Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Blaðsíða 32
Helgarblað 20.–23. júní 201432 Fólk Viðtal Konan er stærsti lottóvinningurinn Magnús Ólafsson leikari hefur marga fjöruna sopið. Hann segist hafa ólæknandi meðfædda leiklistarbakteríu þrátt fyrir að hafa lengi vel lítið leikið. Ástin er honum hugleikin enda segir hann eiginkonu sína vera sinn stærsta lottóvinning. Viktoría Hermannsdóttir ræddi við Magga um leiklistina, ástina, gjaldþrotið, innrás elli kerlingarinnar og endurkomu Bjössa bollu. É g viðurkenni það alveg að mér finnst dálítið erfitt að eldast. Ég er orðinn eldri borgari eins og mamma og pabbi, hugs- aðu þér!“  segir Magnús Ólafs- son leikari. Við erum stödd á Múla- kaffi eitt júníeftirmiðdegi. Fáir eru á staðnum enda hádegisösin afstað- in. Nokkrir eldri menn sitja á næsta borði og drekka kaffi og spjalla um heima og geima. Magnús er einmitt nýlega orðinn eldri borgari; hann er 68 ára gamall og viðurkennir að honum finnist erfitt að sætta sig við hækkandi aldur þótt hann sé enn í fullu fjöri og á foreldra á lífi sem eru orðin 87 ára. „Já, mér finnst það svolítið, en auðvitað má maður bara þakka fyr- ir hvern afmælisdag sem maður á. Konan mín hefur sagt það við mig að henni finnist ég ekki vera að taka þessu alveg nógu vel því mér finnst ekki vera nógu mikið að gera,“  seg- ir hann og fær sér kaffisopa. „Það er svo margt sem breytist. Maður hætt- ir að vinna og það er mikil breyting. Ég er ekkert alveg sáttur við það því ég hef alltaf unnið rosalega mikið. En sem betur fer fæ ég alltaf eitthvað að gera. Ég get ekki verið aðgerðarlaus. Ég tala til dæmis mikið inn á teikni- myndir og síðan bíður mín kvik- mynd í haust,“ segir Maggi. Rak Magnúsarbíó Það má með sanni segja að hann hafi alltaf unnið mikið. Leiklistaráhuginn lét fljótt á sér kræla, var líklega með- fæddur að hans eigin sögn. Sem ung- ur drengur í Laugarnesinu rak hann bíó og seldi hinum krökkunum í hverfinu aðgang að skugga- og seinna teiknimyndum. „Ég kallaði það Magn- úsarbíó og það eru margir sem muna enn eftir því. Ég seldi inn á krónu, bjó til bíómiða og notaði saumavélina hennar mömmu til að búa til götin til að rífa af. Ég byrjaði með skugga- myndir og svo gáfu mamma og pabbi mér handsnúna sýningarvél og þá fór ég að sýna teiknimyndir,“  segir hann brosandi. „Ég var bíósjúkur og elskaði bíómyndir og geri enn.“ „Þetta var bara í blóðinu“ Magnús er fæddur á Siglufirði í febr- úar 1946. Hann var enn ungbarn þegar hann flutti í höfuðborgina með fjölskyldu sinni. Fyrst fluttu þau á Háteigsveg en komu sér svo fyrir í Laugarnesinu þar sem hann gekk í skóla og ólst upp. Spilaði handbolta með Þrótti og rak Magnúsarbíó. Það fór líka mikið fyrir honum og ósjald- an var hann hrókur alls fagnaðar meðal skólafélaganna. Hálfgerður trúður oft á tíðum. „Þetta var bara í blóðinu. Ég hef alltaf haft þessa ólæknandi leiklistarbakteríu. Ég held að í rauninni sé ekkert hægt að kenna neinum að verða leik- ari, þú verður að hafa þetta svo- lítið í þér. Margir fara í gegn- um leiklistarskóla og klára en svo hafa þeir ekkert meira að gera. Annaðhvort er maður með þetta í sér eða ekki.“ Beðinn um að passa sig á hommunum Og Maggi hafði þetta í sér. Honum fannst ekkert skemmtilegra en að koma fram og leiklistardraumur- inn blundaði í hon- um. Fimmtán ára gamall fór hann í leiklistarskóla Ævars Kvaran og með- al skólafélaga var Davíð Oddsson. „Ég var þar í tvö og hálft ár og fór þá að læra prent því pabbi sagði við mig að það væri engin fram- tíð í leiklistinni. Ég yrði að læra eitthvað annað með og ég sé ekkert eftir því,“ segir hann. Árin í leiklistarskóla Ævars voru skemmtileg og kenndu Magn- úsi margt. Hann fékk líka að kynn- ast leikhúsinu af eigin raun og ekki minnkaði áhuginn við það. „Ævar sendi bestu nemendurna í Þjóð- leikhúsið til að fá statistahlutverk og kynnast leiklistinni,“  segir hann. Tíðarandinn hefur breyst mikið síð- an þetta var. „Ég man svo vel eftir því að Ævar sendi mig með miða með nöfnum á nokkrum í leikhús- inu og sagði mér að passa mig á þessum mönnum og það voru þá hommarnir. Svona hefur þetta breyst. Þetta var í My Fair Lady og það voru einhverjir danskir dansar- ar hérna. Ævar vildi passa okkur því við vorum ungir strákar og vissum ekki hvað við vorum að fara út í. Við urðum varir við ýmislegt þarna og það var oft leitað á mann. Það fylgdu þessu líka miklar veislur og menn að smakka það,“ segir hann. Magnús og Bjössi Maggi hefur endurvakið Bjössa bollu eftir langt hlé. Mynd SigtRygguR ARi Viktoría Hermannsdóttir viktoria@dv.is „Ég var alltaf ósáttur við að hafa aldrei farið alla leið í leiklistinni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.