Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2014, Síða 40
Helgarblað 23.–28. apríl 201440 Lífsstíll
Fáðu þér kríu
Samkvæmt nýrri rannsókn spil-
ar blundur stórt hlutverk í því að
hjálpa börnum á öllum aldri að
muna það sem þau hafa lært yfir
daginn. Geta barna til að færa
nýja þekkingu yfir á aðrar aðstæð-
ur og læra af nýfenginni reynslu
eykst til muna ef þau leggja sig
fljótlega á eftir. Þá hefur svefn
einnig áhrif á minni fullorðinna.
Góður nætursvefn hjálpar full-
orðnum til að mynda við að muna
framtíðaráform sín, hvort sem
það er hvað á að vera í matinn í
kvöld eða hvaða skilafrestur er
fram undan í vinnunni.
Streita á með-
göngu eykur
líkur á astma
Streita á meðgöngu, til dæm-
is í kjölfar skilnaðar, atvinnu-
missis eða andláts, er talin auka
líkurnar á astma meðal barna.
Þetta eru niðurstöður nýrrar
rannsóknar við háskólasjúkra-
húsið Hamburg-Eppendorf í
Þýskalandi. Verðandi mæður
994 barna voru í tvígang spurðar
um streituvaldandi lífsatvik, um
miðja meðgöngu og þegar með-
göngu var lokið. Börnin voru síð-
an skoðuð þegar þau voru bæði
sex og fjórtán ára. Í ljós kom að
líkurnar á því að hafa astma á
unglingsaldri voru umtalsvert
meiri hjá börnum ef mæður
þeirra upplifðu streitu á með-
göngunni.
Hentar mjúka
aðferðin þér?
n 8 lögmál tengslauppeldis n Sterk tilfinningaleg tengsl mikilvæg
F
lestir nýbakaðir foreldrar
kannast við að fá misgóð
uppeldisráð frá velmein-
andi aðilum. Það getur því
verið erfitt að átta sig á því
hvað virkar og hvað ekki.
Allir foreldrar vilja mynda sem
best tengsl við börn sín og reyna
sitt besta við að tileinka sér uppeld-
isaðferðir sem passa þeirra gildis-
mati. Tengslauppeldi (e. attach-
ment parenting) nýtur vaxandi
vinsælda en hugtakið var fund-
ið upp af barnalækninum heims-
fræga dr. William Sears.
Í stuttu máli snýst aðferðin um
sterk tilfinningaleg tengsl milli for-
eldris og barns og telja talsmenn
kenningarinnar að þessi sterku
tengsl verði til þess að barnið upp-
lifi sig öruggt sem skili sér í sjálfsör-
uggum og sjálfstæðum einstak-
lingi sem kann að setja sig í spor
annarra.
Þeir sem aðhyllast tengslaupp-
eldi fara eftir nokkrum meginregl-
um en foreldrar eru hvattir til að
túlka og nota reglur á sinn hátt.
Hægt er að lesa meira um tengsla-
uppeldi á vefsíðunni askdrsears.
com.
1 Undirbúningur Reyndu að útiloka neikvæðar og
skemmandi hugsanir varðandi
meðgöngu og fæðingu. Þannig
undirbýrðu þig sem best fyrir það
tilfinningalega krefjandi starf sem
foreldrahlutverkið er.
2 Brjósta-gjöf Þeir
sem aðhyllast
tengsla uppeldi
segja brjósta-
gjöf tilvalda leið
til að mynda góð
tengsl milli móð- ur
og barns. Brjóstagjöfin kenni ung-
barninu að foreldrið læri á merki
þess og uppfylli þarfir þess.
3 Samskipti Foreldrar
líta á alla tján-
ingu barns-
ins, þar á með-
al æðisköst, sem
viðleitni til tjáskipta.
Þessar tilraunir eru teknar alvar-
lega og misskildar frekar en að
refsað fyrir þær.
4 Snerting Mælt er með
sem mestri „húð
við húð“ snertingu
og mikilli samveru.
Þetta getur til að mynda
verið sameiginlegar baðferð-
ir og notkun burðarpoka þar sem
barnið hangir framan á foreldri
sínu.
5 Svefn Þeir sem að-
hyllast tengsla-
uppeldi kjósa að
leyfa barninu að
sofa í sama herbergi
eða í rúmi foreldranna. Þannig
verði brjóstagjöf og huggun auð-
veldari um miðjar nætur.
6 Samvera Hvatt er til þess annað foreldri sé næstum
alltaf hjá barninu fyrstu mánuðina.
7 Jákvæður agi Foreldr-
ar eru hvattir til
þess að beina
sjónum barns að
öðru, beina því
í aðrar áttir og leiðbeina jafnvel
yngstu börnunum til að ná fram
jákvæðri hegðun. Foreldrar leggja
sig fram um að skilja að neikvæð
hegðun sé tilraun til tjáskipta.
Í tengslauppeldi eru foreldrar
hvattir til þess að vinna að lausn-
um með barninu frekar en að afls-
mun sé beitt eða að vilja foreldr-
anna sé einfaldlega troðið yfir á
barnið.
8 Jafnvægi Foreldr-
ar eru hvattir til
þess að búa sér
til gott stuðn-
ingskerfi, lifa heil-
brigðu lífi og komast
hjá því að brenna út í foreldrahlut-
verkinu. n
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
Snerting
Mælt er með sem mestri
„húð við húð“ snertingu
og mikilli samveru.
„Feika“ fullnægingu fyrir sig
K
onur sem gera sér upp full-
nægingu í kynlífi gera það
fyrir eigin unaðsauka. Þetta
kemur fram í rannsókn sem
birtist í Journal of Sexual Archives
og Huffington Post fjallaði um.
Rætt var við ungar, einhleyp-
ar konur sem viðurkenndu að hafa
gert sér upp fullnægingu. Í niður-
stöðum rannsóknarinnar kom
fram að fjórar ástæður fyrir upp-
gerðinni reyndust líklegri en aðrar.
Í fyrsta lagi geri konur sér upp
fullnægingu til að verja tilfinningar
bólfélagans, í öðru lagi til að forðast
neikvæða upplifun af ástarleikn-
um, í þriðja lagi til að veita sjálfri
sér kynferðislega örvun og í fjórða
lagi til að klára kynmökin.
Samkvæmt Erin Cooper, eins
vísindamanna sem kom að rann-
sókninni, passa tvær fyrstu útskýr-
ingarnar að eldri hugmyndum um
uppgerð fullnæginga; það er að
konur geri sér upp fullnægingu
með hag karlmannsins að leiðar-
ljósi eða eigin tilfinningalegu vel-
ferð. Þriðja útskýringin er, að mati
Coopers, ný af nálinni.
Niðurstöður rannsóknarinn-
ar voru gagnrýndar í The Times.
Þar kemur fram að rannsóknin
hafi verið gerð á ungum, einhleyp-
um konum en fyrri rannsóknir hafi
einmitt sýnt að sá hópur á erfiðara
en aðrir hópar kvenna með að ná
fullnægingu við kynmök. n
Fjórar algengar ástæður fyrir uppgerðinni
Unaðsauki
Rannsóknin sýnir
fram á að konur „feiki“
fullnægingu sér til
unaðsauka.
GlæsileGt
fjallahjól
Smiðjuvegi 30 - rauð gata / Kópavogi / sími: 577 6400
Aðeins...
77.583 kr.
Diskabremsur
Álstell
Demparar 100 mm
21 gír Shimano