Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Qupperneq 27
Fréttir Erlent 27Helgarblað 20.–23. júní 2014
ins og íbúa þess í víðtækum skiln-
ingi. Í innsetningarræðu sinni
hinn 7. júní síðastliðinn sagði
Porosjenko meðal annars: ,,Ég er
orðinn forseti til þess að styrkja
einingu Úkraínu og til þess að
tryggja frið og öryggi í landinu.
Ég veit að friður er það sem íbúar
Úkraínu vilja. Yfirmaður ríkisins
hefur ýmis tæki til þess að vernda
föðurlandið og stuðla að friðsömu
lífi íbúanna. Ég hef næg valdatæki
og ég hef viljann. Ég vil ekki stríð,
ég vil ekki hefnd.“
Hann tók einnig fram að lýð-
ræði að evrópskri fyrirmynd væri
hans leiðarljós og lofaði umbótum
á stjórnkerfinu, en lagði einnig á
það mikla áherslu að Úkraína ætti
að vera eitt og óskipt ríki. Hann tók
einnig sérstaklega fram að Krím-
skaginn væri hluti af Úkraínu og
hann telur því innlimun Rússlands
algerlega ólöglega. Þetta hlýtur því
að koma niður á samskiptum hans
við Vladimír Pútín og Moskvu.
Miklir bardagar og mannfall
Þrátt fyrir kröftuga ræðu og styrkj-
andi orð hafa bardagar haldið
áfram í landinu og ef eitthvað er
þá hefur ástandið versnað frekar
en hitt. Til mjög alvarlegra bar-
daga hefur komið á milli úkra-
ínska hersins og aðskilnaðarsinna
víðs vegar í austurhluta landsins
og um síðustu helgi skutu aðskiln-
aðarsinnar niður herflutninga-
vél. Um 50 hermenn létu þar lífið.
Nokkrum dögum fyrr skutu þeir
niður herþyrlu og þar fórst einn
vinsælasti herforingi úkraínska
hersins ásamt tólf óbreyttum. En
her Úkraínu hefur ekki bara orðið
fyrir áföllum því hann náði hafnar-
borginni Mariupol á sitt vald í síð-
ustu viku. Hún liggur að Svarta-
hafinu og Krímskaga, en er einnig
rétt við landamæri Rússlands. Það
er því í raun barist mjög nálægt
landamærum landanna.
Margt bendir til þess að að-
skilnaðarsinnar hafi þróaðan
vopnabúnað undir höndum, með-
al annars eldflaugar til þess að
nota gegn flugvélum og þyrlum. Þá
bárust fyrir nokkrum dögum frétt-
ir þess efnis að rússneskir skrið-
drekar og bílar með eldflaugaskot-
pöllum (BM-21 Grad) hefðu sést í
Úkraínu. Reynist það rétt má líta á
það sem ákveðin kaflaskipti í átök-
unum.
Sameinuðu þjóðirnar telja að
tugir þúsunda manna séu á flótta
í Úkraínu undan átökunum og
engar friðarviðræður virðast eiga
sér stað á milli deiluaðila.
Konfektkóngur stjórnar Kiev
Hinn nýi forseti Úkraínu, Petro
Porosjenko, er sá fimmti í röðinni
síðan landið fékk sjálfstæði frá
Sovétríkjunum árið 1991. Hann
hefur skapað sér mikinn auð með
sælgætis- og konfektframleiðslu,
en hann á stærsta framleiðanda
slíks varnings í landinu, fyrirtæk-
ið Roshen. Nafnið er dregið af
hinu úkraínska eftirnafni forset-
ans og hefur starfað síðan 1996.
Porosjenko er metinn af Forbes á
um 1,3 milljarða dollara.
Hann studdi ,,appelsínugulu
byltinguna“ í Úkraínu árið 2004
og varð utanríkisráðherra í stjórn
hinnar skrautlegu Júlíu Tímó-
sjénkó og þá starfaði hann einnig
sem viðskiptaráðherra um tíma.
Hans bíður hið erfiða verk-
efni að glíma við þau þjóðernisá-
tök sem nú geisa í landinu. Þá hafa
Rússar einnig afnumið öll fyrri
fríðindi Úkraínu á gasviðskiptum
og heimta þeir núna fyrirfram-
greiðslu frá Úkraínu fyrir allt gas.
Þannig að gasið er enn eitt vopnið
í þeim átökum og ljóst er að næstu
vikur og mánuðir verða enginn
dans á rósum hjá konfektkóngn-
um í Kiev. n
Endurleikur
Róm og Spörtu
H
elsti leiðtogi aðskiln-
aðarsinna er Rússi.
Stríðsmaður og endur-
leikur Rómverja á góð-
um stundum.
Hann heitir Igor Girkin,
en einnig kallaður Strelkov,
eða Skyttan, og er fæddur
árið 1970 í Moskvu. Á góð-
um stundum bregður hann
sér í gervi Rómverja á dögum
Júlíusar Sesars og í borginni
Konstantínovka er stórt aug-
lýsingaspjald af honum þar
sem hann stillir sér upp eins
og aðalpersóna kvikmyndar-
innar 300. Í henni er sagt frá
frægum bardaga lítils hóps
hermanna frá Spörtu við
ofurefli Persa árið 480 fyr-
ir Krist. Igor er einn helsti
leiðtogi aðskilnaðarsinna
í austurhluta Úkraínu og
stjórnar sveitum aðskiln-
aðarsinna á Donbass-svæðinu, sem er eitt sterkasta vígi þeirra. Þar
hefur verið lýst yfir sjálfstæðu lýðveldi og menn í raun slitið sig frá
stjórnvöldum í Kiev.
Talið er að Igor hafi bæði unnið fyrir leyniþjónustu Rússlands
FSB (gamla KGB) og einnig leyniþjónustu rússneska hersins, GRU.
Hann er sagður hafa barist í Bosníu, væntanlega með Serbum, trú-
bræðrum Rússa, gegn múslimum, í borgarastríðinu þar á árunum
1992–1995 og í átökunum í Téténíu (1994–2000).
Evrópusambandið er með hann á bannlista og úkraínsk yfirvöld
ásaka hann um hryðjuverk. Talið er að hann hafi menn héðan og
þaðan á sínum snærum: ,,Herflokkar mínir innihalda að sjálfsögðu
menn frá hinum ýmsu svæðum,“ sagði hann í samtali við rúss-
neska dagblaðið Komsomolskaya Pravda. Hann telur að um einn
þriðji sinna manna séu Úkraínumenn. Um hann er fjallað í grein
í Huffington Post og þar segir hann að félagar sínir séu stríðshert-
ir: ,,Margir mínir menn hafa verið í rússneska hernum og barist í
Téténíu, Mið-Asíu, Írak, Júgóslavíu og jafnvel Sýrlandi,“ segir Igor,
sem neitar því hins vegar að hafa fengið stuðning frá Rússum: ,,Við
höfum ekki fengið eina kúlu frá Rússum,“ segir þessi goðsagna-
kenndi stríðsmaður sem lætur mikið til sín taka í Úkraínu.„Ég er
orðinn
forseti til þess
að styrkja ein-
ingu Úkraínu
Vígalegur Á þessari mynd er Igor klæddur
upp sem rómverskur hermaður. Sagt er að
hann hafi dálæti af því að ,,endurskapa“
alls kyns hlutverk sem tengjast hernaði.
Rúmar fimmtíu
milljónir á flótta
Fjöldi flóttamanna ekki meiri síðan í síðari heimsstyrjöldinni
V
ið horfumst í augu við
þann mikla kostnað sem
hlýst af því að binda ekki
endi á styrjaldir og að
geta ekki komið í veg fyr-
ir átök,“ sagði António Guterres,
flóttamannafulltrúi Sameinuðu
þjóðanna, í tilefni af nýrri skýrslu
Flóttamannastofnunar Sameinuðu
þjóðanna um þróun flóttamanna-
straums á heimsvísu árið 2013 (e.
Global Trends report).
Þar kemur fram að fjöldi þeirra
sem eru á flótta vegna átaka í
heiminum er kominn yfir fimm-
tíu milljónir í fyrsta skiptið síðan í
síðari heimsstyrjöldinni. „Mann-
úðarsamtök geta veitt aðstoð upp
að vissu marki en brýnt er að finna
pólitískar lausnir. Án pólitískra
lausna munu þau skelfilegu átök
og þjáningar sem endurspeglast í
þessum tölum halda áfram,“ sagði
Guterres enn fremur.
Í skýrslunni er greint frá því að
gögnin nái til þriggja hópa: flótta-
manna, hælisleitenda og fólks á
flótta innan eigin landamæra. Af
þeim eru 16,7 milljónir skilgreind-
ir sem flóttamenn, 33,3 milljónir á
flótta innan eigin landamæra og 1,1
milljón hælisleitenda. Þess má geta
að 137 hælisleitendur sóttu um
hæli á Íslandi á fystu níu mánuðum
ársins 2013 en það er árið sem skýr-
slan nær til. Af þeim fengu níu hæli
á meðan 128 var synjað um það eða
93,5 prósent.
Sex milljóna aukning
Skýrslan byggist á upplýsingum
Flóttamannastofnunar, opinberra
aðila og frjálsra félagasamtaka um
allan heim. Þar kemur fram að
fjöldi þeirra sem neyddir hafa ver-
ið á flótta í árslok 2013 hafði náð
51,2 milljónum en það er aukning
um sex milljónir frá árslokum 2012
þegar fjöldinn var 45,2 milljónir.
Fram kemur að meginor-
sök þessarar hækkunar sé flótta-
mannastraumurinn vegna borg-
arastyrjaldarinnar í Sýrlandi sem
valdið hefur því að 2,5 milljónir
manna eru flóttamenn og 6,5 millj-
ónir eru á flótta innan landamæra
Sýrlands. Önnur svæði þar sem
fjöldi fólks hefur lagst á flótta eru
einnig í Afríku, einkum í Mið-Afr-
íkulýðveldinu og undir lok ársins
2013 í Suður-Súdan.
Pakistan og Íran taka við
flestum
Flóttamannafulltrúi Sameinuðu
þjóðanna segir alþjóðasamfélagið
þurfa að leysa innbyrðis ágreining
og nefnir sérstaklega átökin í Suð-
ur-Súdan, Sýrlandi, Mið-Afríku-
lýðveldinu og víðar. Þá segir hann
óhefðbundna styrktaraðila þurfa
að fá aukið vægi og vinna samhliða
hefðbundnum styrktaraðilum. Jafn
margir séu á flótta vegna átaka í dag
„og allir íbúar í miðlungsstórum
löndum eins og Kólumbíu, Spáni,
Suður-Afríku eða Suður-Kóreu“.
Í skýrslunni er greint frá því
að fjölmennustu hóparnir und-
ir verndarvæng Flóttamannastofn-
unar séu Afganar, Sýrlendingar og
Sómalar sem telji samanlagt um
helming allra flóttamanna heims-
ins. Þau lönd sem tóku við flestum
flóttamönnum eru Pakistan, Íran og
Líbanon. Þá kemur fram að flótta-
mannavandinn sé hvað mestur í
Asíu og Kyrrahafinu þar sem yfir 3,5
milljónir flóttamanna eru, þar næst
kemur Afríka sunnan Sahara með
2,9 milljónir flóttamanna og Mið-
Austurlönd og Norður-Afríka með
2,6 milljónir flóttamanna.
Ríkisfangslausir bætast við
Fjöldi þeirra sem var á flótta innan
eigin landamæra var sem fyrr seg-
ir 33,3 milljónir manna. Í skýrsl-
unni kemur fram að það hafi verið
áskorun að hjálpa þessum hópi sem
oft og tíðum er fastur innan átaka-
svæða, þar sem erfitt er að koma að
aðstoð og þar sem verndarákvæði
alþjóðlegra laga hafa ekki verið virt.
Þá er greint frá því að ríkisfangs-
lausir standi utan við tölfræðina
um þá 51,2 milljónir manna sem
neyddir hafa verið til að flýja heim-
ili sín. Erfitt reynist að henda reið-
ur á nákvæman fjölda þeirra
sem eru ríkisfangslausir meðal
annars vegna þess að bæði Flótta-
mannastofnunin og ríkisstjórnir
eiga erfitt með að skrá þá sem eru
ríkisfangs- og/eða skilríkjalaus-
ir. Við þetta bætist að sum ríki taka
ekki saman tölulegar upplýsingar
um þá sem ekki eru ríkisborgarar í
þeirra eigin ríki.
Árið 2013 skráðu skrifstofur
Flóttamannastofnunar um heim
allan tæplega 3,5 milljónir ríkis-
fangslausra manna sem þó eru talin
vera aðeins þriðjungur þess fjölda
sem er án ríkisfangs á heimsvísu. n
Jón Bjarki Magnússon
jonbjarki@dv.is
Fjöldi barna Fjöldi barna er á meðal þeirra rúmlega fimmtíu milljóna sem eru á flótta. Hér
má sjá börn á flótta bíða eftir mat í flóttamannabúðum í Pakistan en það er eitt þeirra landa
sem tekur á móti hvað flestum flóttamönnum.
Fimmtíu milljónir Fjöldi þeirra sem eru á flótta
vegna átaka í heiminum er kominn yfir fimmtíu milljónir
í fyrsta skiptið síðan í síðari heimsstyrjöldinni.
„Án pólitískra
lausna munu
þau skelfilegu átök og
þjáningar sem endur-
speglast í þessum tölum
halda áfram.