Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Síða 10
10 Fréttir Helgarblað 20.–23. júní 2014
Þórey með réttarstöðu grunaðs manns
n Aðstoðarkona Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra er starfsmaður B n Þórey er enn að störfum í ráðuneytinu en vill ekki tjá sig n Var tvívegis yfirheyrð við rannsóknina
Þ
órey Vilhjálmsdóttir, að-
stoðarkona innanríkisráð-
herra, er með réttarstöðu
grunaðs manns í lekamál-
inu. Samkvæmt heimild-
um DV hefur lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu rökstuddan grun
um að Þórey hafi dagana 19. og
20. nóvember í fyrra lekið trún-
aðargögnum til fjölmiðla í þeim
tilgangi að sverta mannorð hæl-
isleitenda frá Nígeríu. Þórey hef-
ur hafnað ásökunum um lekann,
en vildi ekki tjá sig um málið á
fimmtudag þegar DV gaf henni
kost á því.
Starfsmaður B
Í úrskurði Héraðsdóms Reykjavík-
ur frá 6. júní er vísað til Þóreyjar
sem starfsmanns B. Fram kemur
að hún átti í símasamskiptum við
starfsmann 365-miðla um svip-
að leyti og hún vann með skjal
um einkalíf hælisleitendanna í
tölvu sinni eftir að hefðbundnum
vinnutíma lauk. Þá er greint frá
því að hún hafi átt í samskiptum
við blaðamann á Morgunblaðinu
aðeins klukkutíma áður en frétt
um mál hælisleitendanna birtist
á Mbl.is daginn eftir. Skipulögð
höfðu verið mótmæli fyrir utan
ráðuneytið um morguninn.
Þóreyju hefur ekki verið vik-
ið tímabundið frá störfum. Hún
var við vinnu í ráðuneytinu þegar
DV reyndi að hafa uppi á henni á
fimmtudag. Gerðar voru alls sjö
tilraunir til að hafa uppi á henni
og hringt bæði í farsíma og ráðu-
neytissíma án árangurs. Loks sá
hún skilaboð sem henni voru send
á Facebook en svaraði þeim ekki.
Þórey er talsmaður
ráðuneytisins
DV óskaði eftir samtali við ein-
hvern sem gæti svarað fyrir hönd
ráðuneytisins, en var tjáð að Þórey
gegndi sjálf því hlutverki á meðan
upplýsingafulltrúi væri í sumarfríi.
Því reyndist ómögulegt að fá við-
brögð frá ráðuneytinu sjálfu, en á
vef þess birtist tilkynning á mið-
vikudag þar sem hnýtt er í málatil-
búnað saksóknara lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu. Þá er gefið í
skyn að símtöl Þóreyjar hafi snúist
um önnur mál en hælisleitend-
urna Tony Omos og Evelyn Glory
Joseph.
Breytingar á skjali
Í dómi héraðsdóms kemur fram að
samkvæmt greinargerð lögreglu
hafi hinn grunaði, það er Þórey Vil-
hjálmsdóttir, átt tveggja mínútna
símtal við starfsmann Vísis hinn
19. nóvember kl. 18.40 og opnað
minnisblað innanríkisráðuneytis-
ins um Tony Omos í tölvunni sinni
sex mínútum seinna. Þá hafi Þórey
átt þrjú styttri símtöl við hann síð-
ar sama kvöld og opnað skjalið aft-
ur kl. 22.20. Einnig benda dóm-
skjölin til þess að Þórey hafi gert
breytingar á skjalinu. Þetta rennir
stoðum undir fyrri fréttaflutning
DV um að ærumeiðandi aðdrótt-
unum hafi verið bætt við minnis-
blaðið áður en það komst í hendur
fjölmiðla.
Morguninn eftir, kl. 9.46, átti
Þórey samskipti við blaðamann á
Morgunblaðinu en kl. 10.55 birtist
frétt um hælisleitendurna á Mbl.
is þar sem vísað var sérstaklega
til minnisblaðs innanríkisráðu-
neytisins. Í dómskjölunum kem-
ur einnig fram að Þórey hafi eytt
skjalinu úr tölvunni sinni.
Misræmi í framburði
Þórey var ein þeirra fjögurra sem
fengu minnisblaðið um Tony
Omos sent í tölvupósti frá skrif-
stofustjóra í ráðuneytinu, en
Hanna Birna Kristjánsdóttir ráð-
herra, Gísli Freyr Valdórsson að-
stoðarmaður og Ragnhildur
Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri fengu
skjalið einnig sent. Þórey var tví-
vegis yfirheyrð við rannsókn máls-
ins. Í fyrra skiptið fullyrti hún að
hún hefði einungis opnað um-
ræddan tölvupóst, ekkert átt við
skjalið og eytt því. Fram kemur í
greinargerð sóknaraðila að B hafi
gefið litlar skýringar á þessu mis-
ræmi. „Þá hafi B ekki getað útskýrt
hvers vegna þær tímasetningar,
sem [...] hafi verið að vinna með
skjalið, væru mjög í námunda við
tímasetningar á símasamskiptum
hans við [...] Vísis (18.40 og 22.43),“
segir í dómi héraðsdóms.
Þar kemur enn fremur fram að
í síðari yfirheyrslunni hafi lögregla
fengið heimild til þess að skoða
tölvupóst Þóreyjar á umræddu
tímabili en ekkert marktækt hafi
verið að sjá þar sem tengdist mál-
inu. Hins vegar hafi mátt sjá í
tölvu Þóreyjar ummerki um að
hún hefði leitað þar að umræddu
skjali. Lögregla spurði hana um
þetta og lýsir svörunum á þessa
leið í greinargerð:
Hafnaði ásökunum
„Aðspurður hvers vegna B hafi
þurft að leita sérstaklega að skjal-
Jóhann Páll Jóhannsson
Jón Bjarki Magnússon
johannp@dv.is / jonbjarki@dv.is
Tölvunotkun Þóreyjar Vilhjálmsdóttur í rauntíma
19. nóvember:
kl. 18.40: Þórey á rúmlega tveggja mínútna samtal við starfs-
mann Vísis.
kl. 18.46: Þórey opnar minnisblað innanríkisráðuneytisins um
Tony Omos sem var vistað inni á tölvunni hennar.
kl. 22.20: Þórey opnar minnisblaðið á nýjan leik.
kl. 22.43: Þórey á í síðasta samtali sínu við starfsmann Vísis en
þau voru alls fjögur þetta kvöld.
kl. 22.50: Fréttablaðið er sent í prentun en forsíðufréttin fjallar
um hælisleitandann Tony Omos. Hún ber fyrirsögnina „Grunaður um
aðild að mansali“ og er byggð á persónuupplýsingum sem fengnar
eru úr minnisblaði innanríkisráðuneytisins.
20. nóvember:
kl. 9.46: Þórey á rúmlega
tveggja mínútna símtal við
starfsmann Morgunblaðsins.
kl. 10.55: Mbl.is birtir frétt
undir fyrirsögninni „Margt óljóst í
máli hælisleitanda“ og segir
upplýsingarnar komnar úr
„óformlegu minnisblaði innanrík-
isráðuneytisins.“
Grunuð um leka
Þórey Vilhjálmsdóttir,
pólitískur aðstoðar-
maður Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur, er með
réttarstöðu grunaðs
manns. Mynd SiGtryGGur Ari
Fórnarlömbin „Ég vissi ekki að ráðuneyti í Evrópu beittu sér með þessum hætti,“ sagði
Tony Omos í viðtali við DV í fyrra. Þá höfðu þau Evelyn Glory Joseph fengið að kenna á trún-
aðarbresti innanríkisráðuneytisins. Mynd SiGtryGGur Ari
Í skýrslutöku hinn 10. maí fullyrti Þórey að
hún hefði einungis opnað tölvupóstinn sinn,
ekkert átt frekar við skjalið og síðan eytt
því. Þessi útskýring stenst ekki skoðun enda
leiddi rannsókn lögreglunnar í ljós að hún
hefði vistað skjalið inni á tölvunni sinni. Þá
bendir rannsókn lögreglunnar til þess að
hún hafi breytt skjalinu því þegar því var
lokað spurði tölvan „Do you want to sa-
vechanges you made to [A]“. Þá mun Þórey
ekki hafa getað útskýrt hvers vegna þær
tímasetningar, sem hún hafi verið að vinna með skjalið, væru mjög í námunda við tímasetningar
á símasamskiptum hennar við starfsmann Vísis. Í dómskjölunum kemur fram að Þórey hafi gert
leit að skjalinu í tölvunni sinni. Spurð um það hvers vegna hún hafi þurft að leita sérstaklega að
skjalinu þegar það var vistað á skjáborði tölvunnar svaraði hún því til að hún hefði viljað sjá hvort
eitthvað væri inni á tölvunni hennar sem ekki ætti að vera þar. Skjalið var ekki inni á tölvu hennar
þegar lögreglan skoðaði hana enda hafði Þórey þá þegar eytt því.