Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Qupperneq 30
Helgarblað 20.–23. júní 201430 Umræða
Langaði hvort eð er ekki Umsjón: Henry Þór Baldursson
Vinsæl
ummæli
við fréttir DV í vikunni
1 „Hvernig heldurðu að það líti út þegar þú verð-
ur gamall?“ Þeir sem vilja skreyta
líkama sinn með húðflúri eru gjarnan
spurðir þessarar spurningar.
Lesið 36.522
2 Ók niður fimm ára dreng: „Skítur skeður, lífið
heldur áfram“ 31 árs gamall Breti
varð barni að bana með glæfraskap.
Honum virtist slétt sama, eftir að hafa
fengið fangelsisdóm.
Lesið: 34.829
3 „Hún er fluggáfuð stelpa, ótrúlega góð“ Á
hvítasunnudaginn síðasta fóru Pino
Becerra Bolaños og íslensk sambýlis-
kona hennar í göngutúr við Bleiksárgljúf-
ur í Fljótshlíð.
Lesið: 30.639
4 Hneig niður á Austur-velli Einn skátinn sem stóð
heiðursvörð við Austurvöll hneig niður
eftir að hafa staðið með fánastöng í um
það bil klukkustund.
Lesið: 27.419
5 „Mér finnst þetta hrikalegasta misnotkun
mannsins“ Tugir milljarða dýra eru
drepin á ári hverju til að fæða og klæða
manninn. Aðbúnaður þeirra er í mörgum
tilfellum slæmur, meðferð á þeim í
lifanda lífi harðneskjuleg og dauðdaginn
kvalafullur.
Lesið: 26.206
Lekamálið = Watergate
N
úna hillir loksins und-
ir niðurstöðu í lekamál-
inu. Upplýsingar í kring-
um atburðarásina þegar
einhver starfsmaður inn-
anríkisráðuneytisins lak trúnað-
argögnum um borgarana, komu í
ljós með óvæntum hætti á dögun-
um. Það gerist vegna annars máls,
þegar fréttastjóri mbl.is neitaði að
gefa lögreglunni upplýsingar, sem
fór fyrir dóm. Upplýsingarnar sem
koma fram í þessum dómskjölum
eru afhjúpandi og vonandi hillir
undir lausn þessa skelfilega máls
sem fyrst. Þetta mál hefur tekið
mikið pláss í umræðunni frá því
það hófst. Ég hef fylgst með því al-
veg frá blábyrjun og ég man hvað
ég var hissa og sár þegar fréttin um
meint glæpa-tengsl Tony Omos
birtust í Fréttablaðinu. Þá varð
alveg ljóst að einhver í innanrík-
isráðuneytinu var að leka trún-
aðargögnum um borgarana. Og
ekki bara eitthvert óvart út í loftið,
heldur í stærstu fjölmiðla lands-
ins. Þetta er eins alvarlegt og það
verður.
Talið í árum
Við brotum af þessu tagi liggja
þungar refsingar sem ekki eru tald-
ar í mánuðum. Heldur árum. Þess-
ar þungu refsingar vegna brota af
þessari sort eru skiljanlegar vegna
þess að trúnaður heils ráðuneyt-
is er undir. Ráðuneytið höndl-
ar með viðkvæmustu mál borgar-
anna hverju sinni. Skilnaðarmál.
Erfðamál. Lögreglumál. Lóðamál.
Nálgunarbönn. Forræðissvipt-
ingar og svo framvegis. Hugsum
okkur nú aðeins hvernig innan-
ríkisráðuneytið gæti starfað ef ekki
ríkti trúnaður um allt það sem færi
fram innan vébanda þess. Stað-
an er einfaldlega sú að trúnað-
ur er forsenda þess að ráðuneytið
geti starfað. Án trúnaðar væri inn-
anríkisráðuneytið einhver óvirk
leiðindastofnun. Vegna þessa hef-
ur verið mjög undarlegt að fylgj-
ast með viðbrögðum Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur innanríkisráð-
herra í þessu máli. Í upphafi máls-
ins sagði hún engan leka hafa átt
sér stað úr innanríkisráðuneytinu
og benti á að fjölmargar stofnanir
hefðu aðgang að trúnaðargögnum
um hælisleitendur. Þetta var hrak-
ið sama dag og staðfestist við lög-
reglurannsóknina. Þá kom í ljós
að minnisblaðið var samið í inn-
anríkisráðuneytinu sem viðbragð
við fyrirhuguðum mótmælum, og
aðeins átta einstaklingar höfðu
aðgang að því. Þar á meðal var
ráðherra og tveir aðstoðarmenn
hennar. Hönnu Birnu var því alveg
ljóst þegar hún benti á aðra sem
mögulega lögbrjóta að hún var að
fara með ósannindi.
Hundskammaði þingmenn
Þegar málið komst inn á borð Al-
þingis (sem hefur eftirlitshlutverki
að gegna gagnvart stofnunum rík-
isins) og innanríkisráðherra var
spurð út í lekamálið, fyrtist hún við
og hundskammaði þingmenn fyrir
að spyrja sig út í málið og varpaði
annarlegu ljósi á hvers vegna sum-
ir þingmenn höfðu séð minnis-
blaðið. Miðað við alvarleika máls-
ins og þá staðreynd að lög höfðu
verið brotin og trúnaður innan-
ríkisráðuneytisins var í uppnámi,
hefði maður haldið að innanríkis-
ráðherra myndi fagna öllum þeim
staðreyndum sem gætu varpað
ljósi á þetta skelfilega mál.
Það gerði hún ekki heldur tók
sér varðstöðu gegn öllum þeim
sem vildu varpa ljósi á málið. Ráð-
herra hefur meðal annars neitað
að svara spurningum DV um þetta
mál. Nokkuð sem er frekar vand-
ræðalegt því blaðamenn DV fengu
á dögunum blaðamannaverðlaun
Íslands fyrir umfjöllun sína um
lekamálið. En Hanna Birna hef-
ur hoggið til fleiri en blaðamanna
því í gær birtist undarleg yfirlýsing
á vef innanríkisráðuneytisins þess
efnis að lögreglan væri að setja í
sérkennilegt samhengi ályktanir
af persónulegum símtölum starfs-
manna innanríkisráðuneytisins
vegna rannsóknarinnar. Þetta er
mjög undarlegt svo ekki sé tekið
dýpra í árinni.
Allt er undir
Höfum aðeins í huga það sem er
undir í þessu máli. Trúverðugleiki
innanríkisráðuneytisins. Allt er
undir, en Hanna Birna Kristjáns-
dóttir hrekst úr einu horninu í
annað í stöðugri vörn þegar hún
ætti að fagna öllum þeim týr-
um sem gætu varpað ljósi á lausn
þessa máls. Þetta er ekki trúverð-
ugt nema síður sé. Ég sé ekki fyr-
ir mér fleiri hálmstrá fyrir ráðherra
að halda í. Ég sé fyrir mér að leikar
geti farið á annan veg en að Hanna
Birna Kristjánsdóttir neyðist til að
segja af sér embætti. Ef aðstoðar-
maður hennar hefur með sannar-
legum hætti lekið trúnaðarupplýs-
ingum um borgarana í fjölmiðla í
pólitískum tilgangi – eins og rök
hníga að – er jafn augljóst að ráð-
herra nýtur ekki trausts og verð-
ur að segja af sér. Eftir því sem ég
kemst næst ætlar aðstoðarmaður-
inn ekki að verða „fall guy“ í þessu
máli og mun taka ráðherra með sér
í fallinu. Enda er það ósköp skilj-
anlegt. Það er nöturlegt að þurfa
að enda álitlegan pólitískan fer-
il fyrir það eitt að fylgja skipunum
yfirmanns síns. Þessu máli er ekki
lokið en þegar það gerist verður
það með braki og brestum og hafa
varanleg áhrif á íslenska stjórn-
sýslu. Lekamálið er Watergate. n
„Ég sé ekki fyrir mér
fleiri hálmstrá fyrir
ráðherra að halda í.
Mynd SigTryggUr Ari
Teitur Atlason
skrifar
Af blogginu