Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Qupperneq 52
Helgarblað 20.–23. júní 201452 Menning
Á að laga eitthvað sem ekki er bilað?
U
ndanfarið hafa áhorfendur lært
að varast framhaldsmyndir og
endurgerðir enda eru þær yf-
irleitt hreinlega lélegar tilraun-
ir til þess að græða meira á tryggum
áhorfendum. Hvað þá með framhalds-
mynd af endurgerð? 21 Jump Street
hannaði ákveðna formúlu fyrir tvemur
árum og tókst að slá í gegn með því að
endurræsa gamla sjónvarpsþáttaröð í
gjörbreyttum búning. Með því að taka
þekktan grunn, fullorðið fólk sem þyk-
ist vera í gagnfræðaskóla, og bæta við
spennu og húmor varð til fínasta af-
þreying. Fyrst að það virkaði einu sinni
var ákveðið að leggja í sömu mynd aft-
ur, með smávægilegum breytingum.
22 Jump Street endurtekur forvera
sinn í þeirri von að fólk vilji í raun og
veru bara horfa á það sama aftur.
Þessi opinskáa endurtekning er
það sem framhaldsmyndir ganga út á
en 22 Jump Street er frábrugðin öðr-
um að því leyti að hún er algjörlega
meðvituð um það hvað hún er. Áhorf-
endur eru reglulega minntir á það
að hér sé á ferð framhaldsmynd og
að hún eigi að vera eins og sú fyrsta.
Leikararnir strjúka fjórða veggnum en
brjóta hann þó aldrei og í hvert sinn
sem samtölin verða eilítið „meta“ er
eins og verið sé að blikka áhorfend-
ur. Tilfinningin sem stemmir af því að
skilja marglaga brandara myndarinn-
ar er mjög ánægjuleg og líður áhorf-
endum eins og þeir hafi unnið afrek
og skilið ákveðinn einkahúmor.
Jonah Hill og Channing Tatum
virka vel sem lögreglutvíeyki og er
samspil þeirra eitt og sér óborganlegt.
Saga félaganna reikar á milli gáska og
kærleiksríkra tengsla sem eru grát-
brosleg í einlægni sinni. Þeir dansa á
hómóerótískri húmorslínu án þess þó
að gera grín að samkynhneigð sem
slíkri. Á þeim nótum er samtímis gert
grín að hómófóbískum athugasemd-
um fyrri myndar og tekist á við hefð-
bundin kynhlutverk í hasarmyndum
af hnyttni.
Taktur myndarinnar er ör og
reynt er að halda á lofti hasar og
gríni. Það gengur nokkuð vel upp
en á tímabili missir myndin aðeins
dampinn. Það stafar hugsanlega af til-
raunamennskuni sem fólgin er í því
að stokka upp í hefðinni í kringum
hasargrínmyndir. 22 Jump Street er
á heildina litið sönn framhaldsmynd
með ágætis húmor og ágætan takt
sem bjargar sér fyrir horn með því að
vera sjálfsmeðvituð og blikka áhorf-
endur reglulega. Myndinni tekst því
að gera það sem öðrum framhalds-
myndum mistekst og mætti jafnvel
halda áfram í lengri kvikmyndaröð. n
22 Jump Street Jonah Hill og Channing Tatum ná vel saman í myndinni sem og þeirri fyrri.
Sigríður Regína
Sigurþórsdóttir
Kvikmynd
22 Jump Street
IMDb 8,1 RottenTomatoes 84% Metacritic 71
Leikstjórn: Phil Lort og Christopher Miller
Aðalhlutverk: Jonah Hill og Channing Tatum
Handrit: Michael Bacal, Oren Uziel og
Rodney Rothman
112 mínútur
Lára svefngengill
Tónlistarkonan Lára Rúnars hef-
ur sent frá sér lagið Svefngeng-
ill. Landsmenn kannast með-
al annars við Láru sem eina af
áhöfn Húna II sem sigldi hringinn
í kringum landið síðasta sum-
ar. Svefngengill er fyrsta lagið
af væntanlegri breiðskífu Láru
Rúnars sem kemur út í haust.
Platan er tekin upp í samstarfi
við Stefán Örn Gunnlaugsson
sem einnig gefur út undir nafn-
inu Íkorni. Hljómsveit Láru skipa
sem áður Arnar Þór Gíslason á
trommur, Birkir Rafn Gíslason á
gítar, Guðni Finnsson á bassa og
Þorbjörn Sigurðsson á hljómborð.
Auk þess spilar Rósa Guðrún
Sveinsdóttir á blásturshljóðfæri og
KÍTÓN-kórinn þenur raddböndin.
Lára gaf út plötuna Moment árið
2012 bæði hér heima og í Banda-
ríkjunum. Hægt er að hlusta á
lagið á vefnum soundcloud.com
undir „lararunars“.
Salt í Cannes
Auglýsingastofan Jónsson &
Le’macks er tilnefnd til Cannes-
verðlauna í hönnunarflokki fyr-
ir umbúðir sem stofan hannaði
fyrir Norðursalt. Hátíðin, Cannes
Lions, er ein þekktasta auglýs-
ingahátíð heims. Um 40 þúsund
mismunandi aðilar og fyrirtæki
sóttu um þátttöku að þessu sinni.
Umbúðirnar sem um ræðir hafa
áður unnið til verðlauna, svo sem
í FIT-keppninni og á Lúðrinum.
Hönnuðir umbúðanna eru Al-
bert Muñoz, Sigurður Oddsson
og Þorleifur Gunnar Gíslason
hjá Jónsson & Le’macks, í sam-
starfi við Jón Helga Hólmgeirs-
son vöruhönnuð og teiknarann
Mark Summers. Norðursalt kom
á markað í október 2013 en utan
Íslands er Norðursalt nú fáanlegt
í verslunum í Berlín og er frekari
sókn hafin á markaði í Þýska-
landi, á Norðurlöndum, Ítalíu, í
Japan og Bandaríkjunum.
Byrjaður á næstu óperu
É
g get ekki sagt að ég hafi gert
ráð fyrir því nokkru sinni
að vinna til verðlauna á há-
tíð sviðslista,“ segir Gunnar
Þórðarson tónskáld en hann
hlaut tvenn verðlaun á Grímuhá-
tíðinni 16. júní. „Auðvitað er mað-
ur hæstánægður með þetta. Það er
alltaf ánægjulegt að fá viðurkenn-
ingu sem þessa frá kollegum sín-
um. Annars kom þetta skemmti-
lega á óvart þar sem ég vissi ekki að
óperan félli undir Grímuverðlaun-
in. En þau ná í dag til allra sviðslista.
Þannig að þetta kom skemmtilega á
óvart.“
Gunnar hlaut verðlaun fyrir tón-
list sína í óperunni Ragnheiði auk
þess sem sýningin var valin sýn-
ing ársins en Gunnar samdi verk-
ið ásamt Friðriki Erlingssyni. „Það
var sérstaklega ánægjulegt að Ragn-
heiður hafi fengið verðlaun sem
sýning ársins. Það var eiginlega
skemmtilegra vegna allra þeirra
sem tóku þátt í henni. Það voru svo
margir sem lögðu sitt á vogarskál-
arnar þannig að allir sem komu að
þessu áttu þátt í þeim verðlaunum.“
Gunnar og Friðrik sitja ekki auð-
um höndum þessa dagana því þeir
eru þegar farnir að huga að frekara
samstarfi. Ný frumsamin ópera er í
farvatninu.
Löng skref
„Við Friðrik erum að leita að efni
í aðra óperu,“ segir Gunnar. „Við
lærðum svo mikið af Ragnheiði.
Þannig að við erum að lesa okkur
til þessa dagana og erum að leita
að góðum efnivið til að vinna með.“
Gunnar treystir sér ekki til þess að
gefa út hvenær nýtt verk eftir þá fé-
laga muni líta dagsins ljós. „Þetta
eru löng skref. Vinnan við verk sem
þetta. Þetta tekur nokkur ár. Ef ég
ætti að skjóta á eitthvað myndi ég
segja þrjú ár kannski.“
Gunnar segir að fyrir fáeinum
árum hafi hann ekki getað séð sjálf-
an sig fyrir sér í óperuskrifum. „Ég
var hreinlega ekki viss um að ég gæti
klárað þetta. En ég gerði þetta til
þess að ögra mér. Þetta var persónu-
leg áskorun.“
Eins og smurð vél
Gunnar segir að þrátt fyrir að ferlið
hafi verið strembið hafi það gengið
eins og vel smurð vél. „Allur þessi
tími með Ragnheiði, bæði að semja
verkið og uppsetningin gekk alveg
ótrúlega vel. Það voru bara engin
vandræði neins staðar. Þetta gekk
upp á öllum póstum. Við höld-
um að Ragnheiður hafi verið þarna
með okkur,“ segir Gunnar léttur en
verkið er byggt á sögunni um Ragn-
heiði Brynjólfsdóttur, biskupsdóttur
í Skálholti á 17. öld. Hún átti í ást-
arsambandi við lærimeistara sinn,
Daða Halldórsson, en faðir henn-
ar, Brynjólfur biskup Sveinsson, for-
dæmdi sambandið.
Óperan Ragnheiður hefur ekki
sungið sitt síðasta því hún verður
sýnd á ný milli jóla og nýárs. „Síðan
er stefnan að kynna verkið erlendis.
Það verður örugglega þungur róður.
En það gerir það enginn fyrir okkur.“
Auk þess að hljóta verðlaun fyr-
ir tónlist og sem sýning ársins á
Grímuverðlaununum var Elmar
Gilbertsson valinn söngvari ársins
en hann fer með hlutverk Daða
Halldórssonar biskupssveins og ást-
manns Ragnheiðar.
Borgarlistarmaður Reykjavíkur
Gunnar hefur ekki einungis hlot-
ið viðurkenningar vegna sviðslista
undanfarið því á þjóðhátíðardaginn
var hann útnefndur borgarlistamað-
ur Reykjavíkur árið 2014. Það var
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
sem útnefndi Gunnar en Einar Örn
Benediktsson, fráfarandi formaður
menningar- og ferðamálaráðs, gerði
grein fyrir vali ráðsins í Höfða.
Aðspurður segir Gunnar enga
sérstaka dagskrá vera fyrir höndum
í tengslum við útnefninguna. „Ég
spurði sérstaklega að því. Hvort það
n Gunnar Þórðarson hlaut tvenn Grímuverðlaun n Borgarlistamaður Reykjavíkur 2014
Ásgeir Jónsson
asgeir@dv.is
„Þetta
eru löng
skref. Vinnan
við verk sem
þetta
Ragnheiður Í örmum Daða. Verkið verður sýnt að nýju milli jóla og nýárs en til stendur að
kynna það utan landsteinanna. MynD GíSLI EGILL HRAfnSSon
Gunnar Þórðarson
Hlaut tvenn Grímu-
verðlaun 16.júní og var
valið Borgarlistamaður
Reykjavíkur 17.júní.
MynD SIGTRyGGuR ARI