Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2012, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2012, Síða 6
6 Fréttir 2.–4. mars 2012 Helgarblað Fékk 826 milljóna afskrift n Skiptum lokið á kúlulánafélagi Glitnisstarfsmanns R úmlega 826 milljónir króna hafa verið afskrifaðar af skuld- um eignarhaldsfélags Magn- úsar Pálma Örnólfssonar, fyrrverandi forstöðumanns gjald- eyrismiðlunar Glitnis. Þetta kemur fram í Lögbirtingablaðinu. Eignar- haldsfélagið heitir Langidalur ehf. og var stofnað til að halda utan um hlutabréf í Glitni sem Magnús Pálmi keypti í bankanum. Langidalur var tekinn til gjald- þrotaskipta í lok árs 2010. Skiptum á búinu lauk í mars 2011 en skipta- lokin voru ekki auglýst fyrr en nú. Ekkert fékkst upp í þessar rúmlega 826 milljóna króna kröfur sem var lýst í bú félags Magnúsar. Magnús er einna þekktastur fyrir aðkomu sína að málum Jakobs Valgeir Flosason- ar hjá Glitni fyrir hrun, meðal ann- ars eignarhaldsfélaginu Stími. Þá var hann framkvæmdastjóri BÍ/Bol- ungarvíkur sem meðal annars réð Guðjón Þórðarson til starfa hjá lið- inu síðla árs 2010. Í viðtali við DV í maí 2005 greindi Friðrik Sophusson, stjórnarformaður Íslandsbanka, frá því að til stæði að af- skrifa kúlulán sem starfsmenn bank- ans höfðu fengið til hlutabréfakaupa í bankanum. „Þetta er dálítið ömurleg staða fyrir þetta fólk sem á þessi félög. Það veit að félögin verða gjaldþrota því það liggja milljarða króna skuld- ir inni í þeim og eignirnar eru engar. Gjaldþrot þeirra er því óumflýjanlegt. Okkur fannst þetta bara þrifalegast svona. Þetta er bara hreinsunarstarf,“ sagði Friðrik. Búið er að ganga frá skiptum á búum margra þessara fé- laga. ingi@dv.is Starfsmannalánin afskrifuð Líkt og komið hefur fram ákvað stjórn Íslandsbanka að afskrifa hlutabréfalán sem starfsmenn Glitnis fengu fyrir hrunið 2008. Magnús Pálmi var einn þessara starfsmanna. Þ etta er auðvitað mjög þung- bært fyrir mann eins og hann sem hefur aldrei áður komist í kast við lögin og er bara venjulegur gæi og fjölskyldumaður,“ segir Ómar Örn Bjarnþórsson, lögmaður Sæv- ars Sverrissonar, eins sakborninga í Straumsvíkurmálinu svokallaða. Sævar hefur setið í gæsluvarðhaldi vegna málsins í þágu almannahags- muna í á fimmta mánuð. Fallist var á það í Héraðsdómi Reykjavíkur á þriðjudag, þegar hlé var gert á að- almeðferð málsins, að framlengja gæsluvarðhaldsúrskurðinn um fjórar vikur. Ómar er búinn að kæra þann úrskurð til Hæstaréttar og býst við niðurstöðu fyrir helgina. Framburður í samræmi við gögn lögreglu Sævar er meðal annars ákærður fyr- ir stórfellt fíkniefna-, tolla-, lyfja- og lyfjasölulagabrot með því að hafa staðið að innflutningi á tæpum 10 kílóum af amfetamíni, 8.100 e-töfl- um, rúmum 200 grömmum af kóka- íni, mörg þúsund steratöflum og steralyfjum í vökvaformi. Hann ját- ar að hafa flutt inn sterana en neit- ar að hafa vitað af fíkniefnunum. Ómar segir framburð Sævars hafa verið eins frá upphafi og ekkert í frá- sögn vitna bendi til að atburðarásin hafi verið önnur en hann lýsir. Þá sé ekkert í rannsóknargögnum lögreglu sem bendi til þess að hann hafi vitað af fíkniefnunum. Fíkniefnin og sterarnir fundust í gámi í Straumsvíkurhöfn sem kom hingað lands frá Hollandi þann 10. október síðastliðinn. Gámurinn var merktur innflutningsfyrirtækinu Nokk ehf. sem Sævar starfaði hjá. Hann lýsti því fyrir dómi á þriðju- dag að hann hefði nýtt fjölskyldu- ferð til Hollands til að sækja pakkana með efnunum og koma þeim í um- ræddan gám. Er í Kópavogsfangelsinu Dómar í fíkniefnamálum eru iðulega mun þyngri en dómar fyrir innflutn- ing á sterum. Verði Sævar aðeins fundinn sekur um að hafa staðið að innflutningi á sterunum þarf hann því ekki að búast við þungri refsingu. „Hann er örugglega nú þegar búinn að taka út þann dóm með þeim dög- um sem hann hefur setið í gæslu- varðhaldi,“ segir Ómar. Sævar situr í gæsluvarðhaldi í fangelsinu í Kópavogi og segir Ómar það heyra til undantekninga að menn séu hafðir þar í haldi. Hann telur skýringuna á því vera að Sævar hafi ekki verið dæmdur til refsingar áður og hafi engan sakaferil. Hann sætir svokallaðri lausagæslu sem þýðir að hann býr við svipaðan kost og fangar í afplánun. Óeðlilegar tafir Ómar vonast til að úrskurði hér- aðsdóms, um framlengingu gæslu- varðhalds yfir Sævari, verði hnekkt í Hæstarétti, enda séu forsendur þess brostnar vegna tafa á aðalmeðferð málsins. Hann yrði þá látinn laus og færi í afplánum síðar fengi hann dóm. Vegna kröfu um aðgang að öllum hlerunarupptökum í málinu, sem ná yfir sex mánaða tímabil, og köllun vitna frá Hollandi mun mun málið að öllum líkindum tefjast tölu- vert. „Mér finnst nú þegar orðnar óeðlilegar tafir á málinu. Það er mjög óeðlilegt að það sé búið að fresta aðalmeðferðinni í tvígang og það er ekki einu sinni búið að ákveða hana í dag. Í dag er framhald aðalmeðferð- ar ekki á dagskrá. Einhverjar vikur eða mánuðir breyta kannski ekki öllu þegar svona mál eru rekin fyrir dómstólum, en þau breyta hins vegar miklu þeg- ar menn sitja í gæsluvarðhaldi. Því menn eru þar auðvitað saklausir þangað til sektin hefur verið sönn- uð,“ segir Ómar. Sævar var því ekkert sérstaklega kátur yfir því þegar gantast var með það eftir að þinghaldi lauk á þriðju- dag að fresta þyrfti málinu til hausts- ins. Þegar hann spurði hvort hann ætti að sitja í gæsluvarðhaldi þangað til var fátt um svör. Gæsluvarðhaldið sævari þunGbært „Einhverjar vikur eða mánuðir breyta kannski ekki öllu þegar svona mál eru rekin fyrir dómstólum, en þau breyta hins vegar þegar menn sitja í gæsluvarðhaldi. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður skrifar solrun@dv.is n Er bara venjulegur gæi og fjölskyldumaður, segir lögmaðurinn Í Kópavogsfangelsinu Samkvæmt Ómari Erni Bjarnþórssyni, lögmanni Sævars, heyrir það til undantekninga að menn séu látnir sitja í gæsluvarðhaldi í Kópavogi. S N Y R T I S T O F A N Alhliða snyrting fyrir konur og karla Dekur á Valentínusardaginn Hamraborg 10 Sími 554 4414 Tryggvagötu 28 Sími 552 5005 www.snyrtistofa.is Tveimur snerist hugur: Jóhanna studdi frávísun Frávísunartillaga á þingsályktun- artillögu Bjarna Benediktssonar um að draga til baka ákæru á hendur Geir H. Haarde var sam- þykkt á Alþingi á fimmtudags- morgun. 33 studdu frávísunar- tillöguna en 27 höfnuðu henni. Tveir voru fjarverandi, Björgvin G. Sigurðsson og Kristján L. Möller, og einn greiddi ekki atkvæði, Árni Páll Árnason. Í þessu felst að þingmenn munu ekki greiða atkvæði um hvort ákæran verði afturkölluð. Aðalmeðferð í málinu hefst á mánudaginn. Athygli vakti að Jóhanna Sig- urðardóttir forsætisráðherra studdi frávísunartillöguna en hún hefur talað gegn því að Geir verði dreginn fyrir landsdóm. Þá má nefna að Sigmundur Ernir Rúnarsson greiddi atkvæði með frávísunartillögunni, þrátt fyrir að hafa lýst yfir stuðningi við tillögu Bjarna í desember og að hann hefði á sínum tíma greitt at- kvæði gegn því að ákæra ætti Geir. Eins og DV greindi frá í lok janúar eru fjölmargir þjóðþekktir menn á vitnalistum í málinu. Á lista ákæruvaldsins eru til dæmis Baldur Guðlaugsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri, Davíð Odds- son, fyrrverandi seðlabankastjóri, Björgvin G. Sigurðsson og Árni M. Mathiesen og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi ráðherrar, bankastjórar allra stærstu bank- anna, Steingrímur J. Sigfússon, Össur Skarphéðinsson og Jóhanna Sigurðardóttir ráðherrar og Styrm- ir Gunnarsson, fyrrverandi rit- stjóri Morgunblaðsins. Á vitnalista verjanda eru þing- mennirnir Atli Gísla- son, Birgitta Jónsdótt- ir og Eygló Harðardóttir, svo fáeinir séu nefndir. Allir þessir, og miklu fleiri, munu bera eiðsvar- inn vitnisburð um atburðina í aðdraganda íslenska efna- hagshruns- ins haustið 2008.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.