Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Side 33
Helgarblað 20.–23. júní 2014 Fólk Viðtal 33
Konan er stærsti
lottóvinningurinn
Stærsti lottóvinningurinn
Eftir tvö og hálft ár hjá Ævari fór
hann að læra prentiðnina. Fað-
ir hans er prentari líka. „Undir niðri
langaði mig alltaf að klára þetta. Ég
var búinn að undirbúa mig undir
Þjóðleikhússkólann en pabbi sagði
við mig að ég yrði að klára prentið.“
Á árunum þegar hann var í Iðn-
skólanum að læra prentið varð hann
líka fyrir einni mestu gæfu lífs síns.
Hann fór mikið á rúntinn til Hafnar-
fjarðar með félögum sínum. Einn
rúnturinn var betri en allir hinir til
samans enda ansi örlaga-
ríkur. „Þarna var mað-
ur farinn að líta í kring-
um sig á stelpurnar og
svona. Þarna vinn ég
stærsta lottóvinn-
inginn, þegar ég
hitti konuna
mína,“ seg-
ir hann ein-
lægur. „Við
buðum
henni og
vinkonu
hennar
far,“ segir hann og minnist þessar-
ar fyrstu stundar sem hann sá eigin-
konu sína, Elísabetu Sonju Harðar-
dóttur. Hún steig upp í bílinn ásamt
vinkonu sinni og það var ást við
fyrstu sýn.
Ást við fyrstu sýn
„Við horfðumst í augu,“ segir hann
og gerir örlítið hlé á máli sínu. „Þetta
var svo skrýtið,“ segir hann og held-
ur áfram: „Það kom einhver neisti.
Ef hægt er að tala um ást við fyrstu
sýn þá var það þarna. Þetta er stærsti
lottóvinningurinn sem ég hef unnið
í lífinu,“ segir hann með ástarglampa
í augum. „Hún var eins og fegurðar-
drottning og ég var mjög hissa að ég
skyldi ná í hana,“ segir hann. „Enda
sagði ég bara já, já, já þegar hún vildi
flytja í Hafnarfjörð þaðan sem hún
er,“ segir hann.
Þau hjónin hafa haldist saman í
nærri hálfa öld.
„Við eigum 50 ára brúðkaups-
afmæli árið 2017. Hún er búin að
hanga með mér allan tímann og er
búin að breyta mér alveg gífurlega
mikið og kenna mér margt. Hún hef-
ur kennt mér að fyrirgefa og virða
allt sem gott er. Hún er bara alveg
sérstök,“ segir hann með sérstakri
áherslu. „Hún er minn besti vinur.“
Þegar þau Sonja og Magnús giftu
sig fengu þau sérstakt leyfi frá for-
setanum þar sem Sonja var ekki
orðin 18 ára. Fljótlega varð hún
ólétt og þau eignuðust elsta soninn,
Hörð Magnússon, sem starfar sem
íþróttafréttamaður en samtals eiga
þau fjögur börn.
Röð tilviljana
Lífið var tekið við með öllu því
sem fylgir og lítill tími fyrir leik-
listina. Magnús vann í þrem-
ur störfum til þess að sjá fyrir
fjölskyldunni. Á Morgunblað-
inu, Landakoti og verksmiðju
í Hafnarfirði. Leiklistin varð
því að bíða en blundaði þó
alltaf enn í honum. Eftir tíu
ár á Morgunblaðinu var það
fyrir röð tilviljana að hann
komst inn í leiklistina aftur.
„Ég var kominn með konu
og barn og bara kominn út í
lífið. En alltaf blundaði í mér
leikarinn, alltaf hreint,“ seg-
ir hann.
„Ég var alltaf ósáttur við
að hafa aldrei farið alla leið í
leiklistinni. Svo var ég fenginn yfir
á Vísi frá Morgunblaðinu. Þorsteinn
Pálsson og Ólafur Ragnarsson fengu
mig yfir og mörgum fannst ég brjál-
aður að vera að fara úr örygginu
af Mogganum yfir á þennan fjöl-
miðil sem þótti nú ekki fínn á þeim
tíma,“ segir hann. Það varð hon-
um engu að síður mikið gæfuspor.
„Meðan ég var að vinna á Morgun-
blaðinu gat ég eiginlega aldrei tek-
ið að mér hlutverk vegna þess að ég
var alltaf að vinna vaktavinnu. Síðan
þegar ég fer á Vísi þá var Ólafur sjón-
varpsmaður og hann kom mér inn
í þátt í sjónvarpinu. Í þættinum var
Ágúst Guðmundsson leikstjóri að
spila og syngja á gítar. Við hittumst
aðeins þarna í þættinum en síðan
hitti ég hann aftur á árshátíð Blaða-
mannafélagsins og segi þá við hann
að ef hann sé að fara að gera bíó-
mynd þá viti hann af mér. Síðan líða
þrír til fjórir mánuðir og ég var bara
búinn að gleyma þessu,“ segir
hann. Þá kom hins vegar sím-
tal og hinum megin á línunni
var Ágúst. „Hann bauð mér
hlutverk í stuttmynd sem
hét Lítil þúfa og var svo sýnd
í sjónvarpinu seinna meir.
Það má segja að í þessu til-
viki hafi Lítil þúfa velt þungu
hlassi,“ segir hann og útskýr-
ir hvernig tilviljanirnar héldu
áfram að greiða leið hans inn
í leiklistina á ný.
Stóra tækifærið
„Hrafn Gunnlaugsson sér
myndina í sjónvarpinu og
býður mér hlutverk í Óðali
feðranna og svo líka hlutverk
í Landi og sonum. Í Óðali
feðranna er kona í einu að-
alhlutverkanna og sú kona
var formaður Leikfé-
lags Kópavogs. Hún
fer að tala við mig og
spyr hvort mig langi
ekki að leika eitthvað
meira. Ég hélt það nú.
Hún bauð mér hlut-
verk í gamanleiknum
Þorláki þreytta því
það vantaði einhvern
til að leika hann.“
Þar lék hann að-
alhlutverk og segja
má að þetta hafi ver-
ið stóra tækifærið.
„Þetta stykki gekk í tvö
ár. Við lékum þetta
85 sinnum fyrir fullu
húsi og þetta fékk því-
líka dóma. Það voru
heilu rúturnar að koma utan að
landi til þess að sjá verkið. Þarna
mætti segja að ég hafi virkilega sleg-
ið í gegn,“ segir hann.
Á einni sýningunni sat Ragnar
Bjarnason söngvari og heillaðist af
leik Magga. „Þar kemur önnur til-
viljun. Raggi sat þarna með konunni
sinni og sagði mér seinna að hann
hefði sagt við hana þegar 15–20
mínútur voru búnar af sýningunni:
„Þennan kósa verð ég að fá í Sumar-
gleðina!“ segir Maggi og leikur Ragga
með miklum tilþrifum og nær hon-
um bara nokkuð vel.
Hélt að væri verið að gabba hann
Raggi stóð við stóru orðin og hringdi
daginn eftir í Magga. „Ég fraus alveg
í símann og hélt það væri einhver
að gera grín í mér. Sumargleðina,
common. Þarna voru menn eins og
Raggi, Ómar og Bessi. Þetta hlaut að
vera eitthvert grín. Þannig ég segi
hikandi við hann að ég ætli að tala
við konuna mína og sjá hvað hún
segi. „Já, gerðu það,“ segir Raggi. Ég
hringi þá í þig á eftir.“
Konan segir mér auðvitað að
drífa í þessu því hún vissi mínar
langanir í þessu. Síðan hringir hann
aftur og þá vissi ég að það væri ekki
verið að gabba mig og sagði auðvit-
að strax já.“
Við tók mikið fjör en Sumargleðin
ferðaðist um landið á sumrin til
ársins 1986. Ásamt Magga voru þeir
Hemmi Gunn, Raggi Bjarna, Þorge-
ir Ástvaldsson, Bessi Bjarnason og
Ómar Ragnarsson. Fyrsti fundurinn
með þeim félögum var eftirminni-
legur. „Við hittumst á Hótel Sögu og
ég bara trúði þessu ekki. Þarna var ég
allt í einu kominn.“
Við tók skemmtilegt tímabil. „Við
vorum rosalega vinsælir. Hvert sem
við komum var alltaf fullt – hvort
sem það var fimmtudagur, föstu-
dagur, laugardagur eða sunnudagur.
Sums staðar var settur upp borði og
kvenfélagið mætti með kökur. Þetta
var alveg ótrúlega skemmtilegt,“ seg-
ir hann.
Syninum strítt vegna Bjössa bollu
Í Sumargleðinni varð líka til
þekktasta persóna Magga. Litli
ljúflingurinn, Bjössi bolla. Fyrst
hét hann reyndar Pétur prakkari
og var óþekkur nemandi Hemma
Gunn. Maggi tók upp atriði fyr-
ir Stundina okkar þar sem Bjössi
var skapaður í þeirri mynd sem
hann er hvað þekktastur fyrir.
„Hann varð rosalega vin-
sæll bæði meðal barna og full-
orðinna,“ segir hann.
Sumir tóku því þó þannig að
hann væri að gera grín að feitu
fólki. „Ég man í eitt skipti vorum
við að skemmta í Vestmannaeyj-
um og þá kemur kona og slær mig
utan undir. Ég spyr hvað sé eigin-
lega að henni og þá segir hún við
mig að ég eigi ekki að vera að gera
grín að feitu fólki! Ég var ekkert að
því, svona getur fólk verið skrýtið,“
segir hann.
Sonur Magnúsar mátti líka
finna fyrir því að vera son-
ur mannsins sem lék Bjössa
bollu. „Hörður var marka-
kóngur hjá FH þrjú ár í röð
og andstæðingar FH not-
uðu það stundum á hann
að hann væri feitur eins og
Bjössi bolla. Hann var lagð-
ur í hálfgert einelti út af
þessu.“
Allir hálffullir og ruglaðir
Það var mikið fjör í Sum-
argleðinni. Hún gekk við
gríðarlegar vinsældir í
mörg sumur. Stundum var
þó fjörið heldur til of mik-
ið ef út í það er farið. „Raggi
Bjarna setti á endanum
vínbann á Sumargleðina.
Ómar Ragnarsson hótaði
að hætta ef við myndum halda
þessu áfram enda var hann sá
eini sem drakk ekki. Þetta var
líka bara rugl, það var ekki hægt
að bjóða fólki upp á þetta. Það
var að borga sig inn á þetta dýr-
um dómum og það voru all-
ir hálffullir og ruglaðir nema
Ómar. Sumir héldu reyndar
alltaf að Ómar væri það af því
hann var alltaf svo líflegur,“ segir
hann hlæjandi.
Óvænt aðalhlutverk
Í kjölfar Sumargleðinnar komu
fleiri tækifæri í leihúsinu og kvik-
myndum. Maggi lék til að mynda
borgarstjórann í Latabæ í 300
sýningum. Reyndar hefur hann
leikið í fjölmörgum leikritum,
myndum og sjónvarpsþáttum.
Listinn er orðinn langur. Eftirminni-
legustu hlutverkin eru að hans mati
söngleikurinn Ást þar sem hann lék
á móti Kristbjörgu Kjeld og Hvað
„Hún var
eins og
fegurðar-
drottn ing og ég
var mjög hissa
að ég skyldi ná
í hana
Stærsti lottóvinningurinn
Maggi segir það vera sína mestu
gæfu að hafa kynnst eiginkonu
sinni, Sonju.
Pétur Gautur Hér ungur að árum í Pétri Gaut.
Mikil gleði Hér að bregða á leik með Ómari Ragnarssyni og Bessa Bjarnasyni.
Á ferð og flugi Í miklu stuði.