Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Blaðsíða 62
Helgarblað 20.–23. júní 201462 Fólk
Þingmaður
kominn með
kærustu
Þingmaður Framsóknarflokksins,
Haraldur Einarsson, er kominn
með kærustu. Parið gerði sam-
bandið opinbert á Facebook á
þjóðhátíðardaginn og rigndi yfir
þeim fagnaðaróskum. Kærastan
heitir Birna Harðardóttir og er
menntaður viðskiptafræðingur.
Ásamt því að sitja á þingi stund-
ar Haraldur nám í umhverfis- og
byggingarverkfræði. Þau Birna
hafa verið að hittast í nokkrar vik-
ur og þykja vera glæsilegt par. Har-
aldur er með yngstu þingmönn-
um á Alþingi, fæddur árið 1987
og er því 27 ára gamall. Hann er
einn þeirra þingmanna sem komst
óvænt inn á þing eftir gott gengi
flokksins í kosningunum.
Nauðhyggjumaðurinn Jón Gnarr
Húmor hámark frelsisins
J
ón Gnarr efast um að vilji
mannsins sé frjáls. Þetta upplýs-
ir hann á Facebook-síðu sinni.
Sú hugmynd að maðurinn hafi
enga sérstöðu í náttúrunni, annað en
flókna efnasamsetningu og virkni, og
sé þar af leiðandi einungis leiksopp-
ur orsakalögmálsins, er kölluð nauð-
hyggja. Samkvæmt henni er blekking
að halda að maður búi yfir einhvers
konar innra sjálfræði til ákvarðana-
töku heldur er maður í raun múl-
bundinn af fyrirframákvörðuðu
gangverki veraldarinnar.
„Ég vil líka biðja ykkur afsökunar á
þeim tímum þar sem ég hef hugsan-
lega sært eitthvert ykkar með ómál-
efnalegri gagnrýni eða með því að al-
hæfa eitthvað um ykkur sem ekki átti
við rök að styðjast. Ég biðst afsök-
unar á því, en það er ekki við mig að
sakast heldur heilann á mér,“ sagði
Jón meðal annars í kveðjuræðu sinni
í ráðhúsinu og gaf þessu viðhorfi
undir fótinn á kímilegan hátt.
Eini eiginleiki mannskepnunn-
ar sem kemst nálægt því að vera
undanskilinn nauðsyn náttúrunnar
að mati Jóns er húmor. „Grín er líf-
ið að mínu mati. Það er sannleikur
og tilgangur alls þess sem er. Það er
æðra stig mannlegrar greindar og eitt
af því fáa sem skilur okkur frá dýrun-
um. Við getum gert grín að sauðfé en
sauðfé getur ekki gert grín að okk-
ur. Ég get gert grín að stjórnmálum
en stjórnmál geta ekki gert grín að
mér. Húmor er það sem kemst næst
því sem við köllum frjálsan vilja. Ég
hyggst halda áfram að nota hann og
njóta.“ n
baldure@dv.is
Ófrjáls Jón Gnarr er
fráfarandi borgarstjóri.
Mynd Sigtryggur Ari
Gulir greindari
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
segir að gulir menn séu greindari
en hvítir. Frá þessu greinir hann
á Facebook-síðu sinni, í andsvari
við aðdróttunum um þjóðernis-
rembing. Hins vegar breytir sú
staðreynd engu, að mati Hann-
esar, um að allir menn eru jafn-
gildir fyrir lögum. „Í því felst hins
vegar ekki, að allir skori jafnmörg
mörk í öllum leikjum lífsins.
Þegar Þjóðverjar vinna Portúgali
4-0 í knattspyrnukappleik, vilt þú
með öðrum orðum breyta niður-
stöðunni, svo að hún verði 2-2!“
segir Hannes við Facebook-vin
sinn, Hrafn Malmquist.
Gillzmundur
Logi skírður
Fjölmiðlamaðurinn Ásgeir Kol-
beins og kærastan hans, Bryn-
dís Hera Gísladóttir, skírðu litla
son sinn á dögunum en sá stutti
fæddist 20. maí. Eldri sonur Ás-
geirs, Ívan Dagur, sem hélt á
bróður sínum undir skírn ákvað
að hrekkja viðstadda. Þegar
presturinn spurði hann hvað
barnið ætti að heita svaraði hann
hátt og skýrt: Gillzmundur Logi.
Um létt grín var að ræða en hið
rétta nafn er Alexander Logi.
Hinn rétti Gillz, Egill Einarsson,
var staddur í skírninni og sam-
kvæmt heimildum DV er Gillz-
mundur Logi fallegasta nafn sem
Egill hefur nokkurn tímann heyrt.
Kötturinn Baktus
vinsæll í bænum
n Eigandinn heldur honum inni um helgar svo hann fari ekki á djammið
H
ann er mjög vinsæll enda
ekkert eðlilegur köttur,“
segir Hafdís Þorleifsdótt-
ir, eigandi kattarins Bakt-
usarm sem er líklega einn
þekktasti köttur bæjarins. Það má
með sanni segja að Baktus sé enginn
venjulegur köttur enda líður honum
best inni á kaffihúsum og í verslun-
um bæjarins þar sem hann laumar
sér iðulega inn.
Fannst í porti
Eigendur Baktusar eiga verslunina
Gyllta köttinn í Austurstræti og kaffi-
húsið Stofuna og segja má að Aust-
urstrætið og Kvosin séu heimavöllur
Baktusar. Það er kannski ekki skrýt-
ið enda fannst hann í porti bakvið
Stofuna aðeins fimm vikna gamall.
Hafdís og eiginmaður hennar, Hauk-
ur Ingi Jónsson, tóku þá Baktus og
bróður hans, sem hlaut nafnið Karí-
us að sér. „Mamman var villiköttur
og fylgdist með þeim en var hætt að
gefa þeim mat,“ segir hún.
„Við ætluðum ekkert að fá okk-
ur kött en það var bara eitthvað
sem small. Við tókum þá að okk-
ur,“ segir Hafdís en þau hjónin eiga
fyrir tvo hunda. Úr varð þó að þeir
fengu heimili hjá þeim á Vesturgöt-
unni þar sem þau búa. Karíus, bróð-
ir Baktusar, hins vegar varð fyrir bíl
aðeins sex mánaða gamall. „Karí-
us var gullitaður og var í raun hinn
sanni gyllti köttur en Baktus svartur
eins og kötturinn á lógó-inu á búð-
inni þannig að þetta small einhvern
veginn saman,“ segir Hafdís sem er
mikill dýravinur.
Vinsæll í miðbænum
Þegar Kaktus varð eldri og fór að
fara út fór hann strax að sýna mik-
inn áhuga á miðbænum þar sem
hann heldur sig yfirleitt. Til að
mynda bíður hann fyrir utan Gyllta
köttinn þar til það búðin er opnuð
og kemur sér fyrir í stól inni í búð-
inni þar sem hann situr pollróleg-
ur yfir daginn milli þess sem hann
kíkir á önnur kaffihús eða heilsar
upp á fólkið í bænum. Útigangsfólk-
ið heldur líka mikið upp á hann og
kynnir hann fyrir ferðamönnum sem
„Baktus, frægasta kött Íslands“. „Það
þekkja hann allir hér í kring. Hann
er rosalega lúmskur og laumar sér
hér inn alls staðar,“ segir Hafdís sem
fær reglulega símtöl frá kaffihúsa-
eigendum í kring og fólki sem held-
ur að hann sé týndur. „Hann laum-
ar sér oft inn í Eymundsson og inn
í Kraum, þar sem er sófasett á efri
hæðinni sem hann kemur sér fyrir í.
Síðan fer hann á Loftið og sest þar í
einn stól.“
Heldur honum inni um helgar
Hafdís reynir þó að halda Bakt-
usi inni um helgar þegar næturlífið
er sem háværast. „Annars fer hann
bara á djammið og reynir að kom-
ast inn á Austur eða Loftið en dyra-
verðirnir senda hann í burtu,“ seg-
ir hún hlæjandi. Baktus hefur vakið
verðskuldaða athygli í miðbænum
en kippir sér lítið upp við athyglina.
„Hann er svo blíður og hefur gaman
af því að láta klappa sér. Hér koma
margir og klappa honum og mömm-
ur eru farnar að koma inn með börn
sem vilja hitta Baktus.“ Það eru þó
ekki allir jafn hrifnir. Honum var til
að mynda úthýst af Stofunni kaffi-
húsi af heilbrigðiseftirlitinu. Hann
fær því ekki lengur að vera þar en
sniglast þó reglulega þar í kring.
„Það eru alltaf einhverjir sem vilja
hann ekki en hann má alveg vera
hérna inni í búðinni, hér er enginn
matur eða neitt slíkt þannig að það
er í góðu lagi.“ Fjölmargir hafa tekið
myndir af Baktusi og sett inn á sam-
skiptasíður. Nú hefur líka verið búin
til síða fyrir Baktus á Instagram und-
ir nafninu Baktusthecat. Þar má sjá
margar myndir af honum og fylgjast
með uppátækjum hans. n
Viktoría Hermannsdóttir
viktoria@dv.is
nóg að skoða Hér röltir Baktus fyrir utan Café París. Mynd Sigtryggur Ari
gaman í gyllta Baktus með eiganda
sínum, Hafdísi Þorleifsdóttur, sem á
Gyllta köttinn í Austurstræti. Baktus
kemur sér gjarnan fyrir í stólnum bak við
Hafdísi. Mynd dV eHF / Sigtryggur Ari