Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Blaðsíða 8
8 Fréttir G ísli Tryggvason héraðs- dómslögmaður telur að það brjóti gegn stjórnarskránni að refsa fólki fyrir vörslu kannabisefna til einka- nota og neyslu þess í heimahúsum, enda feli slík afskipti í sér ólögmæta takmörkun á friðhelgi einkalífs og heimilis. Hann ætlar að láta reyna á þessi lagarök ef til ákæru og dómsmeðferðar kemur í máli gegn skjólstæðingi hans. Skjólstæðingurinn er ung kona sem gefið er að sök að hafa haft vörslur á tæplega fimm grömm- um af kannabisefni sem fundust á heimili hennar við húsleit. Eftir að vettvangsskýrsla hafði verið tekin af konunni lét Gísli bóka eftirfarandi: „Varsla og neysla kannabisefna er refsilaus samkvæmt stjórnarskrá.“ Gísli er staddur erlendis og vildi ekki tjá sig efnislega um málið þegar DV hafði samband við hann. Þröng skilyrði fyrir takmörkun Stjórnarskrá Íslands setur ströng skilyrði fyrir hvers kyns takmörkun- um á friðhelgi einkalífs og heimil- is en slíka friðhelgi má aðeins tak- marka með sérstakri lagaheimild „ef brýna nauðsyn ber til vegna réttinda annarra“. Gísli telur að varsla kanna- bisefna til einkanota hljóti að heyra til einkalífs og vera refsilaus. Réttindi annarra krefjist þess ekki að friðhelgi einkalífs sé rofin í slík- um tilfellum. Mannréttindakafli stjórnarskrár- innar var uppfærður árið 1995. Í greinargerð sem þá fylgdi frum- varpi til stjórnskipunarlaga kem- ur fram að í friðhelgi einkalífs felist „fyrst og fremst réttur manns til að ráða yfir lífi sínu og líkama og til að njóta friðar um lífshætti sína og einkahagi“. Takmarkanir á frið- helgi einkalífs og heimilis eru háðar þrengri skilyrðum en til að mynda takmarkanir á eignar- rétti og tjáningarfrelsi í stjórn- arskránni. Aðeins má takmarka þessa friðhelgi í undantekn- ingartilvikum ef það er nauðsyn- legt vegna réttinda annarra. Í greinargerð Alþingis segir að tilgangurinn með þessari takmörk- un „beinist hvað helst að tilvik- um þar sem afskipti af heimili og fjölskyldulífi eru nauðsynleg til að vernda hagsmuni barna“. Einnig er tiltekið í greinargerðinni að tak- markanirnar geti tengst heimildum í löggjöf um fullnustugerðir, svo sem hvað varðar fjárnám, nauðungar- sölu og gjaldþrotaskipti. Lög- skýringargögn benda ekki til þess að löggjafinn hafi gert ráð fyrir takmörkunum á friðhelgi einkalífs vegna heilsu fólks. Misvísandi upplýsingar Skjólstæðingur Gísla var tekin í yfirheyrslu í lok janúar eftir að maður í fylgd með henni var handtekinn og grunað- ur um meðferð fíkni- efna. Konan synjaði lögreglu um leyfi til húsleitar og þegar Gísli krafðist þess að húsleitarkrafan yrði borin undir dómara tjáðu lögreglumenn honum að enginn dómari væri á vakt þessa nótt. Síðar hefur dómstjóri Héraðs- dóms Reykjavíkur staðfest að þessar upplýsingar voru rangar. Skjólstæðingi Gísla var sagt að ef hún heimilaði ekki húsleit þyrfti hún að gista fangaklefa um nóttina. Í kjölfarið gaf hún skriflegt leyfi fyr- ir húsleit án þess að úrskurður dóm- ara lægi fyrir. Telur Gísli að lögreglu- mennirnir hafi þannig framkvæmt ólöglega leit og beitt „ólöglegri að- ferð til þess að koma manni til játn- ingar eða sagna“. Við leitina fundust sem áður seg- ir tæplega fimm grömm af kanna- bisefni. Gísli hefur farið þess á leit að málið verði fellt niður, bæði vegna málsmeðferðargalla hjá lögreglu og á grundvelli þess að það brjóti í bága við stjórnarskrána að refsa fyrir neyslu og vörslu kannabis- efna til einkanota. n Helgarblað 20.–23. júní 2014 Gísli Tryggvason segir andstætt stjórnarskrá að refsa fyrir vörslu kannabis til einkanota Jóhann Páll Jóhannsson johannp@dv.is Telur vörslu og neyslu refsilausa „Fyrst og fremst réttur manns til að ráða yfir lífi sínu og líkama og til að njóta friðar um lífshætti sína og einkahagi. Á skjön við stjórnarskrá Héraðs- dómslögmaður telur að það brjóti gegn stjórnarskrá Íslands að refsa fólki fyrir vörslu kannabisefna til einkanota og neyslu þess í heimahús- um. Bannað Kannabis telst til ólöglegra vímuefna á Íslandi. Fleiri brot en minni hraði Alls 5.517 hraðakstursbrot voru skráð á vegköflum hér á landi þar sem hámarkshraði er 90 kíló- metrar á klukkustund. Hér er átt við tímabilið frá janúar og til loka maí. Þetta kemur fram í afbrota- tíðindum ríkislögreglustjóra. Á vef ríkislögreglustjóra kemur fram að þetta séu mun fleiri brot en á sama tíma í fyrra en færri brot en árið 2012. Meðalhraði þeirra sem teknir voru fyrir of hraðan akstur þar sem hámarks- hraði er 90 km/klst. var lægri í ár en í fyrra en hærri en árið 2012. Af lögregluembættunum hef- ur verið mest fjölgun á skráðum hraðakstursbrotum í heild hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæð- inu en þar var ný hraðamynda- vél tekin í notkun í maí,“ segir í afbrotatíðindum. Ölvaður á rafmagnsvespu Lögreglan stöðvaði ungan mann á Laugavegi sem ók raf- magnsvespu undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Maðurinn var stöðvaður rétt fyrir klukk- an þrjú aðfaranótt fimmtudags. Rafmagnsvespur eru flokkað- ar sem reiðhjól en lögregla fann einnig fíkniefni á manninum. Klukkan hálfeitt eftir miðnætti á miðvikudag hafði lögreglan af- skipti af fjórum ungum mönnum í austurborg Reykjavíkur, en þeir voru með fíkniefni á sér. Lögreglan stöðvaði aukin- heldur þrjá fyrir fíkniefnaakstur í Hafnarfirði og fjarlægði skrán- ingarnúmer af rúmlega 20 bíl- um í Reykjavík, Hafnarfirði og Kópavogi. Dópaðir ökumenn Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum hafði nýverið af- skipti af, vegna gruns um að hann æki undir áhrifum fíkniefna, tjáði lögreglumönnum þá þegar að hann væri próflaus. Sýnatök- ur á lögreglustöð staðfestu svo að hann hefði neytt kannabis- efna. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á Suðurnesjum. Þar kemur einnig fram að ann- ar ökumaður, sem lögregla hafði afskipti af, reyndist hafa neytt metamfetamíns og kannabisefna. Sá þriðji sem stöðvaður var hafði neytt amfetamíns og kannabis.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.