Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2012, Side 44

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2012, Side 44
44 Lífsstíll 2.–4. mars 2012 Helgarblað Ein milljón nýrra notenda á dag n Twitter vex og vex S amskiptavefsíðan Twitter stækkar gríðarlega ört en sam- kvæmt nýjustu upplýsingum bætist við ein milljón nýrra notenda á degi hverjum. Ellefu bæt- ast við á hverri einustu sekúndu. Samkvæmt viðskiptaáætlun Twitter er reiknað með að veltan verði 259 milljónir dollara í ár og að hún verði orðin 540 milljarðar eftir tvö ár. Þessi einfalda síða hefur náð langt á skömmum tíma. Twitter var stofnað árið 2006 af þeim Jack Dorsey, Biz Stone og Evan Williams. Síðan hét upphaflega Twttr en því var breytt sama ár. Ári síðar var síðan metin á 5 milljónir dollara og tveimur árum síðar var sú tala orðin 35 milljónir. Tölurnar eru ekki í lík- ingu við Facebook enda Twitter tölu- vert einfaldari og minni síða. Í dag eru þó 500 milljónir skráðar á síð- una, 100 milljónir nota síðuna á degi hverjum og eru tístin samtals 33 billj- ónir á dag. Twitter er hvað mest notað í Bandaríkjunum en þar eru ríflega 107 milljónir skráðar á Twitter. Næst- flestir nota Twitter í Brasilíu eða 33 milljónir og Japan er í þriðja sæti með 30 milljónir skráða notendur. Það var einmitt japanskur sjón- varpsþáttur, Castle in the Sky, sem olli mestu látunum á Twitter en á meðan hann var í gangi flugu ríflega 25.000 tíst á sekúndu. Lokamínút- ur Ofurskálarinn í Bandaríkjunum þann 5. febrúar koma næst en á þeim voru send yfir 10.425 tíst á sekúndu. Misheppnað forrit Samstarf Skype og Microsoft bar sinn fyrsta ávöxt í vikunni þegar smáforrit fyrir Skype varð nothæft á Windows-símann. Forritið var skotið niður á öllum helstu tækni- síðum Bandaríkjanna þar sem það virkaði ekki nægilega vel í bið- stöðu eða þegar var verið að nota önnur forrit. Ekki er hægt að taka á móti Skype-símtölum og tala í þeim nema forritið sé sjáanlegt á símanum, það er að segja ekki í bakgrunni. Sömu vandræði voru með Skype á iPhone áður en það lagaðist við útkomu iOS 4-stýri- kerfisins. Búist er við að þetta verði lagað hið snarasta og eru fleiri samstarfsverkefni Skype og Microsoft á leiðinni. Fyrirtæki fá tímalínuna Tímalínan á Facebook eða „Time- line“ verður nú aðgengileg fyrir „Pages“ jafnt og venjulega notend- ur. Það þýðir að fyrirtæki og aðrir sem notast við „Pages“ geti skoðað söguna aftur í tímann og notað allt það sem tímalínan býður upp á. Þau fyrirtæki sem hafa áhuga á að notast við tímalínuna geta strax hafist handa við að sníða hana að sínum þörfum í dag og er ekki seinna vænna því nýja útlitið verð- ur komið í skyldunotkun þann 30. mars. Tímalínan býður upp á tveggja dálka súlu þar sem meðal annars myndir eru mun meira áberandi. 25 handteknir Tuttugu og fimm manns, grun- aðir um aðild að hinum róttæka tölvuhóp Anonymous, hafa verið handteknir í verkefni sem kall- ast: „Operation Unmask“. Það var Interpol sem sá um að gera ras- síuna en hún fór fram í Evrópu og Suður-Ameríku. Var rassían gerð til að svara samrýmdum net- árásum Anonymous gegn stórum heimasíðum. Mennirnir 25 eru á aldrinum sautján ára til fertugs en þeir voru handteknir í Argentínu, Síle, Kólumbíu og Spáni. E kki er langt í að þú getir geng- ið um með borðtölvuna þína í vasanum. Bandaríska fyrir- tækið Canonical hefur nefni- lega tilkynnt um útgáfu á Android-snjalltækjaforriti sem ger- ir notendum kleift að setja upp Ubuntu-stýrikerfið á farsíma. Það virkar þannig að þegar símanum er stungið í samband við tölvuskjá, með símavöggu, umbreytist síminn í Ub- untu-borðtölvu. Þannig hefur not- andinn aðgang að öllum helstu þæg- indum borðtölvu í símanum. Notendur þurfa auðvitað ennþá að hafa skjá, lyklaborð og mús til- tæka en þessi nýja tækni gerir not- endum kleift að nota sömu tölvuna á mörgum mismunandi stöðum. Þannig gætu notendur farið heim með vinnutölvuna og svo framvegis. Mun ekki kosta krónu Eins og allur hugbúnaður sem Canonical framleiðir kostar þetta nýja snjallsímaforrit ekki neitt. Það sama á við um Android-snjall- tækjastýrikerfið, sem framleitt er af Goo gle. Notendur munu þó líklega vera meðvitaðri um að Ubuntu sé ókeypis frekar en Android þar sem snjallsímar með Android-kerfinu kosta allt upp í hundruð þúsunda króna. Ubuntu mun vera hægt að sækja endurgjaldslaust á tækið sem notendur eru þegar búnir að fjár- festa í. Þrátt fyrir að kerfið kosti ekki neitt þýðir það ekki að kerfið sé lélegt. Ubuntu fyrir hefðbundnar tölvur nýtur mikilla vinsælda og er Ubuntu vinsælasta Linux-stýrikerf- ið sem er í boði í dag. Android-kerf- ið byggir í raun á sama grunni og Ubuntu gerir og gefur það ákveðna von um að kerfin eigi eftir að virka vel saman. Sömu eiginleikar Þegar notendur setja upp Ubuntu á Android-snjallsímana sína finna þeir ekki mun á símunum fyrr en þeir stinga þeim í samband við vöggu. Þegar símanum er svo stung- ið í samband missir hann ekki þá eiginleika sem gera hann að síma. Notendur geta áfram tekið við skila- boðum og símtölum þrátt fyrir að síminn sé í notkun sem tölva og er í raun búið að búa svo um hnútana að hægt er að sinna skilaboðum og öðru beint af tölvuskjánum. Til þess að geta sett upp Ubuntu á Android þarf síminn að vera „dual core“, eða með tvöfaldan örgjörva. Þetta þýðir að ekki er gert ráð fyrir því að hægt sé að setja upp Ubuntu á ódýr Android-símtæki sem búin eru lágmarks búnaði. Gakktu með borð- tölvu í vasanum n Canonical ræðst inn á snjalltækjamarkaðinn með Ubuntu fyrir Android Þarf góðan síma Það þarf öflugan síma til að geta notað Ubuntu fyrir Android. Fuglinn frægi Það eru allir að tísta í dag. Ókeypis stýrikerfi Hvað er Ubuntu? Ubuntu er stýrikerfi sem byggir á Linux. Um er að ræða opinn hugbúnað sem þróaður er af notendum hugbúnaðarins í samvinnu við Ubuntu. Verkefnið er leitt af bandaríska fyrirtækinu Canonical sem hefur starfsstöðvar víðsvegar um heim. Ástæðan fyrir því að fyrirtækið er enn starfandi þrátt fyrir að hreinlega gefa aðalvöruna sína er að það veitir góða og umfangsmikla þjónustu í við- haldi og uppsetningu á Ubuntu-kerfis- lausnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.