Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Side 37
Helgarblað 20.–23. júní 2014 Fólk Viðtal 37
ekki að horfa á þættina en hún hef-
ur horft á mig keppa og ég veit að
henni þykir gaman að eiga pabba
sem er sterkastur. Það verður gaman
að hitta hana í ágúst.“
Hann viðurkennir að það hafi
verið áfall að komast að því svo ung-
ur að hann væri að verða pabbi. „Það
var ágætis sjokk en ég held að ég
hafi tekið því ágætlega. Ég tók þessu
bara eins og maður og hef alltaf ver-
ið til staðar fyrir dóttur mína. Ég
held allavega að ég hafi staðið mig
ágætlega sem faðir. Lífið breyttist
þegar hún fæddist. Það gjörbreytt-
ist til hins betra. Ég varð að þroskast,
allt í einu þurfti ég að taka ábyrgð á
einhverjum öðrum en sjálfum mér.
Theresa Líf hefur hjálpað mér mikið.
Ég var bara týpískur unglingur áður
en hún fæddist, hélt ég gæti allt og
var eflaust með stæla og læti,“ seg-
ir hann og viðurkennir að hann hafi
ekki alltaf verið til fyrirmyndar sem
unglingur. „Maður var bara svo vit-
laus og ekki með neitt á hreinu, var
mikið á djamminu og eflaust á ein-
hverjum tímapunkti ekki á réttum
stað en svo sneri maður blaðinu við.“
Annar í spilinu
Hann segir sambandið við
barnsmóðurina gott. „Við erum
ágætis vinir í dag enda vorum við
saman í þrjú ár þótt sambandið hafi
líklega verið búið fyrr. Þegar Ther-
esa Líf fæddist ákváðum við að þetta
væri ekki að ganga og hún er núna
kominn með annan kærasta og lítið
barn,“ segir hann og viðurkennir að
það hafi verið erfitt að sætta sig við
að dóttirin væri komin með annan
mann í sitt líf. „Ég get alveg viður-
kennt að ég fann fyrir afbrýðisemi
við tilhugsunina að það væri annar
gæi að ala upp mitt barn en sem bet-
ur fer er þetta frábær gæi sem hefur
komið vel fram við þær báðar. Mað-
ur getur ekki beðið um meira. En
jú, þetta tók á í byrjun. Ég hef samt
alltaf verið pabbi hennar, tekið mín-
ar helgar og meira til. Hún veit alveg
hver pabbi sinn er.“
Þyngstur 205 kg
Goðsögnin Jón Páll Sigmarsson er
mikil fyrirmynd í lífi Hafþórs Júlí-
usar en Jón Páll varð fjórum sinn-
um sterkasti maður í heimi. Sjálfur
var Hafþór í öðru sæti á þessu ári og
er staðráðinn í að sigra á því næsta
og helst næstu fjögur ár héðan í frá.
Til að ná slíkum árangri þarf aga og
strangan lífsstíl en Hafþór er tilbú-
inn í áskorunina. „Ég er mjög agað-
ur og passa mig á því hvað ég borða,
passa að ég fái nægan svefn og passa
upp á æfingar. Ég set markmiðið
hátt og veit að ég ber ábyrgð á þessu
sjálfur. Ef ég geri þetta ekki rétt gerir
enginn þetta fyrir mig. Líkaminn er
eins og bíll – hann þarf eldsneyti og
ef ég borða ekki rétt rýrna ég og það
vil ég ekki. Ég hef þyngstur verið 205
kg árið 2012. Í mínu besta formi er ég
175–180 kg. Þegar ég var í körfubolt-
anum var ég 105 kg.
Það eru ekki margir í heim-
inum sem hafa bætt á sig 70 kg
vöðvamassa. Auðvitað eru til menn
sem eru kannski 300 kg vegna offitu
en það er ekki margir menn sem eru
svona stórir og sterkir. Fyrir mig eru
170 kg líklega eins og fyrir aðra að
vera aðeins of þungir. Mér líður vel
í dag en ég viðurkenni að það var
erfitt að vera 205 kg. Þá tók allt á, það
var erfitt að labba og ég var síborð-
andi – belgurinn var útþaninn. En
eins og með annað þá vandist það. Í
dag finnst mér þetta ekkert mál – eða
jú, það getur stundum verið erfitt að
borða svona mikið. Ég þarf að pína
mig til að borða og borða oft á dag.
Ég borða samt hollari fæðu en ég
gerði þegar ég var að þyngja mig og
ef mér tekst að halda mér við efnið
held ég mér í þokkalegri þyngd.“
Fimm máltíðir á dag
Hafþór Júlíus borðar vanalega
fimm máltíðir á dag. „Þetta er vana-
lega mikið það sama. Í morgun-
mat er próteinsjeikur sem inniheld-
ur kannski 150 g hafra, 1–2 banana,
superfood-blöndu, bláber, spínat,
kókosolíu, hnetusmjör og hágæða
prótein. Svo fæ ég mér millimál og
í hádegismat til dæm-
is kjöt, sætar kartöflur,
brún hrísgrjón, brokk-
ólí og salat og vatn
með. Stuttu seinna
borða ég aftur eitthvað
svipað og fer svo á æf-
ingu um tvö, þrjú. Eftir
æfingu hendi ég í mig
próteini og kannski
100 g hafra með, hnet-
usmjör og kókosolíu.
Hálftíma seinna fæ
ég mér kjúkling og
svo aftur um kvöldið.
Svo borða ég mikið
af möndlum og hnet-
um og drekk mikið
af vatni. Annars er ég
ekki alltaf duglegur
að elda mér sjálfur og
fer mikið á veitinga-
staði sem bjóða upp
á hollan mat,“ segir
hann og bætir við að
hann fái sér einnig
eitthvað óhollara inni á milli.
„Í mínu sporti þarf ekkert endi-
lega að pæla svona mikið í matar-
æðinu en ég vil gera það. Það er allt
í lagi að vera feitur og sterkur en mig
langar frekar að líta ágætlega út. Ég
gæti fengið mér pitsu á hverjum degi
ef ég vildi. Ég borða bara ekki mikið
af brauði en fæ mér pitsu þegar mig
langar í pitsu. Það er kannski svona
einu sinni í viku. En svo ferðast ég
mikið og þá er erfitt að halda matar-
æðinu 100 prósent. Ég passa samt
alltaf að taka með mér mat í ferða-
lög,“ segir hann en bætir við að hann
sé lítill nammigrís. „Ég kaupi mér
sjaldan bland í poka eða snakk en
mér finnst ís góður.“
Oftast látinn í friði
Að sama skapi hefur Hafþór látið
djammið að mestu vera. „Ef ég væri
að djamma og drekka aðra hvora
helgi eða einu sinni í mánuði myndi
lítið verða úr árangri hjá mér. Ætli ég
hafi ekki fengið mér í glas einu sinni
á þessu ári. Ég sakna ekki djamms-
ins. Djammlífið og það að vera
þunnur er ekki spennandi tilhugs-
un. Maður gerir bara eitthvað vit-
laust þegar maður er svona vitlaus.
Samt kíki ég alveg út með strákun-
um en þá er ég oftast edrú,“ segir
hann og viðurkennir aðspurður að
hann fái athygli þegar hann skellir
sér út. „Athyglin er meiri úti, en hér
heima er ég oftast látinn í friði. En
svo þegar fólk er komið í glas breyt-
ist allt. Þá þykjast allir þekkja mig.
Ég reyni bara að vera almennilegur
en vissulega getur maður misst þol-
inmæðina við suma. En ég vona að
ég höndli þetta ágætlega. Maður er
alltaf að reyna að vera almennilegur
og leyfa þeim að fá mynd sem biðja
um það.“
Elskar allar konur
Hafþór Júlíus er aðeins 26 ára en hef-
ur nú þegar náð langt í sínu sporti.
Hann segist reyna að passa upp á
að velgengnin stígi honum ekki til
höfuðs. „Ég vona að ég hafi tækl-
að þetta ágætlega og geri mitt besta
til þess að vera hógvær. Maður þarf
ekkert að breytast þótt einhverjir viti
hver maður er. En líklega á maður
sín tímabil og getur alveg gert grín
og montað sig þótt það sé aðallega í
góðra vina hópi. Þá fíflast ég og seg-
ist vera bestur og sterkastur. En það
fer minna fyrir því á meðal almenn-
ings,“ segir hann og brosir.
Hann vill lítið gera úr vinsæld-
um sínum meðal kvenna en ef Face-
book-síðan hans er skoðuð sést
að hann nýtur augljóslega mikill-
ar kvenhylli. Að sama skapi er erfitt
að fá upp úr honum af hvernig konu
hann heillast. „Ef hún er skemmtileg,
góð og ekki í rugli þá skoða ég allt. Ef
hún heillar mig, fílar mig og ég fíla
hana þá er aldrei að vita. Annars er
ég svo rólegur í þessum málum enda
svo upptekinn. Ég er nánast aldrei
heima og hef því lítið verið að spá
í konur,“ segir hann en bætir við að
hann setji engin útlitsleg skilyrði fyr-
ir sig. „Ég elska allar konur; grann-
ar, feitar, dökkhærðar, ljóshærðar.
Mér finnst þær allar æðislegar. Ef ég
hitti frábæra konu sem mig langar
að eyða lífinu með væri það frábært
en eins og staðan er í dag er ég alveg
slakur í þeim málum. Mig langar þó
í eðlilegt fjölskyldulíf einhvern tím-
ann í framtíðinni.“
Fær útrás fyrir skapið
Aðspurður segist hann eiga fá önn-
ur áhugamál en sportið. „Það fer
svo mikill tími í þetta svo mér finnst
gott að verja afgangstíma með fjöl-
skyldu og vinum og sér í lagi dóttur
minni. Annars finnst mér gaman að
spila frisbie-golf með vinunum og
svo hef ég gaman af því að ferðast.
Ég er þessi rólega týpa, finnst gott að
slappa af á kvöldin eftir erfiðar æf-
ingar. Ég er samt langt frá því að vera
skaplaus þótt skapið hafi batnað
með árunum. Ég var oft erfiður sem
krakki og örugglega oft leiðinlegur
við kennara og aðra. Maður var mik-
ill strákur í sér og átti það til að lenda
í slagsmálum. Í dag nota ég keppnir
og æfingar til að fá útrás og býst við
að þar sjái margir aðra hlið á mér;
öskrandi að lyfta einhverju þungu.
Ég verð að mæta reglulega á æfingar,
annars hleðst spennan innra með
mér og þá get ég orðið pirraður. En
sem betur fer hef ég náð tökum á
þessu. Annars væri örugglega búið
að fjalla um það í fjölmiðlum.“
Stamið truflar ekki
Fáir vita líklega að Hafþór
Júlíus stamar en stamið
hefur farið batnandi með
árunum. „Stamið hefur far-
ið í taugarnar á mér en ef
ég er stressaður þá stama
ég meira. Þetta hefur samt
lagast mikið og í dag stama
ég ekki mikið,“ segir hann
og bætir aðspurður við að
stamið hafi ekki haft áhrif
á frammistöðu hans í Game
of Thrones. „Eins ótrúlegt
og það hljómar þá stama ég
minna þegar ég tala ensku
en íslensku. Mér var strítt
á þessu í æsku en alls ekk-
ert mikið, bara svona eins
og öllum var strítt. Í dag er
mér meira sama. Það kem-
ur alveg fyrir að ég hiksta á
orðum en þá finnst mér það
bara allt í lagi. Ég fer ekkert inn í ein-
hverja skel og græt þótt ég eigi það
til að stama.“
Spurður um sitt stoltasta augna-
blik nefnir hann þátttöku sína í
Sterkasta manni í heimi. „Ég á mörg
móment sem ég er stoltur af en ætli
hápunkturinn sé ekki sami tíma-
punktur og ég var svekktastur –
þegar ég lenti í öðru sæti á Sterkasta
manni í heimi. Þetta mót skiptir mig
svo miklu máli; ég var svo grátlega
nærri því að sigra. Það komu næst-
um tár. Á sama tíma var ég mjög
ánægður að lenda í öðru sæti. Ég
hafði gefið allt í þetta, bæði líkama
og sál en hefði viljað vinna. Þessi
reynsla kveikti enn meiri eld í mér
og sýnir hvað ég á mikið inni.“
Leiklistin heillar
Hann telur sig enn eiga góð sex ár í
íþróttinni en segir margt geta breyst
á einu ári. „Oft er talað um 10–12 ár
í þessu sporti en það er voðalega
misjafnt. Gæinn sem vann sterkasta
mann heims hefur keppt í 22 ár.
Hann hefur þó ekki verið á toppn-
um allan þann tíma. Maður veit ekk-
ert hvernig þetta fer. Ég hef gam-
an af aflraunum í dag en eftir sex ár
langar mig kannski að einbeita mér
að einhverju öðru. Kannski verð ég
kominn á kaf í leiklist. Ég væri al-
veg til í að skoða slíkt en ég hef enga
aðra reynslu en af þessum þáttum
og þar var ég ekkert að leika, bara
slást. Það tækifæri kom alveg óvænt
upp í hendurnar á mér en ég væri
alveg til í að prófa meira þótt mað-
ur væri örugglega fastur í hlutverki
vonda gæjans þar sem maður er svo
stór og öflugur,“ segir hann brosandi
en Hafþór Júlíus hefur fengið tilboð
um fleiri hlutverk í kjölfar Game of
Thrones.
„Það er margt á dagskrá og margt
sem stendur til boða. Ég er bara svo
upptekinn um þessar mundir og hef
því þurft að afþakka sumt og annað
verður að koma í ljós seinna. Það er
til dæmis ekki ljóst hvort ég drep-
ist eða lifi af í þáttunum. Þeir sem
fylgjast með verða bara að horfa og
sjá hvað gerist,“ segir hann brosandi
og bætir við að nám komi einnig til
greina. „Kannski maður læri eitt-
hvað tengt mataræði og íþróttum. En
fyrst stefni ég að því að verða sterk-
asti maður heims. Ég er á toppn-
um í dag. Ég er einn sterkasti mað-
ur heims og ef ég helst meiðslalaus
vinn ég þetta næst. Ég hef alla burði
til þess. Næsta ár verður mitt.“ n
„Ég er líka svo
mikill pabba- og
mömmustrákur, þótt
ég sé stór og sterkur
„En svo
þegar
fólk er komið
í glas breytist
allt. Þá þykjast
allir þekkja mig
Hraustur Hafþór Júlíus varð annar í keppninni Sterkasti maður heims á dögunum.
Fjallið Hafþór Júlíus trúði því
ekki í fyrstu að forsvarsmenn
Game of Thrones væru að biðja
hann að koma í prufur.
M
y
n
d
S
ig
tr
y
g
g
u
r
A
r
i