Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2014, Qupperneq 50
Helgarblað 23.–28. apríl 201450 Sport
Rauði demanturinn
É
g held að við séum með góð-
an leikmann þarna,“ sagði
Kenny Dalglish, fyrrverandi
knattspyrnustjóri Liverpool, við
Frank McParland, æðsta yfir-
mann akademíu enska úrvalsdeildar-
félagsins haustið 2010. Dalglish hafði
gert sér ferð á æfingasvæði Everton
til að fylgjast með nýjasta liðsmanni
unglingaakademíu Liverpool, hinum
fimmtán ára Raheem Shaquille Sterl-
ing, í leik gegn erkifjendunum í Bítla-
borginni. Ekki er óvarlegt að ætla að
farið hafi um Dalglish áður en leik-
urinn hófst enda var unglingspiltur-
inn að mæta drengjum sem voru allt
að þremur árum eldri en hann. Níutíu
mínútum síðar vissi Dalglish sem var
að þarna var kominn leikmaður sem
átti bjarta framtíð.
Dýrasti unglingurinn
Aðeins mánuði áður en leikurinn fór
fram höfðu forsvarsmenn Liverpool
fest kaup á leikmanninum frá Queens
Park Rangers. Félagið greiddi 450 þús-
und pund fyrir, 85 milljónir króna á
núverandi gengi, sem er talsvert fyr-
ir svo ungan leikmann. Raunar hafði
Liverpool aldrei greitt viðlíka upphæð
fyrir svo ungan leikmann.
„Hann var eldfljótur, svo fljót-
ur að ég hafði ekki séð jafn hraðan
leikmann síðan Michael Owen var í
akademíunni,“ segir McParlan í sam-
tali við Daily Mail sem fjallaði ítarlega
um framgöngu Sterlings á dögunum.
„Leikgleðin skein úr augum hans. Öll
stóru félögin voru að fylgjast með hon-
um og þess vegna ákváðum við að slá
til,“ bætir hann við um aðdragandann
að kaupunum. Að lokum fór það svo að
Rafael Benitez, sem þá var stjóri Liver-
pool, samþykkti kaupin. QPR sam-
þykkti söluna gegn því að kaupverðið
myndi hækka upp í tvær milljónir
punda ef Sterling léki landsleik. Þrátt
fyrir að vera ekki enn orðinn tvítugur
hefur Sterling leikið tvo A-landsleiki
með Englendingum og bendir flest til
þess að hann fari með enska hópnum
á HM í Brasilíu í sumar.
Augljósar framfarir
Tvær milljónir punda fyrir svo
hæfileikaríkan leikmann þykir ekki
mikill peningur. Sterling braust inn í
Liverpool-liðið á síðasta tímabili og
fékk þá einn og einn leik undir stjórn
Brendan Rodgers. Tímabilið 2012/13
lék hann samtals 1.748 mínútur í
deild, flestar fyrir áramót, og skoraði
á þessum mínútum tvö mörk og lagði
upp sex. Eftir áramót notaði Rodgers
hann sparlega sem, þegar á hólminn
er komið, reyndist hárrétt ákvörðun.
Á þessu tímabili hefur Sterling leikið
1.962 mínútur, skorað níu mörk og lagt
upp sex. Framfarirnar eru augljósar.
Gert grín að honum
Sterling hefur aldrei verið mjög há-
vaxinn. Í fótbolta virðist það auka-
atriði eins og Lionel Messi og Diego
Maradona hafa sannað. Sterling tek-
ur undir það í viðtali við Daily Mail.
„Ég hef alltaf spilað á móti strákum
sem eru hærri en ég. Einu sinni var
gert grín að mér í leik með unglinga-
liðinu í Þýskalandi. Þetta hefur alltaf
verið svona, ég hef alltaf spilað á móti
eldri strákum og ég hef bara haft gam-
an af áskoruninni sem því fylgir,“ sagði
hann. Þar sem ekki var fyrir líkamleg-
um styrk að fara þurfti Sterling að full-
komna aðrar hliðar knattspyrnunnar,
eins og boltatækni og leikskilning sem
verður betri með hverjum leiknum.
Ótrúleg hlaupageta
Þrátt fyrir að vera smávaxinn hefur
Sterling ávallt verið mikill íþróttamað-
ur eins og Peter Brukner í læknaliði
Liverpool bendir á. Eitt sinn var Sterl-
ing að spila með unglingaliði Liver-
pool í bikarleik sem fór í framlengingu.
Brukner fylgdist vel með hlaupagetu
leikmanna liðsins og þegar 118 mín-
útur voru liðnar af leiknum var ákefð
Sterlings í hlaupum sú sama og hún
var á fyrsta hálftímanum. Brukner seg-
ir að margir úr aðalliðinu
hafi ekki verið hálf-
drættingar á við Sterling
og bendir á að líkamlegt
form Sterlings og Fern-
ando Torres hafi verið
eins og munurinn á nótt
og degi.
Fæddur á Jamaíka
Þrátt fyrir að vera í góðu
hlaupaformi hefur Sterl-
ing átt við sín vandamál
að stríða utan vallar –
vandamál sem hann gat
ekki hlaupið undan. Að
yfirgefa heimahaga sína í London að-
eins fimmtán ára var ekki auðvelt. Tíu
árum áður, þegar Sterling var fimm
ára, hafði móðir hans, Nadine, flutt
með fjölskyldu sína frá Jamaíka þar
sem Sterling fæddist. Nokkrum árum
eftir komuna til Englands var Sterl-
ing rekinn úr skóla vegna hegðunar-
vandamála. Sterling fór því næst í
einkarekinn skóla, Vernon House, þar
sem hann sýndi ekki alltaf af sér fyr-
irmyndarhegðun. Í umfjöllun Daily
Mail kemur fram að umsjónarkennari
hans hafi sagt við hann: „Ef þú held-
ur áfram á sömu braut muntu ann-
aðhvort vera í fangelsi eða í enska
landsliðinu þegar þú verður 17 ára.“
Kennarinn virðist hafa haft rétt fyrir
sér, varðandi hið síðar-
nefnda að minnsta kosti.
Hlustar á mömmu
Í unglingaakademíu
Liverpool saknaði Sterl-
ing heimahaganna. Hon-
um var stundum ekið
til síns heima eftir æf-
ingar á kvöldin og sótt-
ur snemma á morgnana.
„Móðir mín er stór hluti
af mínu lífi,“ viðurkennir
Sterling. „Hún á það til að
skipta sér of mikið af. Ég
reyni auðvitað að hlusta
enda hefur hún yfirleitt rétt fyrir sér.“
Þar til nýlega hefur Sterling raun-
ar vakið meiri athygli fyrir vandamál
utan vallar en hæfileikana innan hans.
Í maí 2013 var Sterling ákærður fyrir
líkamsárás en ákæran var látin niður
falla eftir að vitni mætti ekki í dómsal.
Í september sama ár var hann sýkn-
aður af líkamsárás gegn fyrrverandi
kærustu sinni. Sterling viðurkennir að
hafa gert mistök utan vallar og að gjá-
lífi og íþróttir fari ekki saman.
Rodgers er föðurímynd
Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri
Liverpool, hefur hlúð vel að þess-
um unga leikmanni og er orðinn að
nokkurs konar föðurímynd. Und-
ir hans stjórn hefur Sterling þroskast
hratt sem knattspyrnumaður og get-
ur nú leyst fleiri stöður á vellinum.
Þegar Sterling var að brjótast inn í að-
alliðið var hann að mestu hugsaður
sem hreinræktaður vængmaður, en
undanfarnar vikur hefur hann verið
meira notaður í holunni svokölluðu,
milli miðju og fremstu manna, þar
sem Sterling hefur gert frábæra hluti.
„Hann hefur hjálpað mér mjög mikið.
Ekki bara með leikinn heldur einnig
hluti utan vallar.“
Sterling nefnir einnig fyrirliðann
Steven Gerrard og Luis Suarez sem
hafa hjálpað honum mikið að bæta
leik sinn.
Beðið eftir HM
Vandamál unglingsáranna virðast
vera að baki og hefur Sterling flutt
úr miðborg Liverpool til Southport.
Þegar Sterling er ekki á æfingum hvíl-
ir hann sig og spilar Playstation-leiki
eins og FIFA 14.
Margir bíða óþreyjufullir eft-
ir heimsmeistaramótinu í sumar en
líklega fáir jafn mikið og Sterling.
Frammistaða hans með Liverpool í
síðustu leikjum hefur gert það að verk-
um að erfitt verður fyrir Roy Hodg-
son landsliðsþjálfara að horfa framhjá
honum. Eftir 3-2 sigurinn á Manche-
ster City um þarsíðustu helgi, þar
sem Sterling skoraði fyrsta markið,
sagði Joe Hart landsliðsmarkvörður:
„Sjáumst á HM, Sterling!“. „Ef ég verð
valinn,“ svaraði Sterling um hæl. Ef
Liverpool tryggir sér sinn fyrsta Eng-
landsmeistaratitil í 24 ár, eins og margt
bendir til, hlýtur Sterling að fá sæti í
hópnum, jafnvel byrjunarliðinu.
Á bara eitt barn
Sá orðrómur hefur verið langlífur að
Raheem Sterling eigi þrjú börn. Það
er rangt enda á Sterling aðeins eina
dóttur, Melody Rose, sem fædd er árið
2012. „Sumt af því sem maður sér er
ótrúlegt. Ég hef lesið að ég eigi fimm
börn. Ég hlæ bara að þessu,“ sagði
Sterling við Mirror á síðasta ári. n
n Ótrúlegar framfarir Raheems Sterlings n Þakkar Rodgers fyrir n Á bara eitt barn
Nokkrar
staðreyndir
n Fæddur í Kingston á Jamaíka 8.
desember 1994
n Hóf knattspyrnuferil sinn í
akademíu QPR 10 ára
n Lék fyrir U-16, U-17, U-19 og U-21
landslið Englands áður en hann
fékk tækifæri með A-landsliðinu í
nóvember 2012.
n Skoraði 5 mörk með unglingaliði
Liverpool gegn Southend í febrúar
2011
n Lék sinn fyrsta leik með aðalliði
Liverpool 24. mars 2012 í leik gegn
Wigan
n Skoraði sitt fyrsta mark
fyrir Liverpool í mótsleik hinn 20.
október 2012 í leik gegn Reading í
deildinni.
n Varð þar með næst yngsti
leikmaður Liverpool til að skora í
mótsleik á eftir Michael Owen
Þá og nú
2012/13
Mínútur í deild: 1.748
Mörk: 2
Stoðsendingar: 6
Mínútur milli marka og
stoðsendinga: 218,5
2013/14
Mínútur í deild: 1.962
Mörk: 9
Stoðsendingar: 6
Mínútur milli marka og
stoðsendinga: 130,8
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Fjórtán ára
Raheem Sterling gekk í
raðir Liverpool frá QPR.
Aðeins eru fimm ár síðan
myndin var tekin.
Föðurímynd Sterling
þakkar Brendan Rodgers
framfarir sínar undanfarna
mánuði. Hann segist geta
leitað til hans með allt.
Frábær Raheem Sterling hefur
verið frábær í undanförnum
leikjum með Liverpool. MynD REutERS