Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2012, Blaðsíða 36
Kynlíf, blóð og blótsyrði
Hvað er að
gerast?
Laugardagur
Föstudagur
Sunnudagur
3
mar
2
mar
4
mar
Svartur á leik
Kvikmynd
Óskars Þórs
Axelssonar,
Svartur á leik,
var frumsýnd á
fimmtudag við
góðar undir-
tektir gesta.
Myndin er ekki
sögð fyrir viðkvæma!
Tectonics
Tectonics-tónlistarhátíðin er
haldin dagana 1.–3. mars í Hörpu
undir listrænni stjórn Ilans Volkov
en þá leiða saman hesta sína Sin-
fóníuhljómsveit Íslands og ungir
íslenskir tónlistarmenn úr raf- og
spunageiranum. Auk þess stíga á
svið þekktir erlendir tónlistarmann
úr heimi samtímatónlistar, þeirra
á meðal breski píanóleikarinn
John Tilbury, einn virtasti túlkandi
heims á sviði nýrrar og nýlegrar
píanótónlistar, sem og ástralski
tónlistarmaðurinn Oren Ambarchi.
Bítlalögin sungin til styrktar
krabbameinsveikum
Hljómsveitin Baldur leikur og
syngur Bítlalög, ásamt Karlakór
Oddfellowbræðra. Stúlknakvar-
tett syngur,
auk þess verður
stiklað á sögu
Bítlanna.
Strákarnir úr
hljómsveitinni
Pónik sem
gerðu garðinn
frægan á síðari hluta liðinnar
aldar með bestu hljómsveitum
þess tíma, rifja upp gamla takta,
segja sögur, grípa í hljóðfæri eða
taka lagið með sínu nefi. Auk þess
koma að skemmtuninni vel þekktir
og minna þekktir söngvarar og
hljóðfæraleikarar sem tengjast
innbyrðis með einum eða öðrum
hætti
Les Misérables –
frumsýning
Hið umfangsmikla verk Vesaling-
arnir verður frumsýnt á aðalsviði
Þjóðleikhússins á laugardaginn.
Leikstjóri verksins er Selma Björns-
dóttir og með aðalhlutverk fara
Þór Breiðfjörð, Egill Ólafsson, Val-
gerður Guðnadóttir, Örn Árnason,
Margrét Vilhjálmsdóttir, Jóhannes
Haukur Jóhannesson, Eyþór Ingi
Gunnlaugsson, Arnbjörg Hlíf Vals-
dóttir, Vigdís Hrefna Pálsdóttir og
Atli Þór Albertsson.
45 ára afmælistónleikar
Skólahljómsveit Kópavogs heldur
um þessar mundir upp á 45 ára
starfsafmæli sitt. Tónleikar verða
haldnir til hátíðarbrigða í Eld-
borgarsal Hörpu. Hljómsveitin sem
var stofnuð haustið 1966 miðar
afmæli sitt ávallt við fyrstu tón-
leikana sem haldnir voru við Kárs-
nesskóla 22. febrúar 1967. Þá komu
fram um 50 börn og unglingar en
nú 45 árum síðar eru alls um 150
hljóðfæraleikarar á aldrinum 9–19
ára sem stíga á svið í Eldborgarsal
Hörpu í tilefni tímamótanna.
Herranótt í
Norðurpólnum
Kolbrún
Halldórs-
dóttir leikstýrir
nemendum
Menntaskólans
í Reykjavík
sem setur upp
sýninguna
Rökkurrymur sem byggð er á
Grimmsævintýrum.
36 2.–4. mars 2012 Helgarblað
„Gott og vel sagt
ævintýri í fyrirrúmi.“
„Kröftug og
ógnvekjandi frásögn.“ Menning
m e n n i n g @ d v . i s | d v . i s / m e n n i n g
Skrímslið litla
systir mín
1Q84
Haruki Murakami
n Stelpusveitin vinnur að nýju myndbandi n Gáfu sakleysið upp á bátinn n Sá sem hættir að reyna slær ekki í gegn, segir Einar Bárðarson
M
yndbandið mun
innihalda sprengj-
ur, svínið Winston,
mann í fjötrum,
partí á ströndinni,
rosalega dansara, The Char-
lie’s Angels og okkur í gervi
slökkviliðsmanns, hermanns
og einkaþjóns auk 1964 mód-
els af eldrauðum Ford Must-
ang,“ segir Alma Guðmunds-
dóttir úr hljómsveitinni The
Charlies en sveitin mun senda
frá sér nýtt myndband á næstu
dögum við lagið Tickin’ Like
A Bomb.
Amerísk nöfn
Sveitina The Charlies er skip-
uð þeim Klöru Ósk Elíasdótt-
ur, Ölmu Guðmundsdóttur
og Steinunni Þóru Camillu
Sigurðardóttur en stelpurn-
ar hafa tekið upp nöfnin Klara
Elias, Alma Goodman og Ca-
milla Stone og búa nú úti í Los
Angeles þar sem þær vinna
hörðum höndum að því að
koma sér og tónlist sinni á
framfæri.
The Charlies hefur gert
samning við plötufyrirtækið
Hollywood Records en fyrir-
tækið hefur meðal annars
stórstjörnuna Miley Cyrus,
strákabandið Jonas Brothers
og goðsagnakennda band-
ið Queen á sínum snærum.
Fyrsta lagið eftir Ameríku-
flutningana sem kom út með
sveitinni var Fighter on the
Dancefloor en lagið er endur-
gerð af Survivors eitís-smell-
inum Eye of the Tiger. Lagið
var spilað í raunveruleika-
þættinum Dancing with the
Stars sem er einn sá heitasti
í Bandaríkjunum en það er
heilmikill heiður að vera part-
ur af þættinum sem milljónir
horfa á í hverri viku.
Breytt um stefnu
Stelpurnar gáfu saklausa
ímynd sína upp á bátinn þegar
myndband þeirra við lagið
Monster (Eat me!) kom út fyrir
stuttu. Í myndbandinu eru
meðal annars berbrjósta kon-
ur, kynlíf, blóð og blótsyrði.
Leynd liggur yfir nýja mynd-
bandinu en samkvæmt Ölmu
verður það ekki síðra. „Sögu-
þráðurinn mun koma á óvart,“
segir Alma í viðtali við DV og
bætir við að myndbandið hafi
verið tekið upp á RED-upp-
tökuvél, þá sömu og Ridley
Scott notaði til að taka upp
myndina Prometheus sem var
að mestu leyti tekin upp á Ís-
landi síðasta sumar.
„Við vorum að vinna með
frábæru fólki, her af hár- og
förðunarfólki, stílistum og
dönsurum sem vann linnu-
laust að undirbúningsvinnu
marga daga og vikur og síðan
stóðu tökur yfir í tvo daga. Við
vorum í frægu stúdíói á vegum
The Notion studios og keyrð-
um svo The Pacific Highway
alla leið til Malibu þar sem við
tókum upp senur á ströndinni
fram eftir kvöldi,“ segir Alma.
Emilía og Einar kveðja
The Charlies hét upphaflega
Nylon. Sveitin var stofnuð
árið 2004 og var hugarfóstur
Einars Bárðarsonar athafna-
manns en Einar starfaði lengi
sem umboðsmaður sveitar-
innar. Fyrirtæki Einars, Con-
cert, stóð fyrir áheyrnarpruf-
um fyrir stúlkur þar sem þær
Alma, Klara Ósk og Steinunn
Camilla voru valdar úr hópi
fjölda ungra stúlkna sem áttu
sér stóra drauma um frægð
og frama. Stuttu síðar bætti
Einar hinni ljóshærðu og sætu
Emilíu Björg Óskarsdóttur við
hópinn.
Fyrsta plata sveitarinn-
ar hét 100% Nylon og önnur
platan, Góðir hlutir, kom út ári
síðar. Sveitin varð fljótt vinsæl
hjá yngri kynslóðinni og stelp-
urnar fengu sinn eigin sjón-
varpsþátt á Skjá einum.
Í júlí árið 2007 ákvað Emilía
að helga sig fjölskyldu sinni,
gifti sig og sagði skilið við
sveitina. Í fyrstu var ætlunin
að gera sjónvarpsþátt um leit-
ina að fjórðu söngkonunni en
stelpurnar ákváðu að lokum
að vera tríó. „Það hefur auðvi-
tað mikið breyst eftir að Emilía
hætti en þetta er bara nýtt
upphaf fyrir Nylon og spenn-
andi og krefjandi tímar fram
undan,“ sagði Klara í viðtali
við DV.
Eftir velheppnaðan Bret-
landstúr sveitarinnar þar sem
Nylon túraði með sveitum á
borð við Take That og Girls
Aloud sagði Einar skilið við
stelpurnar. Í kjölfarið fóru að
stað sögusagnir um að sveitin
væri að leggja upp laupana.
„Við erum alls ekki hættar,
langt í frá. Okkur langar að
skoða stefnu sveitar-
innar og pæla í þessu
á eigin tíma. Við erum
í raun að elta það sem
okkur finnst flott,“ lét
Steinunn hafa eftir sér.
Þrátt fyrir ævintýri
vinkvennanna hefur
Emilía látið hafa eftir
sér að hún sjái ekki
eftir ákvörðun sinni.
„Þetta er ákvörðun
sem ég er búin að
velta fyrir mér lengi.
Þetta var æðislegur
tími og ég vil takast á
við eitthvað nýtt. Það
er mikill skilningur
hjá Einari og stelp-
unum og við erum og
verðum áfram bestu
vinkonur. Við höfum
alltaf talað um að ef
einhver okkar vilji
breyta til að þá verði 100%
skilningur þar á. Við erum
búnar að færa miklar fórnir
undanfarin ár og það standa
allir á bak við mig,“ sagði Em-
ilía í viðtali við DV á sínum
tíma.
Nýju lögin fersk og flott
Einar Bárðarson hefur ennþá
fulla trú á stelpunum sem
hann „uppgötvaði“ á sínum
tíma. „Mér finnst nýju lögin
mjög spennandi og fersk.
Flottar melódíur og flott pró-
dúksjón,“ segir hann og bætir
aðspurður við að það sé erfitt
að segja hver slái í gegn og
hver ekki. „En sá sem hættir að
reyna slær klárlega ekki í gegn.
Þær eru ofboðslega duglegar,
ofboðslega trúar sjálfum sér
og fylgnar sér og á meðan þær
vinna svona vel og samvisku-
samlega þá eru allar líkur á
því að þær nái að slá í gegn.
Ég dáist að því á hverjum
degi hvað þær berjast og
ég er stoltur af þeim. Ég
vona að þær sanni það fyrir
heiminum að ég hafði rétt
fyrir mér þegar ég valdi þær
til að vinna saman. Þær eru
poppstjörnur og heimurinn
á skilið að fá að syngja og
dansa með þeim.“
Umkringdar fagfólki
Stelpurnar ásamt Jennifer
Nappi sem er danshöfundur.