Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2014, Qupperneq 62
Helgarblað 23.–28. apríl 201462 Fólk
J
óna Lovísa Jónsdóttir, prestur
á Akureyri, lenti um páskana í
öðru sæti í módelfitness í flokki
35 ára og eldri. Fitnesskeppn
ir eru henni ekki ókunnugar
en hún er margfaldur meistari á Ís
landsmótum í vaxtarrækt og fitness.
Hún hefur einnig hlotið góðan ár
angur erlendis. Íslandsmót IFBB
um páskana var aftur á móti hennar
fyrsta í flokki módelfitness.
„Ég er búin að keppa í öllum öðr
um flokkum og ákvað að prófa þenn
an flokk að gamni mínu og sjá hvern
ig ég fílaði hann. Mér fannst það
rosalega gaman.“
Prestur og afrekskona
Jóna keppti fyrst í vaxtarrækt og vann
árið 2011. Hún hefur keppt tvisvar í
klassískri vaxtarrækt eða ólympíufit
ness í Ósló og sigraði í bæði skipt
in. Sömuleiðis hefur hún keppt í ófá
skipti í fitness á Íslandi og unnið.
Hún er því mikil afrekskona í íþrótt
um en er einnig með embættis próf í
guðfræði.
Jóna hefur lengi vel starfað sem
prestur en einblínir nú á einkaþjálf
un og fjarþjálfun hjá Heilsa og hugur.
Hún telur trúna gott veganesti. „Trúin
hjálpar mér í öllu sem ég tek mér fyr
ir hendur. Alveg sama hvort það er í
íþróttum eða á öðrum sviðum lífsins.“
Keppir með dóttur sinni
Eplið virðist ekki falla langt frá eikinni
en dóttir Jónu, Irma Ósk Jónsdóttir,
lenti einnig í öðru sæti á sama móti
í unglingaflokki. Jóna segir það hafa
verið mjög gaman að keppa með
dóttur sinni. „Ég hef verið að þjálfa
hana. Hún hefur verið að fara eftir
prógrömmum hjá mér.“
Jóna segir að þær mæðgur hafi
planað og undirbúið sig saman.
Þær hafi haft mjög gaman af og
stutt hvor aðra. Þær hafa báðar
keppt áður en ekki í sama flokki á
sama degi. „Það var svolítið sér
stakt að vera saman, að keppa
í sama flokki og hanga saman
baksviðs.“
Jóna segir að þær mæðgur
séu báðar ákveðnar í að keppa
aftur saman. Þær ætla báðar
að taka þátt í Bikarmótinu og
Norðurlandamótinu í módel
fitness í haust.
Þátttökumet
Íslandsmót líkamsræktar
manna í Háskólabíói um
páskana var það fjölmenn
asta frá upphafi á Íslandi. Alls
151 keppandi steig á svið og sleg
ið var þátttökumet. Keppt var í fit
ness, módelfitness, vaxtarrækt,
ólympíufitness og sportfitness. n
Á
sdís Rán Gunnarsdóttir er
nú stödd í London í tökum
fyrir tímaritið GQ Magazine
og Top Gear UKtímaritið.
Ásdís hélt utan ásamt tökuliði frá
Stöð 3 á þriðjudag. Með henni í
tökunum var söngvarinn Jamie
Johnson sem sló í gegn í þáttunum
The Voice og breski leikarinn Jon
Campling sem lék í Harry Potter
myndunum. Um tuttugu manna
hópur kom að tökunum og var
mikið tilstand í kringum þær en
Ásdís var þar í aðalhlutverki.
Tökurnar tengjast þáttunum
hennar Ásdísar sem sýndir verða á
Stöð 3 en upptökur á þeim standa
yfir um þessar mundir.
Það hefur verið nóg um að
vera hjá Ásdísi síðan hún flutti
til landsins frá Búlgaríu á síðasta
ári en þar hafði hún verið bú
sett um nokkurra ára skeið. Ás
dís er nú á fullu í upptökum fyr
ir nýja sjónvarpsþáttinn sinn en
það vakti töluverða athygli í fjöl
miðlum þegar hún sagði frá því
að hún ætlaði í þáttunum meðal
annars að hjálpa tveimur þreytt
um húsmæðrum að koma útlitinu
í lag. Ásdís hefur sagt frá því í fjöl
miðlum að hugsanlega muni þær
fara í einhvers konar lýtaaðgerðir
eins og bótox.
Þegar DV náði sambandi við
Ásdísi sagðist hún vera afar spennt
fyrir myndatökunum en þar sem
hún var upptekin í tökum gat hún
ekki tjáð sig meira um málið. n
ritstjorn@dv.is
Í myndatöku fyrir GQ og Top Gear
Ásdís Rán hefur í nógu að snúast í London
Kynntust á
Instagram
„Til hamingju með 33 ára afmæl
ið þitt fallegastur!!! Ég trúi því
ekki enn að við höfum kynnst
inná Instagram og talað saman
í gegnum skype í allan þennan
tíma áður en við hittumst í fyrsta
skiptið..,“ skrifar leikkonan, fyr
irsætan og verslunareigandinn
María Birta undir mynd sem
hún birti á Instagramsíðu sinni.
Myndin var af kærastanum henn
ar, Ella Egilssyni, en parið er nú
búsett í Los Angeles. María Birta
skrifaði líka að henni fyndist við
hæfi að óska honum til hamingju
á Instagram þar sem þau hefðu
nú kynnst þar og endaði svo
kveðjuna fallegu með: „Ég elska
þig til tunglsins og til baka.“
Anna Mjöll
á Íslandi
Söngkonan Anna Mjöll Ólafs
dóttir var stödd á Íslandi um
páskana en hún er líkt og kunn
ugt er búsett í Kaliforníu. Anna
Mjöll var þó ekki bara í afslöppun
meðan á fríinu stóð því hún hélt
tónleika á Café Rósenberg síð
astliðinn laugardag og á Græna
hattinum á Akureyri á páskadag.
Fjölmennt var á báðum tónleik
unum en þar lék Anna Mjöll á als
oddi og sagði skemmtilegar sögur
milli þess sem hún söng þekkta
djassslagara.
Ferðast
um Taíland
Plötusnúðurinn Margeir Steinar
Ingólfsson er nú á ferðalagi um
Taíland og segir frá ferðalaginu á
Facebooksíðu sinni. Á ferð sinni
hefur hann kynnst ýmsu. Meðal
annars mögnuðum frösum Asíu
búa sem hann segir slá sjálfum
frasakónginum, Jóni Gunnari
Geirdal, við. Hann segist einnig
á síðunni vera sorgmæddur yfir
skuggahliðum landsins þar sem
konur séu boðnar upp eins og á
gripasýningu. „Hamingjusömu
hóruna er ekki að finna á þess
um palli,“ segir Margeir á síðunni
sinni. „Allt um kring eru graðir,
sveittir og slefandi karlar á öllum
aldri að fíla sig í botn. Að upplifa
drauminn. Lifa lífinu. Reyndar í
fullkominni sjálfsblekkingu.“
Mæðgurnar lentu
báðar í öðru sæti
Jóna Lovísa og Irma Ósk kepptu í fitness um páskana
Salka Margrét Sigurðardóttir
salka@dv.is
Sigurvegarar Lovísa keppti í flokki 35 ára og eldri í módelfitness. Mynd fitneSS.iS
Mæðgur
Keppa saman
í módelfitness
og njóta stuðnings
frá hvor annarri.
Mynd JónaS HallgRíMSSon
„Það var svolítið sér-
stakt að vera saman,
að keppa í sama flokki og
hanga saman baksviðs.
í tökum Ásdís Rán setti þessa mynd af sér inn á Facebook þegar hún var á leið út til London.