Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Qupperneq 43

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Qupperneq 43
Lífsstíll 43Helgarblað 20.–23. júní 2014 Hagfræðinemi ógnar hagvexti Ólafur Heiðar stofnar kattasíðuna randomcatphotos.com F á iðja dregur jafn freklega úr kalvinískum þrótti lands- manna og kattamyndir, ef und- an er skilin Facebook-neysla. Nú hefur ungur hagfræðinemi, Ólaf- ur Heiðar Helgason, skorið upp her- ör gegn hagvexti með því að stofna vefsíðu sem á að vera ótæmandi uppspretta slíkra mynda og kallast randomcatphotos.com. Sé farið á síðuna birtist um leið mynd af ketti. Þegar menn eru hættir að finna fró við það áhorf er einfaldlega hægt að ýta á hnapp og þá birtist ný mynd af nýjum ketti. Þetta er hægt að endur- taka út í hið óendanlega. En hvers vegna ákvað Ólafur að stofna slíka síðu? „Félagi minn benti mér á að þótt margar kattasíður væru til þá byði engin þeirra upp á þann valmöguleika að „randómísera“ þannig að tilviljun ráði hvaða mynd birtist næst. Hann trúði því einfald- lega ekki að slík síða væri ekki til,“ segir Ólafur sem í kjölfarið kveikti á perunni og áttaði sig á að þarna væri um að ræða góða viðskiptahug- mynd. „Ég ákvað bara að taka hann á orðinu og búa til síðuna.“ Þótt síðan hafi einungis tilheyrt netinu í örfáa daga eru netverjar strax farnir að sækja þangað í stríð- um straumi, svo þungum að hún er að hruni komin. „Það er blússandi umferð á síðunni.“ Aðspurður hvort hann ætli ekki að beisla strauminn og búa til gróða með auglýsingasölu segir Ólafur: „Þetta er nú aðallega til gamans gert en kannski að maður fari í framtíðinni að selja sig.“ n baldure@dv.is Frumkvöðull Ólafur Heiðar Helgason bjó til kattasíðu. Hreyfing á Hrafnistu n Stólaleikfimi slær í gegn – „Heimsmeistaramót“ Hrafnistu í sumar L íkamsræktaræði landsmanna ríður sjaldan við einteyming á sumrin, enda mikið hags- munamál að líta vel út létt- klæddur. Heimilismenn á Hrafnistu eru þar engin undantekn- ing. Þeir stunda hreyfingu sem aldrei fyrr þessi dægrin. Þar er stólaleik- fimi fyrirferðarmest en hún hefur þann kost að iðkendur þurfa ekki að standa upp til að stunda hana held- ur geta einfaldlega setið í sófanum, jafnvel fyrir framan sjónvarpið, og skaðbrennt þannig hverja kaloríu á fætur annarri. Keppnisandi Fyrir þá sem kjósa heldur að puða standandi er einnig ýmislegt í boði. „Við erum með golfpútt hérna tvisvar í viku, bocchia og pílu,“ seg- ir Steinunn Leifsdóttir, sem er starf- andi íþróttafræðingur á Hrafnistu og hefur umsjón með hreyfingu heimil- ismanna. En það er ekki bara spilað, heldur einnig keppt. Í sumar munu heimili Hrafnistu úti um allt land etja kappi sín á milli í hinum ýmsu greinum og Steinunn segir leikana – „heimsmeistaramót“ Hrafnistu – tekna alvarlega. „Það er alveg tölu- vert lagt í þetta á sumrin. En svo er bara rosalega mikið og gott íþrótta- starf hér á Hrafnistu. Við erum tveir íþróttafræðingar sem höfum yfirum- sjón með þessu.“ Sterk og létt í lund Eðli málsins samkvæmt þurfa eldri borgarar að stunda líkamsrækt sem hentar líkamlegu atgervi þeirra. Þetta þekkir Steinunn af störfum sín- um á Hrafnistu. Auk stólaleikfimi og bocchia er boðið upp á gönguferðir, sundæfingar og ýmislegt fleira. En það eru ekki allir eldri borgarar sem hafa jafn greiðan aðgang að sjúkra- þjálfurum og íþróttafræðingum eins og heimilismenn Hrafnistu. Af þeim sökum hefur Steinunn gefið út lík- amsræktarmyndbandið „Sterk og létt í lund“ sérstaklega fyrir þennan hóp. Á disknum eru meðal annars fjöldinn allur af stólaæfingum sem henta bæði þeim sem eiga erfitt með hreyfingu en einnig yngra fólki sem nennir einfaldlega ekki að standa upp frá HM í knattspyrnu. „Þetta er góður diskur þótt ég segi sjálf frá,“ segir Steinunn kankvís en hann fæst í Eymundsson og á Hrafnistu. Fjölbreytt hreyfing á Hrafnistu n Hópleikfimi n Stólaleikfimi n Gönguferðir n Sundæfingar n Golfpútt n Píla n Boccha n Almenn líkamsrækt n Iðjuþjálfun n Sjúkraþjálfun Stuð í sundi Hrafnista býður heimilismönnum upp á fjölbreytta hreyfingu. Gaman í golfi Þessi virðist hafa farið holu í hoggi. Púttin eru æfð tvisvar í viku og keppnis- skapið er sjaldan fjarri. Fyrir eldri borgara Hreyfing er mikilvæg fyrir alla, sérstaklega þá sem eldri eru. Þessi diskur inniheldur einfaldar og léttar æfingar. Gengið í góðu veðri Þegar veður leyfir fer gamla fólkið gjarnan út að ganga. Baldur Eiríksson baldure@dv.is Glútenlaust í Krónunni Æ fleira fólk er farið að velja að lifa glútenlausum lífsstíl, ýmist vegna ofnæmis eða viðkvæmni. Í síðasta blaði var fjallað um glútenlausu brauðin í Brauðhús- inu, en þar má auk heldur kaupa fleiri glútenlausar vörur. Krónan er einnig mikill gnægtabrunnur glútenlausra vara. Þar má finna sósur, brauð, pasta og alls konar fleira góðgæti. Glútenfrjálst fólk drekkur fegið úr þessum brunni Krónunnar enda ekki um auð- ugan glútenlausan garð að gresja annars staðar. Mynd © RóBERt REyniSSon Litrík vegabréf Vegabréf eru öll eins. Þetta veld- ur sumu fólki hugarangri, sér í lagi þeim sem vilja hefja sig upp úr holræsi meðalmennskunnar. En örvænting þessa fólks er senn á enda. Snillingar vestanhafs hafa hannað sérstakt hulstur fyrir vegabréf í öllum litum regnbog- ans. Nú getur fólk skorið sig úr hópnum með til dæmis skærapp- elsínugulu vegabréfi, og framvís- að því hróðugt á hvaða flugvelli sem er. En hulstrið er ekki ein- vörðungu til þess fallið að vekja aðdáun annars fólks heldur er það líka góð vörn gegn veðri, vindum og höggum. Verndaðu húðina Starfsfólk Mayo Clinic í Banda- ríkjunum hefur tekið saman hvaða fimm ráð þau mæla með að fólk fari eftir til að vernda húð sína og verjast ótímabærri öldr- un. Númer 1 er að nota sólarvörn en fátt fer verr með húðina en of mikil sól. Númer 2 er að reykja ekki þar sem reykingar þrengi æðar og stuðli að hrukkumynd- un. Númer 3 er meðhöndlun á baðherberginu. Ekki vera of lengi í baði, ekki nota sterkar sápur, þurrkaðu og rakaðu þig varlega og notaðu rakakrem. Númer 4 er að borða hollt og síðasta ráðið, eða númer 5, er að hafa stjórn á stressinu. Það er því að nægu að huga ef fólk ætlar að halda í ung- legt útlit sitt.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.