Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Blaðsíða 36
Helgarblað 20.–23. júní 201436 Fólk Viðtal
Er sama
þótt
hann
stami
É
g set markmiðið mjög hátt –
ég ætla einfaldlega að verða
bestur í heimi,“ segir sterkasti
maður Íslands annað árið í
röð, Hafþór Júlíus Björnsson.
Svaraði ekki tölvupósti GoT
Hafþór Júlíus hefur verið áber-
andi í heimi aflrauna síðustu árin
en stökk gjörsamlega fram á sjón-
arsviðið þegar hann birtist á skján-
um sem risinn Gregor „The Mounta-
in“ Clegane í hinum geysivinsælum
þáttum Game of Thrones.
Sjálfur er Hafþór mikill aðdáandi
þáttanna og trúði því ekki þegar að-
standendur þáttanna höfðu við
hann samband og vildu fá hann í
prufur. „Ég fékk tölvupóst en hélt
að þetta væri bara eitthvert bull. Ég
svaraði honum ekki einu sinni. Svo
var aftur haft samband við mig og
eftir það fór boltinn að rúlla.
Ég hitti einn leikstjórann og fór
með línur og svo vildi hann fá að
sjá hvort ég gæti lyft manni, sem
ég gerði. Honum brá að sjá hvað ég
gat það auðveldlega og hvað ég bý
yfir miklum styrk en það var einmitt
það sem þeir voru að leita að. Eft-
ir það var ég sendur á skylmingar-
námskeið sem gekk mjög vel því þá
sáu þeir hvað ég get hreyft mig hratt
þrátt fyrir stærð. Út frá því var þetta
bara komið.“
Frægari fyrir vikið
Hafþór Júlíus hefur reynt að halda
sig niðri á jörðinni þrátt fyrir þessa
spennandi lífsreynslu. „Ég vissi að
þeir væru í sambandi við þrjá aðra
og var því bara hógvær og rólegur
því ég vildi ekki gera mér of miklar
vonir. Svo þegar ég var valinn var ég
alsáttur,“ segir hann og bætir við að
allir sem starfi við þættina hafi verið
þeir vingjarnlegustu. „Það var alveg
ótrúlegt að hitta alla þessa leikara –
maður var bara eins og smástelpa
– alveg ótrúlega spenntur. Þetta eru
allt stórleikarar og mikið fagfólk en
samt svo almennileg og þægileg.
Andinn var voðalega góður á setti.
Þetta gekk líka allt svo vel og var
ein skemmtilegasta lífsreynsla sem
ég hef á ævinni upplifað. Ég gerði
mér ekki grein fyrir hversu stórt
þetta yrði. Auðvitað vissi ég hvað
þættirnir voru vinsælir en atriðið
hefur fengið mun meiri athygli en
mig óraði fyrir,“ segir hann og viður-
kennir að frægð hans hafi orðið
meiri fyrir vikið. „Ég var þegar búinn
að skapa mér ákveðið nafn í krafta-
heiminum enda hef ég lent tvisvar í
þriðja sæti og einu sinni í öðru sæti
í keppninni Sterkasti maður í heimi
en með þessu hlutverki öðlaðist ég
stærri aðdáendahóp. Þessir þætt-
ir eru þeir vinsælustu í heiminum í
dag. Athyglin hefur margfaldast. Það
eru samt alls ekki allir aðdáendur
þarna úti ánægðir með mig. Margir
eru virkilega reiðir yfir því sem ég
gerði í þáttunum.“
16 ára yfir tveir metrar
Hafþór Júlíus ólst upp á Skaganum
til tíu ára aldurs en þá fluttist fjöl-
skyldan í Kópavoginn. Hann á tvær
systur, er sjálfur í miðjunni, en for-
eldrar hans reka saman fyrirtæki
sem sérhæfir sig í þrifum. Hann seg-
ir fjölskylduna hans helsta stuðn-
ingsfólk og aðdáendur númer eitt.
„Þau standa þétt við bakið á mér
og frá þeim fæ ég gífurlegan stuðn-
ing. Ég er líka svo mikill pabba- og
mömmustrákur, þótt ég sé stór og
sterkur. Þau hugsa vel um mig og
styðja við strákinn sinn.“
Gífurlegur vöðvamassi vekur ekki
aðeins athygli þar sem Hafþór Júlíus
fer heldur einnig sú staðreynd að
hann er vel yfir tvo metra á hæð eða
2,06 m og þakinn húðflúrum. „Ég
varð fljótt stærri en allir í kringum
mig. Ætli ég hafi ekki verið orðinn
tveir metrar þegar ég var 16 ára.
Það þótti ekkert endilega kúl á þeim
tíma. Maður var hálfgerður sláni en
svo þroskaðist maður og byggði upp
vöðva. Ég fílaði samt alltaf að vera
svona stór,“ segir hann og viður-
kennir að útlitið hafi sitt að segja í
sportinu. „Ef þú ert feitur og sterk-
ur færðu ekki eins mikla athygli og ef
þú ert í flottu formi. Ég var bara 16
ára þegar ég fékk mér fyrsta tattúið.
Ég vildi fá mér gat í augabrúnina en
þurfti skriflegt leyfi foreldra. Pabbi
vildi ekki taka þátt í því. Svo vældi
ég lengi í honum að fá mér tattú og
hafði fundið mér flotta mynd til að
setja á bakið sem hann samþykkti.
Þetta er hálfgert „tribal“, einhvers
konar fugl.“
Saknar körfuboltans
Hafþór segist aldrei hafa verið mikill
námshestur en hann gekk bæði í FB
og FSU en kláraði hvorugt. „Ég hef
alltaf verið haldinn miklum athygl-
isbresti þegar kemur að námi og
lítið náð að einbeita mér í skóla. Það
er samt aldrei að vita nema mað-
ur klári þetta seinna,“ segir hann og
bætir við að hann hafi haft meiri
áhuga á íþróttum en skólabókum.
„Körfubolti var mitt líf. Ég elskaði
körfu og allt sem henni tengdist og
spilaði með unglingalandsliðinu.
Ég byrjaði í Breiðablik og spilaði svo
með Akademíunni á Selfossi. Eft-
ir eitt tímabil með KR meiddist ég
og ákvað að taka mér pásu og fór í
stað þess að lyfta. Þessi pása er orðin
mun lengri en ég bjóst við og stend-
ur enn. Ég skipti bara um leið í líf-
inu og þessi nýja leið hefur reynst
mér vel,“ segir Hafþór Júlíus sem tók
þátt í sínum fyrsta Vestfjarðavíkingi
árið 2009 og var þar með kominn
með aflrauna-bakteríuna. „Ég sakna
samt körfuboltans að einhverju leyti
þótt ég sé ánægður með það sem ég
er að gera í dag. Ég elska aflraunir og
finnst gaman að ferðast. Það geng-
ur því vel í dag og það er sérstaklega
gaman þegar nýjar dyr opnast fyrir
manni.“
Enginn fyrirmyndarunglingur
Hafþór Júlíus á dóttur, Theresu Líf,
sem fæddist þegar hann var 19 ára.
Hann og barnsmóðir hans voru
saman í þrjú ár en hættu saman um
það leyti sem hún fæddist. „Theresa
Líf er falleg fimm ára stelpa sem er
nýflutt með mömmu sinni til Dan-
merkur. Það tekur á að geta ekki hitt
hana á hverjum degi. Ég talaði samt
við hana í morgun á Skype og fæ
hana svo til mín í ágúst,“ segir hann
en bætir aðspurður við að hann viti
ekki hvort hún geri sér grein fyrir
allt fjölmiðlafárið í kringum pabba
hennar. „Hún fær að sjálfsögðu
Hafþór Júlíus Björnsson, sterkasti
maður Íslands, kom sá og sigraði þegar hann landaði
hlutverki risans The Mountain í Game of Thrones.
Indíana Ása Hreinsdóttir ræddi við Hafþór Júlíus um
leiklistina, markmiðið að verða sterkasti maður í
heimi, dótturina sem breytti honum, skapið sem átti
til að hlaupa með hann í gönur og stamið sem truflar
hann ekki lengur.
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
„Mér var
strítt á
þessu í æsku en
alls ekkert mik-
ið, bara svona
eins og öllum
var strítt