Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Síða 60
Helgarblað 20.–23. júní 201460 Fólk
Rihanna.
Kjóll Rihönnu
vakti mikla
athygli, en
hún er ekki sú
fyrsta til að
koma fram í
gegnsæjum
kjól. Mynd ReuteRs
Frægar í gegnsæju
n Rihanna ekki sú fyrsta sem sýnir allt í gegnum fötin
Þ
egar söngkonan Rihanna
kom fram í gegnsæjum kjól á
CFDA Fashion Awards fyrir
nokkrum vikum stóð heims-
byggðinni ekki á sama, en
kjóllinn vakti vægast sagt mikla
athygli. Ef nánar er að gáð má aftur
á móti sjá að Rihanna er ekki sú eina
sem komið hefur fram í gegnsæjum
kjól, eða nöktum kjól eins og tegund-
in er gjarnan kölluð. Sjáðu sögu
gegnsæja kjólsins og hvaða stjörn-
ur hafa verið ófeimnar við að sýna
hold. n
Iggy Azalea Hin 23
ára söngkona skart-
aði gegnsæjum kjól
á MTV Video Music
Awards árið 2013.
Miley Cyrus Miley er
óhrædd við að koma
fólki á óvart. Hér er hún
á iHeartRadio Music
Festival árið 2013.
Melody thornton
Pussycat Dolls-
stjarnan á Elle's
Women in Music
Awards árið 2012.
toni Braxton Tónlistarkonan
Toni Braxton var heldur áberandi á
Grammy-verðlaununum 2001.
Rose McGowan Leikkonan
mætti ófeimin á MTW Video
Music Awards árið 1998.
Lady Gaga Hún
var heldur fáklædd
í eftirpartýi eftir
CFDA verðlaunahá-
tíðina árið 2011.
Kate Moss Gegnsær kjóll Kate Moss
virtist veita henni mikla gleði í Elite-fyr-
irsætusamkvæmi árið 1993. Við hlið Kate
stendur Naomi Campell.
Ráðist að
húsi Swift
Taylor Swift lenti í heldur leiðin-
legu atviki á dögunum þar sem
tveir menn og ein kona réðust
að húsi hennar. Fólkið, sem allt
er á tvítugsaldri, var ölvað en
þau köstuðu bjórdósum í húsið
og öskruðu blótsyrði á öryggis-
verði. Einnig sýndi fólkið ör-
yggisvörðunum miðjufingurinn.
Þau voru handtekin og verða
kærð fyrir atvikið. Ein af ákærðu,
Tristan Kading, segir að þau hafi
ekki meint neitt illt, þau hafi
einungis verið ölvuð.
Sem betur fer var Taylor ekki
heima þegar atvikið átti sér stað
og varð því ekki vör við þennan
ósóma.
Dóttir Obama í
kaffisendingum
Hin 15 ára Malia Obama, dótt-
ir Baracks Obama Bandaríkja-
forseta, veigrar sér ekki við að
hlaupa eftir kaffi ef þarf. Það er
einmitt hlutverk hennar þessa
dagana en Malia starfar sem að-
stoðarkona á setti við upptökur á
nýjasta þætti Halle Berry, Extant.
Hún fær enga sérmeðferð og er
ópart send eftir kaffi og drykkjum
fyrir leikara þáttanna. Hún hjálp-
ar einnig til við að rýma götur fyr-
ir leikhópinn.
Malia er því eins og hver ann-
ar unglingur þessa dagana, fyrir
utan auðvitað að þurfa að hafa
leyniþjónustu Bandaríkjanna sí-
fellt á hælum sér.
Nýjasta
drottning
Evrópu
Letizia er nýjasta drottning
Evrópu en eiginmaður hennar,
prins Felipe, er nýkrýndur kon-
ungur Spánar. Krýningarathöfn-
in fór fram í Zarzuela-kastalanum
rétt utan við Madrid.
Gamli kóngurinn, Juan Carlos,
sem er 76 ára, krýndi soninn í
táknrænni athöfn fyrir nánustu
fjölskyldu. Nýju konungshjónin
eiga tvær dætur, Leonor átta ára
og Sofiu sjö ára.
Letizia kæddist brúðarkjól
úr hönnun uppáhalds spænska
hönnuðar síns, Felipe Varela, en
valið þykir styðja þá von Spán-
verja að hún muni halda áfram
að styrkja spænska tískuheiminn
þótt hún sé orðin drottning.
Lil Wayne með tvær plötur í ár
Kominn aftur á stjá og gott betur
R
apparinn Lil Wayne situr
ekki aðgerðarlaus þessa dag-
ana en hann ætlar að gefa
út tvær nýjar plötur á þessu
ári. Hann hafði áður tilkynnt út-
gáfu plötunnar Tha Carter V en
nú bætist í safnið, og það fljótlega.
Hann segir að með þessu sé hann
að vinna upp týnda tíma. „Þið getið
hlakkað til þess að fá tvær plötur frá
mér í ár vegna þess að ég hef ver-
ið fjarlægur í dálítinn tíma,“ segir
rapparinn.
„Hreinskilnislega sagt er ástæð-
an fyrir því að þetta varð að tveimur
plötum sú að ég var að vinna að Tha
Carter V en gat ekki hætt. Þannig
það var annaðhvort það að Carter V
samanstæði af 93 lögum eða finna
aðra leið,“ segir rapparinn hlæjandi.
„Tvær plötur á þessa ári og sjö á
því næsta,“ bætti hann við í gríni.
Lil Wayne er frá New Orleans
í Bandaríkjunum en hann hefur
verið rappari síðan hann var níu
ára gamall. Hann hefur gefið út
fjölda platna, ýmist með hljóm-
sveitum eða einn. n