Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Síða 46
46 Lífsstíll Helgarblað 20.–23. júní 2014
É
g hef alltaf haft mikinn áhuga
á mat,“ segir kennarinn, ljós-
myndarinn og matarbloggar-
inn Helga Kvam sem heldur
úti lífsstílsvefsíðunni allskon-
ar.is.
Býr til eigin tómatsósu
Helga segir mataráhugann hafa
kviknað þegar hún flutti að heiman.
„Ég var ekki nema 16 ára þegar ég fór
sjálf að búa. Þá átti maður ekki alltaf
mikinn pening en varð að reyna
að gera það besta úr því sem mað-
ur átti. Heima var ég alin upp við
hollan mat, hafragraut, heimabak-
að brauð, fisk og grænmeti, og ég
vildi halda því áfram. Ég kann ekki
að borða rusl,“ segir hún hlæjandi
og bætir við: „Stundum átti maður
ekki nema einn lauk og einn súpu-
tening og þá varð maður að hugsa
hvað væri hægt að gera til að gera
sem mest úr svo litlu.“ Undanfarið
hefur Helga hugsað meira um gæði
hráefnisins. „Það er farið að setja svo
mikið rusl í matinn auk þess sem það
er ódýrara að búa hann til frá grunni.
Ég bý til dæmis alltaf til mína eigin
tómatsósu. Svo finnst mér „beint frá
býli“ mjög jákvæð þróun. Nú geturðu
nánast vitað hvað dýrið hét sem þú
ert að borða,“ segir Helga sem hef-
ur fyrir vikið öðlast breiðari áhuga á
mat og matargerð. „Ég vil sýna hrá-
efninu virðingu. Fyrir mér er ekki
nóg að setja bara pipar á kjötið og
henda því inn í ofninn.“
Engin jarðarber í janúar
Helga elskar að elda allt árið. „Ef
maður kemst í gott hráefni er gaman
að elda. Erfiðasti tíminn finnst mér
vorin en þá getur orðið erfitt að fá al-
mennilegt grænmeti og kartöflur auk
þess sem oft er lítið til af kjöti og fisk.
Þá getur reynst áskorun að búa til
eitthvað gott úr því sem finnst í skáp-
um eða er í boði í búðum. Ég reyni
til dæmis að kaupa ekki grænmeti
sem hefur ferðast hálfan hringinn í
kringum hnöttinn. Mér finnst bara
ekki passa að borða jarðarber í jan-
úar; hef ekki lyst á því.“ Helga býr í
sveitinni á Svalbarðsströnd ásamt
fjölskyldu sinni. „Við búum hér í
himnaríki á jörð. Allt sumarið erum
við með fullt hús af gestum og að
elda fyrir fólk er það skemmtilegasta
sem ég geri. Sumarið fyrir mér byrj-
ar samt ekki fyrr en ég fæ nýveiddan
sjóbirting og get gert gömlu silunga-
súpuna hennar ömmu. Þá er sumar-
ið komið.“ n
Sumarið hefst
með silungasúpu
n Helga Kvam elskar að elda allt árið n Heldur úti lífsstílsblogginu allskonar.is
Silungasúpa „Stundum átti
maður ekki nema einn lauk og einn
súputening og þá varð maður að
hugsa hvað væri hægt að gera til að
gera sem mest úr svo litlu.
Silungasúpa
fyrir fjóra
n 2ja punda bleikja
n 1l vatn
n 2 lárviðarlauf
n 2 tsk. salt
n 8 steinlausar sveskjur
n 1 dl vatn
n 2 msk. sykur
n 1 msk. edik
n salt og sykur
n soðnar kartöflur
Undirbúningur: 5 mínútur
Eldunartími: 15 mínútur
Aðferð:
Byrjaðu á að skera bleikjuna í sneiðar,
um 3–4 cm þverskorið er hæfilegt.
Raðaðu í pott og settu vatnið út í,
miðaðu við að vatnið fljóti rétt yfir
fiskinn. Settu salt út í og lárviðarlauf
og láttu sjóða í 8–10 mínútur, eða þar
til fiskurinn er soðinn. Á meðan seturðu
sveskjurnar heilar út í lítinn pott með
smá vatni og sykri og lætur sjóða á
meðan að fiskurinn sýður. Taktu fiskinn
úr soðinu og færðu upp á disk. Síaðu
soðið og settu í pott, bættu ediki eða
sítrónusafa út í, sveskjunum og vatninu
af þeim, smakkaðu til með salti og sykri.
Þykktu soðið með hveitijafningi; settu 2
msk. af hveiti í glerkrukku og hálffylltu
krukkuna með vatni, settu lokið á og
hristu eins og kokteilbarþjónn! Þannig
færðu kekkjalausan jafning. Helltu út í
súpuna á meðan hún sýður og hrærðu
vel á meðan. Súpan er sett í skálar, hver
og einn verkar svo fisk og kartöflur ofan
í sína skál.
Múrsteinskjúlli
n 1 stór kjúklingur
n 1 msk. cayenne-pipar
n 1 msk. chiliflögur
n 1 msk. paprikuduft
n 1 msk. oregano
n 1 tsk. tabasco-sósa
n 1 msk. szechuan-pipar
n 1 msk. svartur pipar, nýmalaður
n 1 msk. sjávarsalt
n 3 msk. ólífuolía
Undirbúningur: 20 mínútur
Grill: 30 mínútur
Aðferð:
Byrjaðu á að klippa niður með hryggnum á kjúklingnum báðum megin og losa úr honum
hryggsúluna. Nú geturðu opnað kjúklinginn og flatt hann út. Settu í stóra skál allt
kryddið og olíuna og hrærðu vel saman, settu kjúklinginn í skálina og nuddaðu krydd-
blöndunni vel inn í hann, nuddaðu undir skinnið á bringunni líka. Láttu standa í 10–15
mínútur til að kjötið taki vel í sig bragðið. Hitaðu grillið á meðan og vefðu múrsteinun-
um/gangstéttarhellunni inn í álpappír. 2–3 lög ættu að duga vel. Hafðu grillið á meðal-
hita og leggðu kjúklinginn á það með haminn niður. Settu nú steinana ofan á og þrýstu
vel þannig að þeir sitji kyrrir. Steiktu kjúklinginn svona í 10 mínútur. Þú þarft að fylgjast
vel með grillinu því að mikill safi getur runnið úr kjúklingnum og kviknað í honum. Snúðu
nú kjúklingnum við á grillinu, settu steinana aftur ofan á, þrýstu vel niður. Grillaðu í
10 mínútur. Snúðu fuglinum einu sinni enn við, settu steinana ofan á og grillaðu í 10
mínútur í viðbót. Taktu kjúklinginn af og leyfðu kjötinu að hvíla í 5–10 mínútur. Þetta er
mjög nauðsynlegt, ef þú skerð of snemma í kjötið missirðu allan safa úr því og situr uppi
með þurran kjúkling. Helga mælir með því að drukkið sé með þessu vel kælt Frontera
Chardonnay og haft sé fullt af fersku salati og bökuðum kartöflum með.
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
Helga Kvam Helga
hefur mikinn áhuga á
mat og matargerð og
heldur úti vefsvæðinu
www.allskonar.is.
Mynd Völundur JónSSon
Sniðugt í
sumarveisluna
Það er tilvalið að halda skemmti-
lega sumarveislu þegar sólin er
hátt á lofti. Fjölmargt sniðugt
er hægt að gera til þess að lífga
veisluna við og hérna eru nokkr-
ar hugmyndir að skreytingum og
léttum veitingum. Myndirnar eru
fengnar af síðunni Pinterest.com
þar sem er að finna endalaust
magn hugmynda fyrir sumar-
veisluna.
Melónupinnar
Það er skemmtilegt og litríkt að
skera niður melónu í bita og setja
pinna í melónuna. Þannig eru
komnir hollir og góðir melónup-
innar.
regnhlífakrans
Regnhlífar eru til margs góðar.
Gömlu góðu kokteilaregnhlíf-
arnar geta nýst vel til skreytinga,
meðal annars til þess að gera
svona skrautlegan regnhlífa-
krans.
Blómaklakar
Gerðu klakana sumarlega með
því að setja blóm inn í þá. Settu
vatn í klakabox og blóm ofan í
vatnið. Frystu það síðan saman.
Það gefur drykkjunum skemmti-
legan blæ.
Melónufata
Það er margt skemmtilegt hægt
að gera úr melónum. Skerðu
strandarfötu úr melónunni.
Skreyttu með berjum og skerðu
krabba úr melónukjötinu.
Eplabátar
Epli eru kjörin til þess að nota
sem sniðugar skálar í sumarveisl-
una. Skerðu innvolsið úr eplinu
og skerðu efsta hlutann út sem
blóm. Fylltu svo með hverju því
sem þig lystir að bjóða upp á.