Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Page 54

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Page 54
Helgarblað 20.–23. júní 201454 Menning D anstónlist er engan veg- inn minn tebolli. En samt er ekki annað hægt en að liggja dolfallinn yfir þeirri snilld sem Massive Attack er. Ein- hvern veginn tekst þeim að laumast inn á mann þangað til þeir eru orðn- ir nauðsynlegur partur af tilverunni. Í mínu tilfelli var það finnskur her- bergisfélagi sem á sökina, fyrir öðr- um er það ef til vill lagið Teardrop sem hefur verið notað í fjöldamörg- um þáttum á borð við læknadramað House. Sveitin varð til Um miðjan 9. áratuginn tóku plötu- snúðarnir Daddy G. og Mushroom þátt í kollektívinu The Wild Bunch sem spilaði á klúbbum hér og hvar í kringum Bristol. Þeir stofn- uðu hliðarverkefnið Massive Attack ásamt rapparanum og graffíti-lista- manninum 3D, og fengu sex plötu samning við Circa Records á þeim tíma þegar slíkt var enn mögulegt fyrir óþekktar hljómsveitir. Lítið var þó um peninga, og umboðsmaður- inn, Cameron McVay, og eiginkona hans, Neneh Cherry, sem sjálf var rappstjarna, tóku það á sig að borga þeim laun meðan á upptökum fyrstu plötunnar stóð. Einnig komu við sögu fyrrverandi Bjarkarkærastinn, Tricky, og stúdíólærlingurinn Geoff Barrow, sem síðar stofnaði hljóm- sveitina Portishead sem einnig er væntanleg til Íslands í sumar. Platan Blue Lines kom út árið 1991 og sló í gegn, þökk sé smáskíf- unni Unfinished Sympathy. Lagið var síðar valið 10. besta lag allra tíma af blaðinu Guardian, en babb kom í bátinn við kynningu þess. Persaflóa- stríðið fyrra var í algleymingi og um- boðsmaðurinn lét þá breyta nafninu tímabundið í Massive til að forðast að vera ruglað saman við hernaðar- bröltið. Samstarfsörðugleikar á toppnum Næsta plata, Protection, kom út árið 1994 og nú voru þeir aftur farn- ir að notast við fullt nafn. McVay var hættur sem umboðsmaður og pródúsent og í staðinn var Nellee Hooper fenginn til verksins, en hann hafði gert það gott á fyrstu sólóplötu Bjarkar árið áður. Platan naut vin- sælda og á sama tíma slógu bæði Tricky og Portishead í gegn, sem gerði það að verkum að farið var að tala um Bristol-senuna og tónlistar- stefnuna þar sem kölluð var trip-hop. Hljómsveitin hélt aftur í stúdíó, en samstarfsörðugleikar urðu stöðugt meira áberandi, Mushroom fannst 3D orðinn heldur atkvæðamikill og var óánægður með stefnuna, svo að taka varð menn upp hvern í sínu lagi. Niðurstaðan varð þó meistaraverkið Mezzanine, sem kom út árið 1998 og varð langvinsælasta plata Massi- ve Attack til þessa og seldist í rúmum fjórum milljónum eintaka. Hljómsveitin hóf að færa sig æ nær sýrurokki og bætti við sig gítarleikara og tveim trommurum. Elisabeth Fra- ser úr hljómsveitinni Coct- eau Twins var áberandi sem söngvari á plötunni. Mus- hroom var rekinn þrátt fyr- ir velgengnina og Daddy G. neitaði að vera með á næstu plötu. Var hún því nánast sól- óverkefni 3D sem nú fékk Sinead O‘Connor til að syngja fyrir sig. Plat- an 100th Window kom út árið 2003 og þótti síðri en þær fyrri, en seldist ágætlega utan Bretlands. Með Albarn gegn Íraksstríði Tónleikaferðalagið fór jafnframt úr skorðum þegar 3D var hand- tekinn fyrir að vera með Ecstacy í fórum sínum. Daddy G. sneri aft- ur að því loknu og næstu árin ein- beittu þeir sér að því að semja lög fyrir kvikmyndir jafnframt sem þeir héldu tónleika til stuðnings Palest- ínumönnum og neituðu að spila í Ísrael, en Massive Attack þóttu með pólitískari böndum dansgeirans. Þegar seinna Persaflóastríðið hófst borgaði 3D fyrir heilsíðuauglýsingar ásamt Damon Albarn til að mót- mæla þátttöku Breta í því. Loks héldu þeir í stúdíó í eigu Al- barns til að klára fimmtu plötu sína. Nefndist hún Heligoland og kom út árið 2010, og kemur Albarn fyrir á henni. Næsta plata er í vinnslu og mun hljómsveitin á henni starfa aft- ur með Tricky í fyrsta sinn í 20 ár. Í millitíðinni er hægt að sjá Massi- ve Attack spila í Laugardalnum um næstu helgi, á Summer Solstice-tón- leikahátíðinni sem haldin er í fyrsta sinn og spannar þrjá daga, en fjöl- margar hljómsveitir, bæði íslenskar og erlendar, koma þar fyrir, svo sem Skream, Woodkid og múm. n Í þá gömlu góðu Mushroom, Daddy G og 3D. Mushroom hætti í bandinu á sínum tíma vegna ágreinings. Pólitísk danstónlist n Massive Attack spila í Laugardalnum n Saga sveitarinnar og næstu skref Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com Massive Attack Spila á hátíðinni Secret Solstice næstu helgi. Þrjár nýjar sýningar Fjölbreyttar sýningar á Þjóðminjasafni Íslands Í Þjóðminjasafni Íslands voru opn- aðar hvorki fleiri né færri en þrjár nýjar sýningar á laugardaginn var. Sýningarnar heita Svipmyndir eins augnabliks, Natríum sól og Nes- stofa – Hús og saga. Sýningin Svipmyndir eins augna- bliks stendur í myndasal safnsins og þar er að finna ljósmyndir eftir Þor- stein Jósepsson (1907–1967). Þor- steinn var kunnur rithöfundur og blaðamaður. Á vef safnsins segir að Þorsteinn hafi ferðast víða og að ljós- myndir hans hafi mikið heimildar- gildi. „Safn ljósmynda Þorsteins Jós- epssonar er eitt stærsta, merkasta og heildstæðasta einkasafn frá síðustu öld sem varðveitt er í Ljósmyndasafni Íslands í Þjóðminjasafni.“ Á Veggn- um svokallaða er ljósmyndasýningin Natríum sól. Þar sýnir bandaríski ljósmyndarinn Stuart Richardson. Á sýningunni er að finna myndir af götuljósum sem sjaldan er gefinn gaumur. Á vef safnsins segirað sam- kvæmt Stuart sé „viss fegurð fólgin í geómetrísku formum gervisólanna sem skapaðar hafa verið í því augna- miði að færa okkur ljósið aftur“. Þriðja og síðasta sýningin er síð- an Nesstofa – Hús og saga. Nesstofa er meðal elstu og merkustu stein- húsa landsins. Á sýningunni verð- ur lögð aðaláhersla á að sýna hús- ið, byggingar- og viðgerðarsögu þess, en auk þess verður fjallað um nokkra þætti í merkri sögu hússins. Í Nesi var fyrsta læknisembætti lands- ins stofnað, árið 1760, lyfsala hófst þar árið 1772 og þar starfaði einnig ljósmóðir. n asgeir@dv.is Vegabréf Sigmundar Einhvers staðar á milli Bláu moskunnar og Basarsins mikla í stóru borginni við Sundið fann ég sérstæðasta kaffihús- ið sem orðið hefur á vegi mín- um. Mig minnir að það hafi kúrt í þröngum skika inn af Kalkapy-stíg, afgirt syfjuleg- um tröppum sem lágu þarna í grúfu upp að götuslóðum í grennd – rétt eins og það væri falið guði og mönnum, mitt í allri mergðinni. Og þarna sat hann félagi Polat á hækjum sér á minnsta kaffihúsinu í hinni býsönsku borg sem hvorki státaði af borðum né stólum en þeim mun meira af fölskva- lausri gestrisni, trúmennsku og lífsins hægð. Allan liðlangan daginn virtist hann hnipra sig við snjáðan pottinn yfir hlóðunum og hræra sömu leið og sólin hringar sjóndeildina. Og aldeilis ekkert truflaði ein- beitingu þessa gamla manns sem hafði helgað líf sitt öll- um keipum og kenjum hins myrka og máttuga drukks. Lífið hafði tálgað andlit hans á ýmsa vegu og sömuleiðis skrokk- inn allan sem virtist bera litlu meiri þunga af holdi sínu en beinum. Það var samt mild- ur og meinlaus augnsvipur- inn sem skipti mestu máli í samverunni, ásamt tannlitlu brosinu sem fól í sér friðsemd og heilindi. Maðurinn var eirðin uppmáluð. Hann var hin stóíska ró. Að setjast nið- ur með þessu manni í miðj- um innsta krika Istanbúl var eins og að segja skilið við tíma og rými. Þarna í þéttbýlustu borg veraldar – sem er svo víð- feðm að hún telst til tveggja heimsálfa – hafði ég borist með straumi mannfjöldans millum stórkostlegustu stórhýsanna í Evrópuhluta borgarinnar sem ýmist hýsa heita trú eða heims- söguna sjálfa. Og áhrifin eru engu lagi lík, hvort heldur er á augu, eyru eða nef; mann ein- faldlega sundlar af fegurð turn- virkjanna sem klóra himin- inn yfir öllum hvolfþökunum í henni Konstantínópel – og einhvern veginn í samhengi við það allt saman er þefur- inn, sem liggur yfir þessum helstu krossgötum menningar og siða, jafn þykkur og hann er kæfandi. En akkúrat þarna við Kalkapy-stíg fann ég minn eig- in sanna Miklagarð; á skörinni framan við hægláta meistar- ann sem rótaði í gamla pottin- um með skaftlangri ausu sem ugglaust var ekki þvegin með þvottalegi á hverju ári. Kaffi- húsið sjálft var innskot í vegg- hleðslu, kannski einnar álnar djúpt og aðrar tvær á hæðina. Þar geymdi hann amboðin sín á bak við hlera yfir nóttina, en lauk svo bríkinni upp í glanna- bítið á morgnana til að rista kaffibaunirnar sínar yfir eldi, mala þær og sjóða svo í vatni, rétt eins og gert hefur verið hjá Ottómönnum frá því kaffi barst fyrst frá Yemen til Evrópu á sextándu öld, einmitt um þessa einu sönnu Istanbúl. Og þarna sat ég á hækjum mér, á til- komuminnsta kaffihúsi heims – og drakk sannasta kaffi sem sagan hefur skammtað mér. Kaffimeistarinn við Kalkapy Svipmyndir eins augnabliks Ljósmyndir eftir Þorstein Jósepsson (1907–1967). Þorsteinn var kunnur rithöfundur og blaðamaður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.