Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Page 26
Helgarblað 20.–23. júní 201426 Fréttir Erlent
Konfektkóngur
settur á valdastól
n Bardagar halda áfram í Úkraínu n Nýr forseti virðist breyta litlu
Á
meðan augu alheimsins
beinast aðallega að Írak um
þessar mundir vegna að-
gerða ISIS-liða í landinu
halda átökin í Úkraínu
áfram með óbreyttum styrk. Úkra-
ína var fréttamáltíð vetrarins, ef svo
má segja, þar sem til gríðarlegra
mótmæla kom í höfuðborginni
Kiev. Þar mótmæltu stjórnar-
andstæðingar ríkisstjórn forset-
ans, Viktors Janúkóvits, á Maidan-
torginu. Þeim mótmælum lauk með
því að hann flúði til Rússlands þann
22. febrúar síðastliðinn.
Hann naut stuðnings Moskvu og
Vladimírs Pútíns og biðlaði til hans
um að grípa inn í atburðarásina.
Pútín gerði það með því að innlima
Krímskaga hinn 21. mars á þessu
ári. Krímskagi hafði verið hluti af
sjálfstæðri Úkraínu frá árinu 1991,
þegar gömlu Sovétríkin liðu undir
lok, en leiðtogi þeirra frá 1953–1964,
Nikita Krústsjov, sem sjálfur var
frá Úkraínu, færði sovétlýðveldinu
Krímskaga að gjöf árið 1954. Með
aðgerðum sínum tók Pútín í raun
Krímskaga til baka til Rússlands, þar
sem hann telur að svæðið eigi að til-
heyra Rússlandi.
Þetta er í raun bakgrunnur átak-
anna í Úkraínu í stuttu máli en at-
burðarásin þar er gríðarlega flókin
og inn í hana blandast sterkar þjóð-
ernistilfinningar, barátta um völd,
auðæfi og áhrif.
Rússar vilja til Rússlands
Fjölmargir Rússar búa í austurhluta
Úkraínu og vilja sameinast Rúss-
landi. Átökin sem brutust út fyrr í
vor eru í grundvallaratriðum á milli
stjórnvalda í Kiev, sem halla sér
meira í áttina að Evrópu og aðskiln-
aðarsinna, sem njóta bæði opinbers
og óopinbers stuðnings Rússa.
Fleiri hundruð manns, hermenn
og óbreyttir borgarar, hafa fallið í
Úkraínu síðan þau hófust í aust-
urhluta landsins, þar sem aðskiln-
aðarsinnar hafa hertekið borgir
og stjórnarbyggingar. Síðan reynir
úkraínski herinn að ná til baka því
sem aðskilnaðarsinnar hafa tek-
ið. Segja má að upphafið sé hinn
12. apríl þegar aðskilnaðarsinn-
ar hertóku lögreglustöð í borginni
Slovyansk. Það eru því tveir mánuð-
ir síðan átökin hófust.
Nýr forseti
Forsetakosningar voru haldnar í
Úkraínu í lok maí og þar sigraði auð-
kýfingurinn Petro Porosjenko, sem
er tæplega fimmtugur að aldri. Völd
forseta Úkraínu eru umtalsverð og
hann hefur til dæmis neitunarvald
á ákvarðanir þingsins, rekur og mót-
ar utanríkisstefnu landsins, er yfir-
maður hersins og er í raun sá aðili
sem á að passa upp á öryggi lands-
Gunnar Hólmsteinn
Ársælsson
Súkkulaði Porosjenko hagnaðist mikið á sælgætis- og konfektframleiðslu sinni.
Erfitt verkefni konfektkóngsins Nýr
forseti Úkraínu, Petro Porosjenko, á erfitt
verkefni fyrir höndum, meðal annars að
reyna að sameina úkraínsku þjóðina og leiða
hana í gegnum átökin sem nú standa yfir.
Íraski herinn
spyrnir við
fótum
Íraski herinn og vígamenn úr
röðum ISIS-samtakanna börð-
ust á fimmtudag um völdin yfir
einni stærstu olíuhreinsunar-
stöð landsins.
Sem kunnugt er hafa liðs-
menn samtakanna það mark-
mið að stofna íslamskt ríki í Írak
og Austurlöndum nær.
Samtökin hafa fært sig veru-
lega upp á skaftið að undan-
förnu og tekið hverja borgina
á fætur annarri í norðurhluta
landsins undir sitt vald. Íraski
herinn virðist loksins vera far-
inn að spyrna við fótum.
Á fimmtudag greindi breska
ríkisútvarpið, BBC, frá því að
Barack Obama væri að íhuga
beiðni frá ríkisstjórn Íraks um
að loftárásum verði beitt á víga-
menn ISIS.
Liðsmenn samtakanna hófu
áhlaup sitt á olíuhreinsistöð-
ina á miðvikudag en hún er um
200 kílómetra norður af höfuð-
borginni Bagdad. Verkamenn
sem þar voru að störfum sögðu
að vígamenn hefðu eyðilagt
stöðina að hluta og hafi verið
fljótir að ná valdi á henni.
Að sögn BBC voru fjörutíu
liðsmenn ISIS drepnir af íraska
hernum á miðvikudag og að-
faranótt fimmtudags og neitaði
talsmaður hersins því að olíu-
hreinsistöðin væri undir stjórn
uppreisnarmanna.
Barnaklám
loksins bannað
Efri deild japanska þingsins hef-
ur loksins samþykkt frumvarp
þess efnis að bann verði lagt við
vörslu barnakláms. Þótt ótrú-
legt megi virðast hefur varsla
níðefnis af því tagi ekki ver-
ið bönnuð í landinu. Geta þeir
sem verða staðnir að vörslu á
slíku efni nú átt á hættu að fara
í allt að eins árs fangelsi, sam-
kvæmt frumvarpinu. Þrátt fyrir
þetta skref mun eitt ár líða þar
til nýju lögin taka gildi.
Að sögn Japan Times munu
nýju lögin aðeins taka til raun-
verulegra fórnarlamba níð-
ingsskaps, en ekki til teiknaðra
mynda sem njóta töluverðra
vinsælda í Japan. Þetta þýðir
að barnaklám verður enn lög-
legt í slíkum myndum í Japan.
Baráttumenn fyrir breytingum
á lögunum lögðu einnig mikla
áherslu á að banna slíkt níð-
efni en fulltrúar teiknaða klám-
iðnaðarins sögðu að með því
yrði tjáningarfrelsinu settar of
miklar skorður.