Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Blaðsíða 4
4 Fréttir Helgarblað 20.–23. júní 2014
Fjölbreyttar vörur
í öllum litum fyrir
bæjarhátíðina!
FAXAFEN 11 • 108 REykjAvík • 534-0534
Leystir undan þagnarskyldu
Frumvarp til stjórnsýslulaga bíður þess að vera lagt fram
L
agafrumvarp sem legið hef-
ur fyrir tilbúið síðan í fyrravor
leysir starfsmenn ríkisins
undan þagnarskyldu ef þeir
hafa vitneskju um að lögbrot hafi
verið framin í starfi hins opinbera.
Um er að ræða lagafrumvarp um
breytingar á stjórnsýslulögum.
Frumvarpið er niðurstaða í ferli
sem hófst árið 2010 þegar Alþingi
samþykkti þingsályktun um að Ís-
land skapi sér afgerandi sérstöðu
varðandi vernd tjáningar- og upp-
lýsingafrelsis. Eitt af lykilatriðun-
um á bak við þá hugmynd var að
tryggja vernd heimildarmanna og
afhjúpenda.
Frumvarpið var svo unnið í kjöl-
farið og sagði Sigmundur Dav-
íð Gunnlaugsson í janúar á þessu
ári að frumvarpið yrði lagt fram á
næstu vikum: „Því er til að svara að
ég hyggst leggja fram á næstu vik-
um frumvarp til laga um breytingu
á stjórnsýslulögum, nr. 37/1993 …“
sagði Sigmundur Davíð. Frumvarp-
ið hefur hins vegar ekki verið lagt
fram enn.
Í frumvarpinu er ákvæði þess
efnis að ekki sé hægt að refsa op-
inberum starfsmönnum sem koma
upplýsingum um lögbrot til þar til
bærra aðila. Ef frumvarpið yrði lagt
fram og gert að lögum þá gæti það
auðveldað starfsmönnum hins op-
inbera að tjá sig um lekamálið svo-
kallaða, það er að segja þeim sem
hafa vitneskju um málið og hvern-
ig upplýsingum um Tony Omos var
komið til fjölmiðla. Fyrir liggur að
einn starfsmaður innanríkisráðu-
neytisins liggur undir grun í mál-
inu en hann er talinn hafa komið
minnisblaðinu til fjölmiðla. n
ingi@dv.is
Afskrifuðu 35 milljónir
hjá hvalveiðifyrirtæki
Gunnar Jónsson segir hrefnuveiðarnar ganga illa
K
röfuhafar hvalveiðifyrirtæk-
isins Hrafnreyður ehf. af-
skrifuðu tæplega 35 milljón-
ir af kröfum sínum á hendur
því í kjölfar gjaldþrots þess.
Fyrirtækið var í eigu Gunnars Berg-
manns Jónssonar og var það úrskurð-
að gjaldþrota í fyrrahaust. Skiptum á
fyrirtækinu lauk í byrjun apríl á þessu
ári og voru skiptalokin auglýst í Lög-
birtingablaðinu. Engar eignir fund-
ust í búinu.
Samkvæmt síðasta birta ársreikn-
ingi Hrafnreyðar ehf., árið 2011, nam
tap félagsins á því ári rúmum 16
milljónum króna og eigið fé þess nei-
kvætt um tæpar 16 milljónir króna.
Eignirnar námu aðeins tæpum 17
milljónum en skuldirnar rúmlega 32.
Því var nokkuð ljóst hvert stefndi.
Annað félag eignaðist skipið
Fyrirtækið, sem skipti um nafn og
hét Fanber ehf. undir lokin, átti eitt
hvalveiðiskip sem bar sama nafn
og fyrirtækið, Hrafnreyður KÓ-100.
Athygli vekur að í lok nóvember 2012
eignaðist annað félag, IP-Útgerð, hr-
efnuveiðiskipið en það fyrirtæki er í
eigu eiginkonu Gunnar Bergmanns
Jónssonar. Í lok árs 2011 var þetta
skip stærsta einstaka eign félags-
ins og var þá bókfært á rúmar fimm
milljónir króna ásamt búnaði.
Hrefnuveiðiskipið hefur svo ver-
ið gert út í því félagi og var meðal
annars við hrefnuveiðar í Skagafirði
í fyrrasumar þegar Fiskifréttir náðu
tali af Gunnari. Þá höfðu veiðst tvær
hrefnur sem landað hafði verið á
Siglufirði og leitaði áhöfnin að fleiri
dýrum. „Hrafnreyður er kominn aft-
ur á miðin en var ekki búinn að fá
neitt þegar ég heyrði í skipstjóran-
um fyrir skömmu. Hann var aftur á
móti búinn að heyra um nokkur dýr
norðan við Málmey og var á siglingu
þangað.“
Selt á sex milljónir
Gunnar segir aðspurður að skip-
ið Hrafnreyður hafi verið selt til IP-
útgerðar ehf. á um sex milljónir
króna. Hann segir að skipið hafi ver-
ið selt áður en Hrafnreyður ehf. fór
á hausinn. „Það var búið að ganga
frá sölunni áður. Þetta fór samt inn
í þrotabúið: Skiptastjórinn vissi af
þessu,“ segir Gunnar og bætir við að
kaupverðið hafi meðal annars verið
greitt með yfirtöku skulda upp á um
þrjár milljónir við Landsbankann.
Mikil fækkun dýra
Aðspurður af hverju fyrirtækið hafi
orðið gjaldþrota segir Gunnar Berg-
mann að hrefnuveiðarnar hafi gengið
illa. „Þetta er bara búið að ganga rosa-
lega erfiðlega með hrefnuveiðarn-
ar síðastliðin þrjú ár. Það er kannski
verið að fara þrjá eða fjóra róðra fyr-
ir hverja hrefnu. Það gæti verið fækk-
un á hrefnu á þessum slóðum í kring-
um Ísland, makríllinn gæti spilað inn
í, kannski heitari sjór, en einhverjar
ástæður hafa leitt til þessarar miklu
fækkunar á hrefnu. Hér áður fyrr
var þetta þannig að menn gengu að
því, nánast í áskrift, að veiða eitt eða
jafnvel tvö dýr í hverjum róðri. Þetta
er bara langstærsta vandamálið við
þessar veiðar,“ segir hann.
Ósjálfbærar veiðar
Gunnar segir að samhliða þessu
vandamáli þá hafi verið reynt að
hækka verðið á hrefnukjötinu en
allt kjöt af skepnunum sem fyrir-
tæki Gunnars veiðir fer á innan-
landsmarkað. Í fyrra veiddi fyrirtæki
Gunnars 29 hrefnur af þeim 38 sem
veiddar voru hér við land. „Á móti
hefur verið reynt að hækka verðið á
þessu en það bara hefur ekki geng-
ið: Þetta er ekki vara sem hægt er að
selja á mörg þúsund krónur eins og
lamb eða naut. Og útflutningur hef-
ur ekki gengið eftir. Þetta er komið á
það stig að það er hætt að reyna þetta
eitt og sér og við erum með mann-
skapinn í öðrum verkefnum líka, eins
og til dæmis sölu, því þegar veiðarn-
ar ganga illa þá lækkar kostnaðurinn
ekkert heldur eykst bara.“
Gunnar segir að hann stefndi að
því að reyna að veiða 50 hrefnur í
sumar. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
„Þetta er bara
búið að ganga
rosalega erfiðlega með
hrefnuveiðarnar.
Skipti um hendur Hvalveiðiskipið Hrafnreyður var selt til nýs félags áður en eigandi þess
varð gjaldþrota. 45 milljónir króna voru afskrifaðar í því þroti.
Veitt í Hvalfirði
Fyrsta langreyður
sumarsins kom á
land í Hvalfirði á
miðvikudaginn en
Kristján Loftsson er
eigandi Hvals. Öfugt
við langreyðarkjötið
fer hrefnukjötið
frá útgerð Gunnars
Jónssonar allt á innan-
landsmarkað.
Mynd SIGtryGGur ArI
Máli Bjarna
vísað frá
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
vísað frá máli Brúarreykja ehf., í
eigu Bjarna Bærings Bjarnason-
ar kúabónda, gegn íslenska rík-
inu. Málið var vanreifað að mati
héraðsdómara og Brúarreykjum
ehf. er gert að greiða ríkinu 200
þúsund krónur í málskostnað.
Bjarni vildi að stjórnvalds-
ákvörðun Matvælastofnunar frá
21. júní í fyrra um að stöðva alla
afhendingu afurða og dýra frá
Brúarreykjum, yrði dæmd ólög-
mæt.
Ástæða bannsins var sú að
rannsókn stofnunarinnar leiddi
í ljós að lyfseðilsskyld sýklalyf
hafi verið notuð án samráðs við
dýralækni.
Gæti varpað ljósi á lekamál Hanna
Birna Kristjánsdóttir er innanríkis-ráðherra
og hefur staðið í ströngu út af lekamálinu.
Mynd SIGtryGGur ArI
Kafað í leit
að Ástu
Kafarar og sigmenn úr sérsveit
Ríkislögreglustjóra liðsinntu
lögreglunni á Hvolsvelli við
leitina að Ástu Stefánsdóttur. Á
fimmtudaginn var kafað í fjórða
sinn í leit að Ástu en hennar
hefur verið saknað frá 7. júní
og ekkert hefur spurst til henn-
ar enn. Sambýliskona hennar,
Pino Becerra Bolaños, fannst
látin sama dag og leitin hófst.
Sérsveitarmenn fá sér-
hæfða þjálfun vegna mismun-
andi verkefna sveitarinnar.
Sérsveitin hefur til dæmis á að
skipa mönnum sem sérhæfðir
eru í fjallamennsku, línuvinnu,
köfun, fallhlífarstökki, sjúkra-
flutningum og fleira sem talið er
nauðsynlegt að sérsveit lögreglu
hafi getu til. Sigmenn og kafar-
ar sveitarinnar hafa tekið þátt í
leitinni.