Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2012, Page 8
L
andsbankinn hefur loks-
ins yfirtekið jarðafélagið Lífs-
val vegna skuldastöðu þess. Í
byrjun febrúar á þessu ári tók
starfsmaður Landsbankans,
Jón Hólmar Steingrímsson, við pró-
kúru Lífsvals fyrir hönd bankans sam-
kvæmt tilkynningu sem móttekin var
hjá ríkisskattstjóra 8. febrúar. Jón er
stjórnarformaður félagsins.
Kristján Kristjánsson, upplýs-
ingafulltrúi Landsbankans, segir að
bankinn fari nú með meirihlutavald
í Lífsvali og staða félagsins verði til
skoðunar áfram. Hann segir hins veg-
ar ljóst að Landsbankinn stefni ekki að
því að eiga félagið til langframa. „Það
er ekki stefna Landsbankans að eiga
jarðir um landið þvert og endilangt,
en það er alltof snemmt að segja ná-
kvæmlega um framhaldið.“
Lífsval, sem var stofnað árið 2002,
er stærsti einstaki jarðaeigandi lands-
ins með um 45 jarðir. Þá hefur félagið
einnig rekið kúabú í Flatey í Austur-
Skaftafellssýslu, tvö sauðfjárbú auk
þess sem félagið á um eitt prósent af
mjólkurkvóta landsins. Aðstandendur
félagsins fyrir hrun voru Jón Björns-
son, Jón Þorsteinn Jónsson, kennd-
ur við fjárfestingafélagið Saxhól, Ing-
var Jónadab Karlsson, Guðmundur
Birgis son á Núpum, Ólafur Werners-
son, eldri bróðir Karls, Ágúst Sindri
Karlsson, kenndur við Exeter Holding,
og Gunnar Þorláksson, annar af eig-
endum verktakafyrirtækisins BYGG.
Milljarður í höfuðstóls-
leiðréttingu
Í ársreikningi Lífsvals fyrir árið
2010 kemur fram að endurútreikn-
ingur á láni félagsins með erlendu
gengisviðmiði hafi leitt til þess að
sú skuld félagsins við Landsbank-
ann hafi lækkað um rúman milljarð
króna. Eftirstöðvar þessa láns félags-
ins nema tæplega 1.300 milljónum
króna. Milljarðurinn er bókfærður
sem tekjur í ársreikningi félagsins.
Heildarskuldir félagsins nema
rúmlega 2,6 milljörðum króna í árs-
lok 2010. Á móti þessum skuldum
voru eignir upp á nærri 5,2 millj-
arða króna. Eigið fé félagsins nam því
rúmlega 2,6 milljörðum króna. Þess
ber þó að geta að verðmatið á eign-
um Lífsvals, aðallega bújörðum víða
um landið, endurspeglar líklega ekki
raunvirði þeirra. Staða félagsins er því
ekki eins góð og hún virðist.
Gjaldfallnar afborganir af láni og
yfirdráttarláni félagsins við Lands-
bankann námu 691 milljón króna.
Þá kemur fram að fjórar af jörðum
félagsins hafi verið í uppboðsmeð-
ferð vegna skulda Lífsvals við Lands-
bankann. Á síðasta ári bættust við
einar sex jarðir í eigu Lífsvals sem
settar hafa verið á uppboð vegna
skulda félagsins við Landsbankann. Í
ársreikningnum kemur fram að Lífs-
val hafi átt í viðræðum við Lands-
bankann um endurfjármögnun á
skuldum félagsins. Líkt og áður segir
er Landsbankinn stærsti hluthafi og
prókúruhafi Lífsvals þannig að fram-
tíð félagsins er í höndum bankans.
Miðað við ársreikning félagsins hefur
Landsbankinn þó ekki farið þá leið að
leysa allt hlutafé félagsins formlega til
sín.
Rúmlega 110 milljóna tap
Í ársreikningnum kemur fram að Lífs-
val hafi tapað rúmlega 110 milljónum
króna árið 2010. Rekstrartekjur námu
nærri 218 milljónum en rekstrar-
gjöld námu rúmlega 329 milljónum
króna. Lífsval skilaði þó hagnaði upp
á meira en 640 milljónir króna í ljósi
höfuðstólsleiðréttingarinnar sem var
færð til bókar sem hagnaður, líkt og
áður segir.
Staðan á rekstri Lífsvals virðist því
vera sú að Landsbankinn heldur líf-
inu í félaginu með því að greiða niður
taprekstur þess. Rekstrartap félagsins
nam sambærilegri upphæð, rúmum
100 milljónum króna, árið 2009.
Í svari frá Landsbankanum um
hvað bankinn hyggist fyrir með Lífs-
val kemur fram að bankinn hyggist
ekki eiga félagið til langframa en að
ekki hafi verið tekin ákvörðun um
hvernig sölu þess verði háttað.
8 Fréttir 2.–4. mars 2012 Helgarblað
Ráðið án auglýsingar á RÚV
n Íþróttafréttamaður ráðinn í stað Hjartar Júlíusar
R
áðið var í starf íþróttafrétta-
manns á RÚV á dögunum án
þess að starfið væri auglýst. Páll
Magnússon útvarpsstjóri svar-
aði fyrirspurn DV um málið á þann
veg að oftast væru lausar stöður hjá
stofnuninni auglýstar. Þeim sé það
hins vegar ekki skylt.
Hjörtur Júlíus Hjartarson íþrótta-
fréttamaður hætti störfum á RÚV um
áramótin eftir að upp úr sauð á milli
hans og Eddu Sifjar Pálsdóttur, dóttur
útvarpsstjóra, sem starfar á RÚV. Edda
Sif lagði fram kæru á hendur Hirti
vegna meintrar líkamsárásar en kær-
an var svo dregin til baka. Atvikið sem
leiddi til kærunnar átti sér stað kvöld-
ið sem RÚV var með beina útsendingu
frá kjöri á íþróttamanni ársins.
Hans Steinar Bjarnason, áður
íþróttamaður á Stöð 2, var á dögunum
ráðinn í stað Hjartar Júlíusar. Staðan
var ekki auglýst. „Oftast eru störf hjá
RÚV auglýst laus til umsóknar – þó
ekki alltaf og það er ekki lagaskylda,“
segir Páll í svari við fyrirspurn DV. Að-
spurður hvers vegna það hafi ekki ver-
ið gert í þetta sinn svaraði hann því
til að þetta réðist af því sem best væri
talið þjóna hagsmunum RÚV hverju
sinni. „Og núna þótti hagsmuna RÚV
best gætt með því að gera þetta með
þeim hætti sem fyrir liggur.“
Nokkuð fjaðrafok varð sumarið
2010 þegar Sigrún Stefánsdóttir var
ráðin til að gegna stöðu dagskrár-
stjóra sjónvarps og útvarps í stað Ernu
Kettler sem hafði verið ráðin í starfið
en gat ekki tekið það vegna veikinda.
Þá sagði Ari Skúlason, stjórnarmaður
í RÚV, að ekki væri eðlilegt að ráðið
væri í stöður án auglýsingar.
n Lífsval í stórfelldum vanskilum n Landsbankinn greiðir niður tapið„Staðan á rekstri
Lífsvals virðist því
vera sú að Landsbank-
inn heldur lífinu í félaginu
með því að greiða niður
taprekstur þess.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Mál Lífsvals til saksóknara
n Jón Björnsson, framkvæmdastjóri
Lífsvals, seldi sparisjóðnum Byr hlutabréf
í jarðafélaginu Lífsvali að upphæð 65
milljónir króna í nóvember 2007. Jón var
hluthafi í Lífsvali en meðeigandi hans að
félaginu og annar stjórnarformaður í því
var stjórnarformaður Byrs, Jón Þorsteinn
Jónsson. Núverandi stjórn Byrs sendi
þetta mál til Fjármálaeftirlitsins og sér-
staks saksóknara í mars árið 2010 vegna
gruns um að Byr hefði verið misnotaður í
viðskiptunum.
n Ákveðið var að kaupa bréfin í Lífsvali
á fundi í stjórn Byrs þann 23. nóvember
árið 2007.
n Heimildir DV herma að stjórn Byrs hafi
metið það sem svo að greitt hefði verið
yfirverð fyrir bréf Jóns en samkvæmt
sölunni til Jóns átti Lífsval að vera um
7 milljarða króna virði þegar salan átti
sér stað því Jón seldi um eins prósents
eignarhluta. Ætla má að verðmæti Lífs-
vals hafi þó ekki verið meira en 3,5 til 5
milljarðar króna. Einnig þóttu tengsl Jóns
Björnssonar og Jóns Þorsteins Jónssonar
ekki vera heppileg vegna tengsla þeirra í
gegnum Lífsval.
n Lífsvalsmálið er eitt af nokkrum málum
úr sparisjóðnum Byr sem hafa verið send
til eftirlitsaðila eftir hrunið. Þekktasta
málið er líklega það sem tengist eignar-
haldsfélaginu Exeter Holding en tveir af
sakborningunum í því máli voru sýknaðir í
fyrra. Sérstakur saksóknari hefur áfrýjað
málinu til Hæstaréttar.
Landsbanki stærsti
jarðaeigandi ÍsLands
Stórtækt í jarðakaupum Fyrirtækið Lífsval var stórtækt í jarðakaupum á Íslandi á árunum fyrir hrunið. Félagið hefur nú verið yfirtekið af Lands-
bankanum. Jón Björnsson var framkvæmdastjóri þess en meðal hluthafa voru Guðmundur Birgisson, Gunnar Þorláksson og Jón Þorsteinn Jónsson.
Með reynslu Hans Steinar var áður
íþróttafréttamaður á Stöð 2.
Jón Baldvin Hannibalsson:
Vill ekki birta
afsökunarbréfið
Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrver-
andi ráðherra og sendiherra, vill
ekki birta opinberlega afsökunar-
bréf sem hann skrifaði Guðrúnu
Harðardóttur, systurdóttur Bryn-
dísar Schram, eiginkonu sinnar.
„Að sjálfsögðu ekki,“ svaraði hann
aðspurður um það hvort hann
væri til í að birta bréfið.
Jón Baldvin sendi Guðrúnu
nokkur bréf á árunum 1998 til 2001
þegar hún var á aldrinum 14 til 17
ára. Sum bréfanna voru kynferðis-
leg og í einu þeirra lýsti hann með-
al annars kynlífi sínu og Bryndísar.
Guðrún steig fram í viðtali í
tímaritinu Nýju Lífi í síðustu viku
og greindi frá bréfaskriftum Jóns
Baldvins. Nokkur bréfanna voru
jafnframt birt í tímaritinu.
Guðrún kærði málið til lög-
reglu árið 2005 og þegar Jón Baldvin
var kallaður til yfirheyrslu vegna
málsins neitaði hann að hafa haft
nokkuð kynferðislegt í huga gagn-
vart henni. Hann sagðist hafa beðist
afsökunar um leið og honum bárust
kvartanir vegna bréfanna. Lagði
hann meðal annars fram afsökunar-
bréf því til stuðnings. Málið var látið
niður falla hjá lögreglu.
Í samtali við DV sagði Jón Bald-
vin bréfið vera einkabréf á milli
hans og Guðrúnar.
Fjöldi óhappa
í umferðinni
Tuttugu umferðaróhöpp voru til-
kynnt til lögreglunnar á höfuðborg-
arsvæðinu á aðeins þremur klukku-
stundum síðdegis á miðvikudag,
eða frá klukkan 16 til 19. Óhöppin
voru sem betur fer flest minni-
háttar og er lögreglu ekki kunnugt
um alvarleg slys á fólki. Þetta voru
aðallega árekstrar en eitthvað var
um útafakstur. Akstursaðstæður
versnuðu mikið síðdegis á miðviku-
dag en þá gekk á með snjóéljum
og spilltist færð fljót. Dráttarbíll var
kallaður til í einhverjum tilfellum til
að fjarlægja ökutæki af vettvangi og
því ljóst að eignatjón var talsvert.
Lögðu hald á
MDMA-duft
Lögreglan á Akureyri lagði hald á
um 300 grömm af ætluðu MDMA-
dufti við húsleit á miðvikudag.
MDMA, sem er virka efnið í e-töfl-
um, er nú farið að finnast í aukn-
um mæli í duftformi og er iðulega
sterkara en í töfluformi að því er
fram kemur í tilkynningu frá lög-
reglu.
Einnig var framkvæmd húsleit
í íbúð á Akureyri þar sem hald var
lagt á lítilræði af fíkniefnum, lyfjum
og tæki og tól til fíkniefnaneyslu.
Þann 26. febrúar síðastliðinn lagði
lögreglan einnig hald á um 100
grömm af kannabisefnum og hand-
tók í tengslum við það pilt um tví-
tugt sem játaði að eiga efnin og að
hafa ætlað þau til sölu. Lögreglu-
menn í eftirliti veittu piltinum at-
hygli og er hann varð þeirra var tók
hann á rás en náðist eftir nokkra
eftirför. Á flóttaleið hans fundust
síðan fíkniefnin falin í sandkassa.
Götuandvirði þessara haldlögðu
efna nemur allt að nokkrum millj-
ónum króna. Málin eru í rannsókn.