Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2012, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2012, Blaðsíða 30
hefur reynst mér og dætrum mínum svo ofboðslega vel, hún er alveg ynd­ isleg þessi kona.“ Hún leitaði líka mikið til heimilis­ læknisins á þessum tíma. „Hann hélt mér eiginlega gangandi í gegnum þetta því ég fór til hans og fékk útrás þar, bara hreinlega brotnaði niður þegar ég talaði við hann. Eftir mála­ ferlin sagði elsta stelpan mín við mig: „Mamma, ég vissi ekki að þetta hefði verið svona slæmt,“ og það vissu það í raun kannski ekki margir því eins og ég segi, ég reyndi að halda fólki utan við þetta og sérstaklega stelpunum mínum. Ég vildi vernda þær en auð­ vitað fundu þær fyrir þessu. Helen Sól þorði til dæmis eiginlega ekki að vera hjá mér eftir að hafa verið hjá mér nokkrum sinnum þegar þetta gekk á, enda skiljanlegt.“ Vildi hreinsa mannorðið Ruth segist enn eiga erfitt með að tala um þetta mál þar sem hún hafi verið lengi að jafna sig á því og vilji helst gleyma þessu. „Þetta var svo óraunverulegt að ég trúði þessu varla sjálf. Ég vil ekki tala illa um fólk og er ekki að reyna að gera það. Ég er bara að segja frá minni upp­ lifun og vil ekki leggjast jafn lágt og þessar konur gerðu. Ég vildi ég hefði leitað meira í trúna á þessum tíma, það hefði ábyggilega hjálpað mér.“ Tímaritið Séð og heyrt birti á þess­ um tíma viðtöl við nágranna Ruthar þar sem þeir úthúðuðu henni. Ruth fór í mál við tímaritið fyrir meiðyrði. „Það endaði með að gerð var dóm­ sátt. Ég hefði getað farið með þetta lengra en það hefði tekið alltof lang­ an tíma. Ég var fegin því að þetta voru metin ósannindi og þeir þurftu að borga mér skaðabætur. Ég gat ekki staðið í þessu máli lengur, ég var með lítið barn og þurfti að drífa mig út til pabba þess og vildi hefja rólegt líf. Þetta sat lengi í mér og hafði mikil áhrif á mig. Ég vildi fara fyrr út en fannst mikilvægt að hreinsa mann­ orð mitt áður en ég færi.“ Í góðum tengslum við mömmu Og út til Vista í Kaliforníu fór hún til þess að hefja nýtt líf með barnsföður sínum. Hún kann vel við lífið úti, á mikið af vinum, bæði í söfnuðinum sem hún er í og svo búa systir hennar og mamma skammt frá „Systir mín býr bara hérna í sömu götu og ég og móðir mín er hjá henni,“ segir hún. Móðir hennar, Ríkey Ingimundar­ dóttir, er vel þekkt listakona en hún flutti út fyrir nokkrum árum til þess að hjálpa systur Ruthar, Steinunni, þegar hún var í hernum. „Mamma hefur reynst systur minni rosalega vel. Hún er búin að aðstoða hana síðan hún fór í stríðið úti en hún fór tvisvar til Írak að berjast. Þegar hún var fyrst kölluð í stríð var hún með pínulitla frænku mína, Dahliu, og átti aðra fyrir sem er 14 ára í dag og heitir Nicole. Hún slasaðist illa á baki og missti heyrn á öðru eyra í stríðinu og er með þessa svokölluðu áfallastreituröskun eftir stríðið. Hún á erfitt með að vera innan um mikið af fólki og það er ýmislegt sem fylgir þessu. Það eru margir hermenn sem þjást af þessu. Þeim er náttúrulega kennt að aftengja sig tilfinningalega þegar þeir fara í stríð, en svo koma þeir til baka eftir mikla og misjafna reynslu og það tekur oft tíma að jafna sig.“ Trúin mikilvæg Eftir að Ruth flutti út hefur hún rækt­ að trú sína og samband sitt við guð mikið. Fjölskyldan tilheyrir söfnuð­ inum Outcast Ministries Church of God in Christ en söfnuðinum kynnt­ ist hún í gegnum kæra vinkonu sem missti dóttur sína og minningar­ athöfnin var haldin í kirkjunni. „Sóknarpresturinn, Pastor Hye, hreinlega gagntók mig með orðum sínum og ég fann hvernig hann talaði eins og beint til mín. Ég vissi á þeirri stundu að þarna vildi ég vera.“ Í söfnuðinum hefur fjölskyldan kynnst miklu af góðu fólki sem hefur að hennar sögn reynst þeim vel. „Við förum í kirkju á hverjum sunnudegi. Ég syng líka með kórnum þannig að ég fer oftar í viku,“ segir Ruth en hún var eina hvíta konan í söfnuðinum þar til nýlega er önnur bættist í hóp­ inn. „Það er reyndar mjög fyndið. Það komu ný hjón í söfnuðinn, ung­ ur prestur sem er dökkur á hörund en hún er hvít og þau bera sama eftir­ nafn og við, Moore. Þannig að í kirkj­ unni erum við kölluð The Moore's 1 og 2,“ segir hún og skellir upp úr. Ruth segist fá mikið út úr því að syngja með kórnum. „Þetta er allt öðruvísi en ég hef áður upplifað. Maður syngur fyrst og fremst Guði til dýrðar og á allt annan hátt en áður. Maður er ekki að spá í hvað öðrum finnst heldur bara í það að syngja frá hjartanu. Þetta er alveg mögnuð upplifun sem og hvað lífið og viðhorf manns breytist þegar Guð er annars vegar tekinn við, ég kaus að opna hjarta mitt fyrir skapara mínum og tel mig á réttri braut i lífi mínu.“ n 30 Viðtal 2.–4. mars 2012 Helgarblað Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi · Sími 535 4300 · axis.is Opnunartími: mán. - fös. 9:00 - 18:00 Nú er rétti tímiNN til að kaupa sér fataskáp! • Margar gerðir • Glæsilegir fataskápar á afslætti • Ýmsir uppröðunarmöguleikar • Útlitsgallaðar vörur með miklum afslætti fataskápaDaGar um HelGiNa Opið um helgina laugardag: 10-16 sunnudag: 11-14Margir möguleikar Saknar dætranna Ruth segir það geta verið erfitt að vera svo langt frá þremur dætrum sínum. „Mér fannst mikil- vægara að vita að það væri í lagi með hana og bað hana auðvitað um að skila sér heim, sem hún gerði svo á endanum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.