Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Blaðsíða 15
Helgarblað 20.–23. júní 2014 Fréttir 15 in að horfa í augun á fólki og skoða andlit,“ segir hún. Skildi ekki alvarleikann „Sumir kunna að spyrja sig af hverju ég hafi verið með honum svo lengi. Ég skildi einfaldlega ekki alvarleik- ann í því hvað hann var að gera. Ég skrifaði dagbók á þessum tíma og þegar ég les hana núna sé ég hvað var í gangi. Á þeim tímapunkti skildi ég bara ekki, mig langaði að hjálpa honum. Síðan þarf að taka til greina menningarmun,“ segir Olga. Samkvæmt henni er gildismat allt öðru vísi í Rússlandi. Konum sé kennt í uppeldinu að þær verði að treysta eiginmanni sínum í einu og öllu. „Þú ert að búa til fjölskyldu og þú verður að líta upp til karlmannsins.“ Á Hrísateig 1 ein „Það eru svo margir þættir í þessu. Það er ofbeldið, svo er það allt varð- andi Hrísateig,“ segir Olga. DV hefur fjallað á undanförnu um leigjend- ur á Hrísateig 1 sem segja að Jörgen hafi ýmist gengið í skrokk á sér eða fleygt sér út. Olga segir að skýra megi það sem tilraun hans til að bola leigj- endum, sem höfðu gert samning við hana, út og fá inn nýja leigjendur sem myndu borga sér. Eignin er alfarið í eigu Olgu. „Hann réðst inn í Hrísa- teig og rak út alla leigjendur sem höfðu gert samning við mig. Hann hirti alla leiguna þrátt fyrir að ég sé hundrað prósent eigandi eignarinn- ar. Öll lán sem hvíla á Hrísateig eru í mínu nafni. Samkvæmt kaupsamn- ingi er ég löggiltur eigandi.“ Laug að leigjendum Olga segir að Jörgen hafi fengið að- gang að húsinu við Hrísateig með því að ljúga að leigjendum þar. „Hann réðst inn á Hrísateig og laug að leigj- andanum þar að ég hefði beðið hann um að koma með nýjan sófa inn í íbúðina. Þannig fékk hann aðgang að íbúðinni ólöglega; leigjandinn lét hann fá lykla. Síðar réðst hann inn og gekk raunar berserksgang í íbúðinni, reif hurð og ofn niður. Síðan fór hann að reka alla leigjendur út þrátt fyrir að þeir væru með gildan leigusamning við mig. Leigupeningur sem hann hefur af mér fór að mestu til að greiða nið- ur lán fyrir húsinu sem voru á mínu nafni. Ég borga auk þess alla reikn- inga fyrir húsið. Hann finnur nýja leigjendur og tekur fyrirfram greiðslur í reiðufé og rekur þetta eins og hann eigi það. Á meðan þetta gerist beitir hann leigj- endur ofbeldi. Margir þeirra vilja ekki og þora ekki að kæra þetta,“ segir hún. Keypti Hrísateig fyrir erfðafé Olga segir að hún hafi keypt Hrísa- teig 1 fyrir pening sem hún fékk fyr- ir að selja íbúð í Rússlandi sem hún hafði erft. Það var þó ekki nóg og þurfti hún því að taka lán. „Ég fjár- festi í Hrísateig en síðan kemur í ljós að planið hans var að gera mig gjaldþrota til þess að hann gæti tek- ið yfir eignina. Láta það fara í upp- boð. Hann í rauninni þrýsti á mig að selja íbúðina í Rússlandi. Ég tók lán fyrir því sem vantaði upp á og það var allt í mínu nafni. Hann hefur verið að reyna að stjórna húsinu sér í hag,“ segir hún. Barnið í skjóli í Rússlandi Jörgen hefur haldið því fram í sam- tali við DV að Olga sé léleg móðir þar sem hvorugt þeirra hafi séð son þeirra í næstum ár. Olga segir að sonurinn sé vissu- lega í Rússlandi en ástæðan fyrir því sé til að vernda hann. Hún hafi ekki treyst sér til að koma með hann til Ís- lands miðað við aðstæður. Hún hefur fullt forræði yfir hon- um og hefur Jörgen ekki sótt eftir umgengnisrétti. „Hann er að reyna að nota barnið í þessu máli en í rauninni er honum alveg sama um barnið. Hvers konar faðir er það sem beitir móðurina og barnið ofbeldi? Fyrir mig var mjög mikilvægt að fara og fjarlægja barnið úr þessum óheil- brigðu aðstæðum, rjúfa öll tengsl,“ segir Olga. „Í desember 2012 þegar ég neyðist til að fara í Kvennaathvarfið ákvað ég að flýja til Rússlands með barnið, ég var bara búin að fá nóg. Ég var þar með barnið í hálft ár. Þá kom ég aftur hingað til að ganga frá öllum þessum málum. Ég gat auðvitað ekki tekið barnið með mér í þetta hættu- lega ástand. Hann var að elta mig og hóta mér, það var hættulegt fyrir barnið að vera í þessum aðstæðum. Ég veit að það er í góðum höndum núna.“ Áhyggjur af þroska barnsins Hún segir að barnið sé mögulega skaddað eftir allt sem hefur gengið á. „Við urðum bæði veik. Barnið sef- ur voðalega illa, það öskrar, það er hreinlega hræðilegt að sjá það. Það eru til vottorð frá læknum sem sýna að barnið var veikt, alls konar vanda- mál. Barnasálfræðingar í Rússlandi hafa þurft að skoða málþroska barns- ins og hvernig það sefur. Síðastliðið ár hefur það þurft að fara reglulega til taugalæknis því ástandið hefur haft gífurleg áhrif á það. Til dæmis þá þótti honum óþol- andi þegar barnið vaknaði um miðja nótt grátandi. Þegar það gerðist þá tók hann það úr rúminu og setti á gólfið og öskraði á það og sagði því að hætta. Barnið var dauðhrætt. Hann lét eins og þetta væri eðlileg hegðun,“ segir Olga. „Ég ætla fljótlega að fara til Rúss- lands til barnsins míns en það er mjög erfitt þar sem ég verð að vera hér til að berjast fyrir réttindum mín- um, framtíð minni og barnsins.“ n „ Þetta er dæmigerð saga um heimilis- ofbeldi „Þetta var svo langvarandi ofbeldi að við urðum bæði veik Berst fyrir réttindum sínum Olga Genova hefur kært fyrrverandi sambýlismann sinn vegna fjölda mála og þar á meðal líkamsárás. Mynd SigtRygguR ARi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.