Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Síða 14
Helgarblað 20.–23. júní 201414 Fréttir O lga Genova segir að það að búa með hennar fyrrverandi sambýlismanni, Jörgen Má Guðnasyni, hafi verið eins og búa ofan á eldfjalli; allt gat verið í lagi og á næsta augnabliki gat ofbeldið blossað upp. Olga er rússnesk og kemur frá borginni Omsk í Síberíu en hefur dvalið á Íslandi meira og minna síð- ustu níu ár. Hún talar prýðis íslensku en kýs þó að ræða við DV í gegn- um túlk svo ekkert misskiljist. Af fasi hennar að dæma er hún hvergi nærri buguð þrátt fyrir að hafa gengið í gegnum margt í sambúð sinni með Jörgen. Hún hefur kært hann fyrir líkams- árás, líflátshótun, eignaspjöll, hús- brot, þjófnað og skjalafals. Hún hefur auk þess tilkynnt um eftirför, hótanir og ofsóknir sem og stefnt honum fyr- ir meiðyrði. Barn þeirra tveggja er í skjóli í Rússlandi hjá móður Olgu og er grunur um að það hafi hlotið skaða vegna líkamsárásar á meðgöngu sem og harðræðis eftir fæðingu. DV fjallaði um sviðna jörð Jörg- ens í parketslípun, ferðaþjónustu og á leigumarkaði fyrir hartnær tveimur mánuðum. Ýmis gögn sem DV hef- ur séð renna stoðum undir frásögn Olgu; lögregluskýrsla, fjölmargar skýrslur frá Barnaverndarstofu, áverkavottorð frá Landspítalanum og dómur um nálgunarbann sem hún fékk gegn Jörgen sem var stað- festur af Hæstarétti. Olga ræddi fyrst við DV síðast- liðinn mars, stuttu eftir umfjöllun um Jörgen. Það var hins vegar ekki fyrr en nýverið sem hún treysti sér til að leyfa DV að segja sögu hennar vegna ótta við fyrrverandi sambýlismann sinn. Hefur hún komið fyrir eftirlits- myndavélum á heimili sínu eftir að hafa fengið múrstein inn um svefn- herbergisglugga sinn um miðja nótt. „Dæmigerð saga um heimilisofbeldi“ „Hvar á að byrja? Þetta er svo löng saga. Þetta er dæmigerð saga um heimilisofbeldi fyrst og fremst. Ég uppgötvaði það almennilega í fyrra, í nóvember. Það sem ég vil segja frá, og er mjög mikilvægt fyrir allar kon- ur að vita, er hvað felst í heimilisof- beldi. Maður veit aldrei hvenær það byrjar,“ segir Olga. Hún leitaði alls átta sinnum til Kvennaathvarfsins meðan hún var í sambúð með Jörgen. Hún seg- ir að hann hafi beitt hana ofbeldi er hún var komin fimm mánuði á leið með barn þeirra. Í skýrslu frá Barna- verndarstofu segir að hún hafi verið með ýmsa áverka víðs vegar um lík- ama er hún leitaði til bráðamóttöku vegna hríðverkja. Ofbeldið hluti af lífinu „Eitt skipti þurfti ég að hlaupa út úr íbúðinni berfætt, þá komin fimm mánuði á leið. Það var kona sem bjó við hliðina á okkur sem keyrði mig þá upp á Landspítalann því ég var með falskar hríðir. Þessum manni er alveg sama þótt kona sé ófrísk, það stoppar hann ekkert í að beita ofbeldi. Ástæðan fyrir ofbeldinu var alltaf einhverjum öðrum að kenna, aldrei honum að kenna. Hann afsakaði sig alltaf með því að hinn aðilinn hafi gert eitthvað á hans kostnað. Þegar ofbeldið var framið voru hurðirnar alltaf læstar. Þetta var ekki eingöngu líkamlegt ofbeldi, eins að ganga berserksgang og brjóta. Hann tók skæri og klippti bestu fötin mín. Hann sagði að það væri vegna stress í vinnunni eða afbrýðisemi,“ segir Olga. Dæmdur fyrir ofbeldi Jörgen var dæmdur í apríl árið 2012 fyrir ítrekað ofbeldi gegn fyrrver- andi sambýliskonu sinni. Jörgen barði hana ítrekað árið 2010. Ákær- an á hendur honum vegna ofbeld- isins var í þremur liðum og varðaði þrjú tilfelli. Fyrsta árásin átti sér stað laugar- daginn 11. mars fyrir utan Thorvald- sen. Þar sló hann hana í magann með þeim afleiðingum að hún féll í götuna. Önnur árásin átti sér stað 1. maí 2010. Þá réðst hann á hana, sló hana í andlitið og reif í hár hennar og skellti henni í gólfið. Þriðja árásin átti sér stað fyrir utan Kaffi Loka í mið- bæ Reykjavíkur hinn 21. desember 2010, en þá sparkaði hann fast í rass hennar og sló hana í andlitið. Við það hlaut hún mar yfir nefhrygg og spjaldhrygg og tognun í hálsi. Fyrir brotin var hann dæmdur í hálfs árs fangelsi, en þar af eru þrír mánuðir bundnir skilorði til þriggja ára. Hann hefur ekki hafið afplánun vegna þessa dóms. Er Jörgen var dæmdur fyrir lík- amsárás gegn fyrrverandi sam- býliskonu sinni var Olga ófrísk og með honum í sambúð. Hún segist ekki hafa haft hugmynd um hversu alvarlegt þetta var. „Ég vissi í raun- inni ekki hvað var að gerast,“ segir Olga. Ein á Íslandi Olga segir að staða sín hafi ver- ið enn erfiðari vegna þess að hún hafði engan til að snúa sér til, hún átti enga aðstandendur hér á landi og á þessum tíma hafi íslenska hennar ekki verið góð. „Hann batt þannig um hnútana að alltaf þegar eitthvað gerðist þá fylgdist hann með mér tvo, þrjá daga á eftir. Ég mátti ekki fara neitt og hann pass- aði í hverja ég hringdi. Hann hafði stjórn og hótaði mér alltaf: „Ef þú ferð til barnaverndar eða ef þú ferð til lögreglunnar þá veistu að það getur gerst eitthvað mikið verra.““ Barnavernd gekk í málið Olga segir að barnavernd hafi far- ið að fylgjast með þeim um svipað leyti og hún þurfti að fara á bráða- móttökuna ólétt. „Konan kvartar undan verkjum í kvið í kjölfar of- beldis sem og samdráttum, auk ótta við að eitthvað ami að barninu,“ segir í skýrslu sem Barnavernd Reykjavíkur barst frá Landspítalan- um vegna þess máls. Í sömu skýrslu kemur fram að læknir við Landspít- alann hafi tilkynnt barnavernd um ofbeldið „þar sem ógn þótti standa að heilsu og lífi ófædds barns“. Í þeirri tilkynningu segir „á henni voru sýnilegir áverkar og hún aug- ljóslega hrædd“. „Það sem gerðist þegar barna- vernd var komin í málið var að hon- um var sagt að fara til fjölskyldusál- fræðings. Ég frétti það síðar að hann fór bara eitt, tvö skipti og kláraði það aldrei. Hann laug að mér að hann hefði farið og sagði alltaf að niðurstaðan hjá sálfræðingnum hafi verið að það væri eitthvað að mér en ekki að honum. n Olga Genova segir frá sambandi sínu við Jörgen Má Guðnason n Hefur kært hann fyrir ofbeldi, líflátshótun og eignaspjöll Á bráða- móttöku með áverka á meðgöngu „Ég bjó ofan á eld- fjalli sem gat gosið skyndilega Það er eitt þegar maður lem- ur konu en það er annað þegar það stoppar hann ekki þegar hún er með barn í höndunum,“ segir Olga. Reyndi að vera góð Olga segir að hún hafi reynt að frið- þægja Jörgen eftir fremsta mætti er hún fann að stutt væri í reiðikast. Hún þorði ekki að kæra hann. „Ég bjó ofan á eldfjalli sem gat gosið skyndilega. Stundum sá ég að það var stutt í næsta gos. Þá reyndi ég að vera góð og tala við hann eins og barn, segja hon- um það sem hann vildi heyra. Ég var svo hrædd að ég þorði ekki að kæra hann. Ég var með lítið barn á brjósti og var alveg háð honum,“ skýrir hún. Nýfarin að horfa í augu fólks Olga segir að Jörgen hafi sagt sér að loka Facebook-síðu sinni og hindrað sig í að hitta vini sína á Íslandi. „Það var ekki þannig að hann stöðvaði mig líkamlega heldur var það frekar þannig að ég þorði ekki að storka honum því þá var líklegra að eitt- hvað myndi gerast. Ég gat ekki horft framan í ann- að fólk, ef ég gerði það sagði hann ógeðslega hluti um mig. Það er nú fyrst síðustu mánuði sem ég er far- Hjálmar Friðriksson hjalmar@dv.is „Þessum manni er alveg sama þótt kona sé ófrísk, það stoppar hann ekkert í að beita ofbeldi Kærður Olga hefur kært Jörgen Má fyrir lík- amsárás, líflátshótun, eignaspjöll, húsbrot, þjófnað og skjalafals.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.