Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Blaðsíða 2
Helgarblað 20.–23. júní 20142 Fréttir Sex milljóna hagnaður Landeigendur Reykjahlíðar byrjaðir að rukka fyrir aðgang að ferðamannastöðum L andeigendafélag eigenda jarðarinnar Reykjahlíðar skilaði rúmlega 6,5 milljóna hagnaði árið 2012. Um var að ræða gengishagnað vegna leið- réttingar á lánum félagsins. Fé- lagið skilaði rúmlega 19 milljóna króna hagnaði árið á undan, 2011, og var sá hagnaður tilkominn út af lánaleiðréttingum og gengismun hjá félaginu. Á fimmtudag var greint frá því að félagið, sem heitir Land- eigendur Reykjahlíðar ehf., hefði byrjað að rukka ferðamenn um 800 krónur fyrir að skoða Leir- hnúka við Kröflu og hverina austan við Námaskarð. Gjaldtak- an er birtingarmynd deilna og um- ræðna sem komið hafa upp á síð- ustu árum og mánuðum um hvort gjaldtaka við slíka ferðamanna- staði, og einnig og sérstaklega Gullfoss og Geysi, sé eðlileg og æskileg. Landeigendafélagið er ekki vel statt, á móti tæplega 30 millj- óna króna eignum eru skuldir upp á rúmlega sömu upphæð, og er eiginfjárstaða félagsins því nei- kvæð. Félagið er því rekið í kring- um núllið. Með gjaldtökunni sem hófst á fimmtudaginn má ætla að staða félagsins vænkist nokkuð. Stærsti eigandi félagsins heit- ir Guðrún María Valgeirsdóttir og á hún 25 prósent í félaginu. Næst- stærstu hluthafar eru börn og kona Ólafs H. Jónssonar, sem er tals- maður Landeigendafélagsins, en þau eiga nærri 17 prósenta hlut. n ingi@dv.is Hannes átti hundrað milljóna Bugatti-bíl n Skráður í Lúxemborg, notaður í Courchevel n Flókið net eignarhaldsfélaga H annes Smárason fjárfest- ir átti árið 2011 Bugatti- sportbíl sem kostar um það bil eina milljón evra, um 155 milljónir króna, en selst notaður fyrir rúmar hund- rað milljónir króna. Bíll Hannes- ar var af gerðinni Bugatti Veyron 6.064. Hannes keypti bílinn árið 2007 og hefur átt hann æ síðan, að minnsta kosti til ársins 2011, en gögnin sem DV hefur undir hönd- um um bílinn eru frá því ári. Skráður í Lúxemborg Bíll Hannesar er skráður í Lúxem- borg þar sem Hannes hefur einnig verið skráður til heimilis. Bílinn hefur hann meðal annars notað vegna umsvifa sinna á meginlandi Evrópu en hann átti, í gegnum flókið net eignarhaldsfélaga sem náði til nokkurra landa og endaði í Panama, meðal annars skíðaskála í Courchevel í Frönsku ölpunum í félagi við fjárfestinn Magnús Ár- mann. Hannes hefur neitað því að hafa átt skálann en sagðist hins vegar hafa komið að rekstri hans. DV hafði hins vegar öruggar heim- ildir fyrir eignarhaldinu og Magn- ús Ármann sá ekki tilefni til að neita því. Lítið keyrður Bugatti-bíll Hannesar hafði ekki verið mikið keyrður árið 2010, einungis tæpa fjögur þúsund kíló- metra, enda eru slíkir bílar ekki notaðir hversdags að öllu jöfnu heldur á tyllidögum. Liturinn á bílnum er skilgreindur sem „Black Pearl/ Titanium Grey Metallic“. DV hefur ekki heimildir fyrir því hvort bíllinn hafi verið seldur eft- ir að þessar upplýsingar um hann lágu fyrir. Á myndum af bílnum sem DV hefur undir höndum, sem teknar voru af bílnum fyrir utan skíðaskálann í Courchevel, sést að hann var í góðu standi á þessum tíma. Þeir sem skoðuðu bílinn fyr- ir Hannes hjá Bugatti í Molsheim í Frakklandi fundu heldur ekki mikið að honum, einungis dálitl- ar rispur á stuðurum og handaför á leðri á sætunum og fleira smá- vægilegt. Þótt bíllinn sé lítið not- aður jafngildir verðið á honum hins vegar stærsta og fínasta ein- býlishúsi sem hægt er að kaupa á Íslandi. Sjaldan í Courchevel Miðað við hversu bíllinn var keyrð- ur lítið hefur hann líklega bara stað- ið óhreyfður að mestu síðastliðin ár enda hefur Hannes ekki ver- ið í Courchevel nema endrum og eins síðastliðin ár. Hann hefur ver- ið búsettur í London og Barcelona en er nú fluttur til Bandaríkjanna þar sem hann starfar fyrir fyrirtæk- ið NextCodeHealth sem er í eigu eiganda deCode, lyfjaþróunarfyr- irtækisins Amgen. Líkt og DV hefur greint frá þá leigðu Hannes og Magnús skíða- skálann í Courcevel út stóran hluta ársins en notuðu hann ekki sjálfir nema endrum og eins. Þá greindi DV frá því að þeir hefðu reynt að selja skíðaskálann en án árangurs. Hannes hefur verið ákærður af embætti sérstaks saksóknara í millifærslumálinu hjá FL Group sem verið hefur til umfjöllunar í fjölmiðlum frá árinu 2005. Héraðs- dómur vísaði málinu frá en Hæsti- réttur Íslands vísaði því aftur heim í hérað í apríl þar sem það bíður efnismeðferðar. n „Bíll Hannesar var af gerðinni Bugatti Veyron 6.064. Keypti bíl sem kostar milljón evrur Hannes Smárason keypti bíl fyrir hrun sem kostar um milljón evrur en um er að ræða Bugatti- sportbíl. Lítið keyrður Bugatti-bíll Hannesar hafði einungis verið keyrður tæplega 4.000 kílómetra árið 2011 en hann keypti hann árið 2007. Myndin er af sams konar bíl og Hannes átti. mynd wiKipedia Rukka ferðamenn Landeigendur Reykjahlíðar, austan Mývatns, hafa byrjað að rukka ferðamenn um 800 krónur fyrir að skoða tvo ferðamannastaði. Voru vinir hins látna Mennirnir sem sitja í gæsluvarð- haldi og eru grunaðir um líkams- árás á Hvammstanga aðfaranótt síðastliðins laugardags voru allir vinir fórnarlambsins. Tveir þeirra voru leystir úr haldi á fimmtudag. Maðurinn hét Tomas Grzegorz Krzeczkowski og lést á miðviku- dag á gjörgæsludeild Landspítal- ans þar sem honum hafði verið haldið sofandi í öndunarvél. Í til- kynningu frá Lögreglunni á Akur- eyri á fimmtudag segir að Tomas hafi hlotið þungt höfuðhögg með þeim afleiðingum að höfuðkúpan brotnaði og blæddi inn á heilann. Að sögn Magnúsar Magnús- sonar, sóknarprests á Hvamms- tanga, voru mennirnir tveir, sem sitja nú í gæsluvarðhald til 22. júní, báðir vinir Tomasar. Magn- ús segist ekki vita til þess að Tom- as hafi átt fjölskyldu hér á landi en hann hafði búið og unnið á Hvammstanga um árabil. Hann segir mennina sem voru tekn- ir í gæsluvarðhald, sem allir eru af erlendum uppruna, hafi sömuleiðis búið um nokkurt skeið á Hvammstanga. Ekki liggur ljóst fyrir hvað átti sér nákvæmlega stað en sam- kvæmt heimildum DV höfðu Tomas og mennirnir sem voru teknir í gæsluvarðhald verið við gleðskap í heimahúsi á föstu- dagskvöldi og fram á aðfaranótt laugardags. DV hefur heimildir fyrir því að nokkur háreysti hafi borist úr íbúðinni um nóttina. Herma heimildir DV auk þess að daginn eftir gleðskapinn hafi verið komið að Tomas þar sem hann lá einn í íbúðinni meðvit- undarlaus og í kjölfar þess ver- ið hringt í Neyðarlínuna. Í svari Lögreglunnar á Akureyri vegna fyrirspurnar DV kemur fram að hringt hafi verið í Neyðarlínuna klukkan 17.36 á laugardaginn og í framhaldi af því hafi Tomas ver- ið fluttur á Landspítalann. Það er ekki fyrr en klukkan 21.22 þann sama dag sem lögreglunni er til- kynnt um málið af lækni á gjör- gæsludeild. Mennirnir eru svo handteknir daginn eftir og eftir því sem DV kemst næst var einn mannanna í vinnu er lögreglan kom að sækja hann. Mennirnir eru á öllum aldri, sá yngsti er um tvítugt en sá elsti á sextugsaldri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.