Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2012, Síða 14
14 Fréttir 2.–4. mars 2012 Helgarblað
Lagersala Lín Design Laugavegi 178 www.lindesign.is
LAGERSALA
allt að 80% afsláttur
Opið laugardag
& sunnudag 11-16
Rúmfatnaður, handklæði, dúkar,
rúmteppi & barnarvörur
Erum
á Lau
gaveg
i 178
næ
sta hú
si við
vers
lun Lí
n Des
ign
Þ
akka þér fyrir athyglisverða
spurningu en ég hef aldrei
þekkt Jón Baldvin persónu
lega og get því ekki hjálpað þér
í þessu máli,“ svarar Urmas
Reinsalu þingmaður fyrirspurn eist
neska blaðsins Espress, sem leitaði
upplýsinga um afskipti forsetaskrif
stofu Eistlandsforseta af ferðalagi Jóns
Baldvins til landsins í apríl 2001, fyrir
hönd DV.
Reinsalu var skrifstofustjóri forseta
Eistlands á þeim tíma sem Jón Baldvin
Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra
og sendiherra, ritaði bréf til Guðrún
ar Harðardóttur, ungrar systurdóttur
Bryndísar Schram eiginkonu sinnar,
og lýsti samskiptum sínum við vænd
iskonur í Tallinn, höfuðborg Eistlands.
Reinsalu er nú þingmaður fyrir íhalds
sama miðjuflokkinn, Res Publica, sem
er einn ríkisstjórnarflokka landsins.
Jón Baldvin sagðist í samtali við DV
ekki hafa verið í opinberum erinda
gjörðum. Hann hafi verið í heimsókn
hjá Lennart Meri, forseta Eistlands.
„Ég var ekki í Talinn í opinberum er
indum, ég var gestur hjá vini mínum
sem var forseti Eistlands,“ sagði Jón
Baldvin aðspurður um heimsókn sína
til Tallinn.
„Það segi ég ekki“
Nokkur vinskapur var á milli hans og
Meri sem var forseti Eistlands þar til
snemma í október árið 2001. Blaða
maður spurði hvort Meri hafi verið
með honum þegar atvikið sem lýst er
í bréfinu átti sér stað. „Ekki á þessum
bar, nei, en það var fólk frá honum,“
svaraði Jón Baldvin en neitaði að gefa
nánari upplýsingar um meðfylgdarlið
sitt. „Það segi ég ekki,“ sagði hann að
spurður hverjir frá forseta Eistlands
hafi verið með honum á bar þar sem
þjónusta vændiskvennanna var seld.
Heimsókn Jóns Baldvins til Meri
er lýst á vefsíðu forseta Eistlands. Þar
segir að Jón Baldvin hafi heimsótt
Meri á einkaheimili hans í Viimi, út
hverfi Tallinn. Þá segir ennfremur að
Meri hafi hrósað Íslendingum og Jóni
Baldvini fyrir það hugrekki að hafa við
urkennt sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna.
Þá segir að heimsókn Jóns Baldvins
hafi verið í anda fyrstu heimsóknar
hans sem utanríkisráðherra árið 1991,
þegar bæði Jón Baldvin og Meri voru
utanríkisráðherrar landa sinna.
Jón og Bryndís áttu þátt í forseta-
framboði Meri
„Ég var í aðdáendaklúbbi Lennarts
Meri,“ sagði Jón Baldvin í samtali við
Morgunblaðið, stuttu eftir andlát hans
árið 2006. „Lennart Meri var óvenju
legur stjórnmálamaður og kannski var
hann aldrei stjórnmálamaður,“ hélt
Jón Baldvin áfram. Lýsti hann Meri
sem hinum miðevrópska mennta
manni holdi klæddum, þekking hans
hafi verið óvenju mikil, með rætur í
að minnsta kosti fjórum málsvæðum;
eistneskri þjóðtungu Meri, rússnesku,
þýsku og frönsku. „Undir venjulegum
kringumstæðum hefði þessi maður
líklega aldrei orðið stjórnmálamaður,“
sagði Jón Baldvin við blaðið.
Meri var gerður að sendiherra Eist
lands í Finnlandi 1992. „Þá heimsótt
um við Bryndís Lennart Meri og konu
hans í einhverju voða fínu húsi sem
átti að heita sendiráð Eistlands,“ sagði
Jón Baldvin við blaðið. Þá lýsti hann
kvöldverði þeirra hjóna með Meri og
Helle, konu hans, í rafmagnslausri
sendiráðsbyggingu. „Maður númer
tvö í danska sendiráðinu bjó í næsta
húsi og ég var sendur þangað til að
banka upp á og biðja auðmjúklega um
það hvort við gætum ekki fengið lánað
kerti. Við fengum tólf kerti og Bryndís
eldaði máltíð yfir þessum kertum, eitt
hvert fondue, og við sátum lengi fram
eftir. Meri vitnaði oft í þetta samtal,
sagðist hafa gert upp við sig á þessu
kvöldi að hann ætti að fara í forseta
framboð.“
„Aldrei þekkt
Jón BAldvin“
n Var skrifstofustjóri forseta þegar Jón Baldvin heimsótti vændiskonur
Atli Þór Fanndal
blaðamaður skrifar atli@dv.is
Aldrei þekkt Jón Urma Reinsalu var
skrifstofustjóri forseta Eistlands á þeim
tíma sem Jón Baldvin átti samskipti við
vændiskonur á meðan hann var í heimsókn
hjá Meri, forseta Eislands.
Lennart Meri Ljósmynd af forseta Eist-
lands í opinberri heimsók í Bandaríkjunum
árið 1998.
Jón Baldvin
heiðursgestur
Umfjöllun Morgunblaðsins af ferð Jóns
Baldvins til Tallinn, frá 19 apríl 2001:
„Ógleymanlegir endurfundir með
Lennart Meri,“ er
yfirskrift umfjöll-
unar Morgun-
blaðsins af ferð
Jóns Baldvins
vegna tíu ára
afmælis opnunar
upplýsingaskrif-
stofu norræna
ráðherraráðsins
í Eistlandi. Í
blaðinu segir að Jón Baldvin hafi verið
heiðursgestur á hátíðinni. „Efnt var til
sérstakrar hátíðarsamkomu þar sem
nokkrir vel valdir ræðumenn töluðu,
Jón Baldvin þar á meðal, en yfirskrift
dagskrárinnar var „Eistland – hluti af
Norðurlöndum?“. Auk Jóns töluðu þar
Lauristin, varaforseti finnska þingsins,
Toomas Hendrik Ilves, utanríkisráðherra
Eistlands, og fræðimenn við Tartu-há-
skóla þar sem samkoman fór fram.
Flestir boðsgesta munu þó hafa verið úr
menningargeiranum, frá Norðurlönd-
unum og Eistlandi.“ Sagði Jón Baldvin
endurfundi þeirra hafa verið ógleyman-
lega. „Það var alveg stórkostleg stund að
hitta hann. Segi ég ekkert frá því frekar
fyrr en í ævisögu,“ hefur blaðið eftir Jóni
Baldvini.
Reyndar fór það svo að bókin Tilhugalíf,
endurminningar Jóns Baldvins eftir Kol-
brúnu Bergþórsdóttur, kom út árið eftir
en þar er lítið fjallað um ferðina frægu.
Stýrimaður biðst afsökunar:
Vigtin var
biluð
„Með þessari færslu langar mig að
biðja alla vini mína á Facebook, alla
framleiðendur þeirra vara sem ég
benti á í gær, sem og alla þjóðina
afsökunar á færslunni í gær.“ Þetta
sagði stýrimaðurinn Friðrik Hös
kuldsson á Facebooksíðu sinni á
fimmtudag. Friðrik olli talsverðum
usla þegar hann greindi frá því á
miðvikudag að fjölmargar matvörur
sem hann keypti hefðu reynst léttari
og þar með innihaldsrýrari en upp
lýsingar á umbúðum þeirra gáfu til
kynna. Í uppfærslu á Facebook á
fimmtudag greindi Friðrik hins veg
ar frá því að vigtin sem hann notaði
hafi reynst vitlaus.
„Það varð allt vitlaust í þjóðfélag
inu út af færslunni og runnu nú á
mig verulega margar grímur vegna
þessa. Ég svaf illa, og hef ekki getað
hugsað um annað síðan. Fór mig
að gruna að ég væri úti í mýri með
þetta,“ sagði Friðrik meðal annars
og bætti við: „Málið er, að ég náði
mér í aðra vigt til að sannreyna að
ég hefði rétt/rangt fyrir mér. Sú vigt
segir mér aðra sögu og tel ég þyngd
irnar innan skekkjumarka. Áður
en lengra verður haldið, ætla ég að
trúa þeirri vigt og láta staðar numið.
Þetta er semsagt „egg í andlitið“ á
mér, en þó vil ég biðja fólk um að
halda vöku sinni yfir málefninu,“
sagði Friðrik sem hefur ákveðið að
draga sig í hlé.
„Og bið alla viðkomandi inni
legrar afsökunar. Þetta var sem
betur fer ekki svona slæmt, en al
farið mín sök að þetta lagði allt á
hliðina. Sorrí. Ég ætla samt að vera
á vaktinni áfram, það er víst. En geri
„vísindalegri“ kannanir næst, áður
en ég set inn færslu á Facebook,“
sagði Friðrik sem biðlaði til allra um
að dreifa þessari afsökunarbeiðni
sem víðast.
„Ég er leiður yfir þessu írafári
sem ég olli.“
Skemmdir
eftir skjálfta
Jarðskjálfti, sem var 4,2 að
stærð og átti upptök sín suð
austan við Helgafell, olli
skemmdum á húsum í Valla
hverfi í Hafnarfirði. Á fimmtu
dag var tilkynnt um sprung
ur í veggjum nokkurra húsa.
Skjálftinn varð skömmu eftir
miðnætti aðfaranótt fimmtu
dags og fannst hann vel í höf
uðborginni. Svæðið sem um
ræðir er þekkt skjálftasvæði.