Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2014, Blaðsíða 45
Helgarblað 23.–28. apríl 2014 Lífsstíll 45
fuj i b ik es .com
Fuji Traverse er hentugt alhliða reiðhjól
jafnt í stuttar sem langar ferðir. Hayes vökva
diskabremsur. Shimano DEORE gírbúnaður. Suntour
frammdempari með vökvalæsingu.
Any Terrain
Any Commute
A n y D i s t a n c e
TRAVERSE
Hvellur.Com – G.Tómasson ehf, Smiðjuvegi 30 - 200 Kópavogur – Iceland, http://www.hvellur.com, hvellur@hvellur.com Tel: +354-5776400 Fax: +354-5776401
Traverse_CS6.indd 1 25.03.2013 12:12:10
Koparbyltingin
Það hefur líklega ekki farið fram hjá
neinum að koparlitur er sá allra heit-
asti um þessar mundir og fyllir allar
lífsstílssíður og -blogg.
Það þarf ekki að kosta nein ósköp
að stökkva á koparvagninn því rétt
staðsettur hlutur á heimilinu getur
alveg gert kraftaverk.
Ódýrasta leiðin er líklega að fjár-
festa í úðabrúsa með koparlit og
úða einhverja fallega hluti. Það má
til dæmis úða kertastjaka, vasa eða
styttur en koparlituð herðatré setja
líka svip á fatahengið.
Eins er lítið mál að úða niður-
suðudósir en það getur komið mjög
skemmtilega út.
Sniðugar lausnir
Hér má sjá nokkur ansi auð-
veld en skemmtileg ráð sem geta
komið að góðum notum.
Heimagerðar Gerðu þínar eigin taco-
kökur með því að baka pönnukökurnar.
Þá verða þær stökkar og fínar.
Betri ending Settu plast yfir endana
á bönunum og þeir endast í 4–5 daga
lengur.
Viðheldur rakanum Ef þú vilt koma
í veg fyrir að kökubotninn þorni yfir nótt
er sniðugt að setja brauðsneið í miðjuna
á honum. Brauðið hjálpar til við að halda
rakanum í botninum.
Enginn subbuskapur Litlir fingur
geta oft orðið ansi klístraðir við frostp-
innaát. Gott ráð er að setja möffinsform
undir ísinn, þá lekur af honum í formið,
ekki á hendurnar eða fötin.
F
yrir þá sem vilja nýta sam-
félagsmiðla til að fá inn-
blástur og hafa fengið nóg
af því að sjá bara myndir af
matardiskum og börnum er til-
valið að fylgjast með hönnuðum,
arkitektum og ljósmyndurum sem
taka myndir af fallegum eða sér-
stökum augnablikum og hlutum á
myndamiðlinum Instagram. Það
hristir heldur betur upp í frétta-
veitum og má einnig nota til þess
að fá innblástur og hugmyndir til
þess að nýta heima við.
Ekki þarf að leita langt til þess
að finna slíkar síður á Instagram og
má til dæmis nefna Svart á hvítu,
síðu Svönu Lovísu Kristjánsdóttur,
sem einnig bloggar á samnefndri
heimasíðu. Þar birtir hún oft hug-
myndir, fallega hönnun og jafnvel
myndir heiman frá sér.
Á síðunni Inspohome má finna
fallegar heimilismyndir sem veita
svo sannarlega innblástur. Hvítir
og mjúkir litir eru sérstaklega ráð-
andi og gleðja augað.
Hjá Pureinterior má svo einnig
finna klassískan, oft skandinavísk-
an stíl. Það er hin norska Elisabeth
Tangen Johansen sem heldur úti
síðunni, þar sem iðulega má sjá
hluti sem gleðja augað og andann.
I wish this was my house sýnir
falleg og glæsileg heimili víðs vegar
um heiminn. Segja má að þar megi
ferðast um heimili heimsins á ör-
skotsstundu. Síðueigandi sækir
innblásturinn frá mismunandi og
ólíkum áttum.
Instagram-síða Interior4all
sækir fanga einnig víða þar sem
sjá má klassískar heimilisuppstill-
ingar en einnig framsækinn stíl. n
astasigrun@dv.is
Ertu að leita að innblæstri?
Kíktu á þessar síður á Instagram
Fallegar myndir Inni á milli barna-
myndanna og matarmyndanna er gaman
að sjá myndir af fallegri hönnun.