Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Page 64
Helgarblað 20.–23. júní 2014
47. tölublað 104. árgangur Leiðbeinandi verð 659 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Það er
ákveðinn
léttir!
Sagði söngvaran-
um að „fokka sér“
n Tónlistarhátíðin Secret Sol-
stice stendur nú yfir í Reykjavík
og er hljómsveitin Massive Attack
sennilega stærsta nafnið sem spil-
ar á henni.
Elísabet
Ólafsdóttir,
jafnan þekkt
sem Beta
rokk, sagði
á Facebook-
síðu sinni á
miðvikudag
frá kynnum
sínum af söngvara sveitarinn-
ar á árum áður. Hún var stödd
á ónefndum bar í Brussel þegar
bandarískur maður vindur sér
upp að henni og býður henni í
drykk. Beta spjallar aðeins við
hann en þegar hann spyr hana
um símanúmerið sitt segir hún
við hann: „No. But thanks for the
drinks though. Now fuck off.“ Það
var ekki fyrr en síðar sem hún
fattaði að þetta var Horace Andy,
söngvari hljómsveitarinnar. „Það
er staðfest, ég er ömurlegasta
grúppía sem um getur.“
Auddi fékk
rautt og hætti
n Fjölmiðlamaðurinn Auðunn
Blöndal hefur í gegnum tíðina
verið þekktur fyrir flest annað en
afrek inni á knattspyrnuvellinum.
Auðunn kann þó sitthvað fyrir sér
í boltanum og lék hann til dæm-
is með Létti í 4. deildinni síðasta
sumar og í byrjun þessa tímabils.
En nú hefur Auddi fengið nóg,
hann tilkynnti það á Twitter. „Blö
kveður boltann eins og Zidane,
sköllóttur og á rauðu spjaldi! Ferill
hans vissulega aðeins flottari, en
ekki mikið,“ sagði hann. Auðunn
sagði svo í viðtali á Fótbolti.net að
hann hefði fengið rauða
spjaldið í leik á mið-
vikudagskvöld fyrir
að sparka í and-
stæðing. Bætti hann
því við að nú tæki
golfiðkun við. „..og
ef ég verð
pirraður þar
þá sparka
ég í sjálfan
mig.“
Fékk reiðilestur
frá Jóni Steinari
n Sveinn Andri Sveinsson hæsta-
réttarlögmaður segir á Facebook-
síðu sinni að hann hafi fengið
reiðilestur frá Jóni Steinari Gunn-
laugssyni, fyrrverandi hæstarétt-
ardómara, fyrir aðfinnslur hans á
opnu bréfi Jóns í Morgunblaðinu.
Í bréfi Jóns krefur hann Benedikt
Bogason, nýjan dómara við Hæsta-
rétt, svara vegna uppkvaðningar
úrskurðar um símahlustun hjá
Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrrver-
andi forstjóra Kaupþings. Sveinn
Andri kom Benedikt til varna á
Facebook og var Jón Steinar óá-
nægður með það.
„Reyndar snerist
reiðilesturinn ekki
um efnisatriði um-
mæla minna held-
ur því að ég skyldi
ekki svara honum í
Morgunblaðinu,“
skrifaði Sveinn
Andri.
Freyja á fjöllum vann ljósmyndasamkeppni DV
Lára Gunnarsdóttir, eigandi Freyju, fékk tvo miða á Secret Solstice
L
ára Guðrún Gunnarsdóttir er
sigurvegari sumarljósmynda-
samkeppni DV en mynd henn-
ar af hundinum Freyju á fjöllum
þótti best af þeim tugum ljósmynda
sem DV barst. Ljósmyndurum DV
fannst mynd Láru af tíkinni Freyju
skara fram úr. Lára fær í vinning tvo
miða á Secret Solstice-hátíðina sem
fram fer í Laugardalnum í Reykjavík nú
um helgina. Þegar DV tilkynnti henni
að hún hefði haft vinninginn fór hún
ekki leynt með gleði sína. „Þetta er
geðveikt. Ég er ógeðslega spennt. Þetta
er frábært, takk æðislega,“ segir Lára.
Í samtali við DV um forsögu
myndarinnar segir Lára að hún sé
tekin fyrir ofan Síldarmannagötur í
Hvalfirði. Hún segist vera mikil fjall-
göngukona og yfirleitt sé Golden
Retrieverinn Freyja með í för. „Ég
fer helst upp á fjöll hverja einustu
helgi, ef það er gott veður. Við förum
oft saman á morgnana upp Esjuna,“
segir hún. Spurð um hvort Freyja
haldi í við eigandann segir Lára
hann meiri fjallgöngugarp en hún
er sjálf. „Já, já, hún hefur endalausa
orku,“ skýrir Lára.
Þrátt fyrir að hafa unnið ljós-
myndakeppnina segist Lára ekki
hafa stundað ljósmyndun af neinni
alvöru. „Nei, nei, þetta er bara
hobbí. Þetta er bara tekið á sím-
anum.“ Lára segist vera gífurlega
spennt fyrir Secret Solstice „Það er
aðallega Massive Attack og Disclos-
ure, þetta týpíska. Ég ætla samt að
vera þarna alla dagana, nýta þetta
í botn,“ segir hún. Ásamt Massi-
ve Attack og Disclosure verða flytj-
endur á hátíðinni meðal annars
Carl Craig, Woodkid, Jamie Jones og
Schoolboy Q. n
hjalmar@dv.is
Íhugul Freyja horfir yfir Hvalfjörðinn líkt og
heimspekingurinn á frægu málverki þýska
málarans Caspar David Friedrich.
*Ekkert Etanól nivEamEn.com
ÞaÐ BYRJaR
HJÁ ÞÉR
Prófaðu nýju nivEa mEn Sensitive næringuna eftir rakstur.
Án alkóhóls og berst gegn sviða, kláða og roða.
ÞAÐ ER TIL BETRI LEIÐ
TIL AÐ RÓA HÚÐINA