Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2012, Qupperneq 10
10 Fréttir 2.–4. mars 2012 Helgarblað
„Enn sannfærður um sýknu Geirs“
n Sigmundur Ernir segir stjórnskipunarnefnd hafa fært sér rök með frávísun.
Þ
etta var sitthvor frávísunin,“
segir Sigmundur Ernir Rún
arson, þingmaður Samfylk
ingarinnar, aðspurður hvers
vegna hann hafi nú stutt frávís
un á afturköllun ákæru gegn Geir
H. Haarde, þvert á atkvæði hans í
fyrri umræðu málsins. „Ég var ekki
hlynntur að vísa málinu frá þing
legri meðferð,“ segir Sigmundur.
Það er mat hans að við meðferð
nefndarinnar hafi klárlega komið í
ljós að réttarfarsleg óvissa sé mikil í
málinu og því sé þinginu ekki stætt
að grípa inn í málið. „Þar fyrir utan
kom ítrekað fram í meðferð nefnd
arinnar um málið að ekki þykir
málefnaleg ástæða til að Alþingi
gripi inn í málið. Í þessu ljósi tel ég
eðlilegt að ákæra standi.“
Sigmundur segist enn hafa
sömu afstöðu gagnvart ákærunni á
hendur Geir Haarde. „Upphaflega
taldi ég meiri líkur á sýknu en sekt
í tilfelli fjórmenninganna. Ég er
enn sannfærður um sýknu Geirs,
en með inngripi þingsins fengist sú
niðurstaða aldrei. Hann hefði því
aldrei verið hreinsaður af sakar
giftum.“
Hann neitar því að þrýstingur úr
eigin kjördæmi hafi haft áhrif á af
stöðu hans. „Ég útskýrði mitt mál
í kjördæminu og lýsti þar hvers
vegna ég vildi málið í þinglega
meðferð. Ég tel enn rétt að málið
hafi verið tekið til umræðu á þingi.
Þingnefndir eiga að skoða hvaða
mál sem er. Stjórnskipunar og eft
irlitsnefnd færði mér rök í málinu
og ég kaus eftir því.“
Honum er létt að málinu sé lok
ið, enda segir hann ömurlegt fyrir
þá sem trúi á þrískiptingu valds
ins að vera setta í stöðu ákæranda.
„Það á ekki að vera í verkahring
þingmanna að ákæra menn.“
atli@dv.is
Vond staða „Það á ekki að vera
í verkahring þingmanna að ákæra
menn,“ segir Sigmundur Ernir.
Gunnar rekinn frá FME:
Ráðuneytið
styður
stjórnina
„Að mati ráðuneytisins hefur
stjórn FME gert það sem henni
bar við þær aðstæður sem komið
höfðu upp og nýtur stjórnin fulls
trausts ráðuneytisins.“ Þetta segir
í tilkynningu efnahags og við
skiptaráðuneytisins um mál
Gunnars Andersen, sem rek
inn var úr starfi forstjóra FME á
fimmtudagsmorgun. Aðalsteinn
Leifsson, stjórnarformaður FME,
afhenti Gunnari uppsagnarbréfið.
Hann sagði að Gunnar væri van
hæfur til að gegna starfinu.
Gunnar kom að stofnun afla
ndsfélaga þegar hann gegndi
stöðu framkvæmdastjóra alþjóða
sviðs í Landsbankanum fyrir 11
árum, þegar bankinn var í eigu ís
lenska ríkisins. Stjórn FME telur
að Gunnar hafi á þessum tíma tek
ið þátt í að veita eftirlitinu villandi
eða rangar upplýsingar um tilvist
félaganna.
Í hádegisfréttum RÚV á
fimmtudag kom fram að það væri
mat stjórnarinnar að viðbrögð
Gunnars vegna rannsóknar á hæfi
hans hafi enn aukið á vanhæfi
hans til að gegna starfinu. Gunnar
skorti starfsgengisskilyrði til að
takast á við mörg af þeim verkefn
um sem FME hafi á sínu borði. Til
að mynda þau að meta hvort ein
staklingar séu hæfir til þess fara
með stjórnendastöður í fjármála
fyrirtækjum, sitja í stjórn þeirra
eða fara með virkan eignarhlut.
Þá hafi það komið fram í við
tölum við Gunnar að hann telji að
þær upplýsingar sem hann veitti
stjórn FME við ráðningu hans, hafi
verið réttar og að það hefði verið
rangt af honum að gefa FME upp
lýsingar um aflandsfélögin. Sú af
staða sé í hrópandi andstöðu við
stefnu FME um að fylgja eftir heið
arlegum og eðlilegum viðskipta
háttum á fjármálamarkaði.
Stjórnin geti ekki unað við að
Gunnar lýsi yfir afstöðu sem sé al
gjörlega á skjön við afstöðu FME.
Gunnar segist saklaus:
„Í dag sigraði
Gamla Ísland“
„Gögn frá Landsbankanum um
umræddan stjórnamálamann
hefur umbjóðandi minn aldrei séð
þrátt fyrir fullyrðingar fjölmiðla
nú í dag um hið gagnstæða.“ Þetta
segir Gunnar Andersen, fráfar
andi forstjóri FME um brottrekst
ur sinn. Hann hefur verið kærður
til lögreglu fyrir að afla gagna sem
varða Guðlaug Þór Þórðarson
þingmann með ólögmætum hætti.
Gunnar segist saklaust af öllum
sakargiftum og sakar stjórn FME
um útúrsnúninga. Hann segist
í yfirlýsingu hafa trúað því í eitt
augnablik að „réttlætið myndi
sigra og Nýja Ísland rísa,“ eins og
hann orðar það.
Hann segir að samskiptum sín
um við FME sé lokið en að hann
muni opinbera heildstæða sýn
sína á málið. Málinu muni ljúka
fyrir dómstólum. „Í dag sigraði
Gamla Ísland Nýja Ísland,“ segir
hann í yfirlýsingu sinni.
Hörð átök hafa verið í stjórn hins ný
stofnaða stjórnmálaflokks Samstöðu
að undanförnu. Hefur deilan meðal
annars haft þær afleiðingar að Sig
urður Þ. Ragnarsson, betur þekktur
sem Siggi stormur, hótaði að segja sig
úr stjórninni, samkvæmt heimildum
DV. Sigurður er varaformaður flokks
ins. Hann vildi ekki tjá sig um málið
að svo stöddu.
Deilan snýst meðal annars um að
innan stjórnar eru aðilar sem telja að
hallað sé á sig í umfjöllun fjölmiðla
þegar kastljósinu er beint að Sam
stöðu. Þannig hafi Lilja Mósesdóttir,
þingmaður og formaður Samstöðu,
fengið langmestu athyglina. Sigurður
Þ. hefur einnig fengið dágóða athygli
fjölmiðla. Það hefur valdið ósætti inn
an stjórnarinnar samkvæmt heimild
um DV.
Sáttanefnd virkjuð
Auk þess að deilurnar snúist um pers
ónulegan metnað stjórnarmanna um
athygli, þá hefur valdið ósætti inn
an stjórnarinnar að stofnun flokks
ins hefur dregist á langinn. Málefna
vinna hafi ekki gengið nægilega hratt.
Grunnstefnuskrá flokksins hefur verið
mótuð en að undanförnu hefur verið
unnið í málefnavinnu sem hefur það
að markmiði að móta stefnu flokksins
enn frekar. Ekki hefur verið deilt hart í
málefnavinnunni sjálfri og virðist því
vera samstaða um meginstefnu hins
nýstofnaða stjórnmálaflokks. Ósam
staðan felst fyrst og fremst í því hverjir
eru í forsvari flokksins og hvernig fjöl
miðlar sýna stjórnarmönnum mis
mikinn áhuga.
Í kjölfarið af deilunum var sátta
nefnd virkjuð til þess að lægja öldurn
ar innan stjórnarinnar. Eftir því sem
DV kemst næst hefur tekist að lægja
öldurnar að mestu, en eins og einn
heimildarmaður orðaði það, þá er
enn „núningur“ í stjórninni.
„Við leyfum okkur að vera
ósammála“
Lilja Mósesdóttir segist í samtali
við DV kannast við að átök hafi
verið innan flokksins að undan
förnu. Hún vill þó ekki fara nán
ar ofan í saumana á því hvað hafi
gengið á. „Það eru skiptar skoðanir
á mönnum á málefnum inni í Sam
stöðu eins og í öðrum flokkum. Við
leyfum okkur að vera ósammála
og ræða það, síðan leitumst við við
að ná niðurstöðu sem við getum
flest verið sammála um. Við telj
um að það sé mjög mikilvægt að
öndverðar skoðanir komi fram á
mönnum og málefnum svo það sé
hægt að leita sátta og lausna sem
flestir geta sætt sig við. Við erum
bara á fullu að kynna Samstöðu
um allt land,“ segir Lilja í samtali
við DV.
Aðspurð hvað tekist hafi verið á
um, svarar hún: „Við vorum mjög
ósammála um hvers konar lífeyr
issjóðskerfi við vildum, það voru
heitar umræður um það og síðan
um menn og málefni sem ég vil ekki
fara neitt út í á þessari stundu. “
Aðildarfélög velji
frambjóðendur
Samstaða stefnir að því að stofna að
ildarfélög um allt land og verða fram
bjóðendur flokksins í hverju kjördæmi
valdir af þessum aðildarfélögum. Hins
vegar eru heimildir fyrir því að sumir
stofnenda hreyfingarinnar hafi sýnt
meiri persónulegan metnað en aðrir
til þess að fara í framboð og framkoma
þeirra hafi litast af því. Sem fyrr segir
hefur deilan þó ekki farið í þann far
veg að menn gengju út úr stjórninni.
Samstaða hefur fengið góðar mót
tökur eftir að flokkurinn var stofn
aður og mældist með nærri 20 pró
senta fylgi í einni skoðanakönnun. Eitt
helsta baráttumál flokksins er róttæk
skuldaniðurfelling, sem myndi kosta á
þriðja hundrað milljarða króna.
Ósamstaða
Í Samstöðu
n Siggi stormur hótaði að ganga úr stjórn n Tekist á um menn og málefni
„Það voru heitar
umræður um það
og síðan um menn og
málefni sem ég vil ekki
fara neitt út í á þessari
stundu.
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
Lilja Mósesdóttir „Það eru skiptar
skoðanir á mönnum á málefnum inni
í Samstöðu eins og í öðrum flokkum.
Við leyfum okkur að vera ósammála
og ræða það, síðan leitumst við við
að ná niðurstöðu sem við getum flest
verið sammála um.“