Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Blaðsíða 21
Helgarblað 20.–23. júní 2014 Fréttir 21
n Siglingar á norðurslóðum skapa tækifæri n Misjafnar skoðanir um hagkvæmni gámaflutninga n Sérfræðingar segja mikla óvissu ríkja um siglingarnar
inga telur hann skoða þurfi vel-
forsendur fyrir annars konar um-
skipunarhöfn á Íslandi. „Það eru
flutningar sem lúta öðrum lögmál-
um. Þar er yfirleitt verið að sigla frá
A til B og mjög sjaldan um einhverja
umskipun að ræða. Yfirleitt er einn
eigandi sem á farminn og ekki
sama pressa varðandi hagkvæmni,
tímaramma og nýtingu. Þegar slík-
um farmi er umskipað er það gert á
markaðslegum forsendum en ekki
vegna flutninga. Það er að segja í
svokölluðum markaðshöfnum. Til
dæmis er allt ál frá Íslandi flutt til
Rotterdam og umskipað þar. Vegna
þess að Rotterdam er markaðshöfn
fyrir ál, en ekki vegna þess að sér-
stök þörf er á umskipun. Umskip-
un getur líka verið út af tæknileg-
um ástæðum. Þar sem lestað er úr
stóru skipi í mörg smærri eða öfugt.
Til dæmis ef stórt skip kemst ekki
inn á námasvæði eða farmur þyrfti
að dreifast á mörg önnur svæði. Það
má vel vera að slík þörf sé á slíkri
umskipun vegna námavinnslu í
Grænlandi eða vegna olíuvinnslu.
Ég þekki það ekki.“
Kallar eftir umræðu
„Það þarf bara að ræða þessi mál
út frá staðreyndum og bera saman
hluti sem eru samanburðarhæf-
ir. Ég tel mun vænlegra til árangurs
að einbeita sér að verkefnum sem
raunveruleg forsenda er fyrir. Eins
og til dæmis að veita þjónustu við
þann iðnað sem er á Grænlandi og
mun aukast á næstu áratugum. Ég
hef ekki skoðað slík verkefni sér-
staklega en þar veitir lega Íslands
raunverulegt forskot.
Páll segir einu ástæðuna fyrir því
að hann taki þátt í umræðunni sé
vegna þess að hann telji gámaflutn-
inga óraunhæfan kost og hvetur til
þess að raunhæfir möguleikar séu
skoðaðir. „Auðvitað er fullt af fólki
sem telur þetta góðan kost en ég hef
ekki enn heyrt aðila sem starfar hjá
vel reknu skipafélagi tala um þetta
sem raunhæfan kost. Tvö stærstu
kínversku gámaflutningafyrirtæk-
in eru sennilega með eina lökustu
afkomuna af fyrirtækjum af þessari
stærðargráðu. Á að taka mark á
þeim eða Maersk sem er með eina
þá mestu?“
Annað sem Páll nefnir í grein
sinni er að árið 2010 hafi verið gerð
könnun á meðal 142 skipafélaga á
norðurhveli. Þrjú af 38 gámaflutn-
ingafyrirtækjum svöruðu „kannski“
þegar spurt var um áhuga á flutn-
ingum á norðurslóðum. Alls 17 fé-
lög í ýmsum rekstri voru jákvæð
gagnvart flutningunum en þá er að
mestu um að ræða stórflutninga.
Samkvæmt Páli nema gáma-
flutningar 16 prósent þess magns
sem flutt er á sjó en skapi um helm-
ing þeirra verðmæta sem verði til við
sjóflutninga.
Rannsóknir að hefjast í Finnafirði
Hafsteinn Helgason er verk-
efnastjóri yfir hugsanlegum hafnar-
framkvæmdum í Finnafirði fyr-
ir hönd Bremen Ports en fyrirtækið
gerði fyrir skömmu samkomulag í
Ráðherrabústaðnum við Langanes-
byggð og Vopnafjarðarhrepp um
rannsóknir á svæðinu.
„Ef rann-
sóknir á
lífríki og umhverfi
koma vel út þá er
næsta verkefni að
frumhanna höfn á
staðnum
Mörg tækifæri, Mikil óvissa
Grænland
Ísland
Alaska
Kanada
Bretland
Græna línan sýnir siglingar með-
fram ströndum Alaska, Kanada
og Grænlands. Bláa línan sýnir
siglingar yfir miðjan pólinn sem
eru ekki mögulegar núna. Fjólu-
bláa og rauða línan sýna siglingar
með ströndum Rússlands.
Helstu
siglinga-
leiðir yfir
norðurpól
Rússland
Pólleið
Kanada/
Græn-
landsleið
Rúss-
lands-
leið
Skandinavía
Kína