Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2012, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2012, Blaðsíða 4
4 Fréttir 2.–4. mars 2012 Helgarblað Kristján tekur slaginn K ristján Þór Júlíusson, þing­ maður Sjálfstæðisflokksins, hefur ákveðið að gefa kost á sér sem annar varafor­ maður Sjálfstæðisflokksins. Kosið verður á flokksráðsfundi flokksins í Kópavogi þann 17. mars næst­ komandi. Meðal þeirra sem þegar hafa tilkynnt framboð eru Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn, Aldís Hafsteinsdóttir, formaður sveitar­ stjórnarráðs Sjálfstæðisflokksins, og Jens Garðar Helgason, formað­ ur bæjarráðs Fjarðabyggðar. Kristján Þór fór fyrir Framtíð­ arnefnd flokksins sem samþykkt var að skipa þann 14. apríl 2010. Niðurstöður nefndarinnar voru kynntar á síðasta landsfundi Sjálf­ stæðisflokksins og tillögur hennar samþykktar. Meðal breytinga var aukin upplýsingagjöf til flokksfólks og innleiðing beins lýðræðis. „Ég þekki, eðli málsins sam­ kvæmt, allar breytingarnar og nýju áherslurnar vel, stend heill á bak við þær og óska eftir að fá að halda áfram þeirri vinnu sem ég tók að mér vorið 2010 í forystu Framtíðarnefnd­ ar. Ég býð fram krafta mína til þess að hrinda skipulagsbreytingunum í framkvæmd,“ segir Kristján Þór í til­ kynningu sem hann sendi DV. Hann segir að verði honum treyst til að gegna embætti annars varaformanns flokksins muni hann leggja áherslu á að auka samráð, efla innra starfið og styrkja grasrótina innan flokksins. „Ég hef alla tíð reynt, eftir bestu getu, að vera málsvari venjulegra fjölskyldna og heimila um allt land. Þessi afstaða mín markast eflaust af fyrri störfum og búsetu en ég hef haft tækifæri til að kynnast hinum ýmsum starfsstéttum og þjóðfélagshópum víðs vegar um landið,“ segir Kristján sem leitt hefur Sjálfstæðisflokkinn í Norðausturkjördæmi. Hann ætlar að sækjast eftir því áfram fyrir næstu al­ þingiskosningar. einar@dv.is E mbætti sérstaks saksóknara hefur boðað menn í skýrslu­ tökur vegna rannsóknarinn­ ar á málefnum iðnfyrirtækis­ ins Sigurplasts í Mosfellsbæ. Snýst rannsóknin meðal annars um kæru sem byggir á rannsókn endur­ skoðendafyrirtækisins Ernst &Young á málefnum Sigurplasts og kæru sem snýst um meint veðsvik stjórnarfor­ mannsins Jóns Snorra Snorrasonar, lektors í viðskiptafræði við Háskóla Íslands og eins af hluthöfum félags­ ins. Meðal þeirra sem boðaðir hafa verið í skýrslutöku eru starfsmenn hjá Arion banka, viðskiptabanka Sig­ urplasts og stærsta kröfuhafa þess. Þetta herma heimildir DV. Margs konar lögbrot Grunur leikur á að margs konar lögbrot, allt frá skattalagabrotum, skilasvikum, umboðssvikum til fjárdráttar hafi átt sér stað í rekstri iðnfyrirtækisins því árið 2007 þar til fyrirtækið var tekið til gjald­ þrotaskipta haustið 2010. Inntakið í skýrslu Ernst & Young, sem rannsókn saksókn­ ara byggir meðal annars á, er að gengið hafi verið á eignir og fjár­ muni Sigurplasts eftir að fyrir lá að félagið væri ógjaldfært í kjölfar efnahagshrunsins. Eignir og fjár­ munir Sigurplasts voru færðir yfir í nýtt félag, Viðarsúlu ehf., árið 2009 á kostnað kröfuhafa félagsins, að­ allega Arion banka. Viðarsúla sér­ hæfir sig í framleiðslu á alls kyns umbúðum úr plasti líkt og Sigur­ plast. Haustið 2010 gáfu eigendur Sigurplasts, Sigurður L. Sævars­ son og Jón Snorri Snorrason, fyrir­ tækið svo upp til gjaldþrotaskipta. Litlar eignir voru þá í búinu en skuldir félagsins við Arion banka námu um 1.100 milljónum króna. Skiptastjóri og Arion kærðu Skiptastjóri Sigurplasts, Grímur Sig­ urðsson, og Arion banki, aðalkröfu­ hafi félagsins, kærðu viðskiptahætti Sigurplasts til efnahagsbrotadeild­ ar ríkislögreglustjóra og skattrann­ sóknarstjóra á fyrri helmingi síðasta árs. Rannsókn Ernst & Young á starf­ semi Sigurplasts byggði meðal ann­ ars á þessari kæru skiptastjórans, líkt og segir í skýrslu endurskoðenda­ fyrirtækisins sem beðið var um að höfð yrði til hliðsjónar „kæru sem send hefur verið ríkislögreglustjóra vegna meints fjárdráttar og annarra brota í rekstri Sigurplasts ehf.“ Rann­ sóknin á Sigurplasti hefur því staðið yfir hjá efnahagsbrotadeildinni, nú embætti sérstaks saksóknara, síðast­ liðið ár. Þá liggur fyrir að Arion banki sendi einnig sérstaka kæru til lögreglunnar vegna meintra veðsvika Jóns Snorra Snorrasonar í rekstri Sigurplasts. DV hefur hins vegar ekki frekari heimild­ ir um eðli veðsvikanna. Átta stefnur þingfestar Skiptastjóri Sigurplasts hefur sömuleiðis þingfest átta stefnur fyrir hönd þrotabúsins sem með­ al annars beinast að fyrri stjórn­ endum félagsins. Um er að ræða riftanir og skaðabótakröfur. Þá er þrotabúið að reyna að fá einstaka greiðslum til kröfuhafa rift. Stefn­ urnar voru þingfestar þann 19. janúar síðastliðinn. Jón Snorri Snorrason höfðaði í fyrra meiðyrðamál á hendur rit­ stjórum og fréttastjóra DV vegna umfjöllunar blaðsins um hann og lögreglurannsóknina á málefnum Sigurplasts. Dómur verður kveð­ inn upp í meiðyrðamálinu þann 5. mars næstkomandi. Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is „Grunur leikur á að margs konar lög- brot, allt frá skattalaga- brotum, skilasvikum, um- boðssvikum til fjárdráttar hafi átt sér stað í rekstri iðnfyrirtækisins. n Boðað í skýrslutökur í Sigurplastmálinu n Grunur um stórfelld lögbrot rannsaka lektor vegna veðsvika Veðsvik og átta stefnur Sérstakur saksóknari hefur boðað menn í skýrslutökur út af rannsókn á meintum lögbrotum í starfsemi Sigurplasts. Hluti rannsóknarinnar snýst um meint veðsvik Jóns Snorra Snorrasonar, stjórnarformanns fyrirtækisins. Býður sig fram Kristján Þór ætlar að bjóða sig fram til annars varaformanns Sjálfstæðisflokksins. Kosið verður þann 17. mars. Mál Egils Einarssonar: Nauðgunarkæra til ríkissaksóknara Ákærusvið lögreglunnar hefur sent nauðgunarkæru á hendur Agli „Gillz“ Einarssyni og kærustu hans til ríkissaksóknara. Þetta staðfesti embætti ríkissaksókn­ ara við DV.is á fimmtudag en lög­ reglan á höfuðborgarsvæðinu hefur undanfarnar vikur verið með málið til rannsóknar eftir að ríkissaksóknari óskaði eftir frekari rannsókn á ákveðnum atriðum málsins. Átján ára stúlka kærði Egil og kærustu hans í nóvember síðast­ liðnum fyrir nauðgun en stúlkan var gestkomandi á heimili þeirra eftir gleðskap í miðbæ Reykja­ víkur. Hættir hjá Hörpu Höskuldur Ásgeirsson hefur sagt upp starfi sínu sem framkvæmda­ stjóri Fasteignafélags og rekstrar­ félags Hörpu, tónlistar­ og ráð­ stefnuhúss, í Reykjavík og tengdra félaga frá og með 1. febrúar 2012. Höskuldur greindi sjálfur frá þessu í tilkynningu sem hann sendi fjöl­ miðlum. Hann tók við framkvæmda­ stjórastarfinu á miðju ári 2009 og mun starfa áfram sem fram­ kvæmdastjóri í fáeina mánuði, eða þar til nýtt skipurit liggur fyrir og forstjóri tónlistarhússins hefur verið ráðinn. Hann segir að nú sé rétt að sigla á önnur mið. „Þetta hefur verið mjög gefandi og viðburðaríkur tími og ánægju­ legt að taka þátt í krefjandi verk­ efni í samvinnu við fjölmarga að­ ila sem að því hafa komið. Þegar nú framkvæmdum er lokið, og rekstur Hörpu er kominn á góðan rekspöl, þykir mér hins vegar rétt að sigla á önnur mið,“ segir Hös­ kuldur. MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS  CAFÉ/BAR, opið 17-23 VERTU FASTAGESTUR! Ódýrara í bíó með aðgangskortum! Sjá sýningartíma á BIOPARADIS.IS og MIDI.IS SKÓLANEMAR: 25% afsláttur gegn framvísun skírteinis! SVARTUR Á LEIK ER EINNIG SÝND Í MIÐBÆNUM! “MOVES LIKE A SNAKE ON SPEED” -TWITCHFILM SVARTUR Á LEIK (BLACK’S GAME) ENGLISH SUBTITLES GERARD BUTLER MACHINE GUN PREACHER n Býður sig fram til annars varaformanns Sjálfstæðisflokksins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.