inni konu, ástkonu hans til langs
tíma, Ann Kurth. Ash Robinson réð
einkaspæjara til að fylgjast með John
og nauðaði í saksóknara um að hefja
morðrannsókn. John svaraði með
því að höfða meiðyrðamál á hend-
ur Ash.
Dómur var settur saman til að
kanna hvort grundvöllur væri til
að ákæra John Hill; tvisvar sinn-
um var niðurstaðan neikvæð en í
þriðja sinn, í apríl 1970, urðu mála-
lyktir þær að hann var ákærður fyrir
manndráp af gáleysi.
Snurða hleypur á þráðinn
Níu mánuðum eftir að John og Ann
gengu í hjónaband dömpaði hann
henni og hún hefndi sín með því að
fullyrða að hann hefði viðurkennt
fyrir henni að hafa banað Joan. Og
réttarhöldin yfir John fóru í handa-
skolum þegar Ann bætti um betur og
sagði hann hafa reynt að sprauta ein-
hverju efni í hana.
Réttarhöldin voru úrskurðuð
ógild og ný réttarhöld ákveðin og
skyldu hefjast í nóvember 1972.
Maður myrðir
mann og er skotinn
Þegar þarna var komið sögu hafði
John Hill kvænst í þriðja sinn, án
þess að það snerti framvinduna
nokkuð því 24. september 1972 skaut
grímuklæddur maður John til bana
þar sem hann var í mestu makindum
heima hjá sér.
Borin voru kennsl á morðingjann
og var þar kominn Bobby nokkur
Vandiver. Hann ku hafa fengið 5.000
dali fyrir viðvikið og hélt því fram að
Ash Robinson hefði ráðið hann til
verksins.
Áður en öll kurl voru komin til
grafar var Bobby skotinn til bana af
lögreglumanni þegar hann reyndi að
flýja.
Einkamál á hendur Ash
Ash Robinson sagðist koma af
fjöllum hvað varðaði fullyrðingar
Bobbys; hann byggi ekki yfir nokkurri
vitneskja þar að lútandi.
Eftirlifandi eiginkona John Hill,
Connie, og sonur hans, Robert,
höfðuðu einkamál á hendur Ash árið
1977 vegna dauða John, en því var
vísað frá og Ash Robinson dó árið
1985. n
n Eiginkona deyr n Maður hennar myrtur n Morðingi mannsins skotinn
john og joan
Hill-hjónin Joan og John Hill
þegar lífið brosti við þeim.
„Ash Robinson réð
einkaspæjara til
að fylgjast með John og
nauðaði í saksóknara um
að hefja morðrannsókn.
Joan Hill Hross voru líf og
yndi læknisfrúarinnar.
Framhjá-
haldið
endaði
með morði
Dómstóll í Nýju Suður-Wales í
Ástralíu hefur dæmt Paul Mulvi-
hill í 22 ára fangelsi hið minnsta
fyrir morðið á Rachelle Yeo í
júlí 2012. Mulvihill og Yeo voru
samstarfsfélagar hjá lyfjafyrir-
tæki í Bris-
bane og hófu
þau ástar-
samband ári
fyrir morðið.
Á þeim tíma
var Mulvihill
kvæntur og
Yeo trúlofuð.
Skömmu
fyrir morðið
var samband
þeirra orðið stormasamt og
ákvað Yeo að klippa á öll tengsl
við Mulvihill þegar hún fékk
stöðuhækkun og þurfti af þeim
sökum að flytja til Sydney. Fyrir
dómi kom fram að hún hafi gert
sitt besta til að halda dvalarstað
sínum í Sydney leyndum fyrir
Mulvihill. Óttaðist hún að hann
myndi gera henni skaða enda
hafði hann sýnt af sér ofbeld-
isfulla hegðun áður. Skemmst
er frá því að segja að Mulvihill
frétti hvar Yeo bjó og ók sem leið
lá til Sydney hinn 16. júlí 2012.
Talið er að Mulvihill hafi brot-
ið sér leið inn í íbúð hennar. Lík
Yeo fannst skömmu síðar með
stungusár á brjósti. Mulvihill var
handtekinn degi síðar. Mulvihill
þarf að sitja á bak við lás og slá
að minnsta kosti til ársins 2035,
en þó ekki lengur en til ársins
2042.
Rachelle Yeo
Ráðgátan
er leyst
Í rúm fjörutíu ár hefur hvarf
tveggja unglingsstúlkna, Cheryl
Miller og Pamella Jackson, frá
Suður-Dakóta í Bandaríkjunum
verið sveipað dulúð. Stúlkurn-
ar höfðu farið á dansleik í maí
1971 en skiluðu sér ekki til baka.
Engar vísbendingar fundust um
hvarf þeirra og voru lögreglu-
menn ráðþrota.
Það var hins vegar síðast-
liðið haust að bifreið fannst utan
vegar við fáfarna leið í Elk Point
í Suður-Dakóta. Réttarrannsókn
á líkamsleifum tveggja einstak-
linga sem fundust í bifreiðinni
leiddi í ljós að um var að ræða
stúlkurnar sem hurfu 1971. Svo
virðist vera sem önnur stúlkan
hafi hreinlega misst stjórn á bif-
reiðinni og um bílslys hafi verið
að ræða.