Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2012, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2012, Blaðsíða 46
46 Sport 2.–4. mars 2012 Helgarblað Robin van Persie markahæstur Hollendingurinn Robin van Per- sie er enn langmarkahæstur í ensku úrvalsdeildinni en hann hefur skorað 23 mörk til þessa í 26 leikjum, frábær árangur. Persie hefur skotið 118 sinnum á markið þannig að hann skorar að meðal- tali í fimmta hverju skoti. Næstur kemur Wayne Rooney sem hef- ur skorað 17 mörk í 22 leikjum. Skotin hans eru 103 þannig að Rooney er að skora í sjötta hverju skoti. Tveir leikmenn hafa skorað 16 mörk, Sergio Agüero hjá City og Demba Ba hjá Newcastle. City- menn eru að skora hvað mest en samtals hafa þeir Agüero, Edin Dzeko og Mario Balotelli skorað 39 mörk í deildinni. Brad Friedel varið mest Þegar kemur að því að verja bolt- ann stendur Brad Friedel, hinn aldni markvörður Tottenham, sig manna best. Hann hefur varið 88 þeirra skota sem hann hefur fengið á sig eða 75 prósent. Það er þó Wayne Hennessy, markvörður Úlfanna, sem hefur hvað mest að gera. Enginn hefur varið fleiri skot en hann, alls 135. Hann er einnig með fína prósentu eða 73 pró- senta hlutfallsmarkvörslu. Michel Vorm, markvörður Swansea, sem hefur farið á kostum á tímabilinu er með 74 prósenta markvörslu en hann hefur varið 85 skot. Yaya Toure nákvæmastur Miðjumaður Manchester City, Yaya Toure, klárar flestar send- ingar sínar á mótherja en 91 pró- sent þeirra 1.655 sendinga sem hann hefur reynt á tímabilinu hafa heppnast. Mikel Arteta hefur aftur á móti reynt 1.771 sendingu og klárað 90 prósent þeirra, ekki amalegur árangur þar. Luka Mod- ric hjá Tottenham kemur næstur með 88 prósent af sínum 1.658 sendingum heppnuðum. Þegar kemur að tæklingum er það Scott Parker, leikmaður Tottenham, sem er hvað duglegastur en hann hefur skellt sér í 90 tæklingar það sem af er tímabilinu en 90 prósent þeirra hafa heppnast. Ofurhelgi á englandi n Liverpool mætir Arsenal og Man. Utd mætir Tottenham Þ að er engin smá helgi sem bíð- ur unnenda enska boltans. Tveir stór- leikir eru á dagskrá um helgina og einn hat- rammasti nágranna slagur á Englandi og þó víðar væri leitað. Í hádeginu á laugar- daginn mætast liðin sem eru í hvað mestri sigurvímu eft- ir síðustu helgi, ný krýndir bikarmeistarar Liverpool og Arsenal sem valtaði yfir ná- granna sína í Tottenham, 5–2. Á sunnudaginn verður svo boðið upp á einn hat- rammasta nágrannaslag Englands þegar montréttur- inn í norðrinu verður í boði í leik Newcastle og Sunder- land. Frábærri helgur lýkur svo með stórleik liðanna í 2. og 3. sæti ensku úrvals- deildarinnar þar sem Totten- ham tekur á móti Manches- ter United. City og Chelsea eiga bæði nokkuð þægilega leiki fyrir höndum þannig að breytingar gætu orðið í topp- baráttunni. Barist um Meistara­ deildarsæti Leikur Liverpool og Arsenal er risastór þeg- ar kemur að baráttunni um fjórða og síðasta Meistaradeildarsætið. Liver- pool er sjö stigum á eftir Chelsea og Arsenal sem eru jöfn í 4. og 5. sæti en á leik til góða. Það breytir því þó ekki að tap gegn Arsenal, sér í lagi þar sem Chelsea mæt- ir WBA um helgina, verður mikið högg fyrir Liverpool í voninni um síðasta sætið í Meistaradeildinni. Arsenal hefur einblínt á að ná þessu fjórða sæti og gengur Arsene Wenger svo langt að kalla það ígildi titils fyrir liðið. John Henry, eigandi Liverpool, er aftur á móti hæstánægður með sigurinn í úrslitaleik deildarbikarsins um síðastliðna helgi og vill að liðið byggi á honum og komi sér aftur í hæstu hæðir. „Við lítum á þetta sem fyrsta skrefið í því sem við erum að reyna að gera, það er að koma félaginu aftur á topp- inn þar sem það hefur verið í gegnum tíðina,“ segir Henry. „Það var mikil pressa á öllu félaginu en Kenny Dalglish hefur staðið sig ótrúlega vel frá fyrsta degi.“ Ótrúlega mikilvægt er fyr- ir Arsenal að ná fjórða sætinu vilji félagið halda leikmanni á borð við Robin van Persie. Til eru fjármunir til að eyða í sumar en Arsenal skilaði miklum hagnaði þegar litið er yfir síðustu sex mánuði. Framkvæmdastjóri félags- ins, Ivan Gazidis, segir að lið- ið geti eytt í sumar en hann vill að stuðningsmenn Arse- nal styðji við bakið á Wen- ger því mikilvægt er að landa fjórða sætinu. „Leikmenn okkar, stjórinn og starfsfólk- ið stendur allt saman í að ná markmiðum okkar og stuðn- ingsmennirnir verða að hjálpa til,“ segir Gazidis. Hafa mál Harrys áhrif? Tottenham fór langleiðina með að stimpla sig út úr tit- ilbaráttunni um síðastliðna helgi með tapinu gegn Arse- nal. Liðið er nú tíu stigum á eftir Manchester City en það getur með sigri á Manches- ter United á sunnudaginn einnig sett stóra dæld í titil- vonir Sir Alex Ferguson og strákanna hans. City-menn eiga að því er virðist ansi auðveldan leik gegn Bolton á heimavelli og verða með fimm stiga forskot vinni þeir hann og United tapi. Þó skattamál Harrys Redknapp séu komin á hreint og hann hreinsaður af öllum sakargiftum er nú annað mál sem getur ekki annað en haft einhver áhrif á Redknapp. Stjórn enska knattspyrnusambands- ins fundar nú stíft um hver eigi að verða næsti lands- liðsþjálfari og það starf vilja margir að Redknapp fái. Aft- ur á móti var því lekið í vik- unni að tveir stjórnarmenn væru ekki hlynntir því að fá Redknapp sem næsta lands- liðsþjálfara Englands. Sir Alex Ferguson hef- ur farið í ófáa titilbaráttuna en vanalega verið í stöðunni sem City er í núna. Hann veit því nákvæmlega hversu mikilvægur þessi leikur gegn Tottenham er um helgina. „Hann er risastór,“ segir Ferguson í tímaritinu Inside United. „Ef við lifum hann af eigum við mikla möguleika á að vinna deildina. Þá vær- um við áfram tveimur stig- um á eftir City og ættum eftir að spila við þá. Ég vil frekar fara á Etihad-völlinn jafn City að stigum, en ef við eig- um möguleika á að komast á toppinn með sigri á City þeg- ar við mætum þeim, þá tek ég því,“ segir Sir Alex Ferguson. Hatur í norðrinu Þeir eru ekki margir nágranna slagirnir á Englandi þar sem meiri tilfinningar eru í spilunum en í leikjum New- castle og Sunderland. Ekki eru nema tuttugu kílómetrar á milli borganna og þar upp frá taka menn sinn fótbolta alvarlega. Heimavöllur Sun- derland heitir Stad ium of Light eða Leikvangur ljóssins. Frægt er atvikið fyrir nokkrum árum þegar nokkrir óprúttnir stuðningsmenn Newcastle tóku sig til og límdu orðið „shite“ eða „ skítur“ yfir orð- ið light á hverju einasta skilti sem leiðbeindi fólki að vell- inum. Leikurinn á sunnudag- inn fer þó fram á heimavelli Newcastle, St James’ Park. Liðin mættust í öðrum leik tímabilsins á Leik- vangi ljóssins en þar hafði Newcastle betur, 1–0, með fallegu aukaspyrnumarki Ryans Taylor. Það er ekk- ert sem liðin þola verr en að tapa á heimavelli fyr- ir hvort öðru og hvað þá tvisvar sama tímabilið. Newcastle hefur þó haft betur í viðureignum lið- anna undanfarin ár en ljóst er að það verður boðið upp á hörkuslag á sunnudaginn í hádeginu. Sigur Liverpool vann Arsenal á Emirates-vellinum í ágúst, 2–0. Mynd ReuteRS Leikir helgarinnar Enski bikarinn Laugardagur 3. mars 12.45 Liverpool - Arsenal 15.00 Blackburn - Aston Villa 15.00 Man. City - Bolton 15.00 QPR - Everton 15.00 Stoke - Norwich 15.00 WBA - Chelsea 15.00 Wigan - Swansea Sunnudagur 4. mars 12.00 Newcastle - Sunderland 14.05 Fulham - Úlfarnir 16.10 Tottenham - Man. United Staðan 1. Man.City 26 20 3 3 67:19 63 2. Man.Utd. 26 19 4 3 63:26 61 3. Tottenham 26 16 5 5 51:30 53 4. Arsenal 26 14 4 8 53:37 46 5. Chelsea 26 13 7 6 47:31 46 6. Newcastle 26 12 7 7 38:38 43 7. Liverpool 25 10 9 6 29:23 39 8. Norwich 26 9 8 9 38:43 35 9. Sunderland 26 9 6 11 34:30 33 10. Everton 25 9 6 10 26:27 33 11. Fulham 26 8 9 9 32:36 33 12. Stoke 26 9 6 11 26:38 33 13. W.B.A. 26 9 5 12 33:35 32 14. Swansea 26 7 9 10 28:34 30 15. Aston Villa 26 6 11 9 29:34 29 16. Wolves 26 5 7 14 30:51 22 17. Q.P.R. 26 5 6 15 27:45 21 18. Blackburn 26 5 6 15 37:59 21 19. Bolton 26 6 2 18 29:54 20 20. Wigan 26 4 8 14 23:50 20 Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is Fótbolti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.