Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Blaðsíða 38
Helgarblað 20.–23. júní 201438 Neytendur Þetta þarftu að vita um sólarvarnir n Leitaðu að vatnsfráhrindandi sólarvörn - Forðastu sólarvarnir í úðaformi S ólin hefur loksins látið sjá sig hér á landi, með hléum, undanfarnar vikur og er útlit fyrir eitthvað sólskin um allt land um helgina. Þá er mik- ilvægt að hafa sólarvörn við hönd og bera á sig reglulega yfir daginn. Þegar kemur að því að velja sólar- vörn eru nokkur atriði sem vert er að hafa í huga. Sólarvörn í úðaformi er til að mynda ekki æskileg þar sem hún getur borist í öndunarfærin. Þá er gott að leita að vatnsfráhrindandi vörn, sérstaklega fyrir börn. Leitaðu að þessu n Vatnsfráhrindandi vörn Þegar sólarvörn er valin skaltu velja vörn sem er bæði með hárri vörn, SPF 30+, og vatnsfráhrindandi. Athugið að engin sólarvörn er algjörlega vatnsheld en vatns- fráhrindandi vörn virkar vel í allt að 40–80 mínútur þrátt fyrir vatn eða svita. Börn eru með viðkvæmari húð en fullorðnir og því er mikilvægt að þau fái góða vörn, sérstaklega ef þau eru að leik nálægt vatni. n Sink eða titanium-díoxíð Sink og titanium-díoxíð eru steinefni sem sitja á húðinni og gera það að verkum að útfjólubláir geislar sólarinnar skoppa af húðinni – líkt og bolti sem kastað er í vegg. Efnin veita því afskaplega góða vörn og þau valda sjaldan ertingu í húðinni. Þetta skaltu forðast n A-vítamín Margar sólarvarnir innihalda A-vítamín, því vítamínið dregur úr öldrun húðarinnar. Þær ber að forðast því það getur aukið vöxt æxla í húð. n SPF 50+ Sólarvörn með jafn mikilli vörn kemur kannski í veg fyrir sólbruna, en hún ver þig yfirleitt ekki gegn útfjólubláum geislum sólarinnar. Hár stuðull getur einnig gefið þér falskt öryggi og þú berð hana í kjölfarið sjaldnar á húðina en ella. n Oxybenzone Þetta efni, sem finna má í alltof mörgum sólarvörnum, getur borist í blóðrásina og haft áhrif á hormónastarfsemi. Þá getur það einnig kallað fram ofnæmisviðbrögð. n Úði Þú skalt ekki nota sólarvörn í úðaformi þar sem hún berst út í andrúmsloftið og Hvað er sortuæxli? Koma má í veg fyrir krabbamein í 95 prósent tilfella ef sortuæxli er greint nógu snemma. Þess vegna er mikilvægt að fara í skoðun til húðsjúkdómalæknis komir þú auga á óeðlilega eða breytta bletti á húðinni. Láttu athuga þetta: n Blettur sem hefur breyst í lit, stærð eða lögun á fáum vikum eða mánuðum n Bóla eða kúla sem grær ekki n Blettir með óreglulega lögun n Blettir sem eru í fleiri en einum lit (geta verið svartir, brúnir, rauðir eða bláir) Ef þú kannast við einhver þessara atriða talaðu þá við lækni eins fljótt og auðið er. n Mexoryl SX Líkt og efnin sem nefnd eru hér að ofan veitir Mexoryl SX vörn gegn útfjólubláum geislum sólarinnar. Geislarnir skiptast í tvo flokka; UVA og UVB. UVB veldur sólbruna á ytri lögum húðarinnar en UVA-geislarnir fara dýpra inn í húðina. Báðar tegundir geta valdið húðkrabbameini. Flestar sólarvarnir verja okkur hins vegar aðeins gegn UVB geislunum. Mexoryl XS situr á húðinni og ver okkur gegn UVA-geislunum og þess vegna hefur þessu efni verið bætt við margar sólarvarnir. getur lent í öndunarfærum þeirra sem næst standa. Ekki er talið ráðlegt að anda sólar- vörn að sér þar sem hún getur innihaldið efni sem eru óæskileg fyrir öndunarveginn. Tveir stuðlar sólarvarna Munurinn á ameríska SPF stuðlinum og þeim evrópska Tvenns konar stuðlar eru notaðir við skilgreiningu á varnarstyrk sólarvarna; ameríski stuðullinn SPF og evrópski stuðullinn. Bandaríski stuðullinn er um það bil tvöfalt hærri en sá evrópski. Það þýðir að sólarvörn sem framleidd er í Bandaríkjunum og hefur stuðulinn 8 samsvarar evrópsku kremi með stuðulinn 4. Evrópska kerfið byggist á því hversu lengi íbúi Norður-Evrópu, sem jafnan er með föla húð, getur verið í sólinni áður en húðin verður rauð og aum. Almennt er reiknað með 15–20 mínútum í byrjun sumars. Þannig getur einstaklingur sem notar sólarvörn með stuðlinum 8 verið 8 x 20 mínútur (160 mínútur) í sólinni áður en húðin verður rjóð og aum. Heimild: Doktor.is. Sortuæxli algengasta krabbameinið hjá ungum konum Helsti áhættuþáttur sortuæxla er sólbruni og ljósabekkjanotkun Árlega greinast að meðaltali um 45 manns með sortuæxli á Íslandi og tæplega 90 með önnur illkynja húðæxli. Um tíu Íslendingar deyja á ári úr þessum krabbameinum, þar af níu af völdum sortuæxla. Um 1.440 manns eru á lífi sem greinst hafa með þessa sjúkdóma. Sortuæxli er algengasta krabbameinið hjá ungum konum. Tíðni sortuæxla hefur farið vaxandi á Norðurlöndunum á síðustu þrjátíu árum. Á Íslandi er tíðnin þó aðeins farin að lækka eftir að hafa verið mjög há. Einn helsti áhættuþáttur sortuæxla er sólbruni og ljósabekkjanotkun. Ekki er ólíklegt að minnkandi notkun ljósabekkja eigi þátt í lækkandi tíðni. Ísland var fyrst Norðurlandanna til að setja lög um 18 ára aldurstakmark varðandi ljósabekki. Rannsóknir sýna að koma má í veg fyrir allt að 90 prósent tilfella sortuæxla og annarra húðkrabbameina með skynsamlegri hegðun í sól og með því að fara ekki í ljósabekki. Sérstaklega þarf að huga að því að verja börn í sól. Heimild: Krabbameinsfélag Íslands. Áslaug Karen Jóhannsdóttir aslaug@dv.is Varist falskar sektir Félag bifreiðaeigenda í Noregi hefur til meðferðar tvö mál þar sem ferðamenn fengu send fölsk sektarboð eftir að hafa tekið bíla á leigu hjá litlu bílaleigufyrir- tæki á Kanaríeyjum. Eftir heim- komuna bárust þeim bréf hvort frá sinni innheimtustofunni þar sem þeir voru krafðir um greiðslu hraðasekta. Báðar þessar kröfur hafa reynst vera falskar. Frá þessu er sagt á vefsíðu FÍB. Sektarboðin líta mjög sannfærandi út og varar Félag íslenskra bifreiðaeigenda ferðamenn við því að borga slík- ar kröfur nema að vel athuguðu máli. Þá er félagsmönnum FÍB, sem fá innheimtubréf vegna um- ferðarlagabrota sem þeir kannast ekki við að hafa framið, bent á að hafa samband. Í mál við vefsíðu Sænska fyrirtækið IKEA íhugar að höfða málsókn gegn vinsælli vefsíðu sem sýnir notendum hvernig breyta megi IKEA-hús- gögnum og nýta á annan hátt en til er ætlast. Forsvarsmenn IKEA hafa sent stjórnanda síðunn- ar, IKEAhackers.net, beiðni um að breyta vefslóð síðunnar ekki seinna en 23. júní næstkomandi, ellegar fari þeir í mál. Síðan hef- ur notið mikilla vinsælda en hún vakti fyrst athygli þegar þar komu fram leiðbeiningar um hvern- ig breyta mætti vinsælum IKEA- lömpum í höfuðgafl. Stjórnandi IKEAhackers, Jules Yap, er að sögn miður sín vegna beiðninn- ar og óttast að hún marki endalok vefsíðunnar. 4 milljónir fyrir tannviðgerð Íslendingur varð að greiða hátt í fjórar milljónir króna fyrir tann- viðgerð á dögum. Þurfti hann að fá tólf stakar gervitennur, svo- kallaða tannplanta, eftir að hafa misst tennur. Tannplanti með stakri krónu kostar í kringum 350 þúsund krónur. Þetta kemur fram í grein á vefsíðunni lifdununa.is. Þar er rætt við Gunnar Rósars- son, tannlækni í Reykjavík. Í greininni kemur einnig fram að endurgreiðslur Sjúkratrygginga Íslands vegna tannlæknakostn- aðar hafa nánast ekkert hækk- að, að krónutölu, í 22 ár. Á hinum Norðurlöndunum taki sjúkra- tryggingar verulegan þátt í kostn- aði við tannplanta en á Íslandi fá- ist einungis sextíu þúsund krónur á ári í „styrk“ vegna tannplanta- aðgerða. Góðar reglur varðandi kaup á sólgleraugum Útfjólubláir geislar geta valdið bólgu í auga – Stattu vörð um augnheilsu þína S ólgleraugnatískan breytist ár frá ári en sólgleraugu eru ekki eingöngu flottur fylgihlutur. Sólgleraugu eru nauðsynleg tæki í að standa vörð um augnheils- una. Útfjólubláir geislar sólarinnar hafa ekki einvörðungu skaðleg áhrif á húðina heldur geta þeir valdið bólgu í auga, sem lýsir sér í verkj- um, mikilli aðskotahlutstilfinningu, óþægindum í birtu, höfuðverk og augað tárast. Hér er það sem þú þarft að hafa í huga við val þitt á sólgler- augum: Vörn gegn útfjólubláum geislum Veldu gleraugu sem koma í veg fyrir að allavega 99 próesent útfjólublárra geisla berist í augun. Öll góð sólgler- augu eiga að vera merkt, til dæmis „100% UV protection“, sem þýðir að gleraugun veita augunum fullkomna vörn gegn útfjólubláum geislum. Þú ættir alltaf að velja þér sólgleraugu sem veita þér bestu verndina. Grár litur er bestur Litur glersins skiptir máli við val á sólgleraugum. Almennt séð er grár litur bestur þar sem hann gleypir jafnt allt litróf ljóssins. Þeir sem eru með rauð-græna litblindu ættu alls ekki að velja sér bronslituð eða græn sólgler. Sé tilgangurinn að verja aug- un gegn skaðlegum geislum sólar- innar ætti síðan enginn að velja sér bleik sólgler. Gler frekar en plast Gler er þyngra en plast og það get- ur verið þreytandi að vera lengi með þau á nefinu. Samt sem áður er gler skárri kostur en plast. Gler rispast til dæmis ekki jafn auðveldlega og plast. Gler sem verður dekkra eft- ir því sem birtan eykst er langbesti kosturinn. n aslaug@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.