Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2014, Page 4
Helgarblað 12.–15. september 20144 Fréttir
Quality power tools since 1919
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Hrærður en ekki hristur
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Drive-HM-140 1600W -
14cm hræripinni - 2 hraðar
22.990
Drive-HM-160
Tvöföld
1600W 2 hraðar
27.990
Eibenstock EHR
20/2,5 1300W
49.900
Drive-HM-120C
1200W - 12cm
Hræripinni -
2 hraðar
17.990
Eibenstock
1300W
0-580 snúningar
Þyngd 4,9 kg
140 mm
39.900
20 ára reynsla
af Eibenstock
vélum á Íslandi!
Ásbjörg Margrét hefur loksins fengið félagslegt húsnæði eftir sjö mánuði í bílnum
É
g er að koma mér fyrir, en
þetta er allt annað og hér líð
ur mér vel,“ segir Ásbjörg Mar
grét Emanúelsdóttir. Í sumar
greindi DV frá því að Ásbjörg
Margrét hefði búið í smábíl sínum frá
því í febrúar. Nú hefur hún fengið íbúð
á vegum félagsþjónustu. Íbúðina fékk
hún í lok síðasta mánaðar og hafði þá
verið í tæpa sjö mánuði á vergangi,
lengst af í bifreið sinni.
Ásbjörg Margrét er í hópi fjöl
margra heimilislausra einstaklinga
sem DV hefur rætt við á undanförn
um mánuðum. Ítarlegar fréttir hafa
verið sagðar af húsnæðisvanda fólks,
sem margt hvert er á vergangi milli
vina og vandamanna en aðrir bregða
á það ráð að flytja í bíla sína.
Skömmin var verst
Ásbjörg, sem er 67 ára öryrki, keypti
sér íbúð árið 2007. Í maí í fyrra var
íbúðin seld ofan af henni þar sem
Ásbjörg var tæknilega gjaldþrota og
hafði ekki bolmagn til að standa undir
afborgunum. 1. febrúar flutti hún svo
í bílinn. Meðalhiti í Reykjavík í febr
úar síðastliðnum var 1,7°C en lægst
fór hitinn niður í sex stiga frost. Við
tók löng bið eftir félagslegu húsnæði í
bílnum. Ásbjörg hafðist við á rólegum
stað í Breiðholtinu, en dvaldi á daginn
í Elliðaárdalnum. Hún komst á salerni
á bensínstöð kvölds og morgna. „Mér
finnst skömmin eiginlega verst. Mað
ur skríður beint inn í skelina og það er
erfitt að rjúfa þá einangrun,“ sagði Ás
björg við DV í júní. Einangrunin var
enda mikil og hafði Ásbjörg lítið við
að vera á morgnana annað en lesa
dagblöð og gera krossgátur. Hún fékk
stundum inni hjá vinkonu sinni þar
sem hún komst í sturtu og í þvottavél.
Fékk gistingu, fór svo á flakk
Ásbjörg fékk inni hjá tónlistarmann
inum Rúnari Þór Péturssyni sem átti
laust herbergi í íbúð sinni og ákvað að
bjóða henni þak yfir höfuðið á með
an hún kæmi undir sig fótunum. Rún
ar Þór sagði ekki hægt að horfa upp á
stöðuna eins og hún var. Ásbjörg var
um tíma hjá Rúnari, en ákvað svo að
fara í vesturátt á ferðalag og fór með
al annars á handverkshátíð á Hellis
sandi þar sem hún sýndi málverk sín
og fékk mikið hrós fyrir vinnu sína. Í
kjölfarið fór hún á Ísafjörð og dvaldi
þar um tíma, alltaf í bifreiðinni. „Ég
var hrædd um að ég yrði sett aftar á
biðlistana vegna þess að ég var komin
með tímabundið húsnæði hjá Rúnari
Þór. Það var gott að vera hjá honum og
ég er honum mjög þakklát,“ segir Ás
björg.
Hefur pláss fyrir listina
Nú eru bjartari tímar fram undan.
Ásbjörg segist hlakka mikið til að
hitta fólkið í blokkinni. „Ég bý í íbúð
fyrir 55 ára og eldri. Þetta er ljómandi
gott,“ segir hún. Hún hefur rými til að
sinna listinni, en það hafði hún ekki
í bílnum. Ásbjörgu, sem aldrei fell
ur verk úr hendi, gengur vel að koma
sér fyrir. „Það er æðislegt og það sem
ég þurfti. Að fá líka félagsskap eldra
fólks skiptir mig miklu máli.“ n
Komin heim
Ásbjörg hefur nú
komist í sitt eigið
húsnæði í íbúðum
fyrir einstaklinga
sem eru eldri en
55 ára. Hér líður
henni vel. Mynd ÞorM-
ar Vignir gunnarSSon
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
Bjó í smábíl Ásbjörg bjó í smábíl sínum í
sjö mánuði. Í aftursætinu geymdi hún rúm-
fötin sín, fatnað og aðrar eigur sem skiptu
hana miklu máli. „Fyrstu nóttina þá dúðaði
ég mig bara vel og hitaði bílinn áður en ég fór
að hátta. Svo tók ég svefntöflu og lagðist til
svefns,“ segir Ásbjörg. Mynd Sigtryggur ari
Mótmælti Ásbjörg tók sér stöðu með mótmælendum við þingsetningu Alþingis á þriðjudag.
Hér má sjá hana með mynd sem hún málaði þegar hún bjó enn í bílnum. Mynd ÞorMar Vignir gunnarSSon
Hefur pláss fyrir listina Geymslurými í
íbúðinni hefur Ásbjörg nýtt til listsköpunar.
Mynd ÞorMar Vignir gunnarSSon
„Hér líður mér vel“
„Mér finnst
skömmin
eiginlega verst
Kynfærasýning ekki rannsökuð frekar
Kæra á hendur séra Ninnu hefur verið felld niður
L
ögreglan á Selfossi hefur lok
ið rannsókn vegna kæru gegn
presti í sókninni. Presturinn
hafði verið kærður til lögreglu
fyrir að hafa leyft sýningu mynda af
kynfærum í kynfræðslustund. Lög
reglan hefur nú hætt að rannsaka
málið og telur ekki ástæðu til frekari
ráðstafana.
Presturinn sem var kærður er
æskulýðspresturinn í Selfosskirkju,
séra Ninna Sif Svavarsdóttir. Hún
hafði verið kærð til lögreglu fyrir brot
á barnaverndarlögum og brot á al
mennum hegningarlögum er varða
blygðunarsemi. Það var raunar Sig
ríður Dögg Arnardóttir kynfræðingur
sem sýndi myndirnar í kynfræðslu
tíma í kirkjunni. Sigríður Dögg hafði
verið fengin til að fræða fermingar
börnin um samskipti kynjanna og
nánd og var hluti af fræðslunni sýn
ing ljósmynda af mismunandi útliti
kynfæra.
Samkvæmt heimildum DV var
kæran lögð fram á hendur Ninnu Sif
og öðrum sem hugsanlega kunna að
bera ábyrgð á sýningu myndanna.
Heimildarmaður DV, sem tengist
kærendum, segir sýningu slíkra
mynda sambærilega því ef einhver
berar sig á almannafæri og gerist
með því brotlegur við lög.
Í umfjöllun Fréttatímans um mál
ið í síðasta mánuði kom fram að tek
ið hefði verið fram, áður en erindi
Sigríðar hófst, að fermingarbörn
mættu fara út ef þau vildu. Tvær
stelpur gerðu það skömmu eftir að
Sigríður Dögg hóf fyrirlestur sinn og
þrír strákar í kjölfarið. Haft var eftir
Ninnu að það hafi komið einhverjum
foreldrum á óvart þegar þeir fréttu af
því að börnunum hefði verið sýndar
ljósmyndir af kynfærum í kirkjunni
en enginn hefði kvartað. Þá er haft
eftir Sigríði Dögg að upplifun henn
ar væri sú að fermingarbörnin væru
ánægð með erindið. n
Selfosskirkja Málið hefur nú verið
fellt niður og ekki þykir frekari ástæða til
rannsóknar.
Sérfræðingar
funda um
mænuskaða
Mænuskaði, forvarnir,
gagnasöfnun og rannsóknir og
meðferð og umönnun þeirra
sem hlotið hafa mænuskaða er
umfjöllunarefni þriggja daga
fundar helstu sérfræðinga
heims á þessu sviði sem funda í
Reykjavík dagana 11.–13. sept
ember.
Fundurinn er liður í þeirri
dagskrá sem efnt er til á veg
um velferðarráðuneytisins á
sviði heilbrigðis og félagsmála
í tengslum við formennsku
Íslands í Norrænu ráðherra
nefndinni árið 2014. Alþingi
samþykkti í maí síðastliðn
um þingsályktun um aðgerð
ir í þágu lækningar við mænu
skaða. Var ríkisstjórninni falið
að fylgja eftir vitundarvakn
ingu um mænuskaða á al
þjóðavettvangi, jafnhliða
stuðningi við átak Sameinuðu
þjóðanna um bætt umferð
aröryggi. Einnig var kveðið á
um að stjórnvöld skyldu beita
sér á formennskuári Íslands í
Norrænu ráðherranefndinni
þannig að áherslu á mænu
skaða á formennskuárinu verði
fylgt eftir á næstu árum í nor
rænu samstarfi.
Meðal gesta á sérfræðinga
fundinum verður fulltrúi al
þjóðlegu bifreiðasamtakanna;
International Federation of
Automobiles, en þau sam
tök gegna lykilhlutverki í inn
leiðingu verkefna fyrir Sam
einuðu þjóðirnar á þeim áratug
sem helgaður er bættu um
ferðaröryggi. Á fundinum sitja
einnig sérfræðingar frá Íslandi
og fundinum stjórnar Kristján
Tómas Ragnarsson, yfirlækn
ir á Mount Sinaisjúkrahúsinu
í New York, sem hefur sinnt
þessum málum um árabil.