Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2012, Side 37
Kynlíf, blóð og blótsyrði
37Helgarblað 2.–4. mars 2012
„Hér er vel að
verki staðið.“
„Gott en gæti
verið betra.“
Gulleyjan
Leikfélag Akureyrar
Dagleiðin langa
í Þjóðleikhúsinu
Uppáhaldsbókin?
„Það er bókin The Power of Now. Ég þurfti oft að kasta henni
frá mér við lesturinn og segja: Haltu kjafti hvað þetta er satt!“
Helgi Jean Claessen, ræstitæknir, rithöfundur og ritstjóri.
Tímalína The Charlies
2004 – Einar Bárðarson setur upp áheyrnarprufur í leit að stelpum til að
mynda stelpnahljómsveit og velur Ölmu, Klöru og Steinunni úr stórum hópi.
Stuttu seinni bætir hann Emilíu í hópinn.
2004 – Platan 100% Nylon kemur út og inniheldur meðal annars Lög unga
fólksins, Allstaðar, Fimm á Richter og Einhvers staðar einhverntíma aftur.
2005 – Platan Góðir hlutir kemur út. Upptökur fóru að mestu fram í
London.
2005 – Martin O’Shea er ráðinn umboðsmaður Nylon-flokksins í Bretlandi.
2005 – Bókin 100% Nylon fær Bókaverðlaun barnanna 2005. Marta María
Jónasdóttir skrifaði bókina.
2006 – Sveitin fer í túr um Bretland með hljómsveitunum Girls Aloud,
Westlife og McFly.
2006 – Þriðja platan kemur út. Platan heitir Nylon og inniheldur meðal
annars lagið Losing a friend en lagið náði 29. sæti breska vinsældalistans.
Lagið Sweet Dreams fór í efsta sæti poppdanslistans í Bretlandi.
2007 – Nylon sendir frá sér lagið Holiday en lagið var unnið og hljóð-
blandað í Murlyn en fyrirtækið hefur unnið með Jennifer Lopez, Enrique
Iglesias og Britney Spears.
2007 – Best of Nylon kemur út.
2007 – Emilía segir skilið við sveitina.
2008 – Einar Bárðarson hættir sem umboðsmaður sveitarinnar.
2009 – Stelpurnar breyta nafninu í The Charlies.
2010 – Stelpurnar flytja til Ameríku í leit að frægð og frama. Þær fara beint
í stúdíó og næla sér í plötusamning.
2010 – Stelpunum er boðið í partí í Playboy-setrinu.
2010 – Fighter on the Dancefloor kemur út en lagið er endurgerð af eitís-
smellinum Eye of the Tiger.
2011 – Klara, Alma og Steinunn senda frá sér mixteipið Start a Fire.
2011 – MTV-bloggarinn Bradley Stern velur lagið Let That Body Breathe
sem eitt af lögum vikunnar en þar með eru stelpurnar komnar í hóp með
Britney Spears og Rihönnu.
2011 – Lagið Fighter on the Dancefloor er spilað í raunveruleikaþættinum
Dancing with the Stars.
2011 – Myndband við lagið Monster (Eat Me)! vekur mikla athygli enda ljóst
að sveitin hefur skipt um gír og siglir nú á djarfari slóðir.
2012 – Stelpurnar gera myndband við lagið Tickin’ Like A Bomb.
n Stelpusveitin vinnur að nýju myndbandi n Gáfu sakleysið upp á bátinn n Sá sem hættir að reyna slær ekki í gegn, segir Einar Bárðarson
Verða að vera frægir
Frægðarsól íslensku kvenna-
sveitarinnar heldur áfram að
rísa. Alma, Klara og Stein-
unn virðast alveg jafn stað-
ráðnar í að slá í gegn og þær
voru þegar þær kölluðu sig
Nylon. Leyndarmálið er lík-
lega hvað þeim kemur vel
saman. Steinunn orðaði það
vel í viðtali við DV árið 2007.
„Ég geri mér svo vel grein
fyrir hvað ég er heppin. Það
vildu margar stúlkur vera
í mínum sporum. Ég er að
upplifa drauminn minn. Ég
er að syngja með bestu vin-
konum mínum. Þessar stelpur
eru það yndislegasta sem ég
veit um. Ég efast um að þær
geri sér grein fyrir því hvað
þær eru stór hluti af mínu lífi.
Við búum að sterku vináttu-
sambandi sem er öðruvísi en
allt annað,“ sagði Steinunn
sem hafði þetta um frægð-
ina að segja: „Tónlistarmað-
ur sem vill lifa á tónlistinni
verður að vera frægur. Ég er
ótrúlega, ótrúlega venjuleg
stelpa. Frægðin gerir mig bara
sterkari.“
Hægt er að hlusta á og hala
niður Tickin’ Like A Bomb
á vefnum thecharliesofficial.
com.