Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Qupperneq 41
Helgarblað 20.–23. júní 2014 Skrýtið Sakamál 41
Morðinginn
frá Mound City
n Charles Ray komst upp með mörg morð n 16 fórnarlömb á 12 árum
C
harles Ray Hatcher, fæddur
16. júlí 1929, í Mound City í
Missouri í Bandaríkjunum,
var yngstur fjögurra barna
Jesse og Lulu Hatcher. Jesse
þótti sopinn góður, hafði glæpaferil
og fangelsisvist á bakinu og var of-
beldishneigður í ofanálag. Charles
var tíðum strítt í skóla og vílaði ekki
fyrir sér að svara með hnefunum.
Brotaferill Charles hefst
Árið 1947 fékk Charles tveggja ára
skilorðsbundinn dóm fyrir bíl-
þjófnað og ári síðar fékk hann
tveggja ára dóm fyrir sams konar
brot.
Þaðan í frá var Charles meira
eða minna á bak við lás og slá til
1963, en þá lauk hann afplánun
dóms sem hann fékk fyrir tilraun til
að nema á brott 16 ára blaðadreng,
Steven Pellham.
Í ágúst 1969 rændi Charles
12 ára dreng, William Freeman,
í Antioch í Kaliforníu, og kyrkti
hann með berum höndum í af-
skekktu gili.
Síðar í sama mánuði, 29. nánar
tiltekið, hvarf sex ára drengur, Gil-
bert Martinez, í San Fransisco. Sex
ára vinkona Gilberts sagði að hann
hefði farið með manni sem lofaði
honum ís. Einhverju síðar gekk
maður, sem var að viðra hund sinn,
fram á Charles þar sem hann beitti
drenginn hvort tveggja í senn bar-
smíðum og kynferðislegu ofbeldi.
Uppdiktuð nöfn
Lögreglunni tókst að hafa hendur í
hári Charles, sem sagðist heita Al-
bert Ralph Price.
Sem Albert Price var Charles
ákærður fyrir mannrán og kynferð-
islegt ofbeldi og var settur í geðmat.
Í desember 1970 var Charles þvælt
ítrekað á milli geðsjúkrahúss, þar
sem hann var ýmist úrskurðaður
sakhæfur eða ekki, og fangelsis.
Það var ekki fyrr en í ágúst 1972
að ákveðið var að réttað skyldi yfir
Charles og í apríl 1973 var hann
dæmdur til að vera í fangelsi allt
frá einu ári til lífstíðar og var hann
sendur í miðlungs öryggisfangelsi í
Vacaville.
Skammgóður vermir
Charles sætti geðrannsókn með
reglulegu millibili og var litla
breytingu að sjá allt til ágúst 1975
og ári síðar fékk hann jákvæðan
vitnisburð hjá nefnd þeirri sem tók
ákvörðun varðandi reynslulausn,
sem Charles fékk í janúar 1977.
Í september 1978 var Charles
handtekinn í Omaha undir nafn-
inu Richard Clark fyrir að beita 16
ára dreng kynferðislegu ofbeldi.
Hann var sendur á geðdeild og
sleppt í janúar 1979. Í maí sama
ár var hann handtekinn eftir að
hafa reynt að myrða sjö ára dreng.
Charles var sendur á geðdeild,
ákæra vegna málsins var felld nið-
ur og honum sleppt í maí 1980.
Tveimur mánuðum síðar var
hann sendur á sömu geðdeild
vegna enn einnar líkamsárásar en
flúði þaðan í september.
„Richard Clark“ tekinn aftur
Hinn 9. október 1980 var Charles,
undir nafni Richards Clark, hand-
tekinn í Lincoln í Nebraska fyrir
tilraun til að nauðga 17 ára dreng.
Hann var sendur á geðdeild en
sleppt 21 degi síðar.
Um miðjan janúar 1981 var
„Richard Clark“ handtekinn í Des
Moines í Iowa eftir að hafa beitt
hníf í slagsmálum. Hann dvaldi á
hinum ýmsu geðdeildum en var
sleppt í apríl.
Fjöldi morða á samviskunni
Undir lok júlí 1982 fann göngu-
fólk illa farnar líkamsleifar 11 ára
stúlku, Michelle Steele, sem hafði
verið barin og kyrkt og skilin eftir
við árbakka Missouri-fljóts.
Daginn eftir var Charles hand-
tekinn er hann reyndi að skrá sig
inn á St. Joseph-sjúkrahúsið. Á
meðan hann beið réttarhalda ját-
aði hann á sig 16 morð, frá árinu
1969. Þar á meðal var morðið á
fjögurra ára dreng, Eric Christgen,
sem horfið hafði í maí 1978 í St.
Joseph.
Þekktur perri í bænum hafði
hlotið dóm fyrir morðið á sínum
tíma og sat í fangelsi allt þar til
Charles viðurkenndi sekt sína.
Við réttarhöldin fór Charles
fram á dauðadóm yfir sér, en
kviðdómur var ekki á því og fékk
hann lífstíðardóm 3. desember
1984. Fjórum dögum síðar hengdi
Charles Ray Hatcher sig í klefa sín-
um í Missouri-fangelsinu. n
„Við réttar-
höldin fór
Charles fram á
dauðadóm yfir sér,
en kviðdómur var
ekki á því
Charles Ray Hatcher
Gekk undir mörgum
nöfnum, þeirra á meðal
Albert Ralph Price,
Richard Lee Grady og
Richard Clark.
Morðingi
líflátinn
63 ára fangi á dauðadeild í Flór-
ída, John Ruthell Henry, var
tekinn af lífi á miðvikudag fyr-
ir morðið á eiginkonu sinni og
stjúpsyni árið 1985. Henry stakk
eiginkonu sína, Suzanne Henry,
til bana áður en hann lagði til
fimm ára sonar hennar með
hnífnum nokkrum klukkustund-
um síðar. Árið 1976 játaði Henry
að hafa myrt aðra konu, Patriciu
Roddy, og sat hann aðeins inni
í sjö ár vegna morðsins. Hæsti-
réttur synjaði beiðni lögmanna
Henrys sem vildu að dómn-
um yrði breytt í lífstíðarfangelsi.
Sögðu þeir að Henry væri and-
lega veikur.
Nauðgaði
stúlku og
smitaði af HIV
Þrjátíu og eins árs karlmaður
í Dallas í Bandaríkjunum hef-
ur verið dæmdur í 75 ára fang-
elsi fyrir að nauðga fimmtán ára
stúlku og smita hana um leið af
HIV-vírusnum. Maðurinn, Matt-
hew Louis Reese, játaði sök í mál-
inu, að hafa nauðgað stúlkunni
og hótað henni með banvænu
vopnu til að fá vilja sínum fram-
gengt. Saksóknarar fóru fram á 95
ára fangelsi yfir Reese og sögðu
hann hafa vísvitandi smitað
stúlkuna af vírusnum.
Með byssu
í bossanum
Þrjátíu og tveggja ára maður
skaut tveimur skotum að lög-
reglumönnum skömmu eft-
ir að hann var handtekinn
vegna neyslu metamfetamíns á
veitingastað McDonalds í Denver
í Bandaríkjunum fyrir skemmstu.
Atvikið átti sér stað þegar
komið var með manninn á lög-
reglustöð, en þá neitaði hann
að stíga út úr bifreiðinni. Lög-
reglumönnunum að óvörum dró
maðurinn upp byssu og skaut
að þeim, þrátt fyrir að hann væri
í handjárnum. Hafði hann falið
byssuna milli rasskinnanna. Ann-
ar lögreglumannanna svaraði í
sömu mynt og skaut manninn,
Isaac Vigil, í kviðinn. Hann lifði
árásina af.
Málið þykir hið vandræðaleg-
asta fyrir lögregluna enda fullyrtu
lögregluþjónarnir sem handtóku
hann að þeir hefðu leitað á Isaac
í þrígang, en aðeins fundið hníf
og krakkpípu. Isaac þessi hefur
nú verið ákærður fyrir tilraun til
manndráps og ólöglegan vopna-
burð. Má hann eiga von á því að
dúsa lengi í fangelsi.